Morgunblaðið - 02.12.1964, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 02.12.1964, Qupperneq 17
Miðvikudagur 2. des. 1964 MORGUNB LAÐIÐ 17 Handbók stúd- enta komin út HANDBÓK STÚDENTA, 4. útg., er nýkomin út á vegum Stúd- entaráðs Háskólans. Bókin er hin myndarlegasta, 238 bls. að stærð og mun stúdentum og stúdents- efnum vafalaust þykja mikill fengur að henni. í formála, sem Auðólfur Gunnarsson, formaður Stúdentaráðs, ritar, segir, að bók in sé einkum ætluð nýstúdents- efnum, sem eru að undirbúa sig undir námsval, en auk þess eigi hún að geta komið þeim, sem eru við háskólanám, að miklum notum. Bókin hefst á kaflanum Nám Ihérlendis, og eru þar fyrst ýms- ar gagnlegar upplýsingar um Háskóla íslands, skrásetningu etúdenta o. s. frv. Síðan er fjall- að um námið, og skýrt frá því, hvernig kennsluárið skiptist í misseri, bent er á hið „akadem- iska frelsi“ og upplýsingar gefn- ar um nám í forspjallsvísindum. f>á eru kaflar um hinar einstöku deildir Háskólans, sem prófessor ar og kennarar Háskólans hafa saman tekið. Skýrt er frá náms- tíma, námstilhögun, námsefni, skrá er um kennslubækur og bent á möguleika að loknu námi. Annar meginkaflí bókarinnar nefnist Nám Erlendis, og er þar gerð nokkur grein fyrir háskóla- námi í allmörgum löndum. Er þessi kafli bókarinnar tekinn saman af Sambandi íslenzkra stúdenta erlendis. Greint er frá inntökuskilyrðum í hina erlendu háskóla og sagt frá námstilhög- un, námskostnaði og inntöku- skilyrðum, og hverjar þær upp- lýsingar veittar, sem íslenzkum stúdentum mega að gagni koma. Er hér mjög mikilvægur fróð- leikur fyrir íslenzka stúdenta, sem hyggja á nám erlendis. Lokakafli í Handbók stúdenta „Árin sem alldrei gieymost11 Ný bók eftir Gunnar M. Magnússon um fjallar um félagsmál. Skýrt er frá starfsemi stúdentaráðs, deild arfélögum, stjórnmálafélögum, kristilegum félögum og ýmsum öðrum. Handbók stúdenta er bók, sem allir nýstúdentar þyrftu að eign- ast. Hún hjálpar þeim til að taka ákvörðun um, hvert halda skuli í framtíðinni. FYRIR nokkru var frumsýnd í Bandaríkjunum, Englandi og Frakklandi ný Mvikmynd „The Night og the Iguana“ byggð á leikriti Tennessee Williams. Myndin vakti mikla Frábær leikur aöalleikendanna í myndinni The night of the Iguana ísland og seinni heimsstYrjöldina BÓKAÚTGÁFAN Skuggsjá hef ur sent á markaðinn nýja bók eftir Gunnar M. Magnúss, stóra í sniðum, myndskreytta og for- vitnilega þeim íslendingum sem xifja vilja upp hinn sérkennilega tíma seinni heimsstyrjaldar þeg- ®r ísland var í fyrsta sinn her- Gunnar M. Magnúss eetið. Bókin ber nafnið „Árin eem aldrei gleymast“ og fjallar um ísland og heimsstyrjöldina eíðari. Þar segir frá miklum og örlagaríkum atburðum: frá stór- veldanjósnum á íslandi, frá skjóli Bem ísland veitti hundruðum ekipa þegar kafbátar og bryn- drekar öslúðu við strendur lands ins, frá mestu sjóorustu veraldar 6em hófst við íslandsstrendur, írá mannfórnum íslendiraga á 6tríðsárunum og hinum annáluðu björgunarafrekum þeirra á sama skeiði, frá blóðblöndun og „á- standsmálum“, frá hantökum og brottflutningi