Morgunblaðið - 04.12.1964, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 04.12.1964, Qupperneq 6
6 MORGU NBLADIÐ Föstudagur 4. des. 1964 30 millj. kr. verðmæti frá BREIÐDALSVÍK, 25. nóv. — Tíðarfar má teljast gott á þessu hausti þótt talsverður frostakafli kæmi var víðast lítill snjór. Sumir dalabændur hýsa þó fénað. Vegir eru svellaðir á köflum, en teljast þó færir. Síldarbræðslu er nú lokið og væntaniega fer síðasta síldar- mjölið um næstu helgi. Tæp 300 tonn af síldnrlýsi er hér enn. Saltsiid verður send um næstu mánaðamót. Nokkuð af kjötinu er þegar farið og gærur munu fara bráðlega. Likur benda til >að útfluttningsverðmæti vara héð- an nálgist 30 miUjónir á þessu ári. Eitt brýnasta verkefni næstu ára er að bæta hér hafnarskil- yrði, og verður .að stefna að því að byggja lokaða höfn en að- * Anægjulegt haustmót HAUSTMÓT Sjálfstæðismanna í Kjósarsýslu var haldið í Hlé- garði, Mosfellssveit, föstudaginn 20. nóvember sl. Páll Ólafsson, bóndi, formaður Sjálfstæðisfé- lagsins „Þorsteinn Ingólfsson", setti mótið og stjórnaði því. — Ávörp fluttu Ingólfur Jónsson, landbúnaðarráðherra, og Sverrir Júlíusson, alþingismaður. Karl Guðmundsson, leikari, flutti skemmtiþátt og að lokum var dansað. Haustmót Sjálfstæðismanna í Gullbringusýslu var haldið í Sandgerði, laugardaginn 28. nóv. sl. Einar Halldórsson, bóndi á Setbergi, formaður Kjördæmis- ráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi, setti mótið og stjórnaði því, en það hófst með sameiginlegri kaffidrykkju. Ávörp fluttu Bjarni Benedikts- son, forsætisráðherra, og Axel Jónsson, alþingismaður. Leikar- arnir Róbert Arnfinnsson og Rúrik Haraldsson, skemmtu og að lokum var dansað. Mótin voru fjölsótt og var þar samankomið fólk úr öllum hrepp um sýslnanna. Flugtími Pan-Am- vélanna EINS OG frá var skýrt í blaðinu í gær setti Pan-American áætl- unarþota hraðamet frá New York til Keflavíkur aðfaranótt þriðjudagsins. Jafnaðarlega eru þotur félags- ins, sem eru af DC-8 gerð, 5 klst. á leiðinni frá New York og hingað, en geta verið nokkru skemur. Þær eru hins vegar um 514 klst. vestur yfir en komast hingað niður í 5,15 klst. Héðan frá íslandi eru nú áætl- unarferðir félagsins austur á bóginn til Prestvíkur í Skot- landi og tekur flugið þangað 1,45 tii 2 klst. Farþegaflug var mikið á leið- um félagsins um ísland í sumar, en þoturnar. taka 135—150 far- þega eftir því hve stórt fyrsta- farrými er haft í þeim, en því má breyta eftir þörfum. útflutnings- Breiðdalsvík staða til þess mun mjög sæmi- leg. FréttaritarL Bíll rennur ofan í bát Sauðárkróki 28. nóv. SÍÐARI hluta dags í gær bar það við hér að mannlaus vöru- bifreið rann afturábak út af hafnargarðinum og niður í vél- bátinn Vísi. Verið var að skipa fiski upp úr Vísi og lagði bifreiðastjórinn bílnum að hlið bátsins með venjulegum hætti og yfirgaf síðan bifreiðina um stund. En áður en varði var bifreiðin runn in niður í bátinn, sem fyrr segir. Bátsformaðurinn, Stefán Frið- riksson var að vinna við spil bátsins og lenti undir bifreiðinni að nokkru leyti. Meiðsli Stefáns eru ekki talin hættuleg. Bátur og bíll skemmdust nokkuð. — jón. Neitað um vegabréfsáritun Tokíó, 2. des. NTB JAPANSKl þingmaðurinn, Shuji Kuno, sem ákveðið var að færi í heimsókn til Péking, sem sérlegur sendimaður Eisaku Satos, forsætisráðherra, skýrði svo frá í dag, að honum hefði verið neitað um