Morgunblaðið - 04.12.1964, Qupperneq 3
f Föstudagur 4. des. 1964
MORGUNBLAÐIÐ
3
\
!
I
|
i
Þannig leit búsið út eftir brunann í fyrrakvödd.
Örlög
gamals
húss
EINS OG skýrt hefur verið
frá í blaðinu, kom upp eldur
í gömlu verzlunarhúsi við
Strandgötu 50 í Hafnarfirði i
fyrrakvöld. Þetta gerðist
skömmu eftir klukkan tíu. —
Slökkvilið Hafnarfjarðar k»m
fljótt á vettvang og tókst að
ráða niðurlögum eldsins eftir
klukkustundarstarf. Ekki er
þó öll sagan sögð, því að um
5 leytið um nóttina, gaus eld
ur upp enn á ný. Maður var á
vakt við húsið og kvaddi hann
slökkviliðið aftur á vettvang,
sem réði niðurlögum eldsins
á skömmum tíma.
Þetta gamla verzlunarhús,
sem um langan tíma héfur
sett svip á bæinn, er mjög
grátt leikið af eldinum. Þarna
var til húsa húsgagnaverzlun
in Sófinn, eign Jens Jónssonar
og hefur hann orðið fyrir mjög
tilfinnanlegu tjóni. Að því er
Gísli Jónsson, slökkviliðs-
stjóri, tjáði blaðinu, tókst
engum innanstokksmunum að
bjarga, en hins vegar tókst að
bjarga mikilvægum skjölum
varðandi viðskiptin, nótum, að
vísu illa leiknum, en þó svo
útlítandi að verzlunareigandi
taldi sig geta lesið það. Elds
upptök eru enn ókunn, en tal
ið er líklegt, að eldurinn hafi
átt upptök í bakherbergi.
Þótt húsið við Strandgötuna
hafi ekki verið ýkja rismikið,
átti'þrað að baki langa sögu,
myndríka og merkilega. Víst
er um það, að mörgum Hafn
firðingum, sem komnir eru til
ára sinna, mun þykja að því
nokkur sjónarsviptir. Húsið
var eitt hinna elztu í Hafnar
firði og saga þess í nánum
tengslum við viðskiptalíf
staðarins frá fyrstu tíð.
Blaðið leitaði til þess Hafn
firðings, sem það vissi fróð-
astan um æviskeið hússins,
Jóns Gests Vigfússonar, gjald
kera í Sparsjóði Hafnarfjarð-
ar, og bað hann rekja sögu
þess í stórum dráttum, en Jón
starfaði innanbúðar hjá Böðv
arsbræðrum í þessu merkilega
verzlunarhúsi á árunum 1914
til 1923.
Jón sagði: „Húsið var reist
allnokkru fyrir aldamót og
reisti það Einar Einarsson, org
anisti. Var húsið nefnt organ
istahúsið meðan hann átti það.
í upphafi stóð húsið nokkru
norðar en þar sem nú er Suð-
urgata 13, en rétt fyrir alda-
mótin var það flutt „niður á
mölina", sem kallað var eða
Hamarkotsmöl og staðsett við
hliðina á brauðgerðarhúsi,
sem Proppé átti. Húsið átti
skömmu fyrir aldamót Þor-
steinn Egilsson, en hann seldi
það Pétri Thorsteinsson þeim
kunna athafnamahni frá Bíldu
dal, sem notaði húsið sem
pakWhús.
Pétur seldi húsið síðan
dönsku hlutafélagi, Milljónafé
laginu, sem notaði húsið sem
fiskhús. í tíð Milljónafélags-
ins var reist áfast því fyrsta
þurrkhús í Hafnarfirði og var
innangengt milli húsanna. Á
lofti var þá seglaverkstæði.
Þegar Milljónafélagið dró
saman seglin, árið 1914,
keyptu Böðvarsbræður húsið
og ráku í því útgerð, fiskverk
un og verzlun. Bræðurnir
færðu gamla þurrkhúsið í
burtu og innréttuðu húsið í
búðarstil. Fékk þá húsið þann
svip, sem það hefur borið síð
an.
Þegar Böðvarsbræður hættu
búðarrekstri, eignaðist Lands-
bankinn húsið, en skömmu fyr
ir 1950 keypti Jóhann Peter
sen húsið af bankanum og rak
þar verzlunina Álfafell í all
mörg ár.
Tshombe heim úr
Frakklandsför
Leopoldville, 3. des. (NTB)
MOISE Tshombe, forsætisráð-
herra Kongó, kom heim í dag úr
Frakklandsför sinni. Á flugvell-
inum lýsti hann því yfir að sér
hefði verið vel tekið í Frakklandi
og árangur af för hans þangað
hafi verið jákvæður.
