Morgunblaðið - 20.12.1964, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 20.12.1964, Qupperneq 17
r Sunnudagur 20. des. 1964 MORCUNBLAÐIl 17 • • Þorsteinn O. Stephensen leikari, sextugur á morgun I>AÐ var glaður stúdentahópur, sem gekk niður Skólabrúna 30. júní 1925, með hvítu kollana á höfði í fyrsta sinni. Fögnuður dagsins var að vísu efst'í huga okkar allra, en ef til vill hefur þó einhver rennt huga til þess livað um hópinn kynni að verða t framtíðinni, er vegir skildust og alvara lifsins kallaði. En hversu framsýnir sem við kunn- um að hafa verið, mun naumast nokkurn hafa órað fyrir því, að f hópnum væri maður, sem það ætti fyrir að liggja að helga sig leiklist og list hins talaða orðs, og sem slíkur að verða eftirlæti alþjóðar. En svo var það nú samt, því einn í hópnum var Þor- Steinn Ö. Stephensen, sem vérður sextugur á morgun. ■ Mér finnst það einhvern veg- lnn ótrúlegt, þótt við hinir strák- arnir eltumst, að Steini Ö., en svo hét hann ætíð í okkar hópi, sé kominn í öldungatöluna, því hann er einn hinna fáu samferða- manna, sem ekki eldist., þó hár- in fölni og fækki. En kirkju- löækur Kjósaringa verða ekki vefengdar. ! Þorsteinn Ö. Stephensen fædd- ist að Hurðarbaki í Kjós 21. des. 1904. Þar bjuggu þá foreldrar hans, Ingibjörg Þorsteinsdóttir ©g Ögmundur Hansson Stephen- sen. Standa að honum sterkir stofnar í ættir báðar, og er þar að finna valdamenn, klerka, bú- hölda, alþingismenn og ekki sízt margt skáldmæltra manna og hneigðra. Svo ekki er að undra, þótt Þorsteinn geti mörgum manngerðum fyrir sig brugðið, svo víða að er sá efniviður sem hann er gerður af. Ársgamall fluttist hann með foreldrum sín- um að Hólabrekku í Grímsstaða- holti, sem þá var sveit, og þar ólgt hann upp í marglitum hópi ungra sveina á Holtinu. Faðir hans rak ’allmikinn búskap, sótti sjó og stundaði ökumennsku, bæði með hestum og síðan með bíl. Vandist Þorsteinn því snemma fjölbreytilegum störfum á mörkum sveitar og borgar, og komst í kynni við ólíkar mann- gerðir úr öllum stéttum, en hafði þegar frá æsku opin augu og eyru fyrir tungutaki fólks og lærði að skyggnast um í hugar- heimi þess. En hugur Þorsteins stóð hvorki til hrognkelsaveiða 1 Skerjafirði né bílkeyrslu fyrir Reykvíkinga. Hann fór í skóla þegar hann hafði aldur til og lauk stúdents- prófi eins og fyrr segir 1925. Að ioknu stúdentsprófi stundaði hann læknanám í Háskólanum tim nokkurt skeið, en hvarf frá því af ýmsum sökum. Hátíðaár- #5 1930 skipti örlögin í lífi Þorsteins. f fyrsta lagi kvæntist hann konu sinni, Dórótheu Breiðfjörð, sem hefur verið hon- nm ómetanieg stoð og stytta og eiga leiklistarunnendur landsins henni mikla skuld að gjalda fyr- |r framlag hennar til þess, að bóndi hennar fengi sinnt hugð- •refnum sinum og listhneigð. Eiga þau fimm börn. En á því ■ama ári tókust fullar ástir með Þorsteini og Thaliu, sem hann faefur reynzt trúr og tryggur síð- •n. Svo stóð á, að það ár gengu þeir Haraldur Björnsson, Lárus Sigurbjörnsson og Þorsteinn fyr- tr hátíðasýningu á Fjalla-Ey- vindi Lék Þorsteinn Björn hreppstjóra við þann orðstír, að tnargir, sem fylgzt hafa með leik- ritum síðan, telja enn, að hann hafi þá skapað eina af sínum ■njöllustu persónum. Er þó ekki (jarri sanni að svo sé, og sýnir það, að Þorsteinn ér þegar á wngum aldri