Morgunblaðið - 17.01.1965, Qupperneq 1
28 siður 04$ Lesboit
Hittast
Wilson og
De Gaulle
í marz?
London, 16. jan. — NTB: —
ÁREIÐANLEGAR heimildir í
London töldu í dag að Harold
Wilson, forsætisráðherra mundi,
í fyrsta lagi geta átt fund með
De Gaulle Frakklandsforseta í
marz nk. Hermt er að Wilson
hafi áhuga á því að hitta Ðe
Gaulle persónulega, en hinsveg-
ar muni hann ekki geta farið til
Frakklands í bráð vegna mikilla
anna heima fyrir. Þá er og sagt
að De Gaulle hafi mikinn áhuga
á fundi þeirra Wilsons.
.m
- -
I ÞARNA sjáunt við Hallgríms- ,
I kirkju frá dálítið nýstárleg-
um sjónarhóli, þ.e.a.s. ofan '
1 frá. Þannig litur þetta mikla |
I mannvirki sem sagt út, séð |
| úr himinhæðum. Kirkjubvgg-
ingin myndar kross í snjón- '
um. Biiarnir í kring sýna vel I
i stærð kirkjunnar. Myndina |
) tók ljósimyndari blaðsins, ÓI.
I K. Mag., úr flugvél sl. föstu-
dag. Sjá fleiri loftmyndir frá
Reykjavk og nágrenni á bls.
27.
Sáttafundur
kL 8.30 í kvöld
SÁTTASEMJARI hefur
boðað fulltrúa sjómanna
og útvegsmanna á fund í
hvöld klukkan 8.30. —
Þann fund sækja einnig
fulltrúar frá Breiða-
fjarðarhöfnum.
Líðan Sir Winston
Churchills óbreytt
Honum er þó vart hugað líf
London, 16. jan. — AP-NTB
MORAN lávarður, læknir Sir
Winston Churchill, kom í
sjúkravitjun til öldungsins í
morgun, og að henni lokinni
las hann eftirfarandi tilkynn-
ingu af tröppum heimilis
hans: „Sir Winston hefur átt
rólega nótt, og engar mikils-
verðar breytingar hafa orðið
á línan hans.M
ChurchiII fékk sem kunn-
ugt er slag í gær, og er hon-
um nú vart hugað líf. Tals-
Landanir islendinga
í Noregi til umræðu
- Fyrirspurn fram komin í Stórþinginu
Osló, 16. jan.
FKA.M hefur komið í norska
Btónþinginu fyrirspurn varð-
endi landanir íslenzkra fiski
ekipa í Noregi, og er líklegt
ialið að fyrirspurninni, sem
heint er til fiskimálaráðherra
INoregs, verði svarað i næsta
Kpurningatíma þingsins.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
wHvað veldiur þvi, að íslenzkir
fiskimenn fá að leggja upp
•fla 1 norskum höínuxn á
sama tíma og norskir fiski-
menn fá ekki sama rétt til
að leggja upp afla sinn í ís-
~ lenzkum höfnum? Vill ráðu-
neytið beita sér fyrir laga-
breytingu, sem gæti tryggt
jafnan rétt í þessum efnum?“
Fullvíst má telja að fyrir-
spurn þessi sé fram komin
vegna veíða Jörundar II. og
Jörundar HL í Norðursjó, en
þeir leggja síldarafia sinn upp
í nonsikri höin.
maður brezku læknasamtak-
anna sagði eftir að hafa fregn
að tilkynningu Morans lávarð
ar í morgun, að „lítil eða eng-
in von“ væri til þess að Chur-
chill mundi lifa veikindi sín
af. „Fyrir mann á hans aldri
eru þetta mjög alvarleg veik-
indi. Yngri maður hefði e.t.v.
meiri líkur á bata. En þrátt
fyrir að hann (ChurchiII)
hafi verið mjög hraustur og
að hann hafi þolað veikindi
évenju vel, þá er hann níræð-
ur, og ástandið hlýtur því að
teljast mjög alvarlegt. Þetta
gæti staðið í viku eða tíu daga.
Veikindi af þessu tagi eru
sjúklingum venjulega kvala-
laus“, sagði talsmaðurinn.
Moran lávarður hefur til-
kynnt að hann muni koma í
sjúkravitjun til Churchills
aftur um kl. 21 að brezkum
tíma í kvöld, og engar frekari
tilkynningar um iíðan hans
verða gefnar út fyrr en að
þeirri vitjun Iokinni.
Slagið. sem Churchill fékk,
stafaði af segamyndun í heilaæð-
um (trombosis cerebri).
Sir Winston svaf stöðugt dýpri
svefni í nótt, og mun ekki hafa
fundið til kvala. í allt gærkvöldi
var mikill mannfjöldi saman kom
inn fyrir utan heimili hans, og
voru þar m.a. um 200 blaða- og
sjónvarpsmenn.
Elízabet drottning hefur farið
þess á leit að hún verði látin
fylgjast nákvæmlega með líðan
hinnar gömlu stríðshetju og
stjórnmélakempu. — Johnson
Bandaríkjaforseti hefur sent
Churchill skeyti, þar sem hann
kveðst vona að han nái fullri
heilsu á ný. í Palm Springs í
Florida, lét Eisenhower, fyrrum
Framhald á bls. 2
ÞESSARI spurningu svara 17
vísindatnenn og forystumenn
vísindamála hér á landi i
greinaflokki hér í blaðinu. t
dag birtast svör fimm manna
en svör hinna birtast síðar.
visindalegar niðurstöður
eru undirstaða nútima þjóið-
félags. Þjóðfélag okkar hefii*
gert sér far um að mennta
menn í hinum ýmsu greinum
vísinda, reynt að búa í hag-
inn fyrir þá, en vissulega
skortir á að fullkomin að-
staða sé fyrir hendi til lausn-
ar þeirra mörgu verkefna,
sem fyrir liggja.
Morgunblaðið væntir þess
að svör visindamanna gefi al-
menningi innsýn í starf þeirra
og þau verði grundvöllur
frekari umræðna um þessi
mál og leiði til aukins skiln-
ings á mikilvægi þeirra.
Fyrstu fimm svörin eru á
bls. 10, 11 og 18.
Sprengiefnavagn
sprakk í loft upp
— er farþegalest fór hjá
— Margir bíða bana og slasast
Bonassola, Ítalíu, 16. jan.
— AP:
SPRENGIEFNI, sem hlaðið
var á vagn í flutningalest,
sprakk í loft upp um leið og
farþegalest fór fram hjá henni
viö Bonassola í dag. Spreng-
ingin varð við járnbrautar-
stöð bæjarins, sem er skammt
sunnan Genúa. Flutningalest
in stóð kyrr á hliðar teinum,
og varð sprengin er farþega-
lestin ók bægt framhjá henni
á hliðarspori. Sjúkrabílum og
neyðarlestum var þegar stefnt
til slysstaðarins frá nærliggj-
andi bæjum.
Síðast er til fréttist sagði lög
reglan að sjö eða átta manns
hefðu beðið hana í farþega-
lestinni, og að margir hefðu
slasazt. Lögreglan bætti því
hinsvegar við, að björgunar-
aðgerðir væru svo skammnt á
veg komnar að tala þessi væri
óáreiðanleg.