Morgunblaðið - 10.03.1965, Side 27
Miðvikudagur 10 marz 196S
MORGUNBLADIÐ
27
Flugmóilahátiðiii
á sunnudag
Paul Reichard, leikari, skemmtir
NÆSTKOMANDI sunnudag verð-
ur hin árlega „flugmálahátíð“
Frul Reichard í kvikmyndinni
„Jetpiloter".
haldin i Hótel Sögu. Það er flug-
málafélagið, sem gengst fyrir
hátíð þessari, en hún hefur verið
haldin um langt árabil oig í 4.
sinn nú með sama sniði. Flug-
málafélagið var stofnað árið
1936 og eru í því nokkur hundruð
áhugamenn um flug. Núverandi
formaður félagsins er Baldvin
Jónsson, hrl.
Flugmálahátíðin mun hefjast
kl. 6 á sunnudag með borðhaldi.
Húsið verður opnað kl. 5:30.
Baldvin Jónsson mun setja hófið
og síðan flytur flugmálaráðherra,
Ingólfur Jónsson, ávarp.
Mjög hefur verið vandað til
skemmtiatriða o.g hinn frægi leik-
ari, Paul Reichard, frá Konung-
lega leikhúsinu í Kaupmanna-
höfn mun koma hingað og flytja
45 mínútna skemmtiþátt. Reic-
íhard kemur til Reykjavíkur um
kl. 4 á sunnudag og flýgur aftur
til Kaupmannahafnar næsta
morgun, enda á hann að leika á
mánudagskvöld. Einar Kristjáns-
Einar Kristjánsson,
óperusöngvari.
prýddir litmynd af Surtsey.
Venja hefur verið að hafa ýmis
skemmtiatriði, sem koma igestum
flugmálahátíðarinnar á óvart,
svo að skemmtinefndin óskaði
þess, að blaðamenn teldu ekki
upp hin ýmsu atriði. Formaður
skemmtinefndar, að þessu sinni,
er Guðmundur Snorrason, flug-
I stjóri.
son óperusöngvari, sem er gamall
vinur og samstarfsmaður Reic-
hards ag Benedikt Arnason
tengdasonur Einars, önnuðust
milligöngu fyrir Flugmálafélagið
og fengu Reichard til að skreppa
hingað. Þá mun Einar Kristjáns-
son stjórna fjöldasöng. Einar hef-
ur ekki sungið opinberlega, síðan
hann flutti heim til íslands aftur
fýrir u.þ.b. 3 árum.
Á undanförnum árum hafa
aðgöngumiðar að flugmálahátíð-
inni verið mjög skrautlegir og
prentaðir á gamansaman hátt,
ætlaðir til minja fyrir þátttak-
endur. Einnig hafa safnarar þeg-
ar fengið mikinn áhuga á þeim.
Það var Örlygur Richter, sem sá
um skreytingu aðgöngumiðanna
að þessu sinni og eru þeir m.a.
— Iþróttir
Framhald af bls. 26
Helgi Helgason Á 1,70 m.
' Keppt var í tveim greinum
drengja og unglingamótsins, sem
frestað var á dögunum, kúlu-
varpi og stangarstökki.
Urslit urðu :
Stangarstökk unglinga
• Kári Guðmundsson Á 3,60 m.
Ólafur Guðmundss. KR 3.00 m.
Erl. Valdimarsson ÍR 3.00 m.
Ársæll Guðjónsson UBK 2,80.
Stangarstökk drengja
Erl. Valdimarsson ÍR 3,00 m.
Kúluvarp unglingu
Erl. Valdimarsson ÍR 13.67 m.
Arnar Guðmundsson KR 12,66
Kúluvarp drengja
Erl. Valdimarsson ÍR 15,68 m.
Arnar Guðmundsson KR 14,69
— S-Vietnam
Framhald af bls. 1
1) Arásaraðgerðir verði ekki
látnar við gangast.
2) Ekki verði gengið að neinni
lausn, er fram komi á al-
þjóðaráðsteifnu, nema stjórn
Suður-Vietnam samþykki
hana.
3) Garðar verði öruggar ráð-
stafanir til þess að tryggja
frelsi og öryggi landsins.
Þá skýrði leiðtogi löggjafar-
ráós Suður-Vietnam, Pham Zuan
Chieu, hershöfðingi, svo frá í
dag, að ráðið styddi einróma til-
mæli stjórnar Suður-Vietnam
uim, að bandarsíkir landgöngu-
liðar kaernu til landsins, og að-
stoðuðu í baráttunni gegn skæru
liðum kammúnista. Sagði Chieu
enga ástæðu til þess að velta
vöngum yfir því, hvórt ráðstöf-
un þessi væri lögleg eða ekki, og
benti á, að skæruliðar brytu
stöðugt þau ákvæði Genfarsátt-
málans að ekki megi senda er-
lenda hermenn til Vietnam. —
Stj órnarhermenn rannsökuðu í
dag verksummerki við Kannack-
herbúðirnar, þar sem skærulið-
ar guldu mikið afhroð í bardög-
um í gær, er stjórnahermönnum
tókst að brjóta árás þeirra á bak
aftur. Talið er, að ajn.k. 150
skæruliðar hafi fallið og mun
ósigurinn einhver hinn mesti,
sem þeir ha-fa beðið í Suður-
Vietnam. Af stjórnarhermörvnum
féllu 33 og 3 bandariskir ráð-
gjafar.