fullmótaður leikari, þótt lítillar tilsagnar hefði hann wotið og fátt séð á leiksviði. Hann var að vísu ekki fullkom fc»n byrjandi 1930. hafði leikið beaði í akólaleikjum og meðal há- skólastúdenta og tekizt vel. En fullkunnugt er, að margir hafa þótt efnilegir í slíkum leikjum, án þess að um leikaraefni hafi verið að ræða. En nú var svo komið að Þor- steini var ljóst, að hann mundi aldrei geta horfið frá leiksvið- inu aftur. Næstu árin stundaði hann skirfstofustörf í Reykjavík og lék í viðlögum, en slikt gaf lítið í aðra hönd og lífsbaráttan var hörð á þeim árum. En árið 1934 steig hann sporið til fulls ag hvarf þá að leiklistarnámi við leikskóla Konunglega leikhúss- ins í Kaupmannahöfn og dvaldi þar eitt ár. Eftir heimkomuna varð hann brátt aðstoðarþulur við útvarpið og aðalþulur þess 1940. Leiklistarstjóri þess varð hann 1946 og hefur gegnt því starfi síðan. í þularstarfinu gat Þorsteinn sér óvenjulegra vinsælda. Hin karlmannlega þýða rödd hans varð eftirlæti fólksins úti um landsbyggðina ag var hans sakn- að af hlustendum, er hann hvarf úr þularstarfinu, enda þótt hann hyrfi ekki frá störfum við út- varpið. Jafnframt vinnu sinni við útvarpið lék Þorsteinn að stað- aldri með Leikfélagi Reykjavík- ur. Auk þess hafði hann leik- stjórn á hendi og tók mikinn þátt í stjórn félagsins, var lengi í leik ritanefnd þess og formaóur um skeið. Einnig var hanrt virkur þátttakandi í Félagi íslenzkra leikara. var einn af forgangs- mönnum um stofnun þess og í stjórn. Er allt þetta mikið starf, þegar þess er gætt að það er allt- unnið í hjáverkum að kalla má. Lítið hefur Þorsteinn leikið á sviði Þjóðleikhússins, þó lék hann tvö hlutverk við opnun þess, sitt gamla hlutverk, hrepp- stjórann í Fjalla-Eyvindi ag Arnes Arnæus í íslandsfclukk- unni; tvisvar mun hann síðar hafa komið fram á sviði Þjóð- leikhússins. Ekki er mér kunnugt um hlut- verkafjölda Þorsteins, en þau munu einhvers staðar vera ná- lægt sextíu. Skiptir það í sjálfu sér ekki miklu máli. Hitt er aðal- atriðið hvernig hlutverkin eru af hendi leyst. Hef ég þar meira við að styðjast umsagnir annarra en af eigin sjón. Ef lítið er á hlutverkaskrá hans, kemur í ljós, að viðfanigsefnin eru harla ólík, allt frá hinu léttasta gamni til hinnar dýpstu alvöru. Hann kemur fram í gervi hámenntaðra andans manna og vesælla fávita, óskabarna gæfunnar og auðnuleys ingja, sem útskúfaðir mega kall- ast úr mannlagu félagi. Ekki verð ur því neitað, að stærsta leiksigra hefur hann unnið í alvarlegum hlutverkum. En hann hefur einn ig kunnað vel að fara með gaman mál, enda gædddur ágætri kímni gáfu, sem þeir þekkja bezt, sem honum eru kunnugastir. Þau hlutverk hans, sem mesta athygli hafa vakið, auk áður- nefndra, munu vera Jeppi á Fjalli, Davidsen í Uppstigningu, Brynjólfur biskup í Skálhalti, dómarinn í Elsku Rut, Robert Bel ford í Marmara, Franz yfirdóm- ari í Ævintýri á gönguför, Lenni í Músum og mönnum ag Crocker Harris í Browning-þýðingunni. Fyrir síðastnefnda hlutverkið hlaut hann silfurlampaverðlaun- in árið 1957. Ekki er hér að nokkru getið hinna ótalmörgu útvarpshlutverka hans. Dómar, sem Þorsteinn Ö. hefur fengið um leik sinn, eru furðu samhljóða, hver sem dæmt hefur. En einkennin sem leik- dómendur gefa leik hans eru þessi: látleysi, öryggi, þróttur, samúð og mannlegur