Morgunblaðið - 10.03.1965, Page 28
Drengur í lífs-
háska í klettum
SIGLUFIRÐI, 9. marz. — ísjakar
lóna hér fyrir utan og hefur fólk
gengið út að svokölluðu Gati,
sem er holan þar sem Strákaveg-
urinn á að fara í gegn, og horft á
ísinn. Eftir siðdegiskaffið ætlaði
15-16 ára drengur hér úr bænum,
Guðlaugur Hilmarsson, að fá sér
göngu þarna út eftir í yndælis
veðri og hlýju. Gekk hann út
fyrir Gat og fór heldur langt, því
hann labbaði sig fastan, var
kominn í sjálfheldu í klettum áð-
ur en hann gætti að sér, en snjór
er í klettunum og hált.
Guðlaugur hafði vit á að hreyfa
sig ekki, í von um að geta gert
vart við sig. Það varð líka. Bátur
sem var nýbúinn að leggja rauð-
maganetin, var á heimleið og fór
þarna hjá. Heyrði sjómaðurinn,
Magnús Guðjónsson, fyrrv. skip-
stjóri, einhver hróp, þó vélin
væri í gangi. Þegar hann gætti
Eggert með
70 tonn
i roðri
AFI,I Reykjavikurbátanna í
fyrrinótt var ekki mikill, fór
upp í 25 lestir. Nótabátarnir
hófðu reyting, 12 bátar fengu
15—45 lestir, utan einn, Þor-
steinn, sem kom með 70 lestir.
En skipstjóri á honum er afla-
klóin Eggert Gíslason, fyrrum
skipstjóri á Víði og SigurpálL
Hann landaði aflanum í Þor-
lákshöfn.
að, sá hann mann uppi í klettun-
um sem veifaði til hans. Hann
hélt í fyrstu að hann væri slas-
aður þarna og gaf honum merki
um að hann hefði séð hann. Síðan
setti Magnús á fulla ferð í höfn.
Þegar þangað kom gerði hann
lögreglunni aðvart,
Klukkan var 8 og komið myrk-
ur, þegar lögreglan kallaði út
hjálparsveitina, sem hélt á stað-
inn og áður en klukkutími var
liðinn hafði hún náð piltinum
með hjálp kaðla. Margir vaskir
drengir eru í liðinu og snarráðir.
Guðlaugur hefur líklega verið
búinn að sitja fastur í klettunum
í 2 tima, þegar hjálpin barst.
Honum varð ekki meint af.
— Stgr.
M.s. Barði siglir fánum prýdd ur inn á höfnina í Neskaupstaó.Ljosm. Jóhann Zoega.
Skyggnilýsingar í Fríkirkjunni
í fyrsta skipti, sem þær eru
leyfðar I kirkju á íslandi
SÁLARRANNSÓKNAFÉLAG
fslands efnir til miðilsfundar í
Fríkirkjunni i Reykjavík
fimmtudaginn 25. þ.m., og býður
þar félögum sínum og gestum
þeirra upp á skyggnilýsingar. Er
það tvímælalaust í fyrsta skipti,
sem skyggnilýsingar eru leyfð-
ar í kirkju í íslandi. Miðill verð
ur Hafsteinn Björnsson.
— Það er mjög algengt víða
erlendis að miðilsfundir og
skyggnilýsingar séu haldnar í
kirkjum, sérstaklega í Bretlandi,
sagði Ottó A. Michelsen, ritari
Sálarrannsóknafélagsins, þegar
Mbl. sneri sér til hans í gær.
Hann sagði að forráðamenn Frí-
kirkjunnar hefuð brugðizt mjög
vel við óskum Sálarrannsókna-
félagsins um að fá inni í kirkju
þeirra fyrir samkomuna. Var
meira en sjálfsagt að leyfa afnot
að kirkjunni, og sýnir það sér-
stakt frjálslyndi forráðamann-
anna, sagði Ottó Michelsen.
Sálarrannsóknafélagið stóð
fyrir skyggnilýsingafundi í Sig-
túni í fyrra fyrir yfirfullu húsi.
