Morgunblaðið - 17.01.1965, Page 3

Morgunblaðið - 17.01.1965, Page 3
’’ Sunnudagur 17. íanfiST 1965 MORCUNBLAÐIÐ 3 I ! EYBORG Guðmundsdóttir heitir íslenzk stúlka, sem fyr- ir 5 ánuim ákvað að hætta eft ir 12 ára vinnu við sftwifsttofu störf hjá Rúnaðarfélagi ís- lands og hféit tii Parísar. Þá var hún svolítið farin að dunda fyrir sjálfa sig við að málla, eins og hún orð ar það. En ef'tir að hún kynnt ist betur listaim í heimabarg- iinni, varð hún áfcveðnari í að hdiiga máilaralistinni kraifta sína. Og nú er hún komin heim með 35 málverk, sem sum nafa verið á sýning um erlendis, oig ætdar að sýna þau iöndium símum í Boga- salnum nú í má naðarlok in. Við spyrjum Eyborgu hvað á daga hennar hafi drifið síð an hún lagðd af stað út í heim inn. Hún kvaðst hafa verið um kyrrt í París í þessi 5 ár, mema þegar hún ferðaðist til Xtailíu, Spánar, Austurríkis, Svisis, Enigland, Þýzlkailands og Narðuirtamda. í Paris byrj- aðd hún strax að umgangast iistafólk og þá eimkum mái- ara. „Því mest liæirir maður af því að skoða og fýlgjast Eyborg Guðmundsdóttir og tvö af verkum hennar. Gengi geometriskrar listar fer sívaxandi. — segir Eyborg eftir 5 ára dvöl í París nneð því sem er að gerast í listum“, segir hún. Eyborg hefur á undanföm um árum átt myndir á fjöl- möngium sýningum í París og Þýzkalandi, mikið sýnt með hópi málara og myndhöggv- ara, sem kallar sig „Groupe Mesure“. ,En auk þess verið boðið að taka þátt í öðrum hópsýnimgium, svo sem tvisv- ar í „Saion Réalitós Nouvell- es“, á sýningu á kirkjulist, „Salon d’Art sacré", sem byrj aði í Moderne safninu í París og var svo flutt till fleiri lista safna úti á lamdi, etn þar átti Eyborg hugmynd að kirkju- gólfi í marmana eða annan stein, og nú siðast voru mál- venk eftir hana í hópi 40 mynda, sem valldar Vonu úr af verkum 130 þátttafcemda Realité Nouveliles-sýningunni og sendar til sýningar í Brux elles. Árið 1963 var Eyborg boðið að taka þátt í sýnimgu, sem nefmist „Formes Aetu- elles“, í Grand Pailais í París og aftur í ár í St. Quent in í Norður-Frakklandi o.g nú í nóvemiber s.l. var hún með í sýnimgunmi „Saflon Internaitio mal“ í Juvisy. Á mörgum þess ara sýnimgia hafa myndir Ey- borgar vakið athygli, svo sem sjá má af bl a ðaúrkl ippum úr frönskum og þýzkum blöð- um, þar sem hennar er lof- ^ saimlegia getið. — Seljast myndir nokkuð á slíkum sýningum ytra? — Já, það kemur fyrir. Élg seldi t.d. mynd í Leverkusen í í>ýzka(Iaindi nýlega. En það sem óg hefi selt í Frafckllandi, hefur yfirleitt verið til ein- stakllinga utan við sýningam ar. Lífsbarátta listamanna í París er annars áfcaflega erf- ið, nema íyrir þá sem fá verk efni hjá arlkitiefctum og við skreytinigu á bygginigium. Venk okfcar félaganna 1 Group Mesure, sem eru geo- metrisk, hafa einmitt þótt heppileg til sliks, og hafa sumir félaga minna gert högg myndir fyrir framan skóia, skreytt kirkjur og gert alls konar veggmyndir í opinber- ar byggingar. Við höldum lika einkurn hópinn til að kynna verk okkar með sýn- ingum á góðum sitöðum og laingar til að fá tækifæri til að taka þátt í hinni miklu uppbygigingu nú til dags, hver á sínum stað eða saman. — Mér ski st að þú og fé- laigar þínir aðhyllist hina svo köilluðu geometrisfcu rnynid- list. E.r hún ofariega á baugi núna? — Já, áhuginn á geomet- riskri myndlist virðist fara vaxandi með hverju árinu sem líður. Sem dæmi um það má nefna, að þegar ég fór frá París um dagimn, vloru 4 stórar sýningax af því tagi opnar í borginni og vöktu mikla athygii. Það voru þau Sonia Delaunay, Marce.lle Ghan, Kupka og Deyrolle sem sýndu. í nýútkomnu heftá Expres var ágæt greín um þetta, þar sem segir að geometriska listin, sem hafi fáilið um sinn ofuriítið í skuggann á tkmuim tachis- mans og ammarra nýrra hreyf inga, sé nú að ná þeim sessi sem hún á skilið. Málarar, sem fylgja geometriskri sitefnu í list sinni, hafi alltaf verið trúir þeirri