skilningur, ásamt fullkominni innlifun í hin óLíkustu viðfangsefni. Kemur þar vissulega að góðu haldi fjölþætt reynsla og kynni af fólki á yngri árum. Við bætist svo snjallur rómur og ágæt framsögn. En Þorsteinn hefur við fleira fengizt en leiklistina eina sam- an. Hann er skáldmæltur vel, þótt hann flíki því lítt, nema helzt í hópi góðvina, og kann ekki síður að beita penna en tungu. En afmælisgrein, þó um sex- tugan mann sé, á ekki að vera eftirmæli. Enn eru sextugir menn á bezta aldri, ekki sízt þeir sem gæddir eru gáfu Þorsteins, sem geta tekið á sig gervi hvers sem er og lifað sig inn í það. Og um Þorstein Ö. er mér tamast að hugsa í glöðum góðvinahópi, iþar sem hann nýtur sín; gamansam- ur, dálítið stríðinn en fastur fyr ir og nær ósveigjanlegur, þar sem honum þykir máli hallað, eða fram haldið ‘skoðunum, sem honum eru óskapfelldar. Hins vegar eru fáir tryggari vinum sínum. Má ég þar tala af reynslu eftir meira en 40 ára kynni, þar sem aldrei hefur borið skugga á, þrátt fyrir ólíkar skoðanir og lífs viðhorf á marga lund. Og það veit ég, að þau ummæli mundu allir gömlu félagarnir staðfesta. En við vitum einnig að hann get- ur verið þungur á bárunni og við skotaillur og ekki aldæla í sam- vinnu, þegar svo ber undir. Margar hlýjar hveðjur mega Þorsteini berast nú á þessum tímamótum. Frá yztu nesjum til innstu dala á hann aðdáendur og unnendur, sem aldrei hafa hann augum litið en heillast af rödd hans og túlkun. Og kem ég þá aftur að því sem fyrr var frá horfið, að okkur hefði þótt lítil framavon fyrir fjörutíu árum, að fást við leikaraskap, en ef til vill hefði það verið nær að við hefðum talið það meir en meðal fjarstæðu að hugsa sér að unnt yrði að lifa á slíkum hlutum um okkar daga. Enn er það kannski ekki of létt, en þakklátir megum við vera þeim, sem brautina ruddu, brutu brýrnar að baki sér og steyptu sér út í óvissuna af ást sinni og áhuga á listinni og Þorsteinn er einn í þeim hópi. Að endingu færi ég mínum gamla félaga og bekkjarþróður árnaðaróskir og alúðarþakkir fyrir samfylgdina, sem ' ég veit að dálítið mundi togna úr enn, ef við báðir mættum ráða. Og ég veit að undir þær óskir taka allir þeir gömlu félagarnir, og svo allir hinir, sem ég kann hvorki að nefna né telja. Steindór Steindórsson frá Hlöðum. TRÚLEGA höfum við íslending- ar aldrei fyrr átt jafn stóran hóp mikilhæfra leikara. Þorsteinn Ö. Stephensen er þar á meðal og í fylkingarbrjósti, og hann verður sextugur á morgun. Einn leikari er öðrum ólíkur, jafnvel í grundvallarafstöðu til listar sinnar og geta þó báðir verið jafn heiðarlegir og jafn snjallir. Sumir eiga auðvelt með að skjóta á loft listrænum flugeldum, bregða upp ljóma ævintýrs með glampa á glampa ofan í gamni eða alvöru, þar veldur og fer saman útgeislun persónuleikans og fullkomið vald yfir ytri tækni listamannsins, að viðbættri upprunalegri túlkun- arhæfni náttúrlega. Þorsteinn ö. Stephensen er af öðrum toga spunninn og persóna hans vekur traust en ekki list- rænan æsing, þá er hún fyrst birt ist manni. Og þó er þessum manni sem fáum gefið að lyfta manneskjunni upp í æðra veldi, í svimahæðir mikillar listar. En það gerist allt með hógværð, og sú hógværð kemur frá hjartanu. Hlutverkin eru færri en skyldi Á árunum 1930—1950 starfaði Þorsteinn Ö. Stephensen á