Morgunblaðið - 31.12.1964, Síða 10
10
MORGU N BLADID
Fimmtudagur 31. de*. 191
ANNALL ARSINS
SÍí>USTU áramót voru með
þeim friðsælustu í Reykjavík
síðan hafmeyjan leið. Fá-
míennt var 1 miðbænum á
gamlárskvöld vegna ofurölv-
unar í heimahúsum, en lög-
reglan tók samt 45 stráka og
nokkur hundruð kínverja úr
umferð — svona til þess að
gera eitthvað. Annars hafði
lögreglan mjög gaman af
brennunum víðs vegar um
bæinn. — Dr. Kristinn var
viðstaddur áramótaveizlu i
Kreml og þar var líka búið
að taka alla Kínverja úr um-
ferð. Nkruma var sýnt bana-
tilræði, skotið fimm skotum,
en ekkert þeirra hæfði. Möng-
um Afríkuþjóðum lætur enn
betur að nota hin frumstæðu
vopn fremur en að vera að
viðra sig upp við menninguna
og reyna að drepa með byss-
um.
Splunkunýir símastaurar
tættust og klofnuðu eftir endi-
löngu í þrumuveðri í Arnes-
sýslu, rok reif járnplötur af
hótelinu í Borgamesi — og
var hótelgestum, sem í sumar
kvörtuðu yfir vætu í rúmun-
um, sagt, að þær hefðu aldrei
fundizt aftur — og hafði þó
verið leitað. Tunnuverksmiðj-
an á Siglufirði brann til ösku
og losnuðu Siglfirðingar þar
við allar tunnurnar á einu
bretti. Þar að auki fengu þeir
atvinnu við að byggja verk-
smiðjuna upp og var þetta tal-
in mikil Guðsgjöf þar nyrðra
og sæmileg sárabót vegna
allra síldarlausu síldarsumr-
anna.
Nú fór páfi í fótspor Péturs
Ottesens og heimsótti landið
helga og þóttu þetta engu
minni tíðindi í hinum kaþólska
heimi en suðurför Péturs var
á sínum tíma í uppsveitum
Borgarfjarðar. Samstaða
tókst með borgaryfirvöldum
og arkitektum í stríðinu gegn
borgarbúum um staðsetningu
ráðhússins. Var talið, að það
mundi taka sig bezt út á
Tjarnarbakkanum, þegar það
speglaðist í silfurtærri Tjörn-
inni eftir að búið væri að
fylla Tjörnina til þess að koma
ráðhúsinu fyrir. Var það
niðurstaða meirihluta borgar-
ráðs, að Hringbraut væri á
mörkum hins byggilega heims,
allur heimurinn utan Hring-
brautar væri einskis virði
mannlegu samfélagi. — Þótt
margir væru sammála var
séra Árelíus það ekki, því
hann var langt kominn með
byggingu kirkju og safnaðar-
beimilis fyrir blessuð litlu
guðs'börnin austast í Austur-
bænum.
Nú voru dollarar sviknir út
úr varnarliðinu — í allra
fyrsta sinn að sögn fróðra.
Nýtt flugfélag var stofnað í
Eyjum, fyrsta flugfélagið þar,
en undirbúningur var hafinn
að stofnun flugfélaga í öllum
bæjum, sem ekki höfðu þá
þegar komið sér upp einu eða
fleiri flugfélögum. Nokkrir
13 ára unglingar voru teknir
ölvaðir á almannafæri í höfuð-
bonginni, fluttir heim til sín
og þar var foreldrunum gefin
áminning vegna þess að börn-
in voru úti eftir að útivistar-
tími þeirra var á enda að
kveldinu. Danskennarasam-
band var stofnað og eðla kom
upp úr appelsínukassa hjá
KEA. Er hún nú á byggða-
safni Akureyrar.
Enn var hálfgerð sumar-
blíða á Islandi og sérstök
rannsóknarnefnd Sameinuðu
þjóðanna úrskurðaði íslenzka
grasið meltanlegra en annað
gras á okkar guðsgrænu jörð.
