Morgunblaðið - 15.04.1965, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 15.04.1965, Qupperneq 15
Fímmtudagur 15. apríi 1965 MORGUMBLABIB 15 Skállioltsnefnfl leStar eftir fjár framflögum tII kaupa á bóka- safni og tIII endurreisnar menntasetuirs þar Biskupinn á íslandi. herra Sigur björn Einarsson, messar í Skál holtskirkju. En það er fyrst og fremst hlutverk íslenzku þjóðarinnar, hlutverk hvers einasta Islendings, að vinna að þessari endurreisn. Skálholt er dýrmæt sameign allrar þjóðarinnar. í>ví leitum vér nú til allra landsmanna um fjárframlög til Skálholtsstaðar, til kaupa á bókasafni og til endurreisnar menntaseturs þar. Frænd- þjóðir vorar á Norðurlöndum hafa nú efnt til fjársöfnunar til bygg- ingar lýðháskóla í Skálholti. Vér ætlumst nú tii þess af Dönum, að þeir láti oss fá handritin. Vér viljum að þjóðin ætiist einnig til mik- ils af sjálfri sér. Bókagjöfin til Skálholts er vottur þakklætishugar til þeirra, sem þar ræktuðu fræga bókmenningu. Vér skírskotum til metnaðar íslendinga varðandi þetta mál og væntum þess að þjóðin sýni í verki að vér viljum öll að Skálholts- staður verði endurreistur og honum sýnd sú virðing, sem honum er samboðin í vitund manna, í fullri vissu þess, að Skálholt muni auðga og treysta heilbrigt þjóðlíf. Sérhverri þjóð er nauðsyn og skylda að varðveita menningararfleifð sína og tengja sögu og afrek genginha kynslóða traustum böndum við nútíð og framtíð. í sögu sína og forna mennt sækir þjóðin styrk, sjálfstraust og afl til nýrra átaka og framfara. Vér lítum svo á ,að hin öra fólksfjölgun og vöxtur atvinnulífsins muni skapa ríka þörf fyrir myndun byggðar í Skálholti, kringum þær mennta- og menningarstofnanir, sem þar eiga að rísa, enda mundi sú byggðarmyndun studd af Legu staðarins, svo og jarðhita og rafmagni. Vér viljum þess vegna beina öflum, sem eru að verki með þjóðinni, inn á brautir, þar sem þau þjóni sem bezt í senn eðlilegum tilgangi sínum og heilbrigðum þjóðar- metnaði. Með framlagi sínu greiðir hver íslendingur gamla skuld og leggur um leið stein í byggingu musteris og menntaseturs, er verða mun þjóðinni til blessunar á ókomnum tímum. Reykjavík, i marz og apríl 1965. f BYRJUN desembermánaðar 1964 birtist í blöðunum augtýs- ing frá Kára B. Helgasyni, kaup- manni, þess efnis að til sölu væri bókasafn hans, er að stofni til væri hið mikla bókasafn í>or- steins sýslumánns Þorsteinsson- ar, er Kári hafði keypt. Tilboðs- frestur var auglýstur til 1. febr. 1965. Hinn 29. jan. 1965 birtist ávarp I blöðunum frá biskupi, herra Sigurbirni Einarssyni, er hann nefndi: Bókasafn handa Skál- íholfi. Avarpið var svohljóðandi: „Hvað verður um bókasafn Kára Helgasonar? Ýmsir hafa spurt svo að undanförnu og er full ástæða til. Mörgum er ljóst, að það út af fyrir sig að láta safn þetta sundrast, væri menningar- leg slysni, eða öllu heldur hand- vömm í stórum stíl. Fleiri geta ef til vill gert sér grein fyrir því, að það væri þjóðarhneisa að láta það fara úr landi. Hvorugt þetta :má gerast. Hvorugt þarf að ger- ast. Hvað á að verða um þetta mikla