Morgunblaðið - 13.12.1964, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.12.1964, Blaðsíða 10
10 MORGU NBLAÐIÐ Sunnudagur 13. des.. 1964 Barna- og ungiingabækur SETBERGS 1964 SKÓLAÁSTIR. Skálilsagan SKÓLAÁSTIR eftir Signe Utne í þýðingu Guð- rúnar Guðmunitsdóttur. Þetta er saga um heiibrigt æskufólk í menntaskóla. Skólaástir er tilvalin bók fyrir stúlkur á aldrinum 13 — 18 ára. HENRY FORD — Bóndasonurinn sem varð bílakóngur — eftir Sverre S. Amundsen. Þetta er fjórða bókin í bókaflokkn- um „Frægir menn“. Hinar eru: „Ævintýrið um Albert Schweitzer“ — „Edison“ — og „Friðþjófur Nansen“. Ritstjórn og þýðingu annast Freysteinn Gunnarsson, fyrrverandi skéla- stjóri. Bókin, sem er prýdd mörgum myndum, er ákjósanlegt lestrarefni fyrir unglinga á aldrinum 12 — 16 ára. DULARFULLA FEGURÐARDROTTNINGIN eftir Sylvia Edwards í þýðingu Guðrúnar Guðmundsdóttur. Þetta er fyrsta bókin í nýjum flokki, sem heitir „Bækurnar um Sallý Baxter fregnritara". Söguhetjurnar lenda í hinum furðulegustu ævintýrum, sem gera bókina spennandi frá upphafi til enda. Ætluð stúlkum á aldrinum tólf til sextán ára. KNATTSPYRNUDRENGURINN eftir Þóri S. Guðbergsson. Þetta er saga um heilbrigða drengi í starfi og leik. Knattspyrnan er þeirra líf og yndi, en keppnin er hörð og stundum skerst í odda í milli þeirra. Þetta er bók fyrir tápmikla drengi á aldrinum 10 — 14 ára. Höfundur þessarar bókar er 25 ára gamall Reykvíkingur, sem starfað hefur mikið með ungum drengjum, í íþróttahreyf- ingum og KFUM. ANNA MARÍA TRÚLOFAST eftir Evi Bögenæs, höfund bólaanna „Jóladansleikurinn" og Anna Beta og Friðrik". Sigurður Gunnarsson íslenzkaði. Þetta er falleg og góð unglingabók fyrir stúlkur á aldrinum 13 — 16 ára. ERNA OG INGA LÁRA eftir Margarethe Haller, höfund bók- anna „Dísa Dóra“ „Fríða fjörkálfur" — „Erna“ og „Skóla- systur“. Guðrún Guðmundsdóttir þýddi. Allar þessar bækur hafa hlotið miklar vinsældir hér á landi. Erna og Inga Lára er bók, sem er fjörlega rituð um heil- brigðar og tápmiklar stúlkur — bók, sem er falleg að efni. PABBI SEGÐU MÉR SÖGU. Vilbergur Júlíusson valdi sögurnar. í þessari bók eru margar skemmtilegar sögur, prýddar fjöimörgum teikningum. Sögur fyrir drengi og stúlkur á aldrinum 6 — 10 ára. SANDHÓLA-PÉTUR eftir A. CHR. Westergaard í þýðingu Eiríks Sigurðssonar. Bókin er um röskan og duglegan dreng, Sandhóla-Pétur. Hún er spennandi frá upphafi til enda, falleg bók að efni og útliti. Bókin flytur þann holla boðskap, að þótt gaman sé að hressilegum útiieikjum, þá er vinnan þó móðir hamingjunnar. Halldór Pétursson gerði hinar skemmtilegu tekningar í bókinni. Tilvalin bók fyrir drengi á aldrinum 11 til 15 ára. GRÍMUR OG LEYNIFÉLAGIÐ eftir Richmal Crompton í þýð- ingu Guðrúnar Guðmundsdóttur. Þetta er fimmta bókin um Grím grallara og féiaga hans, og eins og áður skeður eitt- hvað skemmtilegt á hverri blaðsiðu. í bókinni eru fjölmargar teikningar. Hún er ætluð börnum á aldrinum 9 til 12 ára. LÁSI GERIST LEIKARI eftir Sivar Ahlrud höfund bókar- innar „Vinstri Útherji". Þeir sem lesið hafa söguna „Vinstri Útherji“, munu kannast við Geira og Lása, en þeir eru sögu- hetjurnar í þessari bók. Auk þeirra kiemur enn við sögu frændi þeirra, Hávarður, sem er þeim næsta ólíkur. Þeir bræður hafa ráð undir rifi hverju og eru til í allt, enda stendur ekki á því, að þeir lendi í ævintýrum. GRÍMUR GRALLARI — NJÓSNARINN MIKLI, eftir Rich- mal Crompton í þýðingu Guðrúnar Guðmundsd. Þetta er sjötta bókin í bókaflokknum um Grím grallara. Bókin er prýdd mörgum teikningum eftir Bjarna Jónsson. Þessi bók er eins og hinar bækurnar um Grím grallara og félaga hans kærkomið iestrarefn fyrir börn á aldrnum 9 til 12 áa. ORÐABÓK FRÍMERKJASAFNARA, samin af Siguði H. Þor- steinssyni. íslenzk — Ensk, Ensk — íslenzk, íslenzk — Þýzk, Þýzk — íslenzk, íslenzk — Dönsk, Dönsk — íslenzk. Hún er fyrst og fremst ætluð þeim, sem nota vilja erlenda frímerkjalista. Ennfremur sem uppsláttarbók í bréfavið- kiptum innlendra safnara við erlenda. SLIFSI SKYRTUR SOKKAR NÆRFÖT OLD SPICE SNYRTIVÖRUR VerSondi Amerísk Rauð Delicious epli EINGÖNGU BEZTI GÆÐAFLOKKUR ,,EXTRA F A N C Y “ . NÝ SENDING MEÐ HVERRI FERÐ. Eggert Krisfjánsson & Co. h.f. Sími 1-1400. TERELLA-SKYRTAN ANGLI-SKYRTAN ERCO-NÁTTFÖT BYFORD-PEYSUR BYFORD SOKKAR J. S.L. RÚSKINN JAKKAR — HERRA MERKI SEM MÁ TREYSTA. ÚRVALS VÖRUR GÓÐ ÞJÓNUSTA ANDERSEN & LAIJTH HF.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.