Á flugvellinum í Leopoldville
biðu menn þess einnig, að flug-
vél flytti þangað evrópska flótta-
menn frá Poko-svæðinu í norður-
hluta Kongó. Brottför vélarinnar
var hinsvegar frestað og var vél-
in ókomin til Leopoldville í
kvöld.
Sendiráði Bandaríkjanna í
Leopoldville hefur verið tilkynnt
að stjórnarhermenn, sem héldu
inn í bæinn Bunia fyrir þremur
dögum, hafi fundið 39 trúboða og
21 nunnu á lífi. Þrír prestar og
tvær nunnur höfðu verið drepin
af uppreisnarmönnum. Engar
upplýsingar liggja fyrir um 250
Grikki, sem taldir eru einhvers-
staðar á þessum slóðum.
Frá Stanleyville bárust þær
fregnir seint á miðvikudagskvöld
að stjórnarherinn hafi fínkembt
svertingjahverfi borgarinnar og
handtekið 10,000 svertingja. Þeim
er haldið á knattspyrnuvelli í
borginni, og á að yfirheyra þá
alla til að ganga úr skugga um
hvort einhverjir þeirra tilheyri
liði uppreisnarmanna.
Samhlaup Kíitverfa og
Indónesa gegn IMalaysíu
Styrj aldcirástand ríkir nú ndnast
milli landanna
Jakarta og Kuala Lumpur,
3. des. (NTB-AP)
INDÓNESAR hafa staðfest, að
þeir muni styðja þá kröfu kín-
versku kommúnistastjórnarinnar
að hún verði viðurkennd sem
hinn rétti aðili til að fara með
sæti Kína hjá Sameinuðu þjóð-
unum. 1 sameiginlegri tilkynn-
ingu, sem út var gefin að lokinni
viku heimsókn utanrikisráðherra
Pekingstjórnarinnar, Chen Yi, til
Indónesiu, segir einnig, að Kín-
verjar muni styðja þá stefnu
Indónesa, að ráða nigurlögum
Malaysíu, „þessu tækl brezkrar
nýlendustefnu“, eins og það er
•rðað í tilkynningunni.
Forsætisráðherra Malaysíu,
Tunku Abdul Rahman, lýsti því
yfir í dag, að aðför Indónesíu að
Malaysíu hafi nú tekið á sig þá
mynd, að styrjaldarástand ríkti
milli landanna. Hann upplýsti
ennfremur, að Malaysía hafi
spurzt fyrir um það, fyrir milli-
göngu Thailands, hvort Indónes-
ar telji styrjaldarástand ríkja. —
Telji Indónesar svo vera, gæti
það haft hinar alvarlegustu af-
leiðingar fyrir þá 300 Indónesíu-
hermenn, sem föngnum er haldið
í Malaysíu. Rahman kvað stjórn
Malaysiu mundu taka upp þetta
fangamál á Allsherjarþingi SÞ
„til að sýna að við séum sið-
menntuð þjóð, sem hlíta vill regl-
um Sameinuðu þjóðanna“.
Treg síldveiði
Ólafsvíkurbátca
ÓLAFSVÍK, 3. des.
Treg síldveiði hefir verið hjá
Ólafsvikurbátum í haust á mið-
unum út af Jökli. Hefir dregið
talsvert úr aflabrögðum vegna
stirðrar tíðar og bátarnir legið
vikum saman hér í höfn.
Síldin, sem borizt hefir hingað,
er söltuð, fryst eða sett í bræ’ðslu
Tvær söltumarstöðvar starfa hér,
Kirkjusandur h.f., þar sem salt-
aðar hafa verið 1400 tunnur og
6300 frystar, og Hraðfrystihús
Ólafsvíkur, en þar hafa verið
saitaðar 2il00 tn. og 5000 frystar.
Afli bátanna, sem hafa verið
á síldveiðum út af Jökli, er sem
.ér segir: Valafell 4800 tunnur,
Jón Jónsson 3500, Steinunn 2100
Stapafell 2000.
Síldarbátarnir voru allir á sjó
í dag eftir nokkurra daga land-
legu.
Engir bátar héðan eru nú á
Austfjarðamiðum. — Fréttaritari
Rangt föðurnafn
FÖÐURNAFN Viktors Heiðdals
Aðalbergssonar misritaðist í
grein í blaðinu í gær. Var hann
á einum stað sagður Aðalsteins-
son. Leiðréttist þetta hér með.
í GÆR var hægviðri með 4 átt, víða allhvasst á morgun
til 10 st. frosti um allt land. og dálítil snjókoma e'ða slydda
Vestan Grænlands var mikil Norðurland og miðin: Hæg-
lægð á hreyfingu NA-eftir og viðri og léttskýjað með köfl-
jafnframt ný lægð að myndast um.
yfir Grænlandi. Er því búizt Austfirðir og miðin: Norðan
við byrjandi sunnanátt og kaldi í nótt en hægviðri og
mildara veðri hér á landi í bjart í nótt, SA kaldi og snjó-
dag. koma siðd..
