Morgunblaðið - 04.12.1964, Side 8

Morgunblaðið - 04.12.1964, Side 8
8 MORCU N BLAÐIÐ Föstudagur 4. des. 1964 Eöærai Stjórnarfrumvarp um ingu launa afgreitt f GÆR vtar til 2. umræðu í Efri deild frumvarp ríkisstjórnarinn- ar um verðtryggingu launa. Að fundí deildarinnar loknum var fundur settur að nýju og frum- varpið tekið til 3. umræðu og síðan afgreitt sem lög frá Al- þingi. Þá var frumvarp til girð- ingarlaga einnig til umræðu í Efri deild. I Neðri deild var rætt um frumv. um veitingu prestakalla, frumv. um skipun sóknarnefnda og héraðsnefnda, frumv. um stýrimann.askóla í Vestmanna- eyjum og frumv. um barna- heimili. EFRI DEILD Verðtrygging launa ' Ólafur Björnsson (S)_ fram- sögum. fjárhagsnefndar gerði grein fyrir áliti nefndarinnar um frumvarp asgHrL. -£ *j,-. -s um verðtrygg- ....... ingu launa. Var n e f n d i n sam- mála um að leggja til, að frumvarpið yrði samþykkt ó- breytt. Hins veg ar taldi hann og sagði, að það álit hefði komið almennt fram meðal nefndarmanna, að betur færi á þvi, að fyrirsögn frumvarþsins yrði breytt og hún látin vera frumvarp til laga um greiðslu verðlagsuppbóta á laun. Ólafur Björnsson ræddi einn- ig um hið mikilvæga atriði, hvort tilgangi laganna yrði náð þ. e. a. s. að verðtryggja laun. Sagði hann að í því sambandi hefði einn þingmaður komizt svo að orði áður, að vísitölukerfið væri eins konar sjálfvirkur verð- bólguhreyfill í hagkerfinu. Þetta væri engum vafa undirorpið, en þennan hreyfil þyrfti hins vegar ekki að setja í gang. Það yrði ekki, nema utanaðkomandi or- sakir kæmi til. Ástæðan fyrir því, að margir launþegar væru eftir sem áður þeirrar skoðunar, að vísitölu- fyrirkomulag á launagreiðslum væri þeim trygging, væri sú, að með því teldu þeir, að stjórnar- völdum væri veitt aðhald um að halda verðbólgunni í skefjum. Fleira geti hins vegar komið til, sem ýtti undir verðbólgu en óvarlegar aðgerðir yfirvalda, t.d. verðhækkanir á vörum erlendis. Því skilyrði yrði einnig að vera fullnægt, að verðbólgunni yrði ekki ýtt af stað með öðrum aðgerðum, og þar skipti þáttur launþegasamtakanna sjálfra í verðlagsmálum, þ. e. a. s. hin al- menna kaupgjaldsþróun einnig afar miklu máli. Bjarni Benediktsson forsætis- ráðherra talaði næstur og sagði m. a., að frumvarpið væri byggt Póls Zóphóníossonar minnzt Á FUNDI í Sameinuðu þingi í fyrradag kvaddi þingforseti, Birgir Finnsson sér hljóðs utan dagskrár og minntist Páls Zóph- aníassonar fyrrv. alþingismanns með svofelldum orðum: „Páll Zóphaníasson fyrrver- andi alþingismaður og búnaðar- málastjóri lézt í Borgarsjúkra- húsinu hér í bæ I gærkveldi eft ir rúmlega árs vanheilsu, 78 ára að aldri. Páll Zóphaníasson fæddist í Viðvík í Skagafirði 18. nóvem- ber 1886. Foreldrar hans voru Zóphónías prófastur Halldórsson bónda á Brekku í Svarfaðardal Rögnvaldssonar og kiona hans Jó hanna Soffía Jónsdóttir háyfir- dómara Péturssonar. Páll lauk námi í bændaskólanum á Hólum árið 1905, stundaði nám í búnað- arskóLa og lýðháskóla í Dan- mörku 1906—1907 og lauk prófi í landbúnaðarháskólanum danska 1909. Sumarið 1909 ferðaðist hann um Noreg og Sviþjóð, en kom heim þá um haustið og hóf kennslu. Hann var kennari við bændaskólann á Hvanneyri 1909 til 1920 og jafnframt bóndi á Kletti í Reykholtsdal 1914 til 1920. Skólastjkíri bændaskólans á Hólum var hann 1920—1928. Ár ið 1928 fluttist hann til Reykja- víkur og hóf störf hjá Búnaðar- félagi íslands. Hann var ráðu- nautur í sauðfjárrækt 1928 til 1956. Eftir að hann lét af