Morgunblaðið - 03.02.1965, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.02.1965, Blaðsíða 11
£MI •-•íihdÞ.Í t UÚIHO^ 0.1 Miðvikudagur 3. febrúar 1965 MORCUNBLAÐIÐ 11 Þorkell Björnsson frá Hnefilsdal — 60 ára f DAjG, 3. feto., á sextugsafmæli í^Þorkell Björnsson frá Hnefils- 'jdal á Jöíkuldal, fyrrum bóndi á iteyðri-Varðgjá í Eyjafirði og •viðar, en nú afgreiðslumaður og Itiúsvörður hjá Mjólkursamsöl- |Unni í Reykjavik. Flestum þeim, sem nú minnast Vina og samferðamanna á merk- %im timamótum, verður það oft- «st fyrir að guma af þvi, hve :,*jf)g]egir þeir séu í útliti. Ég fcetla þó að reyna að leiða hjá knér að sinni þetta alkunna af- mælisbjai. Ekki vetgna þess, að í>orkell sé ekki ungur í anda og Útliti, — því það er hann svo K-'4 *.. •annarlega — heldur vegna hins, eð íslendingar eiga nú flestir þvi láni að fagna að sýna í sjón og raun, hvílík geysibreyting hefur órðið til batnaðar á aðbúnaði og lífsviðurværi síðustu kynslóða í Iþessu landi. — Manntal og mann- Sýsing, er skrásett var á íslandi árið 1703, staðfestir einna bezt |>essa þróun, en þá var altítt, að íertugar manneskjur voru útjaskaðar og komnar í kör, sem »ú myndi kallast. En ekki mun það vera að skapi yinar mins, Þorkels Björnssonar, éð verið sé að riíja upp erfið- Íeiíka þjóðar okkar og eymd lið- inna alda. Ha-nn er einmitt maður bjarstýninnar, sifellt glaður og Iþress, glettni á lofti og nef- tóbaksdósir í útréttri hendi, ef nok'kurt tækifæri gefst frá eril- eömu starfi. ' Fyrir bömum aldamótanna Var námsbxautin ekki svo lýst og vörðuð sem seinna hefur orð- ið, en horkell átti því láni að tfagna að hann var kominn af tfróðleiksfúsum og gáfuðum for- eldrum, þar sem voru þau Björn Þorkellsson frá Klúku í Hjalta- fetaðaþinghá Og kona hans, Guð- ríður Jónsdóttir frá Skeggjastöð- um á Jökuldal. Heíur þeim áreiðanlega verið það kappsmál að fræða og mennta börn sín eftir beztu getu á þeirra tíma mæli- kvarða. Bjöm var sjálfur íjöl- fróður maður og gegndi hann margvísiegum trúnaðar- og for- ystustörfum fyrir sveit sina öll búskaparár á Jökuiásdal. 1925 fer Þorkell í Eiðaskóla, þá tvítugur að aldri, oig lýkur þar námi og prófum með ágætis- einkunn. Það er mál 'kennarra og annarra, er kynntust Þorkeli Björnssyni á þessum námsárum hans, að hann hafi verið lær- dómsmaður með ágætum, fram- ,koma til fyrirmyndar skólafélög- um og hafi hann 'haft til brunns að bera flest það, sem einkum má prýða sannan menntamann. Barnahópurinn heima í Hnef- ilsdal var stór, ellefu systkinin, Búskapurinn varð því að eera umfangsmikill og nóg að starfa, ef afkoman átti að vera viðun- andi. Búið fór stæklkandi, en störf föðursins sívaxandi í þágu sveitar og hins opinbera. Eftir Eiðadvölina hafði því vaskur sonur ærið að starfa við bú- Skapinn, en síðar, þegar Þorkell staðfesti ráð sitt, ráku þeir feðigar félagsbú í Hnefilsdal. Erfiðir tímar fóru nú í hönd. Kreppan mikla tók að sliga at- hafnalíf og varð þá þröng fyrir dyrum hjá mörgum bóndanum. Full reisn var þó jafnan yfir búskapnum í Hnefilsdal. Yngri systkini Þorkels vonu á þeim tíma sett til