Nú verða gefnir út aðgöngumið-
ar, og hafa félagsmenn forkaups
rétt að þeim fyrir sig og gesti
sína. Verður seinna auglýst hve-
nær afhending hefst.
Ottó Michelsen benti á að það
væri skoðun spíritista að þeir
geti rennt styrkum stoðum und-
ir kristna trú. Þetta hefði m.a.
komið skýrt fram þegar sr. Har-
aldur Nielsson predikaði hér í
höfuðborginni og kirkjusókn var
svo mikil að gestirnir rúmuðust
ekki í kirkjunni og hlýddu á
predikunina utandyra. En Ottó
lagði ríka áherzlu á að forðast
bæri að blanda saman trúar-
brögðum og spíritisma. Spírit-
ismi væri vísindi ekki trú.
Nýr bátur til
Neskaupstaðar
Neskaupstað 6. marz.
f gær kom nýr bátur hingað til
Neskaupstaðar. Var það m.s.
Barði NK 120, eign Síldarvinnsl-
unnar h.f. hér í bæ. Barði er 264
lestir brúttó, smfðaður í Austur-
þýzkalandi. Átti að afhenda
Barða í desembermánuði, en sem
kunnugt er var siglt á bátinn,
er hann var í reynzluför á Sax-
elíi. Skemmdist hann þá mikið og
hefir verið til viðgerðar síðan.
Báturinn er búinn öllum nýj-
ustu tækjum og fer hann á veið-
ar nú eftir helgina.
Skipstjóri verður Sigurjón
Valdimarsson — Ásgeir.
Viðræður í Washington báru verulegan árangur
Fjórir íslendingar fóru sem
kunnugt er til Washington fyrir
12 dögum, til viðræðna um stór-
virkjun við Búrfell, aluminium-
verksmiðju og sölu á rafmagni
frá hugsanlegri virkjun Þjórsá.
Þrír þeirra komu heim í gær-
morgun, þeir Jóhannes Nordal,
bankastjóri, Eiríkur Briem, raf-
magnsveitustjóri og Hjörtur
Torfason, lögfræðingur, en fjórði
fulltrúinn, Steingrímur Her-
mannsson, framkvæmdastjóri
Rannsóknarráðs, er enn ókominn.
Mbl. leitaði frétta af viðræð-
unum hjá Jóhannesi Nordal.
Hann sagði að íslenzku fulltrú-
arnir hefðu átt rækilegar við-
ræður við fulltrúa Alþjóðabank-
ans og Suissealuminium í Wasíh-
ington. Þessar viðærður hefðu
borið verulegan árangur og sjón-
armið aðilanna skýrzt betur en
áður. Mundu þeir mjög bráðlega
gefa ríkisstjórninni skýrslu um
málið eins og það horfir nú við.
Meira gæti hann ekki sagt í bili.
44 hestar
fluttir út
44 íslen/.kir hestar voru
fluttir með flugvél út til Sviss
aðfaranótt þriðjudags. Sigurð
ur Hannesson & Co og Sam-
band íslenzkra samvinnufé-
laga stóðu að útflutningi hest-
anna, sem voru keyptir hing-
að og þangað að.
I
!
Frakkar skjóta hér 2
eldflaugum í sumar
Um 50 manna flokkur kemur
Vík, 7.3. ’65. — HINGAÐ komu
í gær M. Renou franskur tækni-
fræðingur og Sigurður Júlíusson
starfsmaður við franska sendi-
ráðið í Reykjavík. Þeir fara héð-
an á morgun, en í dag hafa þeir
rætt hér við ýmsa aðila og kann.
að aðstæður í sambandi við vænt
anieg eldflaugaskot Frakka á Is-
landi í sumar. Þeir M. Renou og
Sigurður voru fyrst og fremst að
sjá út hentuga staði fyrir skot-
I
Fiskflutningar
SH með
Eimskip
HF. Eimskipaféiag íslands og
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna tilkynntu í gær, að samn
ingar hefðu tekizt milli þess-
ara tveggja félaga um að Hf.