föstu starfi vegna aldurs, hafði hann eftirlit með forðagæzlu á vegum Búnaðarfélagsins, meðan honum entist heilsa. Páll Zóphóníasson gegndi margskonar trúnaðarstörfum jafnframt aðalstarfi sínu og átti mikinn þátt í félagsmálum. Hann var stofnandi og formaður ung- mennafélagsins íslendings í Andakíl og Ungmennasambands Borgarfjarðar, hreppsnefndar- maður í Reykholtsdal, oddviti í Hólahreppi og formaður búnað- arfélagsins þar, átti sæti í stjórn Kaupfélags Skagfirðinga og IVamiarafÁlaila Skazfáðinea. Hann var í yfirfasteignamats- nefnd við fasteignamatið 1930, 1940 og 1956, í ríkisskattanefnd frá stofnun hennar 1931, var for maður kjötverðlagsnefndar 1934 til 1942 og mjólkurverðlagsnefnd ar 1934—1948, átti um skeið sæti í skipulagsnefnd fólksflutninga og úthlutunarnefnd jeppabif- reiða. Á Alþingi átti hann sæti á árunum 1934—1959, sat á 32 þing um allt. Búnaðarþingfulltrúi var hann 1925—1927. • Páll Zóphóníasson átti til mik- illa gáfumanna að telja og hefur efalaust getað valið um ýmsar leiðir, þegar hann ákvað sér ævi starf. Hann kaus það hlutskipti að vinna að landbúnaðarmálum og aflaði sér víðtækrar þekking ar á því sviði. Þegar heim kom frá námi erlendis, hóf hann kennslu og þótt hann léti af skóla kennslu á miðjum aldri, vair hann alla ævi ötull kennari bænda og leiðbeinandi í búnað- armálum. Nemendur hans frá Hvanneyri og Hólum róma mjög kennslu hans. Leiðbeiningar hans og holl ráð í fyrirlestrum á mann fundum um land allt, og í út- varpi, eru kunnari en svo, að frá þurfi að segja. Þekking hans á landbúnaðarmálum var mikil, enda var hann með eindæmum glöggur og minnugur og eljumað ur með afbrigðum. Á Alþingi lét hann sig mörg mál varða, en að sjálfsögðu voru landbúnaðar- málin honum hugleiknust. Páll Zóphóníasson var heil- steypt persóna, fastur í skoðun um og einlægur. Hann var óhvik ulli deilum um málefni, gat sótt fast á þeim vettvangi, og ekki var hann myrkur í máli um það, sem honum þótti miður fara. En hann var vinsæll um land allt, og kunnur að góðvild og greiða- semi. Áhrifa af milclu ævistarfi hans mun lengi gæta í íslenzkum landbúnaði. > Ég vil biðja háttvirta alþing- ismenn að minnast Páls Zóphón íassonar með því að rísa úr sæt- um“. verðtrygg- sem lög á þeim ákvæð- um, sem kveðið var á um í samn ingunum í vor og engin athuga semd hefði kom- ið fram um, að efni frumvarps- ins næði ekki því efni, sem í vor var um sam ið. Því myndi það ekki hafa efnisbreytingu í för með sér, þó að fyrirsögn frumvarpsins væri breytt og því myndi slíkt ekki skipta nema sáralitlu máli. ★ Að fundi Efri deildar loknum var fundur settur þar að nýju sem áður segir og frumvarpið tekið til 3. umræðu. Engar um- ræður urðu Iþá um frumvarpið og var það síðan samþykkt og þannig afgreitt sem lög frá Al- þingi. Bjartmar Guðmundsson (S) formaður landbúnaðarnefndar Efri deildar gerði grein fyrir nefndaráliti um girðingarlög og var frumvarpinu síðan vísað til 3. umræðu. NEÐRI DEILD Veiting prestakalla Gunnar GLslason (S) svaraði ýmsu, sem fram hafði komið hjá Einari Olgeirssyni og Sigurvin Einarssyni í um- ræðum áður um frumvarp um veitingu presta- kalla. Sagðist Gunnar e k ki vera fyllilega á- nægður m e ð frumvarpið eins og það er, en um frumvarpið myndu vera skiptar skoðanir. — Taldi hann, að prestsembætti ætti að veita með svipuðum hætti og önnur embætti. Ekki væri verið að troða á lýðræðinu með því að afnema prestskosningar í því formi, sem þær eru nú, því að prestskosn- ingar væru annars