mennta, og hefur hann utan efa tekið sinn þátt í þeim tilkostnaði. Eru sum þeirra þegar iandskunn, svo sem Stefán forstjóri í Reykjavík. Öll eru þessi systkini hið mannvænleg- asta fólk. Haldast þar í hendur gáfur og dugnaður. Árið 1932 giftist Þorkell Önnu Eiríksdóttur frá höfðubólinu Skjöldólfsstöðum á Dal. Bjuggu þau hjónin fyrst, sem áður getur, félagsbúi með Bimi í Hnefilsdal, en síðan víðar á Jökuldal, unz þau flaittu að Syðri-Varðgjá í Eyjafirði árið 1941. Tóku þau þá jörð til ábúðar hjá Þorsteini M. Jónssyni, bókaútgefanda á Akur- eyri, Síðar keypti Þoikell Bjöms- son jörðina Kífsá í Kræklinga- hlíð við Akureyri, bygði þar og endurbætti búskaparstöðu á margan hátt, en vegna van- heilsu þá um sinn varð hann að leggja niður búskap og erfiðis- vinnu. Þá flutti fjölskyldan til Akureyrar, og starfaði Þorkell þar hjá Ræktunarfélagi Norður- lands og síðar hjá vikublaðinu Degi sem auglýsingastjóri og af- greiðslumaður. Til Reykjavíkur flyzt Þorkell ásamt fjölskyldu sinni um ára- mótin 1956—1959 og hefur síðan ? j gegnt erilsömu vörzlu og hús- varðarstarfi hjá Mjólkursamsöt- unni. A þesu má sjá, að Þorkell Bjömsson ‘hefur á margt iágt Igjörfa hönd, og 'hvert eitt starf, sem honurn var falið leysti hahn af hendi með mesta sóma. Það rúm, sem hann skipaði, var allt- af vel mannað. Þessi fjol- hæfi mannkostamaður heffir hrugðið lifandi svip yfir urp- hverfi sitt. Glaðværð hans þg bjartsýni hefur alltaf sigrazt á öllum aðsteðjandi erfiðleikuip — og vissulega hefur hann ekki farið varhluta af þeim. Lífið var ekki alltaf dans á rósum. Einhver mestur styrkur Þoý- kels Björnssonar og gæfa hans er 'heimili hans. Það megum y.ið gerst vita, sem höfum átt því láni að fagna að kynnast hds- bóndanum, hinni mikilhæfu konu hans, þeirra gestrisna og glæ§í- lega heimili, þar sem við höfum ásamt börnum þeirra notið þeSs heimihsanda og menningarbrags, sem aldrei verður metinn eða mældur eftir veggbreidd eða lofthæð. Mun ekki hér sá brim- brjótur, sem öldur lífsins klofh- uðu á og gátu aldrei grandað. Á þessum merku timamótum í lífi húsbóndans er okkur vinum hans Ijúft að geta óskað þessu heimili til hamingju með unninn sigur í lífsbaráttunni. Börn hafa þau Anna og Þorkell - ■ ■ Fyrirlestrar Stúdentaráðs MTÐVIKUDAGINN 9. febrúar hefjast á ný hjnir almennu fyrir- lestrar Stúdentaráðs. Flytur þá prófessor Tómas Helgason fyrir- lestur um geðsjúkdóma á íslandi, en doktorsrit hans fjallaði ein- mitt um það efni. Hálfum mánuði síðar, mið- vikudaginn 17. febrúar, flytur Sveinn Einarsson leikhússtjóri fyrirlestur um leiklistarsögulegt efnL Fyrirlestramir verða haldnir í I. kennslustofu Háskólans og hefjast kl. 21.00. