Morgunblaðið - 31.12.1964, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLADIÐ
Fimmtudagur 31. des. 1964
íálkestir á gamlárskvöld
.3LAÐIÐ hafði í gær tal af
Eriingi Pálssyni og spurðist
fyrir um hve margir bálke'st-
1 ir yrðu í Reykjavík á gaml-
árskvöld.' Eii.ingur sagði, að
lögreglan hefði samþykkt 65
bálkesti og yrði stærsta brenn
an borgarbrennan svonefnda á
Kringlumýrarbletti. Við Æg-
issíðu, Sörlaskjól og Faxa-
skjól yrðu í kringum 4 bál-
kestir og allir stórir.
Á Klambratúni, þar sem
venjulega hafa verið stærstu
brennurnar yrðu nú tvær litl
ar brennur. Sunnan við Eill!- ,
iðavog yrði einnig mikill bál-
köstur og við Sundl augaveg
annar álíka stór bálköstur. f»á
yrði nokkuð stór bálköstur í
Laugardal, rétt þar sem nýja
íþróttahöllin stendur. í>etta
verða því þær brennur sem
hvað mest kveður að, þegar
við kveðjum gamla árið. í
borgarbrennunni verður
Ekki ástæða til oð
óttast mjólkurskort
SAMKVÆMT upplýsingum
Mjólkursamsölunnar í Reykjavik
er ekki ástæða til að óttast mjól'k
urskort hér í bæ, eins og útlitið
var í gær. Að vísu gekk mjólkur
bílunum fyrir austan Fjall og
af Kjalarnesi og úr Kjós ílla og
voru ekki væntanlegir fyrr en
seint í gær. >ó var búist við að
ÖU mjólk bærist er búist var við,
en dagsþörfin er nú að jafnaði
um 80 þúsund lítrar. Rjómi var
einnig væntanlegur og ekki talin
ástæða til áð óttast skort á hon-
um. Nokkur hluti hans barst frá
Norðurlandi og var hann kom-
inn þaðan í gær. Viðbótin kem-
ur úr nágrenninu.
Rorið hafði nokkuð á mjólkur
vöruhamstri, en talið er ástæðu-
laust að hamstra mjólkurvörur,
enda Ieiðir það til algers rugl-
ings á mjól'kursölunni.
Fæ t'ð í dag ræður nokkru um
hvort skorta kann mjólk fyrst
eftir áramótin, en veðurspáin er
fremur hagstæð og ekki gert
ráð fyrir úrkomu, þótt skafrenn-
ingur geti tafið flutningana.
Hagstæður vöruskipta-
jöfnuður í növember
Skip og flugvélcu fluttcu inn fyiii 581
milljón á tímabilinu jan.—nóv.
Vöruskiptajöfnuðurinn í nóv-
embermánuði sl. var hagstæður
um 117,5 mil!)jónir króna. Út
voru fluttar vörur fyrir 508,9
millj. kr., en inn fyrir 391,4 mllj
kr. >á voru fluttar út vörur fyrir
497,3 millj. kr., en inn fyrir
327,8 millj. kr.
Á tímabilinu janúar-nóvember
1964 varð vöruskiptajöfnuður-
inn óhagstæður um 4.67,1 millj.
Út voru fluttar vörur fyrir 4.294,7
millj. kr., en inn fyrir 4.761,8
millj. kr.
Á sama tímabili 1963 varð vöru
skiptajöfnuðurinn óhagstæður
um 525,9 miilj. kr. Þá voru flutt
ar út vörur fyrir 3.573,1 millj. kr.
en inn fyrir 4.098,8 millj. kr.
Á tímabil jnu janúar-nóvem-
ber voru flutt inn skip og flug-
vélar fyrir 580,8 millj. kr., en
fyrir 133,1 millj. kr. á sama
tímabili árið 1963.
kveikt kl. 11.15 og sagði Er-
lingur, að ástæðan fyrir því,
hve kveikt yrði seint í hen.ni
væri, að hún ætti að loga
fram yfir áramótin. í öðrum
bálköstum verður kveikt eitt-
hvað fyrr, en Er.ingur bað
menn að varast að kveikja
of snemma í þeim. Að lokum
sagði Erlingur að lögreglan
hefði gert miklar ráðstafanir
svo allt gæti farið fram á
gamdlárskvöld. á sem frið-
sam/legastan hátt.