Það var ag talið halda fóður-
gildi sínu lengur á sumrin en
annað gras og talin höfuð-
ástæðan fyrir viðgangi Fram-
sóknarflokksins. Hafin var
krossferð gegn Hallgríms-
kirkju og var rætt um að
endurskíra kirkjuna, kalla
hana Péturskirkjuna í höfuð-
ið á forystumanni krossfar-
anna. Eimskip var þá orðið
50 ára, orðið það aldrað, að
heppilegt þótti að fela það
umsjá Elliheimilisins Grund-
ar. En Gísli vildi ekki taka á
sig þann kross.
Fimmtugur íslenzkur kaup-
sýslumaður sagði upp milljón
króna árslaunum í Danmörku
og flutti til íslands — til þess
að hugsa. Greinilegt var, að
maðurinn byrjaði einum of
seint að hugsa. — Nú kom
bandaríska læknanefndin til
sögunnar og studdi kenningar
Dungals um reykingar og
krabbamein, en gleymdi þó
hangikjötinu í greinargerð
sinni. Reykingamenn urðu
óttaslegnir og sala vindlinga
hraðminnkaði á íslandi og olli
það áhyggjum þeirra, sem
gættu hins tóma kassa ríkisins.
Steindór bannaði meira að
segja reykingar í Keflavíkur-
rútunni — nema þeim, sem
reyktu smyglaðar sígarettur
af Vellinum. Talað var um að
banna reykingar í félagsheim-
ilum landsins, en hætt við,
þegar sveitamenn spurðu,
hvort ríkið reisti ekki félags-
heimilin til þess að fólk gæti
betur notið hins ódýra brenni-
víns og tóbaks, sem ríkið
seldi landsmönnum í ágóða-
skyni fyrir félagsheimila-
sjóð. Svonefnt þyrluþilfar
var sett á varðskipið Óðinn
svo að það gæti líka legið í vari
þar, sem engin félagsheimili
eða önnur dansgólf höfðu
þegar verið byggð.
Mikið var karpað um Hann-
es Hafstein þessa dagana og
lýsti menningarviti Morgun-
blaðsins þá upp margan krók
og kima. Héldu menn deilum
sínum áfram löngu eftir að
þeir höfðu gleymt um hvað
deilt var, en einblíndu stöð-
ugt á fyrrgreindan vita, sem
sendi út ljósmerki sín með
stuttu millibili — og úr þeim
mátti lesa SAM — SAM —
SAM, sem ekki féll í kramið
hjá öllum. — Maður nokkur,
sem var að forða sér undan
lögreglunni, ók tvisvar á
lögreglubílinn — og komust
lögregluþjónar naumlega
undan. — Björn Pálsson hóf
innflutning á special-nöglum
til þess að stinga í hjólbarða
bíla. Sagði hann þetta auka
öryggið í umferðinni og ók
sjálfur allt árið á- öllum
sprungnum til sannindamerk-
is. Nú er hann að hefja inn-
flutning á nýjum gerðum
flugvéla, sæm hafa það um-
fram aðrar, að á þeim eru
engir vængir. Er það til ör-
þarna syðra og voru fljótir
heim í hlýjuna, þegar leikun-
yggis fyrir farþegana, því þess um lauk. Við heimkomuna
ar flutgvélar komast aldrei á
loft
sögðu þeir, að allt hefði verið
fullt af snjó á mótssvæðinu,
þættinum var lokið. — Mjall-
hvít og dvergarnir voru.
sýnd í Þjóðleikhúsinu við
mikla aðsókn. — Borað var
eftir neyzluvatni í Vestmánna-
eyjum, Grillið var opið alla
daga og bruni varð hjá *Bur-
meister og Wain í Kaup-
mannahöfn án þess að Gull-
foss kæmi þar nærri.
Skömmu eftir að mús ein
seinkaði BOAC-þotu frá Lon-
don til New York héldu sjálf-
stæðismenn á Akureyri veizlu
mikla með óttalegum afleið-
ingum. Á heimferðinni gerði
matareitrun óþyrmilega vart
við sig hjá veizlugestum — og
munaði víst litlu, að nokk-
ur atkvæði glötuðust að ei-
lífu. — Sjónvarpsnefndin
gerði nú áætlanir um dagskrá
sjónvarpsstöðvar okkar og
voru margir af helztu andans
mönnum þjóðarinnar bros-
prófaðir í þvi skyni. Eitt
helzta atriði góðrar sjónvarps-
dagskrár er, að ílytjendur
brosi falléga, þegar það á við
— og hvenær á það ekki við?
