Morgunblaðið - 10.03.1965, Page 1
28 siðmr
S2. árgangur.
58. tbl. — Miðvikudagur 10. marz 1965
Prentsmiðja Morgunblaðsins,
Verður 7. flota
USA beitt í
S-Vietnam?
Fyrir skömmu komu Habib Boursuiba, forscti Túnis og Hussein Jordimukonungur saman til
fundar, og var þá meðfylgjandi mynd tekin.
Yfirlýsing Moskvu-ráðstefnu 18 flokka:
Samvinna í baráttu fyrir
sameiginlegum markmiðum
— er öruggasta leiðin til að
jafna ágreiningsmálin
Helsingfors, 9. marz, — NTB
BIRT hefur verið yfirlýsing
18-flokka ráðstefnunnar í
Moskvu, sem lauk sl. sunnu-
dag. Er þar lögð áherzla á,
að það, sem sameini hina
ýmsu kommúnistaflokka
heims sé miklu fleira og
öflugra en það, sem aðskilji
þá — og því beri þeim að sam
einast um að efla eininguna
innan hins kommúníska
heims.
Ennfremur, að samvinna i
baráttunni fyrir sameiginleg
um stefnumiðum sé örugg-
asta leiðin til að jafna þau
ágreiningsmál, er upp koma
milli flokkanna.
1 yfirlýsingunni segir, að við-
ræður á ráðstefnunni í Moskvu
hafi farið fram í bróðiurlegum og
vinsamlegium anda og hafi ein-
kennzt af vilja til að berjast
virkri baráttu fyrir einingu
kommúnistahreyfingarinnar, svo
að hún fái framfylgt sogulegu
ihlutverki sínu. Flokkar þeir, sem
sendu fulltrúa til ráðstefnunnar
séu staðráðnir í að gera allt, sem
í þeirra valdi stendur, til þess
að e<fla einingu hinnar alþjóð-
legu kommúnistahreyfingar á
grundvelli kenninga Marx og
Leníns, baráttu hinnar alþjóð-
legu verkalýðshreyfingar og
þeirrar stetfnu, sem sett var fram
í yfirlýsingum ráðstefnanna 1957
og 1960.
>á er tekið fram í yfirlýsing-
unni, að eins og nú hátti i heimi
hór, sé grundvallanþróun heims-
málanna útbreiðsla sósialismans,
efling þjóðfrelsishreyfinga og
aukin áhrif þeirra afla, er berjist
fyrir frelsi. Hina vegar sé starf-
semi heimsvaldasinna — einkum
bandarískra heimsvaldasinna —
fyrst og fremst í því fólgin að
auka spennu í heiminum með
þvi að ráðast á sósíalistísk ríki
og önnur ríki, sem losað hafa
sig við nýlendustjórnir og sagt
skilið við fortíðina.
Þ-á segir, að allir komimún-
istaflokkar verði að standa sam-
an í baráttunni gegn heimsvalda
Framh. á bls. 15
Washington, Saigon, 9. marz.
— (AP-NTB) —
FREGNIR frá Washington
herma, að til greina komi að
sjöunda flota Bandaríkjanna
verði beitt í átökunum í Viet-
nam, í því skyni að stöðva
herliðs- og hergagnaflutn-
inga frá Norður-Vietnam til
Viet Cong skæruliða í Suður-
Vietnam. Engar ákvarðanir
hafa ennþá verið teknar þar
að lútandi, en hermálaráðið
hefur hugmynd þessa til at-
hugunar.
I sjöunda flotanum' eru 125
herskip og 650 flugvélar. Með
því að beita þessum styrk gegn
liðsflutningum frá Norður-Viet-
nam væri unnt að mynda eins
konar varnarvegg n>eðfram
ströndum Vietnam. Til þessa hef
ur floti Suður-Vietnamhers haft
á hendi strandgæzlu og beitt til
þess 556 vopnuðum bátum og
skipum — en þeim hefur ekki
tekizt að sporna við því, að
skæruliðum bærist í skjóii nátt-
myrkurs liðsauki og vopn sjó-
leiðis frá Norður-Vietnam og
það í vaxandi mæli.
í dag var haldið átfram flutn-
ingum bandarískra landgöngu-
liða til herstöðvarinnar Da Nang
í Suður-Vietnam. Upplýsti Frede
rick Karch, hershöfðingi, að
þegar þessum liðsflutningum
lyki, yrðu í og umhverfis stöð-
ina 7000 landgönguliðar, þegar
með væru taldar HAWK-flug-
skeytasveitirnar, sem komu til
landsins fyrir nokkru.
Bandarísku landgönguliðarnir
hafa þegar tekið við vörzlu her-
stöðvarinnar og ennfremur tóku
þeir í dag í sínar hendur hæð
nokkra þar fyrir vestan.
Frá Saigon herma fregnir, að
sendiherrar Suður-Vietnam víðs
vegar um heim hafi í dag átt
fund með fulltrúurr stjórnar
landsins. Að fundi loknum var
tilkynnt, að þeir hefðu orðið sam
mála um að hugsanleg lausn
Vietnammálsins yrði uð byggjast
á þrem meginatriðum:
Frh. á bls. 27
Vissu Þjóð-
verjar allt?