Tveir samn-
ingar við
LSA
Miðvikudaginn 30. desember,
1964Í voru gerðir tveir samning
ar á milli ríkisstjórna Bandarikj
anna og íslands um kaup á banda
rískum landbúnaðarvörum. —
Samningana undirrituðu James
K. Penfield sediherra Bandaríkj
anna og Guðmundur X. Guð-
mundsson, utanríkisráðherra.
Samningar um kaup á banda-
rískum landbpnaðarvörum hafa
verið gerðir árlega við Banda-
rikjastjórn síðan 1957. Hinir
nýju samningar, sem gilda fyrir
árð 1965, gera ráð fyrir kaupum
á hveiti, maís, byggi, tóbaki,
hrísgrjónum, soyjabauna- og bóm
ullarfræsolíum.
Annar samningurinn er að frár
hæð 33 milljónir króna hinn að
frjárhæð 56 millj. kr. Gera má
ráð fyrir, að 75% af andvirði
þeirra gangi til lánveitinga
vegna innlendra framkvæmda.
Endurgreiðslur slíkra lána færu
fram á um 20 ára tímabili, í
krónum samkvæmt fyrrnefnda
samningnum, en í dollurum sam
kvæmt þeim síðarnefnda.
, (Frétt frá ríkisstjórninni).
Vetrarhjálpin þakkar stuðning
BEIÐNIR um aðstoð til Vetrar-
hjáiparinnar voru með mesta
móti nú fyrir jóiin.
Vetrarhjálpin veitti öllum úr-
lausn og aðstoð er til herinar leit
uðu. Ok átti hin mikli velvilji
hins almenna borgara stærsta
þáttinn í því að gera það mögu-
legt. Með skátasöfnuninni barst
starfseminni stærsta framlagið
Ýmis fyrirtæki styrktu Vetrar
hjálpin, sem endranær. Stærsta
gjöfin barst frá Ásbirni Óalfs-
syni kr. 50.000,00.
Vetrarhjálpin vill hér með
þakka almenningi fyrir sitt stóra
framlag, skátafélögunum fyrir
skátasöfunina fyrirtækjum fyrir
Páfa boðið ^
á heims-
sýninguna
Páfagarði, 30. des. AP
ir Páli páfa VI liefur verið j
boðið að koma til New York'
næsta sumar til þess að skoðal
i heimssýninguna. Ekki er vitað |
hvort hann hefur þegið boðið. í
Formaður sýningamefndar-
innar, Thomas J. Deegan .jrl
| afhenti páfa boðið, skrifað á |
káifskinn.
framlag sitt og Páli Kolka, lækni
fyrir áhrifaríkt erindi í ríkisút-
varpinu.
Vetrarhjálpin óskar öllum
Reykvíkingum gleðílegs nýárs um
leið og hún þakkar samstarf og
stuðning á liðna árinu.
.... (Frá Vetrarhjálpinni.)
Fulltrúi Kongó-
stjórnar farinn
frá Moskvu
Moskvu, 22. des. — NTB.
SENDIRÁÐUNAUTUR Kongó-
stjórnar í Moskvu, Gaston Ngam
bani, sem vísað var brott úr land
inu fyrir viku, hvarf í dag á
brott úr Sovétríkjunum. Með hon
um var eini starfsmaður skrif-
stofu Ngambanis, Nkazinduli,
sem skráður er bifreiðarstjóri
sendifulltrúans. Fóru þeir flug-
leiðis frá Moskvu áleiðis til
Brússel og fara þaðan til Leo-
poldville.
í brottvísuninni var Ngambani
gefið að sök að hafa stjórnað
„undirróðursstarfsemi“ í Sovét-
ríkjunum. Kvað Ngambani það
ósatt með öllu og bætti við:
„Hvernig í ósköpunum hefði ég
líka átt að gera nokkuð slikt,
aleinn með bílstjóranum min-
um_“
Ámi Tryggvason hefur nú tekið við hlutverki Lárusar Fálssonar
í óperettunni Sardasfurstinnunni og mun leika það á næstunni.
Meðfylgjandi mynd er af Áma í hlutverki sinu. Næsta sýning
verður n.k. sunnudag þann 3. janúar og er það 29. sýningin á
óperettunni.