Stjórnaði útvarpsstjóri bros-
prófun þessari og var mönn-
um skipt niður í þrjá flokka:
Efstir á blaði voru þeir, sem
höfðu „breitt bros“, númer
tvö höfðu „milt bros“ — og
þriðji flokkurinn hafði „broa
— og ekki bros“. Eitt af bíla-
umboðum bæjarins fór á bak
við tollinn, en fékk bílana úr
vöruskemmu fyrir eina
áfengisflösku stykkið. Bílar
þessir nefndust brennivíns-
bílar og þóttu betri en aðrir.
— Simonsen í Fuglafirði 1
Færeyjum keypti Akurey og
Tjereskova fékk áheyrn hjá
Englandsdrottningu.
Eitt af eilífðarmálunum,
„aumingja litlu Loftleiðir og
ófreskjan SAS“, var þá þegar
komið á dagskrá og var eitt
aðal blaðaefnið allt áuið. Var
SPESPEGLI
Á Raufarhöfn kvörtuðu
þeir yfir því að hafa ekki
fengið póst síðan um áramót
— og loksins, þegar póstskip-
ið kom þann 21. janúar, hafði
það engan póst — heldur að-
eins límonaði frá Sanitas. En
þetta var þrátt fyrir allt kær-
komin sending, því allir
þorpsbúar höfðu drukkið
óblandað síðan um áramót. —
Litlafell, olíuskip Sambands-
ins, sem notað er til ferða,
sem lítið má bera á, braut 5
metra skarð í skjólvegg á
Keflavíkurhöfn. Sögðu sum-
ir, að ferð skipsins hefði ver-
ið heitið upp á flugvöll, en
þar á það heimahöfn. Jósafat
Einars Kvarans var sýndur í
Eyjafirði, en Jósafat Arn-
gríms var syðra. Meðalhalla-
rekstur togaranna var 3,5
milljónir á ári, sagði Emil —
og var talað um að ganga
milli bols og höfuðs á þeim
fáu, sem báru sig til þess að
halda áfram að gera út hina,
sem aldrei báru sig. Þorra-
blót hófst í Nausti og kominn
var febrúar.
Vestmannaeyingar byrjuðu
mánuðinn á að láta nappa sig
í landhelgi aldrei þessu vant,
en siðan sendum við flokk
manna á Vetrar-Olympiuleik-
ana, því aðalatriðið er ekki
að vinna, heldur að vera með
og kunna að tapa. Það sýndi
sig líka, að okkar menn fóru
til þess að gera það síðar-
nefnda, eins og svo oft áður.
Að þessu sinni var ástæðan
sú, að þeim þótti allt of kalt
ekki hægt að hreyfa sig fyrir
snjó.
Nú hækkuðu þingmenn
kaupið sitt sjálfir án samráðs
við vinnuveitendur, enda
höfðu leigubílar, bíómiðar og
sjússar hækkað töluvert síð-
an þeir fengu kauphækkun
síðast. — Talið var til tíðinda
að fjölskylda ein í bænum
slóst vegna þess, að ekki varð
samkomulag um það, hvort
hlusta ætti á íslenzka útvarp-
ið, eða horfa á Bonanza í
Keflavíkursjónvarpinu. Skarst
lögreglan í leikinn og losnaði
heimilisfólkið ekki við lög-
regluþjónana fyrr en Bonanza-
viðureign Loftleiða vi®
Djöfsa orðin ein uppáhalda
dæmisaga presta um allt land
í stólræðum sínum, en fæstir
fengu samt frítt far út á það
— heldur var boðið að fljúga
og borga seinna, en heilir
söfnuðir fengu sérstakan hóp-
afslátt, sem gildir í fjörutiu
daga og fjörutíu nætur.
Urnglingaklúbbur FUF
færði aldurstakmarkið niður
í 12 ár til þess að börn gætu
fengið fermingarundirbúninj
á framsóknarvísu. Málverk
eftir apa gerðu lukku í Stokk-
hólmi og Margeir J. Magnua-