Austfj.djúp: Norðan stinn-
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi ingskaldi fyrst en gola síðd.
SV-land, Faxaflói og miðin: og hægviðri méð kvöldinu, él.
Vaxandi SA átt, stinnings- Horfur á laugardag
kaldi en allhvasst á miðunum Austan átt og él á annesjum
með snjókomu í fyrramálið en fyrir norðan, SV átt á sunnan
síðar rigningu, sennilega SV verðu landinu, dálítil slydduél
kaldi og súld með kvöldinu. vestanlands og sunnan en
Breiðaíj., Vestfirðir og mið bjart á Austurlandi og í inn-
in: Vaxandi SA- og austan sveitum austan lands.
STAKSTEIiVAR
Vísindin í sókn
Um allan heim leggja þjóðim
ar nú kapp á hagnýtingu visinda
og fjölþættrar rannsóknarstarf-
semi i þágu bjargræðisvega
sinna. Ehmig hér á landi rikir
á þessu vaxandi skilningur. Hér
í blaðinu hefur undanfarið ver-
ið lögð áherzla á það, að Islend
ingar efli rannsóknarstarfsemi
og vísindi í þágu atvinnuveg-
anna. í gær birti svo Alþýðublað
ið forystugrein, þar sem m.a. er
komizt að orði á þessa leið:
„Sókn vísindanna hefur aldrei
verið hraðari en nú á dögum.
Viku eftir viku senda rannsókna
og tilraunastöðvar um allan
heim frá sér nýjar uppgötvanir,
sumar um grundvallaratriði, sem
víkka landhelgi mannlegrar
þekkingar, en aðrar hagnýtar og
beinlínis til þess ætlaðar að
létta lífsbaráttu «og auka lífs-
þægindi mannkynsins“.
Heimiliserjur þjóð-
fylkingarmanna
Smávægilegra heianiliserja
hefur undanfarið orðið vart á
milli - Framsóknarmanna og
kommúnista. Þjóðviljanum falla
ekki i geð bollaleggingar Fram
sóknarmanna um tveggja flokka
kerfið, sem byggist á þvi að hin
gamla Framsóknarmaddama
gleypti bæði Alþýðuflokkinn og
Sameiningarflokk alþýðu, Sósial
istaflokkjinn. Þykir kommúnist-
um sem skörin sé þá farin að fær
ast upp i bekkinn, þegar Fram-
sóknarmenn hafa uppi slikar
ráðagerðir.
Tíminn svarar i gær gagnrýni
kommúnista ma. með þessum
orðum:
„1 stjórnmálaályktun þeirri,
sem 14. flokksþing Sósialista-
flokksins samþykkti, fjallar heill
kafli svo að segja eingöngu um
Framsóknarflokkftnn og hættuna
scm kommúnistar telja' af hon-
um stafa í íslenzkum stjórnmál-
um, og þá einkum í verkalýðs-
málum. Aðrir flokkar fá hins-
vegar fljóta og mjúklega af-
greiðslu í ályktuninni. Gegn
Framsóknarflokknum er hins-
vegar rekið upp neyðaróp og
hættulegast af öllu talið, að Fram
sóknarflokkurinn heldur því
fram, að eina haldbæra ráð frjáls
lyndra íhaldsandstæðinga sé að
fylkja sér saman í einum sterk-
um flokki gegn íhaldsöflunum".
Kjarni málsins er sá, að komm
únistar eru nú að byrja að gera
sér það ljóst, að þjóðfylking
þeirra með Framsóknarmönnum
er ekki vænleg til þess að auka
traust þeira og fylgi meðal verka
lýðs og launamanna.
Austri
og mannæturnar
Kommúnistar á íslandi hafa
að undanförnu mótmælt því harð
lega, ásamt skoðanabræðrum sín
um víða um heim, að nokkur
hundruð hvítum mönnum, þar á
meðal konum og börnum, hefur
verið bjargað úr klóm morðingja
og mannæta í Kongó. Gefa um-
mæli Austra í „Þjóðviljanum"
í gær nokkra hugmynd um hug-
arástand og menningarstig eins
aðalleiðtoga kommúnista hér á
landi, en hann kjamst m.a. að
orði á þessa leið:
„Ekki veit ég sönnur á því,
hvort rétt er að styrjöld hinna
vestrænu menningarríkja í
Kongó hafi leitt til þess að ein-
hverjir innbornir menn hafi
tekið upp mannát að nýju. Hitt
sýnist mér augljóst að þeir sem
kunna að drepa mann til matar
standi á mun hærra menningar-
stigi en hinir, sem ekki hafa einu
sinni þá afsökun að þeir séu að
deyja úr hungri í eyddu og
hrjáðu landi, heldur myrða fólk
eingöngu af mannúð og kristi-
legum siðgæðisþroska!!M
y
C