svið- inu í Iðnó öðru hverju, en starf hans sem aðalþulur ríkisútvarps- ins hefur ugglaust valdið því, l að hann sást ekki oftar á sviðinu. Frá þessum árum eru þó ýms- ar minnisverðar mannlýsingar.' Laundrjúgur hreppstjórinn, Björn í Fjalla-Eyvindi er sígild persónusköpun. Þorsteinn lék Björn fyrst á alþingishátíðarsýn- ingu Haralds. Björnssonar, síðán með Leikfélaginu 1940 og loks við opnun Þjóðleikhússins. Þá lék hann Jeppa á Fjalli og er mörgum minnisstæður, en Þor- steinn kann sinn Holberg, sem hann kynntist fyrst í mennta- skóla og síðan í skóla konung- lega leikhússins í Kaupmanna- höfn. Voltore lögbókarinn í Vol- pone var hnitmiðuð skopmynd og ekki var smáborgarinn David sen konsúll í Uppstigningu Nor- dals síður ljóslifandi. En leikhús gestir þess tíma minnást hans þó fyrst og fremst sém kirkju- höfðingjans í Skálholti, hann var vitur biskup og strangur, örgeðja og kunni illa að láta hlut sinn, en viðkvæmur hið innra. En til fulls þroska sem lista- maður kemst Þorsteinn Ö. Step- hensen eftir 1950. Margir Leik- félagar vildu láta leggja niður hið gamla félag, þegar Þjóðleik- húsið tók til starfa. Örfáir möld- uðu í móinn og spurðu, hvort þess kynni ekki að vera þörf eftir sem áður. Einn þessara manna var Þorsteinn Ö. Step- hensen og góðu heilli sigraði það sjónarmið og félagið hélt áfram starfi sínu. Við ramman reip var að sjálfsögðu a& draga, en það hygg ég ekki hvað sízt hafi riðið baggamuninn, að með listrænu starfi sínu sannaði félagið tií- verurétt sinn. Þar átti Þorsteinn Ö. Stephensen mikinn hlut að máli. Leikfélagið ’réðst í það stór virki að koma Marmara Kambans £ fyrsta sinn á svið og leikur Þorsteins í hlutverki Roberts Belfords, dóm'arans var satt að segja svo stórkostlegur, að fram ar heyrðust engar raddir um það að hlutverki Leikfélagsins væri lokið. Nú rak hvert stórverkið ann- að: Absalon Beyer varð í með- förum leikarans svipmikil per- sónulýsing, en Njú prins 1 Pi-pa-ki varð líka mikilfengleg- ur, en upp á allt annan máta, annar barn líðandi stundar, hinn sub specie aeternitatis. Síðan kom einn forkosturlegur Kranz birki- dómari í Ævintýri á gönguför, aldeilis sprellifandi, ósköp hýr og góður, en skelfilega vitgrannur, og á hæla honum öllu þroskaðri mannvera, Jean Valjean í Vesa- lingunum, steyptur í skírasta málm, sem staðið hafði af sér alla loga reynslunnar. Lenna í Músum og mönnum gleyma víst fáir sem sáu, það þarf miklar gáfur og mikla samúð til að lýsa þeim gæfusnauða vesalingi, sem Guð hefur sámmta^ svo litla skynsemd; Þorstein Ö. Stephen- sen skortir hvorugt. Fleiri hlutverk mætti minna á, eins og grand seigneurinn, Slop- er lækni í Erfingjanum, þar sem Þorsteini veittist létt að lýsa hyggni hins veraldarvana manns, eða Þorleif alþingismann í Kjarn orku og kvenhylli, sem segja mætti að kynni ekki nema svona á hálfan heiminn. En hæst af öllum hlutverkum Þorsteins Ö. Stephensens mun bera lýsing hans á kennaranum Crocker- Harris í Browning-þýðingu Ratt- igans. Því miður átti ég þess ekki kost að njóta þeirrar sýningar, en ég á auðvelt með að trúa því, að hér hafi hlutverki Crocks val- izt frábær túlkandi. List Þor- steins ö. Stephensens er nefni- lega að sumu leyti innhverf, eðo öllu heldur hjá honum fæðist ekkert að utánverðu. Að vístt skortir leikarann sízt af öllu