Morgunblaðið - 31.12.1964, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 31.12.1964, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 31. des. 1964 — Nigería Framhakl af bls. 1 að kosningunum yrði frestað, þar tem þær væru alls ekki réttlát- ar. Þegar Abubakar Tafawa Bal- ewa, forsætisráðherra lýsti því yfir í gærkvöldi, að kosningarn- ar yrðu haldnar svo sem ráðgert hefði verið, beindu forystumenn UPGA þeim tiimælum til stuðn- ingsmanna sinna hvarvetna, að þeir virtu kosningarnar að vett- ugi og létu ekki sjá sig á kjör- stöðum. Fregnir frá suður-suðaustur- og miðvesturhlutum landsins herma í dag, að milljónir manna hafi orðið við þessum tilmælum — en á þessum svæðum er fylgi flokksins mest. Seint í gærkvöldi sögðu tveir menn sig úr fimm manna kjörnefnd þessara land- svæða á þeirri forsendu, að það bryti í bága við samvizku þeirra að taka þátt í kosningum, sem til væri stofnað með óréttlátum aðferðum og ófullnægjandi undir búningi. Fréttamaður AP segir, að fylg- ismenn UPGA hafi valdið spjöll- um á að minnsta kosti 50 kjör- stöðum. A einum stað, a.m.k., í nágrenni Lagos rifu þeir niður kjörklefa að lögreglunni ásjá- andi og var engin tilraun gerð til að bægja þeim frá. Her og lögregla viðbúin átökum í öllum helztu borgum lands- ins var herlögregla viðbúin á- tökum og vörður við allar meiri háttar byggingar. Herinn var og tilbúinn að grípa í taumana. Leiðtogar sumra verkalýðsfélag- anna höfðu hvatt til verkfalls með þeim árangri, að í morgun voru engir strætisvagnar á göt- um borgina og veruleg brögð að því, að skrifstofufólk og að- stoðarfólk í járnbrautarstöðvum kæmi ekki til vinnu. Járnbrautar ferðir voru þó að mestu með eðlilegum hætti. í Lagos virtist allt með kyrr- um kjörum í morgun. Áróður er skv. lögum bannaður á kjördag en síðustu vikurnar hafa mót- mælagöngur og áróðursfundir verið daglegt brauð í höfuðborg- inni sem annars staðar. Er á dag- inn leið varð ljóst, að mesta ringulreið var á framkvæmd kosninganna. Kjörklefar, sem rifnir voru niður voru látnir ó- bættir. f sumum kjörklefum var engan mann að sjá utan lög- regluverði og sums staðar höfðu hvorki kjörstjórn né aðstoðar- menn þeirra látið sjá sig á kjör- stöðum. Friðsamlegasta Iand Afríku til þessa Nígeria hefur til þessa verið eitt friðsamlegasta — og frið- vænlegasta sjálfstæða ríki Afr- íku. Það er jafnframt fjöimenn- asta ríki álfunnar, íbúar u.þ.b. 56 milljónir. Kosningar þessar eru sem fyrr segir, íþær fyrstu sem þar eru haldnar frá því landið fékk sjálfstæði árið 1960. Kosningabaráttan hefur staðið yfir í tvo mánuði og verið hin illvígasta. Það sem einkum hef- ur einkennt hana er hömlulaus valdabaráttu forystumanna norð ursvæðanna annarsvegar og suð- ursvæðanna hinsvegar. Hefur henni verið líkt við baráttu Davíðs og Goliats, þar sem sunnanbúar eru svo miklu fámennari. Til þessa hef- ur ríkt í landinu samsteypu- stjórn helztu forystumanna úr norður- og vesturhluta landsins. Leiðtogi UPGA, dr. Michael Okpara hefur lýst því yfir, að kosningabaráttan hafi verið hreinasti skrípaleikur. Frambjóð- endur flokksins og stuðnings- menn hafi verið fangelsaðir hver af óðrum — og í norðurhluta landsins hafi verið komið í veg fyrir framboð hans og eðlilega kosningabaráttu. Að sögn Okpara reyndi flokkurinn þrívegis að bjóða fram í kjördæminu Bauchi, en án árangurs. Við fyrstu til- raun voru frambjóðendurnir handteknir, segir Okpara, — við aðra tilraun réðust ræningjar á þá og við þá þriðju var fram- bjóðendunum einnig rænt og þeim haldið föngnum, þar til út- séð var um„ að þeir gætu skrif- að sig á framboðslistana, svo sem tilskilið var. Okpara stað- hæfir einnig, að lögregla hafi orðið einum frambjóðanda UPGA að bana, er hann var á leið til þess að skrifa sig á fram- boðslista og hafi svo verið kom- ið síðustu daga, að frambjóð- endur flokksins þorðu tæpast að koma opinberlega fram. Forseti Nígeríu, Azikiwe er sagður mjög áhyggjufullur vegna stjórnmálaástandsins í landinu. Hafði fréttamaður danska blaðs- ins „Berlingske Tidende" eftir honum fyrir skömmu, að yrði ekki bundinn endi á hina sam- vizkulausu stjómmálabaráttu væri fyrirsjáanlegt, að ríkið myndi sundrast — “ og komi til þess, verður Kongómálið hrein- asti barnaleikur í samanburði við Nígeríu“ sagði Azikiwe. Þakkir SVEINDÍS Vigfúsdóttir hefur komið að máli við blaðið og beðið það að koma á framfæri til vina sinna hjá Búnaðarfélaginu, hjart- ans óskum og gleðilegt nýtt ár og þökk fyrir öll liðnu árin. Sveindís sagðist vilja viðhafa orðtækið gamla: „Það sem þér gerið einum mínum minnsta bróður, hafið þér gert mér.