stefnu og haldið áfram að þróa hana. Hvað mig sjólfa snertir, þá held ég að einfaldileikinn eigi bezt við. mitt hugarfar. Fyrst og fremst er éig að reyna að koma reglu á í mín um eigin hugarheimi, sem sagt að reyna að hreinsa til í buiganum, sem ætóð er fulll ur af óþarfa rusli. Svto marg- ir gera sér lífið erfiðara með flælkjum og krókaleiðum. Þetta á auðvitað fyrst og fremst við mig sjálfa og er gert án tillits til annarra. „Ef svo öðrum líkar það sem ég geri, þá verð ég fjarska ham- ingjusöm, ef ekki, þá get ég ekfcert við því gert,“ svo óg taki mér í munn oið Oscars Wildes. — Og hvemig er svo að búa í París? — Þar er tvennt til. Það er yndislegt, en getiur lika verið mjög erfitt. í París er allt til og allt að gerast og hægt að fýlgjast með öllu, jafnt í listurn sem hverju öðru. Fyrir listamiamin er a.uð vitað mjög gotit að hafa eytt þar nokfcrum árum, til að fyjgjast með. Þangað safnast í rauniraii listamenn úr öli- um heiminum. Eyborg er Vestfirðinigur að ætt og uppruna, fædd á ísa- firði, en alin upp hjá ömmu sinni, Guðrúnu Jónsdóittur, á Eyri í Ingólfsfirði, eftir að hún missti ung móður sínia. Amma er nú níræð og ég ætila að faxa að heimsækja hana þegar sýningin mín er búin. Og að lokuim segir búm ,okk ur ástæðua til þess að hún er heim komin. — Ég hafði ailtaf verið ákveðin í að fyrsta einkasýningin min yrði heiroa á íslandi, og mér hefur efcki fundizt óg tilbú- in til að setja upp einkasýn- inigiu á verkum mínum fyrr. Nú tók ég mig upp og hélt af stað heim með 35 myndir, máilverk umnin með mismun- andi efinii og ætla að opma sýn ingu á þeim í Bogasalnium laugardiagiinm 30. jamúar. Sr. Eiríkur J. Eiríksson „Vertu feginn" II. sunnudagur eftir þrettánda. Guðspjallið. Jóh. 2, 1—II. * NÝL.EGA birti kunnur eriendur lögfræðingur og dómari grein í blaði um tómleikann í lífi manna, hversu hann græfi um sig meðal yngri sem eldri. Tók hann dæmi. Hann var í sumarleyfi með lítilli dóttur sinni. Til hátíðarbrigða fór hann eitt sinn með hana í strandgisti- hús nokfcurt. Þau hlustuðu þar á ágæta tónlist, nutu fagurs út- sýnis baðstrandarinnar og út á sjóinn, horfðu á fólkið vera að skemmta sér og fengu góða mál- tíð. Faðirinn spurði telpuna, hvort hún hefði ekki kosið að vera þarna ein og án sín. „Nei.“ „Hvers vegna ekki?“ „Vegna þess, að ég hefði ^k'ki pantað eins góðan mat og ég hefði verið feimin að kalla til þjónsins að koma að borðinu mínu“. Greinarhöfundur segist hafa skilið svarið, en það hafi orðið sér dálítil vonbrigði. Hann minnt- ist sinnar eigin bernsku, er hann tók reiðhjólið sitt og fór til móts við skóg og strönd, sól og regn. Hann telur, að menn séu að verða sljórri á gæði sjálfs lífsins, og hann lýkur grein sinni með þess- um orðum: „Við skuium vera fegin að vera til, þeir eru marg- ir, sem eru ekki til.“ Brúðkaupið í Kana hefur verið nokfcurt olmboga'barn meðal kraftaverkanna. En guðspjall dagsins flytur djúp og almenn sannindi sem alla varðar, hvert sem viðhorfið er til bindindis- málsins. Jóhannesarguðspjall hefur sér- stöðu, hvað kraftaverkin snertir. Það er notað orð um þau, sem þýðir „sönnunargagn“. Fjarri fer að Jesús geri kraftaverfc af handahófi vegna ytri aðstæðna andartaksins. yilgangurinn er ávallt ótvíræður, sá að leiða í ljós dýrð Guðs, sem birtist í Jesú Kristi. Einnig er það sér- kennilegt um guðspjallið í þessu sambandi að kraftaverkin eru einnig tákn, hafa kenningargildi, fela í sér sérstakar hliðar á boð- skap Jesú. Þannig verður því varla mót- mælt, að vín í Jóhannesarguð- spjalli hefur fyrst og fremst táknlega merkingu. Ef til vill hefði Jesús valið annað hugtak í þessu efni, hefði hann verið Norðurlandabúi. Við verðum að athuiga, að vín var daglegt brauð Gyðinga. Drykkjuskapur er fordæmdur í Heilagri ritningu: „Ekki sæmir konungum að drekka vin, né höfðingjum áfengur drykkur. Þeir kynnu að drekka og gleyma lög- unum og rangfæra