Morgunblaðið - 17.01.1965, Side 21

Morgunblaðið - 17.01.1965, Side 21
Stinnudagur 17. Janúar 1965 MORCU N BLADID 21 — Reykjavíkurbréf Framh. af bls. 15 Verða fiskigöngur skipulagðar? r 1 Kommúnistar burðast við að halda því fram, að allur okkar vandi verði leystur með því að skipuleggja fiskveiðar og fisk- verkun að hætti „sósíalismans“, þ.e. á kommúníska vísu. Um þetta hamast Þjóðviljinn við að skrifa sömu vikurnar og í rúss- neskum blöðum má lesa um, hversu hinum kommúnisku skipuleggjendum hefur tekizt báglega að skipuleggja jafn ein- I falda iðnaðarframleiðslu eins og t.d. smíði saumavéla og barna- 1 leikfanga. Mætti þó ætla, að þetta hvorttveggja væri með ein- faldari úrlausnarefnum í komm- únísku einræðisríki. En að sögn rússneskra blaða hefur við hvor- ugt tekizt að ráða með sæmileg- um hætti. p ' Enginn véfengir, að æskilegt væri að vinna meira úr fiskaf- urðum okkar heldur en gert er. En hér duga ekki orðin ein. „Gaffalbitapólitíkin", sem Hanni bal Valdimarsson kallaði svo í útvarpinu í haust, mundi góðra gjalda verð, ef efndir fylgja yf- irlýsingunum, sem samtímis voru gefnar í september sl. austur í Moskva og hér í Reykjavík. Enn hefur ekki úr efndunum orðið, en það er ekki því að kenna, að ekki hafi verið eftir leitað af íslenzkum yfirvöldum. Vonandi rætist fram úr þessu áður en yfir lýkur, og viðurkenna verð- ur, að markaðir eru óvissir víð- ar en í Sovétríkjunum. En þó að xnarkaðir stæðu hvarvetna opn- ir þá verða gaffalbitarnir ekki seldir nema síldin sé fýrst veidd. Og hvað sem allri skipulagningu líður er enn ekki búdð að skipu- leggja fiskigöngurnar. Sá fisk- ur, sem ekki hefur veiðzt, verður aeint seldur, hvort heldur lítið eða mikið unninn. Sölusamtök eða samkeppni? r ' Deilt er um, hvort leysa eigi upp sölusamtök íslenzkra fisk- framleiðenda. Eðlilegast er, að framleiðendur ráði mestu þar um zjálfir. Á meðan yfirgnæfandi meirihluti þeirra telur sölusam- tök æskileg, er eðlilegt að ríkis- valdið styrki þau. Misskilningur er það, sem sumir virðast halda, eð alger nýjung sé, að nokkur útflutningsleyfi séu veitt utan við heildarsamtökin. Þvílíkar leyfisveitingar hafa lengst af tíðkast einmitt um hraðfrystan fisk og hingað til ekki komið ®ð sök. Hlutfallslega hafa slík- »r leyfisveitingar ekki verið rýmk »ðar hin síðari ár. Ný rök þurfa að koma til, bæði ef á að fella undanþágur alveg úr gildi og eins ef þær á að rýmka svo, að •jálfum samtökunum stafi voði ef. Mikill misskilningur er, að eöluleyfi á stjórnarskrifstofu geti komið í stað öflugra söiu- •amtaka. Söluleyfi geta aldrei tryggt annað en eftirlit með því, •ð óeðlileg undirboð eigi sér ekki *tað. Fiskverð erlendis verður hinsvegar aldrei hækkað með á- kvörðun á íslenzkri stjórnarskrif •tofu né verða beztu markaðir fundnir með því móti. Stóriðja ' Hugmyndir um stóriðju •mækka hvorki þýðingu land- búnaðar né fiskveiða fyrir ís- lendinga. Hvað sem um stór- Iðju verður, þurfum við að reka heilbrigðan landbúnað og leggja Stund á fiskveiðar. Við getum án hvorugs verið og hvorttveggja ber að efla eftir föngum. Stór- iðja getur aldrei leyst allan okk- •r vanda. Það er rétt, sem fram hefur verið haldið, að til að byrja með mundi hún ekki veita nema tiitölulega fáum atvinnu. Ea mjór «r mikils vísir. Öll okk- ar fallvötn verða ekki virkjuð í einu. Virkjun Elliðaánna greiddi fyrir en hindraði ekki virkjun Sogsins, þegar okkur hafði vaxið fiskur svo um hrygg, að hún var orðin tímabær. Vegna virkjunar Sogsins, sem framkvæmd