Morgunblaðið - 04.12.1964, Blaðsíða 28
DAGAR
TIL JÓLA 1
Appelsínur í stofunni
— MA ekki bjóða ykkur ís-
lenzkar appelsínur, sagði hús-
freyjan að Langholtsvegi 80,
Susie Bachmann, við okkur á
dögunum, er við litum þang-
að inn til þess að skoða app-
elsínutréð í stofunni á heim-
ilinu. Þetta var myndarleg-
asta tré, sýnilega stolt heim-
ilisins, enda fremur óvenju-
iegt að appelsínurækt sé
stunduð á íslenzkum heimil-
um.
— Ég keypti tréð fyrir
tveimur árum í Hveragerði,
sagði Susie, og í fyrravor
komu á það græn aldin. Þeg-
ar appelsínurnar tóku að
roðna í sumar, hélt fólk, sem
sá þetta í fyrsta sinn hjá
okkur, að þetta væru gervi-
appelsínur úr plasti!
Við spurðum frúna, hvort
ungviðinu þætti appelsínum-
ar ekki freistandi. Hún sagð-
ist ekki þurfa að óttast að
þær hyrfu af trénu, því að í
augum barnanna væri þetta
alveg stórkostlegt.
Frúin bauð okkur glóaldin
af trénu og við sannfærðumst
um, að ávextirnir, sem vaxa
í stofunni á Langholtsvegin-
um eru í 1. gæðaflokki!
Stefan Jon og Pall Einar — þeim þykir vænt um appelsinutréð.
Ný byggingar-
somþykkt
Reykjavíkur
Á F U N D I borgarstjórnar I
gærkvöldi var samþykkt ný
byggingarsamþykkt Reykja-
víkur. Var margt manna á á-
heyrendapöllum, og voru það
einkum tæknifræðingar og
byggingameistarar. Nokkrar
umræður urðu á fundinum,
og verður sagt frá þeim ásamt
hinni nýju byggingarsam-
þykkt í blaðinu á morgun.
Móðurmálssjódi
berst 90 jbús. kr. gjöf
um, í fyrsta sinn á aldarafmæli
Björns Jónssonar 1046, og er
næsta verðlaunaveiting væntan-
leg fyrix árslok.
Stjórn Minningarsjóðs Bjöms
Jónssona-r, Móðurmálssjóðsins,
flytur stjórn h.f. Árvakurs mikl-
ar þakkir fyrir þessa veglegu
gjöf, bæði sem virðingarvott við
minningu Björns Jónssonar og
aukna stoð við það menningar-
hlutverk, sem Móðurmálssjóðn-
um er ætlað að rækja.
Reykjavík, 3. desember 1964,
f.'h. stjórnar Minningarsjóðs
Björns Jónssonar, Móðurmáls-
sjóðsins, Steingrímur J. Þorsteins
son, formaður".
Auk dr. Steingríms J. Þorsteins
sonar eiga sæti í stjórn sjóðsins
dr. Halldór Halldórsson,
prófessor, Tómas Guðmundsson,
skáld, Bjarni Guðmundsson,
bla'ðafulltrúi og Pétur Ólafsson,
forstjóri.
Móðurmálssjóðurinn var stofn
aður árið 1946 á eitt hundrað
ára afmæli Björns Jónssonar.
Sex menn hafa hlotið verðlaun
úr honum. Þeir eru Karl ísfeld,
Loftur Guðmundsson, Helgi Sæ-
mundsson, Bjanni Benediktsson,
Matthías Johannessen og Indriði
G. Þorsteinsson.
Björn Jónsson
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt eftirfarandi fréttatilkynn-
ing frá dr. Steingrími J. Þorsteins
syni, prófessor, formanni stjórn-
ar Minningarsjóðs Bjöms Jóns-
sonar, Móðurmálssjóffsins:
„Hinn 19. september í haust
vo.ru liðin 90 ár frá því, er Björn
Jónsson, síðar ráðherra, stofnaði
blaðið ísafold. Til miruningar um
það hefur stjórn h.f. Árvakurs,
útgefenda Morgunblaðsins í
Reykjavík, nú gefið níutíu þús-
und krónur í Minningarsjóð
Björns Jónssonar, Mó’ðurmáls-
sjóðinn. Hann var stofnaður 1943
af niðjum Björns Jónssonar og
ísafoldarprentsmiðju h.f. Tilgang
ur sjóðsins er að verðlauna mann
sem hefur aðalstarf sitt við blað
eða tímarit og hefur, að dómi
sjóðstjórnar, undanfarin ár rit-
a'ð svo góðan stíl oig vandað ís-
lenzkt mál, að sérstakrar viður-
kenningar sé vert. Alls hefur
sex sinnum verið veitt úr sjóðn-
Vill helzff selica rík-
inu bókasafnið
KINS og auglýst hefur verið í
MbL og skýrt frá í frétt á mið-
vikudag, hefur Kári Borgfjörð
Helgason auglýst hið mikla
bókasafn sitt til sölu. Safn hans
er hið stærsta í eigu einstaklings
á Islandi. Kjama þess keypti
hann úr dánarbúi Þorsteins heit
Ins Þorsteinssonar, sýslumanns,
en hefur siðan aukið það. Mbl.
hafði samband við Kára í gær,
þegar safnið hafði verið til sölu
í tvo daga, og hafði þá ekkert til-
boð borizt.
yrði að vera ráðinn við safnið,
til þess að hirða um það, og
kaupa þyrfti mikið magn bóka
og tímarita til að fylla upp í
skörð, en til þess þyrfti mikið fé.