“ Friður Drottins sé með ykkur öllum, sagði Sveindís að lokum. Flóttamannastofnunin gefur út plötu með 6 píanðsnillingum Fálkinn hf. annast sölu plötunnar hér á landi — verðux seld fyrir 275 krónur HLJÓMPLÖTUFYRHtTÆKIÐ Fálkinn h.f. mun annast sölu og dreifingu á plötunni „Alþjóða- píaanóhátíðin", sem gefin er út á vegum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna til styrktar flóttafólki í heiminum. Á plöt- unni leika 6 af þekktustu píanó- leikurum veraldar án endur- gjalds verk eftir fremstu tón- skáld, sem uppi hafa verið. Út- gáfa plötunnar er mjög glæsi- lega úr garði gerð og með plötu- umslaginu fylgja margar mynd- skreyttar siður með umsögnum um einleikarana, tónskáldin og Flóttamannahjálpina. Hljóm- platan mun seld fyrir krónur 275,00, sem er lægra verð en á jafnstórum plötum. Athugasemd Á ÞRIÐJUDAGINN var frá því skýrt í Mbl., að varðskip hefði tekið v.b. Leó VE 400 „að meint- um, ólöglegum veiðum undan Ingólfshöfða“. Síðar segir: „Sam- kvæmt' mælingum varðskips- manna var hann tvær sjómílur fyrir innan fiskveiðamörk." — Skipstjórinn á v.b. Leó óskar að taka fram, að báturinn hafi verið tekinn á línu, 4,2 mílur undan Ingólís'höfða. Hins vegar munu varðskipsmenn halda því fram, að þeir hafi séð bátinn í ratsjá fyrir innan línu, áður en hann var tekinn. Sem kunnugt er var seld hér á landi á vegum Flóttamanna- stofnunarinnar SÞ hljómplatan „All Star Festival", með ýmsum af kunnustu dægurlagasöngvur- um veraldar. Var þeirri plötu sér lega vel tekið og seldust af henni 2.500 eintök, þ.á.m. milljónasta platan, sem seld var í heimin- um. Af þessu magni seldi Fálk inn 1.500 eintök. Þessi nýja plata nefnist á ensku „International piano festi- val“ og má telja hana meðal merkilegustu hljómplatna, sem út hafa verið gefnar. Á plötunni leika píanósnilling arnir Claudio Arrau, Wilhelm Backhaus, Alexander Brailow- sky, Robert Casadesus, Byron Janis og William Kempff. Þeir leika verk eftir Mozart, Schubert, Schumann, Beethoven, Chopin og Liszt. í ávarpi fremst í hinu vandaða bókarumslagi segja ráðgjafar for stöðumanns Flóttamannastofnun- arinnar um útgáfur, sem þessa, þeir Jarlin af Harewood og Maitre Ernest Ansermet, svo: „Sjaldan hefur almenning- ur fengið tækifæri til að hlusta á tvo eða fleiri píanósnillinga á sama konsert síðan Liszt og Chopin lelð. Samt gæti vart nokkuð verið ákjósanlegra en að stofna til konserts, þar sem sér- hvert tónésáld væri túlkað af af þeim listamannþ sem hefði orð fyrir nákvæma og óviðjafn anlega túlkun á verkum hans. „Alþjóðapíanóhátíðin*1 var skipulögð með það fyrir augum að veita hlustendum slikan kon- sert. í fyrsta sinn í sögu tónlistar innar leika séx af allra fremstu píanóleikurum samtímans sam- an á konsert til styrktar flótta- fólki í heiminum. Það þurfti mik ið mannúðarmál til þess að freista þessara miklu listamanna til þess að gera þessa tilraun Það þurfti álit Sameinuðu þjóð anna sjálfra til þess að gera þetta mögulegt. Við undirritaðir sem erum ráðgjafar forstöðu- manns Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um útgáfu sem þessa, viljum láta í ljósi þakklæti til listamannanna og þeim hljómplötuútgáfufyrirtækj fyrir skilnig þeirra og samvinnu um, sem gefa út plötur þeirra, og fyrir hönd flóttafólskins vilj um við þakka þeim sérstaklega fyrir örlæti það, sem felst í því a3 gefa öll listamannalaunin til þesj að hjálpa þessu ógæfusama fólkr. Þeirri spurningu verður óhjá kvæmilega varpað fram, hvori þessi einstæða útgáfa sé alveg sérstæður listaviðburður eða hvort hún sé ekkert annað en for