eðlis en aðr- ar almennar kosningar. Hvers vegna mætti þá ekki alveg eins kjósa sýslumenn, héraðslækna o. s. frv. og talar samt enginn um misbeitingu á lýðræði, hvernig þessir embættismenn væru skip- aðir. Hann sagði ennfremur, að allt benti til þess, að sú skoðun ætti vaxandi fylgi að fagna, að af- nema beri prestskosningar og sæist það bezt af ályktunum hér aðsfunda um veitingu presta- kalla, sem skírskotað er til í frumvarpinu. Sér væri skylt að taka það fram, að það væru sízt prestarn- ir, sem kyntu undir þá úlfúð og illindi, sem stundum hefðu kom- ið upp í sambandi við prestkosn- ingar, heldur væru það önnur kosningaglöð öfl, sem stundum hefðu þá annað en velferð kirkjunnar í huga. Gunnar kvaðst vilja ítreka, að hann vildi helzt, að sporið yrði stigið til fulls þre., að prests- embætti yrðu veitt eins og önnur embætti. Ennfremur skírskotaði hann til ummæla Jóhanns Haf- steins, kirkjumálaráðherra fyrr í umræðum um frumvarpið og sagðist vera honum sammála um, að það þyrfti að endurskoða prestakatlaskipunina og mjög margt annað á þessu sviði, t. d. hina fjölmörgu helgidaga. Einar Olgeirsson (Albl) sagði, að prestar væru fyrst og fremst starfsmenn ákveðins félagsskap- ar en síðan embættismenn. Lagð ist hann gegn því, að helgidög- um yrði fækkað. Gunnar GLslason sagðist hafa mælt með því, að helgidögum yrði fækkað en þá með því skil- yrði, að þeir helgidagar sem haldnir væru, yrðu þá raunveru legir helgidagar, þannig að það tíðkaðist ekki, að menn væru að vinna á þeim dögum eða halda skemmtanir á þeim tíma, sem messur væru haldnar, en slíkt tíðkaðist því miður hér, þrátt fyrir það að slíkt væri lögbrot. Urðu nokkrar umræður enn um frumvarpið, þar sem til máls tóku þeir Einar Olgeirsson, Sig- urvin Einarsson og Þórarinn Þórarinsson, og kváðust allir vera andvígir frumvarpinu. Yar frumvarpinu síðan vísað til 2. umræðu og nefndar. Skipun sóknarnefnda Benedikt Gröndal (Alfl) gerði grein fyrir frumvarpi, sem menntamálanefnd flytur, um skipun sóknarnefnda og héraðs- nefnda og er fylgifrumvarp með frumvarpinu um veitingu presta kalla. Tók hann fram, að nefnd- armenn áskildu sér allan rétt í afstöðu sinni til málsins. Var frumvarpinu síðan vísað til 2. umr. og nefndar. Stýrimannaskóli í Vestmannaeyjum Pétur Sigurðsson (S) gerði grein fyrir nefndaráliti sjávar- útvegsmálanefndar um frumv. um stýrimannaskóla í Vest- maimaeyjum, en þar er sam- þykkt, að mæla með frumvarp- inu. N e f n d i n hefði sent málið ýmsum aðilum t i 1 fyrirsagnar og hefðu undir- tektir verið mis- jafnar. Urðu nokkrar u m r æ ð u r una frumv»”“ :ð. Barnaheimill Einar Olgeirsson gerði grein fyrir frumvarpi um barnaheim- ili, sem hann er flutningsmaður að. Gömul munstur í rsýjum búningi Islenzk sjónabók eftir Elsu E. Guðjónsson KOMIN er út „íslenzk sjóna- bók“, en sjónabók er gamalt ís- lenzkt orð, sem merkir sama og munsturbók. Þessa bók hefur Elsa E. Guðjónsson samið, en í henni eru fjöldi mynda af göml- um íslenzkum mynstrum, sem eru í söfnum og eru þau færð í nútimabúning. Bókin er gefin út af Menningarsjóði. í formála fyrir bókinni gefur höfundur eftirfarandi skýringu á útkomu hennar: „Nokkur undan farin ár hafa birzt í tíma- riti Kvenfélagasambands íslands, Húsfreyjunni, hannyrðaiþættir, einu nafni nefndir Sjónabók Húsfreyjunnar. Þættir þessir voru birtir í þeim tilgangi að kynna gamlar íslenzkar útsaums gerðir og koma á framfæri ein- földum íslenzkum útsaums- munstrum í nútímabúningi. Við samningu þáttanna var að lang- mestu leyti stuðzt við muni og munstur, sem til eru í Þjóð- minjasafni fslands. Nú hefur orðið að ráði að gefa út iþessa þætti endurskoðaða og aukna nýju efni í þeirri von, að íslenzk ar konur almennt hafi áhuga á að notfæra sér munstrin og kynnast jafrrframt hannyrðum formæðra sinna.