Meðal þess, sem gat að líta á
vígvellinum, var lík ungs liðs-
foringja frá Norður-Vietnam. Á
honum fundust myndir af fjöl-
skyldu hans og dagbók hans. Þar
sagði meðal annars, að hann og
herdeild hans hefði farið frá
Norður-Vietnam 22. nóv. sl. og
komið til bæjarins Banmethoot,
sem er 255 km fyrir norðaustan
Saigon, eftir 64 daga göngu. —
„Þetta er erfitt líf. Við líðum
matarskort og höfum sífellt yfir
höfði okkar sprengjuflugvélar",
hafði hann skrifað í dagbók sina.
Afstaða brezku stjómarinnar
Svo sem frá var skýrt í fregn-
um í gær, hefur Harold Wilson
forsætisráhðerra Bretlands, sætt
gagnrýni af hálfu þingmanna
Verkamannaflokksins í neðri
málstofunni fyrir stuðning
brezku stjórnarinnár við stefnu
Bandaríkjanna í Vietnaim. Wil-
son sagði í dag, að frá því á
síðasta ári, er haiin sjáLfur gagn
Harold Wilson, forsætisráðherra Bretlands og Willy Brandt borgarstjóri í V-Berlin við Berlinar-
múrinn.
Viðræður Erhards og
Wiisons árangursríkar
— Bretadrottning boðin
opinbera heimsókn tii
V-Þýzkaiands
London, 9. marz.
— (NTB-AP) —
HAROLD WILSON, forsæt-
isráðherra Bretlands, kom
heim úr Þýzkalandsför sinni
í dag. Að loknum viðræðum
hans og Ludwigs Erhards,
kanzlara, í morgun, var gefin
út opinber tilkynning, þar
sem meðal annars sagði, að
þeir hefðu orðið ásáttir um
að mælast til samvinnu við
stjórnir Bandaríkjanna og
Frakklands um að útbúa til-
rýndi íhaldsstjóm Sir Alex
Douglas Home fyrir stuðning
við stefnu Bandaríkjanna þar,
hefðu orðið vemlegar og mikil-
vægar breytingar á stefnu stjórn
arinnar í Norður-Vietnam. Hún
neitaði því nú ekki lengur, að
hún stæði að baki, eða a.m.k.
styddi baráttu skæruliða í Suð-
ur-Vietnam, — en það hefði hún
afdráttarlaust gert fyrir ári. —
Þá hefði heldur ekki legið
fyrir þær sannanir, sem nú eru
fyrir bendi, um þótt Norður-
Vietnam í bardögunum í Suður-
Vietnam.
— Beygjum
Framhald af bls. 1
ísræls muni á þriðjudaginn kem
ur gefa þinginu skýrslu um við-
ræðurnar við v-þýzkustjórnina.
Talsmaður utanríkisráðuneytis
ísraels sagði i dag, að sendimaður
v-þýzku stjórnarinnar, Kurt Birr
enbach, hefði lagt fram formlegt
tilboð stjórnar sinnar um að taka
upp stjórnmálasamband. Dagblöð
í Israel herma, að ísraelsstjórn
sé mjög í mun, að Þjóðverjar
haldi vopnasölusamninginn og
muni það mál hafa veruleg áhrif
á afstöðu stjórnarinnar til tilboðs
Bonnstjórnanrinnar. NTB-frétta-
stofan hefur eftir áreiðanlegum
heimildum í Tel Aviv, að Bonn
stjórnin kunni e. t. v. að fallast
á einhverja málamiðlun þar að
lútandi. Hugsanlegt er að því
er eitt dagblaðanna segir, að þeir
Eshkol og Erhard hittist í Lond
on, en þangað er fyrirhugað að
Eshkol fari 25. marz. \
lögu um sameiningu Þýzka-
lands, er síðan verði lögð fyr
ir Sovétstjórnina.
í NTB-frétt frá London segir,
að viðræður Wilsons við Er-
hard, kanzlara, hafi m.a. borið
þann árangur, að innan skamms
muni brezki lndvarnaráðherrann
Dennis Heaiey, fara til Bonn til
viðræðna um samvinnu á sviði
flugvélaframleiðslu; John Dia-
mond, ráðuneytisstjóri í fjár-
málaráðuneytinu, sem var i för
með Wilson, muni aftur fara til
Bonn í apríl til frekari viðræðna
um Rínarherinn og siðast en
ekki sízt hafi Elísabetu drottn-
ingu, verið boðið í níu daga op-
inbera heimsókn til Vestur-
Þýzkalands í mai n.k.