og góða bókasafn? Það hefur mér verið Ijóst í mörg ár: Þetta bókasafn á að fá sinn varanlegan samastað í Skálholti. Gott bókasafn er lífsnauðsyn fyrir staðinn, ef hann á að verða menningarlegt höfuðból. Og þetta safn er svo vaxið, að hvergi væri þjóðinni meira gagn og sæmd að því en þar. Tilraunir til þess að koma þessu safni í eigu Skálholts hafa ekki borið árangur hingað til. Staðurinn á ekki fjárráð til slíks og vantar mikið á. En þjóðin getur bjargað þessu máli. Vill þún ekki géra það? Fyrir fáum árum var bóka- safn, allverðmætt, til sölu í Skagafirði. Gerð var tilraun til þess að fá það keypt til Hóla- staðar. Það tókst ekki. Hvorugur þeirra staða, sem um aldirnar voru í forystu um bókagerð og menningu hér á landi, eiga nýti- lega bók að talist geti. Er það eðlilegt og vansalaust? Vilja ekki góðir menn hlaupa undir bagga og skjóta saman í fé handa Skálholtsstað til kaupa á bóka- safni Kára Helgasonar?** Eftir birtingu ávarpsins hafði biskup samráð við kirkjuráðs- menn og fleiri um kaup á bóka- safni Kára Helgasonar handa Skálholti. Og 2. febr. gerði hann formlegt tilboð f. h. Kirkjuráðs um kaup á safninu. Hljóðaði til- boðið upp á 3.5 milljónir króna fyrir safnið óskert, og hinn 13. febr., var undirritaður kaupsamn ingur, er hljóðaði upp á fyrr- nefnda upphæð. Seljandi: Kári D. Helgason, kaupmaður; kaupandi: biskup og Kirkjuráð vegna Skál- holts. Jafnhliða og til undirbúnings þessari samningsgerð hafði það gerzt, að stjórn Skálholtsfélags- ins, en hana skipa Sigurbjörn Einarsson biskup, formaður, Ol- afur Jónsson verzlm. gjaldkeri, Jóp Gunnlaugsson fulltrúi, ritari og meðstjórnendur þeir Hróbjart ur Bjarnason, kaupmaður og Sveinbjörn Finnsson, kennari, kom saman á fund í skrifstofu biskups hinn 4. febr. Auk stjórn- arnefndarmanna voru boðaðir sem áheyrnarfulltrúar á fund þennan, þeir dr. Benjamín Ei- ríksson, bankastjóri, formaður í tekjuöflunarnefnd fyrir þjóð- kirkjuna, er skipuð var á síðasta kirkjuþingi og Þórarinn Þórar- insson, skólastjóri, kirkjuráðs- maður. A fundi þessum samþykkti stjórnin að gefa til söfnunarinn- ar kr. 600.000,— og jafnframt beita sér fyrir landssöfnun í sama skyni. Jat'nframt var ákveðið að kveðja til ýmsa menn í væntan- lega söfnunarnefnd, auk stjórnar Skálholtsfélagsins. Hefur sú nefnd unnið að undirbúningi söfn unarinnar. Skálholtsnefnd skipa: Benjamín Eiríksson, formaður Þórarinn Þórarinsson, ritari Ólafur Jónsson, gjaídkeri Auður Eir Vilhjálmsdóttir Erlendur Einarsson, varaform. Gunnar Friðriksson Hróbjartur Bjarnason Jóhanna Guðmundsdóttir Jón Gunnlaugsson Magnús Z. Sigurðsson Magnús Víglundsson Ottó A. Michelsen, varagjaldk. Páll H. Jónsson, vararitari Pætur Sæmundsen Stefán Hilmarsson Unnar Stefánsson Framkvæmdastjóri nefndarinn ar er Sveinbjörn Finnsson. Hefur nefndin opnað skrifstofu að Hafnarstræti 22, símar 18354 og 18105. Gerð verður sérstök bók, sem geyma á nöfn allra, sem þátt taka í söfnuninni, en gert er ráð fyrir að henni ljúki á þessu ári. Gjafir eru skattfrjálsar. Þessa daga berast gjafir til söfn unarinnar, þeirra á meðal