Norðlæg áft og frosl-
Bjort á Suðuilandi, en fiost nyiðia
BLAÐIÐ átti i gær tal við veður-
stofuna og spurðist fyrir um ára-
mótaveðrið. Gert er ráð fyrir að
frost verði um land allt og norð-
læg átt með éljagangi á Norður-
landi en björtu veðri á Suður-
Fljótamenn í hrakningum
Bæ, Höfðaströnd, 30. des.
MARGT fólk úr sveitunum hér
í kring var í gærkvöldi á leik-
sýningu á Gullna hliðinu á Sauð-
árkróki. Hófst sýningin kl. 4 síð-
degis og var það eins gott, þar
sem veður fór ört versnandi er
á daginn leið
Meðal annars höfðu tveir bílar
úr Fljótum farið fullir af fólki
til Sauðárkróks. Um kvöldið
reyndu þeir að brjótast heim og
tókst öðrum bílum það. Hinn bíll
inn fór heldur seinna af stað.
Um klukkan eitt um nóttina
komu tveir menn heim að Höfða
úr þeim bíl, sem hafði ekki kom-
izt lengra en að túninu við
Höfða. í bílnum, sem er blæju-
bíll, voru 8 manns. Tveir menn
fóru af stað til að leita byggða
og fundu bæinn Höfða eftir
nokkra leit. Þaðan var hringt á
næsta bæ til að fá díselbíl, sem
þar var. Bóndinn þar var einn
heima og treysti sér ekki til að
fara af stað.
Heimamenn á Höfða og menn-
irnir tveir fóru með föt með sér
til fólksins í bílnum, sem komst
um nóttina heim að Höfða og
dvaldist þar sem eftir var nætur.
Á þeim bæjum, sem fólkið var
frá, voru fáir heima, t. d. aðeins
öldruð kona á einum bænum og
kona með tvö ungbörn á öðrum.
Því var nauðsyn fyrir fólkið að
komast heim.
í dag eftir hádegi var brotizt
af stað með fólkið á díselbíl, en
ekki hef ég haft spurnir af því
hvernig ferðalagið hefur gengið.
Nú er hér grenjandi stórhríð
og komin töluverð fönn. Sl. nótt
var rafmagnslaust í Fljótum ag
ekki bætti það úr skák.
Um hádegið í gær var lægð
armiðjan komin suðaustan
fyrir land. Þá var NA-stór-
hríð með 5 — 7 st. frosti
norðanlands en N-hvassviðri
og skaflhríð á SV-landi. í
Skaftafellssýslu var fremur
hæg NA-átt, frostlaust og
bjart veður. Lægðin er farin
að grynnast og er því búizt
við, að senn draigi úr N-áhlaiuip
inu hér á landi.
Iandi.
í gær var mjög mikil snjó-
koma norðan lands og vestan.
Snjómælingar voru gerðar og
reyndust þær á flestum stöðum
10—25 cm jafnfallinn snjór. Mest-
ur snjór mældist á Hornbjargs-
vita 50—100 cm, þá á Akureyri,
25—50 cm. Minnstur mældisfc
snjórinn í Búðardal í Dölum og
Hæli í Hreppum 2 cm.
Lokað á landi, en
samgöngur á sjó
PATREKSFIRÐI, 30. des.
Hér er norðaustambyhir með
hryðjum, 4 — 5 vindstig. ViS
erum lokaðir inni á landi, eins/Og
venjulega um þetta leyti árs,
höfum verið það síðan í október.
Ekki hefuj- verið fiogið hinga'ð
síðan á aðfangadag. Verið er nú
að opna veginn út á flugvöll, en
efokert flugveður er hingað, eins
og er. Ekki veit ég annað, en
vel hafi gengið að ná í mjólk,
þótt það hafi e.t.v. verið torsótfc
síðustu daga.
Ms. Lagarfoss kom hingað í
gær. Hann skrapp til Tálkna-
fjarðar í morgun til að sækja
fisk, en er væntanlegur aftur í
dag.
Bærinn hefur aldrei verið bet-
ur skreyttur en um þessi jól.
skemmtanaIíf hefur verið með
venjulegu móti, og dansleikur
verður auðvitað annað kvöld. —•
Yfirleitt er allt gott hé'ðan að
frétta. — Trausti.
Framfærsluvísi-
tala liækkar um
eitt stig
KAUPLAGSNEFND hefur
rei'knað út vísitölu framifærslu-
kostnaðar í byrjun desermber
1964 og reyndist hiún vera 165
stig eða einu stigi hærri en i
nóvernber.