Talsmenn beggja stjórnanna
lýstu því yfir í dag, að viðræð-
ur Erhards og Wilsons hefðu
verið mjög gagnlegar og árang-
ursrikar.
— Morðhótanir
Framhald af bls. 1
Lögreglan rannsakar nú mál
þetta.
Talið er víst, að samþykkt
verði á þinginu að framlengja
frestinn. Atkvæðagreiðslan
um málið verður væntanlega
um miðjan dag á morgun —
en gert er ráð fyrir fjögurra
i klukkustunda umræðum um
það á undan.
Umræður um frestunina
hafa verið hinar áköfustu síð-
ustu vikurnar — en þær hóf-
ust reyndar snemma í haust,
er stjómin ákvað, að frestur-
inn skyldi ekki framlengdur.
Síðan hafa komið fram mót-
mæli frá fjölmörgum aðilum
bæði innan V-Þýzkalands og
utan, ekki sízt frá ísrael og
þeim þjóðum, er mestar hörrn-
ungar liðu undir járnhæl naz-
ista. Fórsvo, að fimmtíu þing.
menn úr flokki kristilegra
demókrata lögðu fram á þingi
tillögu um að fresturinn yrði
framlengdur og stjórnin á-
kvað fyrir skömmu að styðja
tillöguna. — Búizt er við, að
sósíaldemókratar leggi það
einnig til á morgun. Meiri-
hluti þingmanna frjálsra demó
í yfirlýsingunni sagði meðail
annars, að þeir Wilson og Er~
hard hefðu orðið sammála ixm
að gera það, sem í þeirra valdi
stæði til að auka samskipti að-
iidarríkja Efnahagsbandalagsins
og Fríverzlunarsvæðisins. Enn-
fremur, að Bonnstjómin héti þvi
að taka auikinn þátt í kostnaði
vegna brezka Rínarhersins. Þá
sagði, að Erhard hefði þegið boð
Wilsons um að koma til Lond-
on áður en langt um liði — enda
væri æskilegt og mikilsvert, að
þeir tækju upp viðræður áð
nýju svo fljótt sem unnt væri.
I yfirlýsingunni var einnig
minnzt á hugmynd Breta um
kjarnorkuher Atlantshafsrikj-.
anna (ANF) sem hugsaiiiega
geti komið í stað h-ugmynda
Bandaríkjamanna um hinn sam-
eiginlega kjarnorkuher (MLF).
Hafi Wilson og Erhard orðið
sammála um að ræða 'báð-
ar þessar hugmyndir á fwndiitu
Atlantsihafsríkjanna innan tíðar.
AFP fréttastofan franska seg-
ir, að Wilson hafi haft með sér
til London ýmsar hugmyndir og
áætlanir um samvinnu Breta og
Vestur-Þjóðverja, m.a. á sviði
iðnaðar, t.d. flugvélaframleiSslu
og rafeindatækni. Ennfremur
hafi Erhard heitið því að að-
stoða brezku stjórnina í tilraun-
um hennar til að styrkja ster-
lingspundið. Þess í stað hafi
Wilson heitið að -hafa frum-
kvæði að viðræðum við stjórnir
Bandaríkjanna og Frakiklands
um Þýakalandsmálin.
krata mun hinsvegar andvíg-
ur framlengingunni.
★
Ewald Bucher, dómsmála-
ráðherra, — sem sjálfur er
andvígur framlengingunni —
mun hefja umræðurnar á
morgun með því að leggja
fram skýrslur um þau réttar-
höld, sem farið hafa fram i
málum stríðsglæpamanna. 1
skýrslu þessari kemur fram
viðurkenning stjórnarinnar á
því, að ef til vill verði ekki
búið að hefja mál gegn öllum
stríðsglæpamönnum fyrir 8.
maí. Þar er og upplýst, að mál
hafi verið höfðað gegn 80.000
Þjóðverjum vegna meintra
stríðsglæpa. Þar á meðal er
sjálfur Adolf Hitler, — en mál
ge"n honum var höfðað ný-
lega, ef ske kynni, að hann
væri ekki látinn.
1 dag fóru fimmtíu miðaldra
Þjóðverjar mótmælagöngu í
Bonn og kröfðust framlengin^
ar frestsins. Voru þeir flestir
úr samtökum fórnarlamba
Nazistastjórnarinnar. Fulltrú-
ar slíkra samtaka í Italíu,
Frakklandi og Belgíu gengu
í dag á fund dómsmálaráð-
herra í Bonn til áréttingar
fyrri tilmælum sínum um
framlenginguna.