ísfirzkra borgara og íslenzkra blaðamanna, frá Arctic-málinu og fangelsunum á Kirkjusandi, og síðast en ekki sízt geymir bókin hina minnis- verðu frásögn af hernámsdegin- um 10. maí 1940, sem lengi mun vitnað til. Margir kaflar bókar- innar segja frá hörkuspennandi atburðum, svo sem útilegumönn- unum á Austfjörðum og Þjóðverj anum sem var heilt ár á flótta milli Látrabjargs og Horrabjargs og leyndist fyrir Bretum allan þann tíma. Hér koma margir fslendingar við sögu, sem voru í blóma lífsins þegar atbur'ðirnir gerðust og eru enn mitt í dagsins önn. En bókin mun líka verða fróðleiksraáma þeirri kynslóð sem vaxið hefur úr grasi eftir heimsstyrjöldina og hefur hug á að kynna sér þetta einstæða tímabil í sögu íslands. „Árin s6m aldrei gleymast“ er 368 blaðsíður að stærð og prýdd fjölda mynda frá styrjaldarárun- um. Bókin er prentuð í Alþýðu- prentsmiðjunni. athygli meðan á töku hennar stóð, ekki sízt vegna þess að Richard Burton leikur aðal- hlutverkið og eiginkona hans, Elizabeth Taylor, taldi hon- um ekki óhætt í hópi meðleik enda sinna, en þar á meðal eru Ava Garner, Deborah Kerr og Sue Lyon. Elizabeth og Richard voru ekki gift, þegar myndin var tekin í smá þorpi í Mexíkið, en hún dvald ist þar meðan á tökunni stóð og vakti yfir hverju fótmáli hans. „The Night of the Iguana" hefur ekki fengið sérlega góða dóma, en John Huston stjórnaði töku hennar. Hins vegar segja margir gagnrýn- endur leik Burtons , Övu Gardner og Deborah Kerr, alveg frábæran. Einn kvikmyndagagnrýn- andi „The New York Times“ segir m. a., að „The Night of the Iguana" komi alls ekki heim við kenningu margra um, að leikarar og leikkonur „The Night of the Iguana“ geti ekki sýnt snilld í leik, nema því aðeins verkið, sem þau leiki í, sé listaverk frá leikrænu sjónarmiði. Þótt leikrit Tennessee Williams sé ef til vill skrifaí Sovétsljérnín býður heim iorsætksráðhemun Norðnrlanda Stokkhólmi, 27. nóv. — NTB. I egs, Svíþjóðar, Danmerkur og FORSÆTISRÁÐHERRUM Nor- | Finnlandsforseta hefur verið boð Eins og skýrt var frá í blaðinu í gær, kom upp eldur í kyndiklefa íþróttahússins að Hálogalandi. Hér er mynd af kyndiklefanum, en rífa varð þak hans til að slökkva eldinn. (Ljósm. Sv. Þorm.) af snilld, verði mörg atriði þess eins og skopstæl- ing á kvikmyndatjaldinu undir stjórn Johns Hustons. Síðan segir gagnrýnandi „The New York Times“ m.a.: Kvikmyndin gerist á einangr- uðu gistihúsi á strönd Mexíkó. Bandarískur prestur, sem sviptur hefur verið kjól og kalli, vegna ástarævintýris með kennslukonu í sunnu- dagaskóla, hefur gerzt leið- sögumaður ferðamanna. Hann kemur til gistihússins með lengferðabíl fullan af við- skiptavinum, en gistihúsið rekur örlát kona, sem flúið hefur frá Bandaríkjunum í einangrunina. Hún og prest- urinn fyrrverandi áttu sam- an ástarævintýri á æskuárum sínum, og hún vonar, að hann sé kominn til þess aðendur- hýja kunningsskapinn. I gistihúsinu dvelst mið- aldra piparmey frá Nýja Eng- landi, sem málar falleg mál- verk, og faðir hennar, aldrað- ur, sem hefur ferðazt um frumskógana. Eftir að allir aðrir