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Stúdentaráð Háskóla fslands. eignazt fjögur. Er elztur Björn, raívirkjam. á Akureyri, giftAir Oddnýju Óskarsdóttur; Anna Þrúður, áður flugfreyja, gift Gunnari LárussynL verkfræðingL Þá er Eiríkur Skjöldur, mjólkur- fræðingur, giftur Sigrúnu Skafta- dóttur, hjúkrunarkonu. Yn.gstur er Ingvi Þór, er nú stundar laga- nám við Háskóla íslands. Ingvi er kvæntur Hansínu Björgvins- dóttur frá Seyðisfirði. Barnabörnin eru þegar orðin átta talsins, svo það er ástæða til að vera bjartsýnn á, að þessir tveir ættliðir fra hinum lands- kunnu menningarheimilum, Hnefilsdal og Skjöidólfsstöðum, eigi eftir að gefa þjóðinni „góðan ávöxt". Og ekki dregur það úr bjartsýninni, að alþýðúsíkáldið góða, Örn Arnarson er þama á næsta leiti, en hann var móður- bróðir frú Önnu konu Þorkels. Þetta fólk hefur hlotið marga góða kosti að erfðum. Traustlei'ki þess á sér gildar rætur í fornrL heilli mennintgu. Shkt íólk er mikil gæfa þjóð sinni. Heill þér og þírum. E. B. M. * FLUGSLYS Aþenu, 23. jan. (NTB) FLUTNINGAVÉL bandaríska flughersins rakst á fjall 160 km. fyrir vestan Aþenu i gær. 10 majuns voru með vélinni og fórust allir. Vélin var af gerðumi C—124. FIRMAKEPPNI Skíðaráðs Reykjavíkur 1065 Skíðafélögin í Reykjavík senda forráðamönnum fyrir- tækjanna beztu kveðjur. Eftirtalin firmu voru þátt- takendur í firmakeppni Skíðaráðs Reykjavíkur: Eggert Kristjánsson & Co h.f. Prentsmiðjan Edda Ísbúðin Dairy Queen Síld og Fiskur Kr. Kristjánsson Vátryggingafél. S'káne/Malmö Heildv. Davíðs S. Jónssonar Vátryggingafélagið h.f. Nesti * Samvinnubankinn Har. Árnason, heildverzl. Vélsmiðjan Jám h.f. Stetnavör h.f. S. í. S. Verzlunin Edinhorg Reiðhjólaverkstæðið Fálkinn Rakarastofa Harðar Eimskipafélag íslands Timburverzl. Árna Jónssonar Samvinnutryggingar Korkiðjan h.f. Blikksmiðja Borgarþvottahúsið Magnúsar Thorvaldssonar Sjóklæðagerð íslands Leðurverzlun Brnnabótafélag íslands Jóns Brynjólfssonar Timburverzl. Völundur Café og Restaurant Höll Eagle Star lnsurance Co. Kristinn Benediktsson, O. Ellingsen nmboðs- ©g heildverzlun Verzlunin Vaðnes Sveinn Egilsson Ora, Kjöt og Rengi Einar J. Skúlason Silli og Valdi I. B. M. Ottó A. Michelsen Þvottáhús Adolfs Smith Dagblaðið Tíminn Heildv. Bjarna Bjömssonar Vélsm. Jóns Sigurðssonar Columbus Kiddabúð Bæjarleiðir h.f. Verzlunin Sport Stilling h.f. Verzlunin Hellas Gufubaðstofan Kvisthaga Verzlunin Víf Sportver h.f. Herradeild P. Ó. Skeljnngur S. Ámason & Co Sjóvátryggingafélag islands Skóverzl. Pétnrs Andréssonar V erzluna rbankinn Heildverzl. Sveins Helgasonar Kjartan og Ingimar, sérl.hafar Jöklar h.f. Sælgætigerðin Víkingur Jóhann Rönning h.f. Ræsir h.f. Sveinn Björnsson Skósalan Heildverzl. Rolf Jobansen Bemhard Petersen Teiknistofan Tómasarhaga 31 Almenna Verzlunarfélagið h.f. Ingólfsapótek Þ. Jónsson & Co Burstagerðin Liverpool, London & Glóbe Vogaver Vátryggingafél. Nye Danske Hydrol h.f. Byggingav.v. Ísleifs Jónssonar Austurbæjarbíó isafoldarprentsmiðja K'assagerð Reykjavikur Tryggingamiðstöðln h.f. Trésm. Birgis Ágústssonar Kristján Ó. Skagfjörð Ölg. Egill Skallagrimsson Þórður Sveinsson hj. Sápuverksm. Mjöll L. H. Muller Sindri h.f. Kjötborg Vátryggingaskrifstofa Harpa, Lakk og Málninga- Sigf. Sighvatssonar h.f. verksmiðja ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA Hofum opnað útsölu á PeysiBm ocj barnaúlpnm Fjölbreytt úrvnl — Míkil verðlækkon CEFJUN - IÐUNN, kirkjustkæti i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.