Morgunblaðið - 03.02.1965, Side 15

Morgunblaðið - 03.02.1965, Side 15
r Miðvikudagur 3. februar MORGU NBLADIÐ ia b \ t SÍÐARI hluta fyrra árs strönduðu þrjú skip á sania stað á Raufarhöfn, svonefndri Kotflúð, sem er utarlega í höfninni. Snæbjöm Einarsson á Raufarhöfn hefur skrifað eftirfarandi grein fyrir Mbl. um þessi strönd og þó sér- staklega hið síðasta, sem hef- ur orðið alPsöga'egt: Raufarhöfn, 20. janúar. FYRST er að geta þess að bátur, sem var að koma ina með síldarfarm á fyrrihluta síðustu sumarvertíðar strand aði á flúðinni. Var það m/b JÖKULL úr Ólafsvík. Bkiki tókst að losa bátinn aif flúð- inni, fyrr en búið var að losa aflann úr bátnuim, og mun Susanne Reith Þrjú skip stranda á sama stað á hélfu ári mest af aflaniuim haifa farið i sjóinn. Ekki munu miklar skemmdir hafa orðið á því skipi. ANNAÐ STRAND Síðari hluta sumars strand aði eiiínig á sama stað m/b DRANGUR frá Aikureyri. f>ví strandi virtist vera tekið með mikitli stillingiu af viðklom- andi aðilum, og mun irneð skynsamlegri yfirvegun hafa bekizt að ná því skipi af strandstað án miikillla um- brota. Skemmdir munu ekki hafa orðið miklar á því skipi heldur. Drangur ÞRIÐJA STRAND En svo kemur þriðja strand ið, sem varð hinn 11. des. s.l. og kalla mætti jólastrand, er Þýzika flutningaskipið „Sus- anne Reith“ renndi upp á þessa sömu flúð, og er það stratnd þegar orðið alll- sögullegt. — Einn ljós punkt- ur er þó í öllum þessum skipaströndum, og það er, að ekki hafa órðið nein Slys á mönnium, að undanteknu því, að kafari mun hafa meiðst eitthvað, en ekki þó alvar- lega, «g var það nú í des. s.l. við hið síðasta skips- strand. Yfir fiúð'ina — og til baka aftur. Tvö af varðskipunutm gengu frá að draga hið strandaða skip af flúðinni, eða öIíju heldur yfir hana, því að þá var bjórgun hagað þannig að draga átti skipið áfram inn- yfir fiúðina. Tókst það þar til þyngdarpunktur skipsins var komian á háflúðina, gengu þá stærðar björg inn úr hlið og botni skipsins, og stækkuðu götin eftir því sem meira reytvdi á. Síðast var leki orðinn óviðráðanlegur með þeim dælum, sem ráð voru á. Síðan kom „Björgiun h.f. tH sögunnar. Var þá far- ið öfugt að við hinar fyrri björgunartilraunir, og reynt að ná skipinu afturábak fram af flúðinni. Einnig var reynt að þétta skipið, þegar tekist hafði að ná úr því sjó með mikilvirkum dælum, sem ,3jörgun“ hafði meðferðis. En við áframhaíldandi drátt og áreynsLu hefur leki auk- izt, og verður nú ekki fram- ar við neitt ráðið á þwí sviði. Skipið er niú sunnanvert á flúðinni, og er stefni þess ekki fjarri þeim stað er það renndi upp á flúðina, en það hefur snúist þannig að afbur endi þess er nú nær landi en áður, en ekki nærri því kam- inn upp í f jöru, eins ag sagt hefur verið í fréttinni. Virðist nú ekiki annað fyrir en hætta frekari björgunar- tilraunum að sinni, enda, táð óstitlt og sjór mjög ókyrr, sem vænta má á þessum tíma árs. Skipið yfirgefið í áföngum. Allan þann tíma, eða síðan 11. des. s.l. og þar til fyrir fáurn dögum hafa skipverjar verið um borð í skipinu. Fónu þá 11 þeirra af skipsfjöll í húsnæði, sem útvegað var handa þeim. En eftir urðu í skipinu skipstjóri og tveir aðrir. — Fyrir tveim dögum yfirgaf skipstjóri loks skipið ásamt hinum tveim, oig er það nú alveg í umsjá „Björg- unar h.f.“ hvernig svo, sem þeim málum er annars hátt- að. — Áhöfn skipsins bíður nú hér eftir því að komast áleið- is til sinna hermkynna eftir döpur jól og óyndlsleg ána- mót. Geta má þess, að skip þetta sigldi inn á höfnina, án þess að taka hafnsöguimann, og án þess að stansa fyrir utan svo að nokkru næmi, og mun hér um einhverja fljót- færni hafa verið að ræða frá hendi skipstjórnarmanna, en þetta skip hafði áður kom ið hér, sennilega oftar en einu sinni. Á skipinu voru 14 manrrs, þar af 6 Spánverjar. Snæbjörn Einar»v>n- Jökull Þorraþankar í DAG er fyrsti dagur þorra, er (þá vetur hálfnaður og sól hækkar óðum á lofti. í sveitinni er tíð- indalítið, allt gengur sinn vana gang. Bændur eru enn svo gamal- dags að þeir eru ekki komnir upp á lag með að gera verkföll, en hirða sínar ær og kýr, enda vilja þær hafa sitt, hvað sem hver segir. Víða er fólksfæð og því ærið að starfa, en æði margir gefa sér þó tíma til að líta í bók eða blað, og þá ekki síður að Ihlusta á það helzta, sem sagt er í útvarpinu. Þannig gefst okkur kostur á að heyra hinu vitru og vísu menn lýsa Skoðunum sínum á hinum margvíslegu