Eimskipafélag Islands taki að
sér alla frystivöruflutninga
fyrir Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna á tímabilinu frá 1.
apríl 1965 til 1. apríl 1966.
pallana í sumar, en endanleg
staðsetning þeirra hefur ekki ver
ið látin uppi ennþá.
M. Lefevre undirbjó franska
visindaleiðangurinn í fyrra eins
og kunnugt er, en hann kemur
ekki núna, hins vegar tekur M.
Renou við starfi hans.
Franskj leiðangurinn, sem mun
skjóta eldflaugum af Suðurlandi
í sumar, er væntanlegur til lands
ins þann 24. júlí og mun verða
hér fram yfir miðjan september.
Leiðangursmenn verða þá 10
fleiri en í fyrra eða alls um 50
menn. 10—15 þessara manna
verða þeir sömu og í fyrra, en
hitt verða aðrir menn. Sjálfir
vísindamennirnir verða þeir
sömu og í fyrra.
1 sumar ráðgera Frakkarnir
að skjóta á loft tveimur eldflaug-
um af sömu gerð og áður, en eid-
flaugatrjónurnar verða nú að
nokkru leyti útbúnar öðrum vís.
indatækjum en þá.
Efni og tæki, sem nota á í sum
ar, ca. 100 tonn, kemur að mestu
leyti með skipi, en auk þess
koma svo þrjár franskar fiug-
véiar með öll 'hin viðkvæmari vís
indatækj þeirra leiðangursmanna.
Flugvélaflutningurinn fer um
Keflavíkurflugvöll til tollskoð-
unar, en fiugvélarnar verða síð-
an affermdar á Skógasandi, ef
veðurskiiyrði leyfa.
— FréttaritarL
Forsetiim við
útför drottn-
ingar
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að for-
seti íslands verði viðstaddur út-
för Louise Svíadrottningar, sent
fram fer laugardaginn 13. þ.m.
Reykjavík, 9. marz 1965.
(Fréttatilkynning frá skrifstofu
forseta íslands).
Góður þorskafli
við Labrador
TOGARINN Narfi stundar nú
veiðar við Labrador, ásamt ensk
um og þýzkum frystiskipum.
Afli hefur verið svo mikiil að
Enn meðvit-
undarlaus
AKUREYRI, 9. marz. — Árni
Bjarnason, 71 árs, sem varð fyrir
bil aðfaranótt laugardags, hafði
ekki enn komið til meðvitundar
siðdegis í dag. — Sv. P.
Kuldakastið stöðvoði póðurinn
Þegar nýafstaðið kuldakast
kom, fóru margir að hafa á-
hyggjur af gróðrinum, höfðu
séð litla sprota gægjast út í
görðum sínum. Mbl. spurði
Hafliða Jónsson, garðyrkju-
stjóra bæjarins, hvernig hon-
um litist á þetta.
Hafliði sagði að í hJýjunni
hefði gróðurinn verið rétt að
byrja að fara af stað, en þá
kom kuldakastið sem betur
fer og stöðvaði það. Nú væri
aítur farið að hlýna og von-
andi að hlýviðriskaflinn yrði
ekki of langux til að koma
ekki gróðrinum til svona
snemma, þegar næstum sé
víst að kóini aftur.
ekki hefur hafzt undan að vinrn
hann og liggja skipin venjuiegí
hálfan sólarhring við að komí
aflanum í frystingu.
Fiskurinn, sem er þorskur, ei
fremup smár og því sein unnari
Undir venjulegum kringumstæð
um getur Narfi unnið 20—24 tonr
á sólarhring. Er togarinn búmr
að vera 5 sólarhringa við Labra-
dor.
Veðráttan á þessurn slóðum he
ur verið góð og því notasf vei a
veiðunum.
Minníngobók
nm Svín-
drottningu
MINNINGABÓK um Louise
Svíadrottningu liggur frammi í
sænska sendiráðinu. Þeir, sem
vilja votta Svíakonungi og
sænsku þjóðinni samúð sína
vegna fráfalls drottningarinnar,
geta ritað nöfn sín í bókina frá
kl. 10—12 f.h. og 1—5 e.h. i da*.
fimmtudag og föstudag.