hefur verið smám saman á 30 árum, þá er hægt að velja um, hvort menn vilja áfram „smávirkjanir" með háu orkuverði til frambúðar, eða stórvirkjun í Þjórsá, með því að leggja á sig nokkra byrði í bili og semja við útlendinga um orku- sölu til þeirra, er skapi nýja at- vinnugrein 1 landinu, okkur að meinfangalausu. Raunsæjum mönnum getur valið trauðla reynzt erfitt. ísland er nógu örð- ugt land, þó að við notum allar þess auðlindir. Við ætlum ekki að gefa útlendingum neitt af okk ar verðmætum né ætlumst við til gjafa af þeim. En við megum ekki ætla okkúr þeim mun minni menn en alla aðra, að okkur stafi hætta af því, sem öðrum, og þó einkum þeim, sem eru okkur líkastir, hefur reynzt sönn lyfti- stöng. — Þjóðleikhúsið Framhald á bls. 8 höfundurinn gefur engin fyrir- mæli um hvernig stofa þeirra skuli vera búin. Þó er ég ekki frá því, að ibúðin hefði mátt vera ívið íburðarmeiri. Ljósabeit ing var góð. Þýðing Jónasar Kristjánssonar á hinum erfiða texta leiksins var með miklum ágætum, og ber að óska honum sérstaklga til ham- ingju með vel unnið vandaverk. Frumtextinn er bæði mergjaður og viða æði klúr, og hefði verið frágangssök að þýða hann orð- rétt, svo ólíkar sem málvenjur einstakra þjóða eru í klúryrð- um. Jónas hefur „mildað“ text- ann án þess að týna niður safa hans og ferskleik. Þýðingin er með öðrum orðum fyllilega sam- boðin verkinu, og er þá mikið sagt. Signrður A. Magnússon. GUSTAF A. SVEINSSON hæstaréttarlögmaður Þórshamr] við Templarasund Sími 1-11-71 PILTAR EFÞlO EIGIO UNNUSTUNA ÞÁ Á ÉG HRINCrANA / Áfört<?/? /7s/w/?é(s$onJ_ I SÍMI; 3V333 ’ValLT TlLLeiGU Khana-bílatj VÉLSKÓrLUR D-RATTARBÍLAR FIUTNIN6AVA6NAR. pvuGAvmuvéiAin \ s,v"3V333 í þessum veitingasal geta 134 manns matast samtimia. — Endurbótum Framhald af bls. 19 legum húsgögnum, þiljaður fallegum viði og lýsing er ágæt. Þá hefur hljómburður verið bættur þar stórkostlega írá þvþ sem áður var. Fríhöfnin er sennilega sá staður í flugstöðinni, sem flestir útlendingar heimsækja. ÍMeðan við stóðum við var þar margt farþega frá Loftleiðum j og Pan American. Keyptu þeir ýmist myndavélar, skartgripi, minjagripi eða þá Egil sterka, en við horfðum langeygir á. Húsakynni fríhafnarinnar hafa verið flutt frá sínum gamlp stað og yfir í þann hluta hússins, sem flugvallar- stjóri og póstur og sími höfðu áður aðsetur. Öll er innrétt- ing hennar mjög smekkleg og skemmtileg og stendur sízt að baki því, sem bezt gerist er- lendis. Handan við fríhöfnina eru söluskrifstofur Loftleiða og Pan American, flugumsjón og biðsalur flugáhafna. Enn er t.d. eru loftin enn ófullgerð og mikil.l munur á hljómburði þar og annars staðar í bygg- ingunni. Þegar við komum var mikið um að vera þar, því að stöð- ugt eru flugvélar að koma og íara. Starfsmenn Loftleiða hafa í mörg horn að líta, því að þeir annast ekki aðeins afgreiðslu sinna eigin flugvéla á Keflavíkurflugvelli, heldur veita þeir einnig öllum öðrum flugféögum og farþegum þeirra þjónustu. Húsnæði tollafgreiðslunnar var tekið í notkun að hálfu leyti nú í vikunni. Enn er ó- lokið við ýmsar breytingar þar, en áherzla verður lögð á, að öll afgreiðsla gangi fljótt og vel. Allir farþegar, sem koma inn í landið, fara þar um, og þeir, sem eru á leið út úr landinu „tékka sig inn“ þar. Til þess að enginn iþurfi EGILL SIGURGEIRSSON Ilæstaréttarlögmaður Málf'utningsskrifstofa Ingólfsstræti 10 - Simi 15958 Ásvallagötu 69 Símar 21515 og 21516 Kvöidsími: 33687. Höfum kaupanda að 5 Kerb. nýrri íbúð Útborgun kr. 