þjóðmálum. Við umhugsun um martgar því- líkar ræður eða samtöl fer ekki hjá því að manni finnist sums- etaðar hallað réttu máli, eða ekki sé næg þekking á málefninu fyr- ir hendi. í öðru lagi geta komið fram í hugann ýmsar spurningar, sem ékki fást svör við, en geta þó verið til umhugsunar. Eitt af því, sem maður heyrir mikið rætt um, af hinum vísu mönnum, eru niðurgreiðslur á landbúnaðarafurðir. Telja þeir að þar sé mikil vá fyrir dyrum og þjóðarvoði ef ekki sé tekin algjörlega ný stefna r þeim mál- um ag landibúnaður rekinn á allt annan og hagkvæmari hátt, en nú er. Fá þeir með útreikningum sínum fram mjög háar upphæðir, sem ríkissjóður greiði til bænda, er það oftast reiknað með þeim hætti að allar niðurgreiðslur og útflutningsupptíætur á landbún- aðarafurðir eru lagðar saman og þessari upphæð deilt með tölu bænda á landinu, hafa þeir með þessari aðferð komizt að þeirri niðurstöðu, að hver bóndi á landinu fengi á annað hundrað þúsund krónur í beinu framlagi frá ríkissjóði árlega, Vafalaust má telja að niður- greiðslur á vörur séu ekki æski- legar, en til þessa ráðs er nú gripið, bæði hér á landi og víðar af illri nauðsyn, til að halda verð- lagi og dýrtíð niðri og er því gert í þágu almennings en ekki neinnar einstakrar stéttar. Auk þess eru það stjórnarvöld lands- ins, sem ákveða hverju sinni. hvaða neyzluvörur skuli greiða niður og hvað mikið, en landbún- aðarvörurnar verða oft fyrst og fremst fyrir valinu. En jafnvel þó ýmsir virðist álíta, að þetta niðurgreiðslu-fyrirkomulag sé bændum einum til haigsbóta, þá er þó í alla staði fráleitt að taka þá upphæð sem fer til að lækka útsöluverð á landbúnaðarvörum og færa hana bændum til tekna, því mikið af upphæðnni sjá þeir aldrei og kemur ekki nærri þeirra vasa. Tökum til dæmis mjólkina; þar mun vera um stærsta liðinn að ræða. Sam- kvæmt núgildani verðlagsgrund- velli eiga bændur að fá fyrir hvern mjólkurlíter kr. 7.42. Út- söluverð á mjólk nú í heilum flöskum er kr. 6.00, svo þarna er mismunur kr. 1.42, sem greitt er af því opinbera. Af þessum 7.42 verða bændur að greiða flutningsgjald af mjólkinni til flutningsstaðar, — en flutningar eru í flestum tilfellum fram- kvæmdir af öðrum en bændum, mun ek'ki of í lagt þó 42 aurar fari í það, — e* þé eftir kr. 1 á lítra, sem segja má að bændur fái af niðurigreiðslunni upp í sinn margvíslega framleiðslu- kostnað. Nú er mjólkurmagn vísitölubúsins áætlað 20.200 lítr- ar, koma þá jafnmargar krónur í hlut bóndans, sem engan veginn er þó styrkur, ‘heldur hluti af kostnaðarverðinu, sem neyt- endurnir igreiða ekki. Sá hluti niðurgreiðslnanna, sem fram yfir er þetta, er hér hefur verið rakið, fer allt annað en til bænda, svo sem flutningsmanna, iðnaðarmanna og verzlunar- manna. Sama gildir alveg um kjótvörur, nema þar er um lægri upphæðir að ræða. Að leggja til grundvallar það verð, sem mjólkurbú og slátur- hús greiða til framleiðénda er ai- veg hliðstætt því þegar útvegs- menn og sjómenn selja afla sinn til fiskverkunarstöðva, engum kemur til hugar að telja þeirra laun annað en það, sem þeim er greitt fyrir fiskinn, án tillits til þess hvað vinnslustöðin selur aftur. Við heyrum, að aldrei hafi komið eins mi'kill sjáfarafli á land hér og á síðasta ári. Sömu- leiðis að verð á fiski hafi aldrei verið eins hátt og nú. Samtúnis er því haldið fram, að laun sjó- manna séu léieg og haigur út- gerðarinnar bágborinn og útkom- an á öllu saman, vinnustöðvua á vélbátum við Faxafióa, sem búin er að standa í þrjár vikur. Ekki skal um það dæmt, hverjir eigi þarna mesta sök á, en áreið- anlega er þetta þjóðinni dýrt og til umhugsunar ekki síður en niðurgreiðsluvandamálið. . Þá er þess einnig getið, að starfsmenn ríkis og bæja séu svo iila haidnir í launamálum, að ekki verði við unað. Manni verður á að hugsa: Hversvetgna sækir fólk svo eftir að komast í þær stéttir og atvinnugreinar,- sem raun ber vitni um, ef þar er alltaf um svo erfið lífskjör að ræða? Nú er það auðvitað á allra vitorði og viðurkennt af öllum, sem um þessi mál ræða í alvöru, að aldrei hafi velmegun verið meiri og jafnari í þessu landi, en einmitt nú, en allir eru í stöðugu kapphlaupi eftir meiri þægindum og meiri peningum, þola jafnvel ekki að horfa upp á velgengni annarra, en lifa í sí- felldum ótta um að verða af- skiptir við úthlutan hinna ver- aldlegu lifsins gæða. Itenedikt Guðmundssoa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.