málefni Hvöt heldur spilakvöld Sjálifstæðiskvennafélagið Hvöt heldur sitt árlega spijakvöld í Sjálfstæðishúsinu á mónudags- kvöld, Þar veöður að venju spil- uð félagsvist og mörg góð verð- laun veitt. Þá flytur frú Geir- þrúður Bernhö'ft, eand. theol. ávarp. Einnig munu erlendir skemmtikraftar þeir sem nú skemmta í Sigtúni, Bonny syst- ur, skemmta á spilakvöldinu. Á eftir verður stiginn dans. Byrjað verður að spila kl. 8:30, en húsið er opnað kl. 8. Að- gömgumiðar a'ð spilakvöldinu verða seldir í dag, sunnudag, kl. 2:30—6 í Sjálístæðishúsinu og á morgun fcl. 3—5. Félagsfconum er heimilt að tafca með sér gesti og eru karl- ar velkomnir jafnt sem konur. aumia manna." (Crðskv. 31, 4-Sþ 17-18). Hins vegar gætir !ðtilnings á víninu, að það sé tákn svipað og ætla má un» iguðspjall dags- ins, í þessum orðum Efesus'bréfs- ins: „Verið því ekfci óskynsamir, heldur reynið að skilja, hver sé vilji Drottins, og í stað þess að drekfca yður drufckna í víni, sem áðeins leiðir til spillingar skuluð þér fyllast andanum" (Ef. 5, 17—18. TJm vínnaútn má margt segja. Afleiðingar hennar eru einatt alvarlegar, en orsökin er aðalat- riðið, og hún nær til allra manna og er almennt böl. Við neytum lyfja til þess að verða heilbrigð varanlega, en einnig meðan stundaráhrif lyfs- ins endast. Því fylgir auðmýking oig soknuður beilbrigðinnar. Hins vegar teljum við oft efckert við það að athuga að taka lífs- gleðina inn í vínskömmtum. Það býr um sig tóm með okkur, sem ' hefur dökkar hliðar. Á tjaldi sálarinnar koma fram óhugnanlegar myndir lífsleiðans, sem halda fyrir okkur vöku og geta rænt okkur sálarfriði. Áhrifavaldurinn er hið innra með okkur sjálfum, en er efcki umhverfi ofckar eða kjörum að kenna. Sjálfsblekkingin grípur okkur og nær tökum á okkur. „Ég er hinn sanni vínviður og faðir minn er vínyrkinn", segir Jesús í Jóhannesariguðspjalli. Með öðru sanna þessi orð, að vínið er lík- ing í munni Jesú. Vínið þrýtur í Kana. Það skort- ir á hina sönnú lífsfyllingu. Mað- urinn er gestur hjá sjálfum sér, skoðar ekki sjálfan sig í réttu ljósi. Leiti maðurinn hins vegar síns rétta eðlis, kemst hann að raun um, að skortur hans er mik- ill og þörf og, að þvi hunigri fær Guð einn fullnægt. Kyrrð mannssálarinnar á stund sjálfs- prófunarinnar er eins og þegar lauf trjónna bærast efcki á undan storminum, hinu nýja lífi, er fer um sál mannsins andspænis Guði. Lausnin á mannlegum vanda er dyggðin, karlmannlegt viðhorf gagnvart lifinu, er fyrst og síð- ast Guðs náð fyrir trúna, er flyt- ur fjöll úr stað. Niðurlag guðspjalls dagsins er: „Þetta sitt fyrsta tákn gjörði Jesús í Kana í Galíleu, og opin- beraði dýrð sína; oig lærisveinar hans trúðu á hann“. Dýrð Guðs opinberast í krafta- verkum Jesú Krists. En hún birt- ist í veikleika mannsins, er hann leitar á náðir Guðs. Dýrð Guðs skín gegnum hjarta. manns, er leitar lífsins í honum sjólfum sér til blessunar og, að daginn lengi með'bræðranna. Ungur maður kom fram i æsku- lýðsþætti Ríkisútvarpsins í síð- astliðinni viku. Félgar höfðu ver- ið að skemmta sjúklingU'm. Þafck- læti þeirra gagntók þá, og var þeim dýrmætara gjald en pen- ingar. Pilturinn segist hafa huigsað. er hann kom út úr sjúkrabúsinu: „Vertu feginn að vera til og að vera heilbrigður". Hafði líf þessara ungu rnanna ekki öðlast fyllingu í aukmun mæli við góðverk þeirra um leið og birti í sjúkrastofunum?. Þannig má dýrð Guðs opinber- ast okkur, vatnið sem tókn tóm- leikans umbreytast í vín sem tá'kn lífsfyllingar hugsana og gjörða. Lestu niðurlag annars loka- kapitula Jóhannesanguðspjalls: „Mörg önnur tákn gjörði Jesús líka í augsýn lærisveinanna, og eru þau ekki rituð í þessari bók. En þetta er ritað til þess að þér skulið trúa, að Jesús sé Kristur, guðs-sonurinn, og til þess að þér með því að trúa, öðlizt lífið í hans nafni“. (Jóh, 26, 30—31). Ámen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.