“ Mjög hefur verið vandað til þess'arar sjónabókar, prentað á vandaðan pappír svo myndir af munstrum komi, sem bezt út. Þættirnir eru 9 og skrifar Elsa þar um hvert verkefni um leið birtar eru myndir. Heiti kafl- anna segja til um það sem bókin fjallar um, en þeir eru: Kross- saumssessa, Augnsaumur, Áklæði þetta Þorbjörg á...., Jólamynd, Glit og skakkglit, Útsaumsletur Ragnheiðar' biskupsfrúar, Furðu fuglar og kynjadýr, Gamlar stafagerðir, og Vgjzludreglar. — Handritin Framhald af bls. 1 bráðabirgðalistar og á engan hátt bindandi", segir K. B. Andersen orðrétt í greinargerð sinni. „Þeir listar einir munu gilda, sem nefnd sú, sem sam- kvæmt 3. grein afhendingar- frumvarpsins, mun taka sam- an er lögin hafa verið sam- þykkt“. Ráðherrann segir að hinn „margumtalaði óskalisti“ sé af hálfu íslendinga aðeins bráða- birgða vinnuskjal (arbejds- dokument), sem þeir hafi sjálfir tekið saman til eigin þarfa, og gagnvart dönskum stjórnarvöldum hafi hann ekk ert sjálfstætt gildi. í greinargerðinni er skýrt frá viðræðum íslendinga og Dana um handritin 1961. Að vanda var ekki gert nákvæmt yfirlit (referat) um samræður manna, en Viggo Kampmann, þáverandi forsætisráðherra, og Jörgen Jörgensen, þáverandi kennslumálaráðherra, hafa rak ið það sem fram fór eftir minni. 22. febrúar 1961, er Norður- landaráð var saman komið á fundi í Kaupmannahöfn, komu saman til fundar þeir Kamp- mann, Jörgensen og Jens Otto Krag, þáv. utanríkisráðherra, og af hálfu íslendinga þeir Ólafur Thors, þáv. forsætisráð herra, og Guðmundur í. Guð- mundsson, utanríkisráðherra. Danir lýstu því þá yflr að þeir væru að íhuga afhendingu handrita, og spurðust fyrir um hvórt ísland mundi vilja taka við handritunum sem gjöf, og hve stór gjöfin þyrfti að vera til þess að fslendingar mundi líta svo á, að handrita- málið væri þar með lokið. fs- lendingarnir féllust á gjafar- hugmyndina, og annar fundur um málið var ákveðinn síðar. Fundur var siðan haldinn með Kampmann og Jörgensen 21. apríl 1961, og tóku þátt í honum af íslands hálfu ráð- herrarnir Gunnar Thoroddsen og Gylfi Þ. Gíslason, svo og Stefán Jóhann Stefc 'son, sendiherra. Á þessum L dl var rætt um tillögur varða i hve umfangsmikil handritaaf- hendingin skyldi vera, og ósk- ir íslands um að málinu yrði endanlega lokið. Auk þessara funda, hafa átt sér stað óformlegar viðræður, einkum í sambandi við Norð- urlandaráðsfundi, að því er K. B. Andersen segir. Dönste stjórnarvöld gerðu nákvæma grein fyrir því, að lausn á grundvelli lagafrumvarpsina yrði að vera endanleg, og að ísland féllist algjörlega á það. Kvöldberlingur hefur birt bréf frá prófessorunum Sig- urði Nordal og Einari ÓL Sveinssyni, þar sem þeir vísa á bug þeim fregnum blaðsina að þeir hafi tvisvar eða þrisv- ar farið til Danmerkur huldu höfði og tekið þar þátt í leyni- fundum. Segjast prófessorarn- ir hafa farið einu sinni til Dan merkur vegna handritanna að beiðni Gylfa Þ. Gíslasonar, til þess að vera til reiðu sem sér- fróðir menn um handritin á aprílfundinum. Prófessorarnir segja að þeir hafi búið á Hotel D'Angleterre, og að sjálfsögðu undir réttum nöfnum. — RytgaardL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.