750.000.00. HRINGIÐ UM HELGINA. að sligast undan níðþungum farangurstöskum, eru þarna vagnar svipaðir þeim, sem eru í kjörbúðunum, og eiga menn að aka farangri sínum á þeim. Við þennan enda byggingar- innar er verið að reisa við- byggingu fyrir tollvöru- geymslu. Eldhúsin eru sá hluti húss- ins, sem er einna forvitnileg- astur. Þar er matreidd fyrir mörg þúsund manns í hverri viku. Sem dæmi um afköstin þar má geta þess, að í flug- eldhúsinu hefur verið hafður til matur fyrir 80 til 90 manns á aðeins hálfri klukkustund. Húsnæðið er ekki ýkja stórt, en þeim mun betur búið tækjum. Það var einkum flugeldhús- ið, sem fróðlegt var að kynn- ast. Þar er gengið frá öllum veitingum, sem fara um borð í flugvélarnar og gengur það furðufljótt fyrir sig. Eitt af því, sem mesta athygli okkar vakti þar, var heljar mikill brauðskurðarhnífur. S k e r hann heilt hveitibrauð í einu og er fljótur að Iþví. Okkur var sýndur matarbakki, sem var á leið út í eina af flug- vélum Loftleiða, og var ekki laust við að okkur langaði til að taka okkur far til útlanda. Á efri hæð byggingarinnar er skrifstofa flugvallarstjóra í nýjum húsakynnum. Þar er einnig hótelið, sem rúmar 90 gesti. Hafa Loftleiðir í hyggju, að breyta því í nýtízkulegra horf. Enda þótt margt hafi breytzt til hins betra, er þó margt eftir að gera ennþá. Byggt verður nýtt anddyri og settar nýjar útihurðir. Einnig er ráðgert að byggja „fingur“ frá sjálfri aðalbyggingunni í átt til flugvélanna til að far- þegar þurfi ekki að ganga langa leið í illviðrum. Veitingasalirnir eru á sínum gamla stað. Einnig þar hafa farið fram miklar breytingar til að auka á þægindin. SaL irnir eru tveir, og er með góðu móti hægt að stækka þá veru- lega. í öðrum þeirra eru framreiddar veitingar fyrir „transit“ farþega, og eru sæti fyrir 134 manns. Þegar við drukkum þar kaffi með Iþeim Gunnari Helgasyni og Jóhann- esi Óskarssyni, sagði þjónustu stúlkan okkur, að 128 manna hafi matazt þar í einu, iþegar flest hefur verið. Af því má sjá, að sætanýting er góð hjá Loftleiðum einnig á jörðu niðri. Meðan við drukkum kaffi, notuðum við tækifærið og spurðum Gunnar margs um starfsemi Loftleiða. Hann. sagði okkur meðal annars, að það væri orðið einkar vinsælt hjá útlendingum á leið yfir Atlantshafið að dvelja hér í einn eða tvo daga og skoða sig dálítið um áður en áfram er haldið. Loftleiðir höfðu frumkvæði að þessu, og nú hefur spurzt að Irish Airline* hafi tekið þetta upp eftir Loft- leiðum og £á sína farþega til að doka við á írlandi. Japan Airlines, sem fljúga meðal annars milli Tókíó og Kaupmannahafnar yfir norð- urpólinn, hafa sent hingað fulltrúa til að athuga aðstæð- ur á Keflavíkurflugvelli. Eru þeir mjög ánægðir með að- búnað allan og hafa nú hug á að gera KeflavíkurflugvöU að varaflugvelli fyrir pólflug- ið'og vilja semja við Loftleiðir um afgreiðslu á flugvélum sínum. öll flugstöðvarbyggingin er þannig úr garði gerð, að tU sóma er þeim sem hlut eiga að máli. Hefur vel til tekizt, að þessi staður á landinu, sem er fyrsti viðkomustaður flestra, sem inn í landið koma og hið eina, sem tugþúsundir útlendinga nokkurn tíma sjá af landi okkar, skuli v«r« eins vel úr garði ger og raum ber vitni. * Ltsala — Utsala Síðasta tækifærið að gera góð kaup. Útsölunni lýkur á morgun. Hjá Báru Austurstræti 14. Frúarleikfimi Æfingar eru byrjaðar í Austurbæjarskólanum á mánudögum og fimmtudögum kl. 8 e.h. Verið með frá byrjun. Fimleikadeild K R.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.