Kári kvað bókfróðan og nákvæm
an mann, Böðvar Kvaran, hafa
starfað við safnið, síðan hann
festi á því kaup. Hefði hann
unnið lotlaust við flokkun safns
ins, skráningu, umihirðu og inn-
kaup allan tímann.
Rári kvað ætlunina að selja
safnið í einu lagi, og yrði forðazt
eftir megni að þurfa að skipta
þvá. Hann kvað það von sína, að
safnið yrði ekki selt úr landi, og
heizt af öllu vonaði hann, að ís-
lenzka ríkið eða stofnanir á veg-
um þess keypti safnið. Ein-
staklingi væri ofvaxið að eiga
saifnið, að sínu áliti, eða sú væri
reynsla sín. Sérstakur maður
Bændafundur
ó Selfossi
©ELFOSSL 3. des.
Ræktunarsamiband Flóa og
Skeíða hefur undanfarin þrjú ár
gengizt fyrir bændafundum á
Selfossi. í gær var haldinn einn
slíkur fundur, og mætti þar Þórir
Baldvinsson, arkitekt. Ræddi
hann um byggingar í sveitum.
Að loknu erindi hans, voru frjéls
ar umræður, og tóku margir
bændur til máls. Á fundi þessum
voru mættir um 70 bændur, og
er það færra en venjulega hefur
verið á slíkum fundum. Fundur-
inn hófst kl. hálf-tíu og stóð til
kl. tvö eftir miðnætti.
Venjan er að halda þrjá siíka
fumdi á vetri, einn fyrir jól og
tvo eftir hátíðir. Verður svo einn
ig í vetur. — Ó. J.
6. ártíð Vinstri stjórnarinnar
í DAG, 4. desember, er 6.
ártíð Vinstri stjórnarinnar,
illræmdustu ríkisstjórnar,
sem hér á landi hefur að
völdum setið.
Enginn virðist sakna
Vinstri stjórnarinnar —
nema einn aðili: Dagblaðið
„Tíminn“. Þar hefur oft
mátt líta angurvær og
saknaðarfull skrif, blandin
trega þeirra manna, sem
völdin þrá að nýju, en vita,
að slíkt má ekki verða. Nú
fyrir skemmstu hefur
„Tíminn“ meira að segja
dirfzt að halda því fram,
að allt hafi verið betra í
tíð Vinstri stjórnarinnar,
og gott væri nú að vera
íslendingur, hefði hún
fengið í friði að fullkomna
það, sem vakti fyrir að-
standendum hennar..
En Vinstri stjórnin náði
Forsætisráffherra
Vinstri stjómarinnar.
sannarlega fullkomnun. —
Fyrir sex árum hélt for-
sætisráðherra hennar, Her-
mann Jónasson, eftirminni
lega ræðu í sölum Alþingis,
sem lengi mun minnzt í
stjórnmálasögu íslands. —
Þar lýsti hann því vel,
hvert Vinstri stjórnin hafði
leitt þjóðina. í tilefni dags-
ins leyfir Morgunblaðið sér
að birta þessa sögulegu
ræðu um endalok Vinstri
stjórnarinnar, þegar allt
var fullkomnað, „Tíman-
um“ til ánægju og þjóðinni^
til upprifjunar. — Ræðan
hljóðaði svo:
„Hr. forseti!
Ég hef á ríkisráðsfundi í
dag heðizt lausnar fyrir mig
og ráðuneyti mitt. Forseti ís-
lands hefur beffið ráðuneytið
að gegna störfum fyrst um
sinn, og hafa ráffherrar, að
venju, orðiff við þeirri beiðni.
Fyrir lá, að hinn 1. des-
ember átti að taka gildi ný
kaupgreiðsluvísitala, sem fól
í sér 17 stiga hækkun. Til
þess að koma í veg fyrir nýja
verðbólguöldu, sem af þessu
hlaut að rísa, óskaði ég þess
við samráðherra mina, að rík-
isstjómin beitti sér fyrir
setningu laga um frestun á
íramkvæmd hinnar nýju vísi-
tólu til loka mánaðarins, enda
yrðu hin fyrmefndu 17 vísi-
töiustig þá greidd eftir á fyrir
desember, nema samkomulag
yrði um annað.
I.eitað var umsagnar Al-
þýðusambandsþings um lagn-
setningu þessa, samkvæmt
skilyrði, sem sett var fram
um það í ríkisstjórninni. Al-
þýðusambandsþing neitaði fyr
ir sitt leyti beiðni minni um
frestun. Boðiði ég þá ráð-
herrafund að morgni iaugar-
dags 29. nóvember, en þar
náðist ekki samkomulag um
stuðning við frumvarpiff. Af
þessu leiddi, að hin nýja k»aup
greiðsluvisitala kom til fram-
kvæmda um mánaðamótin,
og ný verðbólgualda er þar
með skollin yfir. Við þessu
er svo því .að bæta, að í ríkis-
stjórninni er ekki samstaða
um nein úrræði í þessum mál-
um, sem að mínu áliti geti
stöðvað hina háskalegu verð-
bólguþróun, sem verður óvið-
ráðanleg, ef ekki næst sam-
komulag um þær raunhæfu
ráðsfcafanir, sem lýst var yfir,
að gera þyrfti, þegar efna-
hagsf rumvarp rikisstjórnar-
innar var lagt fyrir Alþingi
á sl. vori“.