vegabréfsáritun. Kuno ætlaði til Peking 8. des. nk. Þessi ráðstöfun Pekingstjóm arinnar er tekin sem vísbending um, að hún hafi ekki áhuga á undanförnum tilraunum Japans- stjóraar til að bæta samkomu- lagið milli ríkjanna. // Heíðurskarlar 44 Fimm rithöfundar segja frá fimm sægörpum BÓKIN „Heiðurskarlar“ er nýkomin út á vegum Ægis- útgáfunnar í Reykjavík, en í bók þessa rita fimm þekktir rithöfundar og skáld um ævi fimm sægarpa, sem allir hafa hlotið heiðursmerki Sjó- mannadagsins. Fyrsti kaflinn heitir „Veiði- skapur heimtar manninn allan“, og er saga Eyfirðingsins Egils Jóhannssonar, sem kenndur er við Snæfellið. Hefur Kristján frá Djúpalæk skráð þennan kafla. í næsta kafla, „Svona maður ætti að vera á hverju skipi“, segir Stefán Júlíusson sögu Guðmund- Hér sjást höfundar ræða við sögupersónurnar. Talið að of- an: Guðraundur Daníelsson og Árni Helgason, Kristján frá Djúpalæk og Egill Jóhannsson, Stefán Júlíusson og Guðmund- ur Knútsson, Gísli J. Ástþórs- son og Ásmundur Jakobsson, Jónas Árnason og Guðmund- ur Árnason. Vetur í Vindheimum44 99 — ný skdldsaga eftir Stefdn Jónsson KOMIN er út ný skáldsaga eft ir Stefán Jónsson, „Vetur í Vind- heimum“. Þetta er unglingasaga, sem fjallar um pilt í Reykjavík, og þau vandamál, sem hann hef- ur við að glíma. Stefán Jónsson hefur ritað skáldsögur, flestar fyrir börn og unglinga, ©n kunnastur mun hann fyrir bækurnar um Hjalta. „Það er sérstaða Stefáns Jóns- sonar, meðal íslenzkra höfunda“, segir á bókarkápu, „að sumar sögur hans um böm og fyrir börn eru jafnframt skáldskapur, sem endist lesendum til nautnar, þó að þeir eldist að árum og vaxi að þroska." Bókin er 189 bls. að stærð. Útgefandi er ísafold. ar Knútssonar frá Hafnarfirði. Á Guðmundur að baki langa sjó- sóknarsögu, fyrst á skútum og síðan á togurum. Guðmundur Daníelssori skrifar þriðja kaflann, sem hann nefnir „Út og inn um brimgarðinn". Er þar rakin saga Árna formanna Helgasonar í AkrL Gísli J. Ástþórsson-—segir frá Ásmundi Jakobssyni frá Norð- firði í fjórða kafla, sem hann nefnir „Menn þurfa svo margt að bralla“. „Bíddu nú hægur, lagsmaður", heitir fimmti og síðasti kaflinn. Segir þar Jónas Árnason frá Guð mundi Árnasyni, reykviskum skútumanni og togaraháseta. Alls eru kaflar þessir 197 blað- síður, og hafa söguhetjur frá mörgum svaðilförum og ævintýr- um að segja. Á eftir köflunum fimm birtast mjög fróðlegar ljósmyndir á 64 blaðsíðum, og eru elztu mynd- irnar rúmlega 80 ára. Sýna þær margar hliðar fiskveiða og iðn- aðar og fólkið, sem þessi störf vinnur. Hafa þeir Gísli J. Ást- þórsson og Jónas Árnason safn- að myndunum, og segja m.a. í formála: „Við ráðleggjum fólki að skoða þær vandlega, og aftur og aftur. Það er naumast til sannari lýsing á því hvernig afi og amma, langafi og langamma, unnu fyrir lífi sínu um og eftir aldamótin. .. .“ Þeir Gísli og Jónas hafa einn- ig aðstoðað við annan undirbún- ing bókarinnar, en Gísli B. Björnsson séð um form bókar- auka og uppsetningu, og gert káputeikningu. Siðleysi Sagt var frá því hér í blað- inu í fyrradag, að hestur hefði stórstlasazt á þjóðtveginum hjá Brautarholti i 3orgarhreppd. Var talið, að bifreið hefði ekið á hestinn — og rekið skraut- spjót. sitt af þvílíku affli í brjóst hol hams, að líkur voru taldar til þess að fella þyrfti skepn- una. í rauninni er það furðuílegt— em það, kemur þó alt.ocPt fyrir, að