vitnileg tilraun. Um snilldarleg- an leik listamannanna hvers um sig getur engin vafi leikið. Ekki er hægt að neita því, að við- fangsefnin eru frábær. En er þetta sýnishorn mismunandi túlk unaraðferða fremur en samstæð ir tónleikar? Hvað svo sem svar ið er, þá erum við þess full- vissir, að „Alþjóðapíanóhátíð- inni“ verður tekið með fögnuði af þeim mörgu, sem trúa því, að tónlistin geri líf mannsins ríkara og fyllra. Við vitum líka, að þeir verða mjög svo fúsir til að leggja skerf til aðstoðar flótta- fólki í heiminum með því að kaupa þessa plötu. Laun þeirra verður dýrgripur safnara, óvenju fagurí. * ÞAÐ KGMUR Og þá eru komin áramót. Fyrr en varir kveðjum við gam alt ár, sem var þó næstum nýtt — þar til allt í einu í gær, að við gerðum okkur grein fyrir, að annað og nýrra var að taka við. Nýja árið virðist kannski fjarlægt þar til allt í einu, að það gengur í garð. Það eru held ur engin sjáanleg mörk milli árs sem kveður — og árs sem kemur, aðeins þau mörk, sem við búum sjálf til með bjöllu- hljómi og hátíðarskapi. f straumi lífisins skilur nú- tíðin á milli fortíðar og fram- tíðar. En nútíðin, stundin, verð- ur misjafnlega merkileg og minnisstæð í fortíðinni fyrir það, sem þá gerðist, eða var í yænd- um. Stærsta stund ársins er á miðnætti, þegar við stöndum allt í einu á mörkum tveggja kafla í tímatali okkar, flytjum úr gömlu húsi, sem reyndist okk- ur misjafnlega vel — yfir í nýtt hús, sem enginn veit hvernig reynist. ★YNGJA OKKUR UPP Við kæmumst sjálfsagt af án þess að hafa áramót, án þess að láta eitt ár taka við af öðru, þótt reynslan hafi kennt kynslóð- unum, að þetta sé þægileg að- ferð til að skipa atburðum í rétta röð á tímans talnabandi. Þótt einhverjir hafi e.t.v. á- stæðu til að fyllast kvíða við komu nýs árs, eru hinir þó miklu fieiri, sem kasta gamla árinu af sér eins og gömlum ham, sem er orðinn þungur af erfiði og áhyggjum fimmtíu og tveggja vikna. Fólk verður ó- sjálfrátt léttara á sér, því á morgun verður allt gamalt, jafnvel það, sem gerðist í gær. Það er flestum léttir að geta byrjað upp á nýtt, geta kastað af sér hamnum með hæfilegu millibili fremur en að draga á eftir sér ævilanga reynslu og strit án þess nokkru sinni að finna heppilegan stað til skera á slóðann og skilja hann eftir sem fjarlæga minningu. Áramót in vega því örlítið upp á móti túnans tönn. Þau yngja okkur upp, fylla okkur nýj um krafti ag gera okkur fært að líta á for- tíðina sem reynslu, en ekki farg. ★ OKKAR GJÖF Og upphaf nýs árs er lífsins gjöf. Lifið er alltaf að gefa okkur eitthvað,. eitt andartak, einn dag, eitt ár í senn. En við niotum ekki allbaf þess- ar gjafir sem skyldi — og hversu oft er stumdin efcki liðin, dagurinn á enda — áð- ur en við áttum okkur á því, að þetta var okkar tísni — gjöif, seim við hefðuim átt að nota betur og njóita meira. Þannig er það vist hjá flest- um. ★ NÝR KAFLI En við áramót tökum við á móti heiki ári, byrjum upp á nýtt — og einsetjum oktour að reyna að nota það Srlítið betur en árið, sem við kveðj- um. Þetta er eitthvað, sem yng ir andann og fær blóðið tii að streyma hraðar í æðtmwn. Við kveðjum gamlam förunaut og sláumst í för með öðr- um og nýjum, sem hefur heill- andi fas — og e.tv. dálítið du arfullan svip, en góðllegan og bjartan. Við vitum, að hann mun oftast reynast okk- ur jafngóður förunautur og við reynumst honum. Hann er ekki síður eftirvæntingafullur en við yfir samfylgdinni, þvl í sameiningu byrjum við á nýj um kafla og höldum áfram söguinni, okkar sögu og tknaru sögu, þvi samfylgdarmaður okkar er tíminn sjálfur — sá, sem alltaf er nýr og férskur, þótt hann eigi langa siögu og hafi ofið þennan mikia lífs- ins vef með kynslóð eftir kyn- slóð. Við óstoum hvert öðru tðt hamingju með það, sean áunrv- izt hefur, og óskum vinuin okkar heilla á næsta áfanga, þegar við bjóðum gleðilegt ár H á <«, J. ***= Y& BO SC H rafkerfi er í þessum bifrelðum: BENZ SAAB DAF TAUNUS NSU VOLVO OPEL VW Við höfum varahlutina. BRÆÐURNIR ORMSSON HF. Vesturgötu 3. — Sími 11467.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.