at- hyglisgáfu, en hún beinist frem- ur að skúmaskotum hugans og hjartans en að ytri einkennum eða siðum. Leikur Þorsteins á sviði er sjaldan . fjölbrögðóttur, hann er einfaldur í sniðum, dreg inn skýrum raunsönnum dráttum, yfir honum getur verið reisn, þar getur búið mannvit og mælska, en eldur hugsjónarinn- ar tendrast af ríku skapi og til— finningahita. Leikur Þorsteins getur verið harla þróttmikill, þegar svo ber við, en viðkvæm- asti og blíðasti andblær er hon- um jafntamur. Þar finnst eng- inn falskur tónn. Inn í þessa ríku listamannslund blandast svo kímni, sem getur verið á mörgum strengjum og engum, sem stilltir eru af handahófi. Svipbrigðaleikur Þorsteins er að öllum jafnaði minnistæðari en limaburðurinn, og sakar þá ekki að hafa augu, sem geta leiftrað af gáfum eða ljómað af hreinni hjartahlýju. En frá ber þó fram- sögnin. Þorsteinn hefur í á ann- an áratug veitt forstöðu leiklist- ardeild Ríkisútvarpsins og sjálf- ur leikið meir og betur en aðrir á þeim vettvangi. Það hefur ver- ig góður skóli; ekki kann ég skil á þeim blæbrigðum mannlegrar hugsunar og tilfinninga, sem hann hefur ekki töfrað fram með rödd sinni. Margt útvarpshlutverkið hans gleymist víst seint, svo raunsönn og heilshugar • hefur túlkun hans verið. Hér tjóir ekki að rekja nöfn og þylja, þvi verða gerð betri skil við annað tækifæri. Heilshugar hefur leik- arinn einnig verið í þeim ótelj- andi trúnaðarstörfum, sem hann hefur gegnt fyrir stétt sína og sitt gamla félag. Hann var fyrstá formaður ísl. leikara, formaður Leikfélagsins á millibilsástandr- inu 1950 og aftur tíu árum síðar; átti sæti í leikritavalsnefnd, með an hún starfaði og meðal þeirra mála, sem hann hefur barizl fyrir, er húsbyggingamál Leik- félagsins, enda var hann kjörina formaður húsbyggingarnefndar, þegar sú nefnd var sett á lagg- irnar. En á sviðinu er þó fyrst og síðast staður fyrir leikarann, þar í snertingu við áhorfandann er vaxtarbroddur listarinnar. Þor- steinn Ö. Stephensen hefur verið of sjaldséður á sviðinu hin síð- ari ár; í formannstíð sinni fyrir fjórum árum lék hann nokkur hlutverk en síðast lék hann 1 Eðlisfræðingunum fyrir tæpum tveimur árum. Þeir, sem unna leiklist okkar eiga bágt með að una þessu. Um leið og ég árna afmælisbarninu allra heilla og sendi eiginkonu hans, frú Dórot- heu og fjölskyldunni allri bezttt kveðjur, vil ég bera fram þá ein- lægu ósk, að hann deili nú brátt með okkur hinum gjöfum guð- anna, sem hann hefur hlotið ai svo miklu örlæéi. Ótal verkefnl bíða hans. Sveinn Eirvarssoa. Blindþoka á Hornafirði Hornafirði, 19. des. SVARTAÞOKA var bér í gæ*; svo að vart sást milli húsa. Heo- Jólfur átti að koma til Horna- fjarðar í gærmorgun, en komst ekki inn vegna þoku og sjós. Varð hann fná að hverfa i gænkveldl og hélt til Fáskrúðsfj arðar, þar sem hann umskiipar vörum og póeti til Hbrnafjarðar í Herðu- brefð, sem er væntanleg hingað á mánudag. Einnig voru tvær flugvélar væntanlegar í gær, ea komust ekki af sorrvu ástæðum. Um 60 farþegar munu bíða fara hingað frá Reykjavík. Síðasta prÓBtlfierð hingað var á þriðjudag; er flugvél kom frá Reykjaviik. MostaLlur jólapósturinn er enn ófiarinn frá Hornafirði. í dag gerði hins vegar bezta veður, en flugvölturinn mun ótfær sökum hoUcIaka.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.