ökumenn þjóta af slysstað án þess að gem ráðstafanir til þess að koma slösuðum til hjáilp ar. Einhverjum firtnst e.t.v., að það skipti ekki máli, þegar mál- leysingjar eiga í hluit — kannski vegna þess, að þeir mállausu geta ekki lýst bílnum og gefið upp númerið. En þetta er hugarfar siðleysingjans, sem í rauninni ætti ekki að hafa öku réttindi. Við svona atburði verð ur risið á menningunni ekki hátt. En þessi atburður vekur líka til umhugsunar um skr-autspjót in á bílunum. Þau voru bönnuð í Danmörku fyrir nokkruim ár- um, ef ég man rétt. Það væri kannski ástæða tii að teka það mál upp hér hjá okkur. Hjálpartæki fyrir fatlaða Hér kemur bréf frá Trausta Sigurlaugssyni, fraimkvsemda- stjóra Sjálfsibjargiar, landssam- bandi fatlaðra: Ég sá nýlege, að í þætti þín- um 29. sept. s.l. birtir þú stutt bréf, frá M.S., undir fyrirsögn- inni „Fatlaðir". Bréfið byrjar þannig: „Við erum mörg, sem veg'na ýmiss- konar fötlunar komumst ekki af sjálfsdáðum í sokka, þótt við getum klætt okkur að öðru leyti sjá f. Þetta er okkur oft mjöig baga.le.gt og befur sumum okkar komið í hug, hivort ekki mætti ráða bót á þessu með ein földum hjálpartækjum o.s.frv. Á skrifs.tofu Sjálfsbjargar, Bræðraborgarstíg 9, er til hjálp artæki, sem ætliað er þeim, sem ekki geta vegna fötlunar sinn- ar, kilætt sig í sokka. Ég sé ekki ástæðu til að lýsa nánar þessu einfialda en nauðsynlega hjálpartæki, em ég fuill yrði, að það leysi vandann. Ég vona að þú sjáir ástæðu til að birta þessar línur Vel- vatkandi, þó liangt sé um liðið síðan ,,M.S.“, skrifaði þér. Ekki er ósennilegt að „M.S.“ lesi þátt þirnn að jafinaði og kannski Cleiri sem áhuga haía á þessu tæfci. Með bezt.u kveðju og þökk fyrir birtinguna. Trausti Sigurlaugsson. Mætti fara betur Kæri Velvakandi. Senn líður miðvifcuöagurinn 2. desember í afldanna sfcaut. Og hér sit ég og hbusta á tí essaða útvarpið okkar, sem veitt hef- ur mér og minu fólkd ófáar á- nægjustundir á liðnum árum. Að vísu er ég ekki nóg og vel að mér í alLskonar útvarpseifni til að gognrýna, enda á útvarp ið annað sfcilið frá minni hendi. Engu að síður er það nú ein- mitt gegnrýnin sem fyrir mér vakir með þessu bréfi. Svona er rnaður nú undarlegia gerður. Ástæðan er sú, að mér þykir alljaf svo skemimtilegt þégar dagskráin kemur nokkurnveg- inn samfelld og snurðulítil til okkar hlustenda. f kvöld er eins og eitt óhappið fæði af sér annað og mér þykir það svo leiðinlegt. Rétt efitir að ég sett ist við tækið hófst hið „klass- iska óhiaipp“. Leika átti söng- lag esftir Áraa ThorsteLnsson, en upphaf þess var leikið á „vitilaiusum hraða“. (Þulurinn hefði nú getað beðizt afsökun- ar). Áður en aflkynning hafði farið fram, var spilað dá) ítið úr næste lagi. f miðju erindi Krist jáns Albertssonaír dundi yfir manm orgelspil og sönigur. (Þul urinn hefði nú getað beðizt af- sökurnar). Næst var kynntur ramgur dagskrárliður, sem var nú kannski ekki skaðlegt. En loks var frásaga eftir Bjarg- eyju Pétursdóttlr, en slíkt mál- *'" útvarpsmanns er skaðlegt, Útvarpsunnandi. i 1 /<*\ c 1 —XiAcL \\f- ijiiiijiijjji u ' B t l!l§ S5TOO ’ /M •1? : VI V-i-j.YIR \,'.H\li, I —éJtnui rjjf ; ‘ ©PIB CaPEWHBtN B O S C H rafkerfi er í þessum bifreiðum: BENZ SAAB DAF TAUNUS NSU VOLVO OPEL VW Við höfum varahlutina. BRÆÐURNIR ORMSSON HF. Vesturgötu 3. — Símí 11467.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.