gestir hafa yfirgefið gistihúsið, sezt þessi ferhyrn- ingur niður og ræðir vanda- mál sín eina nótt. Að morgni eru öll vandamálin leyst. ið til Sovétrikjanna og hafa þeir allir þekkzt boðið. Urho Kekkon en, Finnlandsforseti, fer til Moskvu á leið sinni til Indlands í marz næsta ár, en ekki er vitað hvenær verður af heimsókn for- sætisráðherranna. Jens Otto Krag fékk heimboð sitt fyrir nokkrum dögum og fóru menn þá að leiða ýmsum getum að því, hvort eitthvað byggi undir, en þegar tilkynnt var í dag, að bæöi forsætisráð- herra Noregs, Einar Gerhardsen og Tage Erlander, forsætisráð- herra Svíþjóðar, hefðu fengið samskonar heimboð, þótti ein- sýnt, að hinir nýju valdhafar í Sovétríkjunum vildu fyrst og fremst kynnast stjórnarleiðtogun um á Norðurlöndunum og koma á framfæri við þá ýmsum áhuga málum sínum, Fyrir dyrum standa nú mikilvægar viðræður um verzlunarmál milli Norður- landanna og Sovétríkjanna. Erlander heimsótti Sovétrikin síðast árið 1955 og höfðu þeir þá komið þangað báðir Einar Ger- hardsen og starfsbróðir hans þá- verandi í Danmörku. Heimsókn- ir þessar urðu tilefni tii Noröur landaheimsóknar Krúsjeffs, sem þó ekki varð af fyrr en í sumar er leið. Jens Otto Krag, forsætis ráðherra Danmerkur var í Sovét- ríkjunum í febrúar í fyrra. Faðirinn gamli finnur frið í dauðanum, presturinn fyrr- verandi og eigandi gistihúss- ins finna ástina á ný, og lista- konan snýr út í heiminn frjáls og óháð. Hins broslegu atriði kvik- myndarinnar njóta sín vel, eins og Huston gerir þau úr garði, t. d. gestirnir, sem eru sí kvartandi og yfirgefa gisti- húsið að lokium, tilraunir unglingsstúlkunnar frá Texas, til að fá prestinn fyrrverandi til fylgilags við sig, og hin afbrýðisama gæzlukona henn- ar. En þau atriði, sem rista dýpra, bera aðalleikendurnir einir uppi. Lekiur Richards Burtons í hlutverki prestsins er stórkostlegur. Ava Gardn- er gerir hlutverki hinnar léttúðu hótelstýru mjög góð skil og sama má segja um Deborah Kerr í hlutverki piparmeyjarinnar. Sue Lyon, unga stúlkan, sem varð fræg fyrir leik sinn í kvikmynd- inni „Lolitu“, er sannfærandi í hlutverki unglingsins frá Texas, sem presturinn lítur ekki við, þrátt fyrir ítrekað- ar tilraunir hennar til að töfra hann. Kveðjuhóf á Varmalandi BORGFIRÐINGAR héldu síðast liðinn laugardag kveðjusamsæti til heiðurs Þórði Oddssyni, sem verið hefur héraðslæknir á Klepp járnsreykjum í 14 ár, en flyzt nú til Borgarness og tekur við stöðu héraðslæknis þar, af Eggert Einarssyni, sem lætur af störfum fyrir aldurs sakir. . Kve'ðjuhófið var haldið í Hús- mæðraskólanum að Varmalandi. Borgfirðingar fjölmenntu o.g voru saman komin um 200 manns, auk Þórðar, konu hans, Sigrúnar Kjærnested, barna þeirra og tengdabarna. Ræður fluttu m.a. séra Guðmundur Sveinsson, skóla stjóri Samvinnuskólans í Bifröst, og séra Einar Gúðnason í Reyk- holti. Veizlustjóri var Guðmund- ur Jónsson, skólastjóri Bænda- skólans á Hvanneyri. ATHUGIÐ að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa i Morgunblaðinu en öðrum blöðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.