Morgunblaðið - 02.12.1964, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.12.1964, Blaðsíða 28
rtgtmfrfstfrifr 273 tbl. — Miðvikudagur 2. desember 1964 Slys í hálkunni í GÆRKVÖLDI var gífurlega hált á Hafnarfjarðarveginum og var það orsök slyss, sem varð ora kl. 9 rétt fyrir sunnan Engi- dal. Tveir fólksbilar, G-1764 og R-6975, rákust saman. Höfðu bíl stjórarnir reynt að bremsa, en þeir runnu hvor á móti öðrum og síðan til hliðar og skullu sam- an. Tvennt var í Reykjavíkur- bílnum og tvennt í G-bíinum, og meiddust allir eitthvað, en mest Nanna Ásmundsdóttir, Langeyr arvegi 11 í Hafnarfirði. Fékk hún höfuðhögg og var flutt á Slysa- varðstofuna og síðan á Lands- spitaiann. Frá samkomunni í hátíðasal Háskóla íslands í gær. í fremstu röð sitja dr. Alexander Jóhannesson, fyrrverandi háskólarekt- or, dr. Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og herra Ásgeir Ásgeirsson, forseti íslands. — (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) Frá fullveldishátíð 1. desember Efling háskólans menntun á íslandi Frd hdtíðahöldum stúdenta — úr ræðu rektors: fjölgun stúdenta, nýjar kennslugreinir Akureyrarbær kaupir bókasafn Davíðs 1325 Akureyriugar skora á bæjarstjdrn að kaupa einnlg húsið STÚDENTAR gengust að venju fyrir hátíðahöldum á fullveldis- daginn, X. desember. Stúdenta- félag Reykjavíkur stóð fyrir full veldisfagnaði að Hótel Borg að kvöldi 30. nóvember og sá um útvarpsdagskrá í gærkvöldi, en háskólastúdentar stóðu að sam- komu í hátíðasal skóla síns í gær, messugerð í kapellu skólans í gærmorgun og fullveldisfagnaði í Hótel Sögu. Háskólarektor, Ár- mann Snævarr, prófessor, var að alræðumaður dagsins á sam- komunni í háskólanum, og fjall aði um cflingu háskólans og ís- lenzkrar vísindastarfsemi. Mikil þátttaka var á hátíðahöidunum. Stúdentahlað og Kristilegt stúd entablað komu út. Fullveldisfagnaður Stúdenta- félags Reykjavíkur hófst með þorðhaldi í Hótel Borg kl. 19. Ræðumaður var Jónas Haralz, hagfræðingur, Guðmundur Jóns son og Kristinn Hallsson sungu glúnta, og Ómar Ragnarsson og æðri DAGAR I TIL JÖLA | skemmti. Fagnaðurinn stóð til kl. 3. Háskólastudentar helguðu há- tíðahöldin 1. desember að þessu sinni Háskóla íslands og fram- tíð æðri menntunar á íslandi. Hátíðahöld þeirra hófust kl. 10:30 með messu í háskólakapell unni. Bragi Benediktsson, stud. theol., predikaði en séra Frank Halldórsson þjónaði fyrir altari. Guðfræðinemar sungu undir stjórn Guðjóns Guðjónssonar, stud. theol. Kl. 14 hófst samkoma í hátíða sal háskjólans. Formaður hátíðanefndar, Ás- mundur Einarsson, stud. jur. setti samkomuna. Sagði hann m.a., að vöxtur og viðgangur þjóðfélags- ins ylti æ meira á því, hvernig til tækist við að afla yfirgripsmik illar, vísindalegrar þekkingar og hagnýta hana. Það væri mál þjóð arinnar allrar. Því hefðu stúd- entar að þessu sinni ákveðið að AKUREYRI 1. des. — Bæjar- stjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum í dag að kaupa bókasafn Davíðs Stefánssonar fyrir matsverð, 2 millj. 824 þús. kr., og koma því fyrir í sérstök- um minningarsal í húsi því, sem nú er verið að reisa yfir Amts- bókasafnið. Erfingjar Davíðs gefa hins vegar húsgögn, mál- verk og listmuni, sem Davíð átti. Samningurinn við erfingjana v'ir samþykktur með 10 atkvæðum, en einn bæjarfulltrúi sat hjá. Vilja að húsið sé líka keypt Fyrr í dag barst bæjarstjóra heft bók með nöfnum 1325 Akur eyringa, sem skora á bæjarstjórn að sjá til þess að húsi, bókum og munum verði ekki sundrað, heldur komizt allt í eigu Akur- eyrarbæjar, eins og skáldið skildi við það. Áskorendalistarn- ir voru gerðir að tilhlutan nokk- urra áhugamanna um helgina, eftir að kunnugt varð á laugar- daginn að samningar milli erf- ingja og bæjarstjórnar væru komnir á lokastig og skv. peim ætti ekki að kaupa bústaðinn. Aðeins rúmur sólarhringur var til stefnu fyrir þá, sem rita vildu nöfn sín á listana, en samt varð þátttakan eins og fyrr greinir. Má af því marka að mörgum er mikið í mun að heimili Davíðs megi varðveitast óraskað, enda er málið mikið hitamál í bæn- um og mikið rætt hvar sem menn koma saman. Bænum ofviða að kaupa Málið var tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundarins eftir að hin fjölritaða dagskrá var tæmd. Bæjarstjóri fylgdi því úr hlaði með stuttri ræðu. Hann kvað samninga við fulltrúa erfingj- anna hafa staðið yfir frá því 1 vor. Erfingjar gáfu bænum kost á að kaupa hús skáldsins og bókasafn fyrir matsverð, en buð ust til að gefa húsgögn, persónu- lega muni og listaverk. í ljós hefði komið, að Akureyrarbæ hefði verið talið ofviða að kaupa Framhald á bls. 27 Sjálfstæðisfólk munið spilakvöld Sjálfstæðis- félaganna í kvöld Framhald á bls. 8 Kári Helgason í bókasafni sínu. Hann heldur á Summariu. Stærsta bókasaf n í einka- eigu á íslandi til sölu Kári B. Helgason auglýsír safn sitt AUGLÝST er til sölu í blað- inu í dag stærsta bókasafn, sem verið hefur í einkaeigu á í.slandi, að því er talið er. Þetta er bókasafn Kára Borg- fjörðs Helgasonar, kaup- manns, sem fyrir rúmum tveimur árum keypti hið mikla bókasafn Þorsteins heitins Þorsteinssonar sýslu- manns, en síðan hefur það verið mikið bætt og aukið, bæði með stóru bóka- og tíma ritasafni, sem Kári átti fyrir, og einnig hefur verið í það bætt síðan og er nú búið að skrásetja safnið allt. Biður Kári í auglýsingunni um til- boð í safnið, en þess má geta að hann upplýsti í febrúar að hann hefði það tryggt fyrir 3 millj. kr. Vísað er á Böðvar Kvaran til upplýsinga um bókasafnið, en hann hefur í undanfarin 2 ár unnið að því að skrásetja tþað. Mbl. hafði samband við hann og kvaðst hann gizka á J að í safninu væru 15 þús. I bindi, þar með taldir pésar og * mikið af bókum, sem ógerlegt |l er að fá nú. Safninu hefur 7 Fram'hald á bls. 27 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.