Kaupmannahöln, 9. marz,
(NTB): —
• Dagblaðið „Iníormation*4
skýrir frá því i dag, að Þjóð- i
verjar hafi haft í höndum all-
ar þær upplýsingar um flug-
her Dana, sem þeir þurftu á
að halda, fyrir 9. apríl, þegar
Þjóðverjar réðust inn í Dan- I
mörku. Hafi þeir fengið þessar
upplýsingar hjá háttsettum
dönskum liðsforingjum. Sé
þetta ástæðan til þess, að loft.
varnir Dana komu ekki að
neinu gagni morguninn S.
apríl.
Heimildarmaður blaðsins,
sem ekki er nafngreindur, er
sagður fyrrverandi herflug-
maður, sem verið hafi vinur
þýzka aðmirálsins Canaris.
Hafi Canaris tíðum búið á
heimili hans áður en inn-
rásin var gerð. Samkvæmt um
mælum hans hafði Canaris
fengið allar upplýsingar um
flugvelli og annað, er þeir
vildu og þurftu að vita.
Beygjum okkur ekki fyrir
viðbrögðum Araba
V-þyzkir þingmenn fá
morðhótunarbréf
Bonn 9. marz, NTB.
♦ Fjölmörgum v-þýzkum
þingmönnum bárust í
dag bréf, þar sem þeim
var hótað morði, ef þeir
greiddu atkvæði með
þeirri tillögu, að fram-
lengdur verði fresturinn til
höfða mál gegn stríðs-
glæpamönnum — en at-
kvæðagreiðsla um það um
deilda mál fer fram á Sam-
bandsþinginu í Bonn á
morgun.
á Jafnframt barst fréttastofu
Reuters í Bonn bréf, þar sem
sagði, að þeir þingmenn, sem
létu undan kröfum frá New
York og Tel Aviv og greiddu
atkvæði gegn því að fyrr-
greindur frestur rynni út 8.
maí n.k., hefðu þar með kveð-
ið upp dauðadóma yfir sjálf-
um sér. Um framkvæmd
dómsins mundi sjá „storrn-
sveitarforingi á varnarsvæði
þrjú“. Yfir bréfinu var merki
nazista, hakakrossinn.
Meðal þeirra, sem bréf þetta
fengu, var Eugen Gersten-
maier, forseti þingsins, en
hann sagði, að þingmenn tækju
þessar hótanir ekki alvariega.
Framhald á bls 27.
— segir Ludvig Erhard,
kanzlari V-Þýzkalands
Bonn 9. marz, AP-NTB.
| Ludwig Erhard, kanzlari
V-Þýzkalands lýsti því yfir í
dag, að V-Þjóðverjar myndu
ekki beygja sig fyrir við-
brögðum Arabaríkjanna við
þeirri ákvörðun að taka upp
stjórnmálasamband við ísra-
el. Hafa Arabaríkin uppi há-
værar hótanir um að slíta
stjórnmálasamhandi við V-
Þýzkaland og viðurkenna
þess í stað a-þýzku stjórnina,
vegna ákvörðunar Bonnstjórn
arinnar.
• Erhard hélt ræðu á fundi
flokks kristilegra demokrata í
dag og kvaðst mundu halda fast
við fyrri ákvörðun sina um að
taka upp stjórnmá'lasamband við
ísrael. Hefur rikt mikill ágrein-
ingur innan flokksins um, hvað
gera skuli vegna heimsóknar
Walters Ulbriehts, leiðtoga
a-þýzkra kommúnista, til Kairo
á dögunum.
9 Fulltrúar allra Arabarikjanna
komu saman til fundar í Kairo
í dag, að boði Nassers, forseta
Egyptaiands. Sátu þeir á rök-
stólum í ailan dag, en ekkert er
vitað um niðurstöðu fundarins.
Hvert ríkjanna fyrir sig hefur
ihaft uppi hörð mótmæli gegn
ákvörðun V-Þjóðverja. Hassan
11, konungur í Marokko hefur
aflýst — eða a. m. k. frestáð —
fyrirhugaðri opinberri heimsókn
til V-Þýzkalands. Þingið í Kuwait
hetfur hvatt til þess að tekið sé
fyrir öll viðskipti við V-Þýzka-
iand, stjórnmálasambandi rikj-
anna sé slitið, en þess i stað verði
a-þýzka stjórnin viðurkennd
Utanríkisrá'ðherra Jórdan,
Nussitoen, sagði í kvöld að Jord-
anar myndu taka þá stefnu, sem
ákveðin yrði á fundinum í Kairo.
Utanríkisráðherra Líbanons
Philip Tecla, tók undir mótmæli
Arabaríkjanna — sagði stjórn-
málasamband V-Þjóðverja og
Israelsmanna högg í andlit allra
Araba. Haft er fyrir satt, að
Tecia muni ræða við sendiherra
V-Þýzkalands í V-Þýzkalands í
Beirut á morgun.
Stjórn Súdans hefur einnig
mótmælt ákvörðun Bonn stjórn
arinnar og stjórn Saudi-Arabíu
hefur kallað heim sendiherra
sinn í Bonn til viðræðna um
málið.
Frá Jerúsalem herma fregnir,
að Levi Eshkol, forsætisráðherra
, Framhald á bls. 27.