frá stúdentum guðfræðideildar, og frá stúdentum norrænu deildar, sem jafnframt birtu ávarp í blöð- unum um málið. Skálholtsnefnd hefur samið sérstakt Ávarp til þjóðarinnar, sem undirritað hefur verið af ýmsum stuðningsmönnum máls- ins, og fer það hér á eftir: Ásgeir Ásgeirsson forseti Islands Séra Árelius Níelsson formaður Bandalags Æskulýðs- félaga i Reykjavík Axel Tulinius sýslumaður Sunnmýlinga Dr. theol. Bjarni Jónsson vigslubiskup Björn Fr. Björnsson sýslumaður Rangæinga Björn Sigurbjörnsson gjaldkeri Stúdentafélags Suðurlands Einar Haukur Eiríksson skattstjóri, Vestmannaeyjum Séra Eirikur Þ. Stefánsson fyrrv. prófastur Eysteinn Jónsson formaður Framsóknarflokksins Gisli Halldórsson forseti íþróttasambands fslands Séra Gunnar Árnason formaður Prestafélags íslands Sigurbjörn Einarsson biskup íslands Gunnar Guðbjartsson formaður Stéttarsambands bænda Hannibal Valdimarsson forseti Alþýðusambands Islands Hilmar Stefánsson formaður fyrri Skálholts- nefndar Hörður Bjarnason húsameistari rikisins Ingólfur Jónsson landbúnaðarráðherra Jóhann Hafstein kirkjumátaráðherra Jóhann S. Hannesson skólameistari, Laugarvatni Jón Sigurðsson formaður Sjómannasambands íslands Séra Jón Þorvarðarson kirkjuráðsmaður SKÁLHOLT er einn frægasti og virðulegasti sögustaður á fslandi. Um aldaraðir var Skálholt — ásamt Hólum — miðstöð menntunar og trúarlífs, kirkju og skólahalds. Þjóðlífið átti þar sína háborg í andlegum og veraldlegum efnum. f nágrannalöndunum urðu sam- svarandi staðir að grónum og frægum háskólaborgum, sem eru afl- gjafar í lífi þjóðanna. En á neyðar- og niðurlægingartímum var biskupsstóllinn í Skálholti lagður niður og skólinn settur á flæking. Sú ráðstöfun að leggja niður aldagamlar menningarstofnanir sam- bærilegar, á sér vart hliðstæðu í sögu nálægra þjóða. Vér lítum svo á, að brýna nauðsyn beri til að bæta fyrir þetta með því að endur- reisa hin fornu biskupssetur á þann hátt, að sæmi fornum menn- ingar- og menntasetrum íslenzku þjóðarinnar. Endurreisn Skálholtsstaðar ér mikið átak. Áhugamenn, íslenzk- Ir og erlendir, hafa gefið til Skálholts. íslenzka ríkið, ríkisstjórn og alþingi, hafa þegar lagt fram verðmætan og mikilvægan skerf. Frændþjóðir vorar á Norðurlöhdum hafa sýnt Skálholti mikla ræktarsemi og stutt endurreisn staðarins með verðmætum gjöfum. Kristima Ármaiaiiissoa rekfeor Meantaskólauas í Reykjavík Lára Sigurbjörmsdóttir formaður HCvenfélagasauaiþaruls íslands Ólafur Þ. Kristjáimssoia stórtemplar I)r. Páll ísólfsson organleikari Dómkirkjunima* Séra Sigurður Einarsson skáid í Holti Séra Sigurður Pálsson prófastur, Selfossi Sigurður Stefáusson vígslubiskup, Möðruvöllnm Séra Sveinbjörn Högnason fyrrv. prófastur Vilhjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri Þórarinn Þórarinsson kirkjuráðsmaður Þórður Tómasson safnvörður, Skógumn Örn Steinsson formaður Farmanna- »g fiskl- mannasambands íslands Ásmundur Guðmuadsson biskup Bjarni Guðbjörnsson forseti bæjarstjörnar ísafjarðar Birgir Kjaran formaður stjórnar Seðlabankn Íslands Björn Sigfússom háskólabókavörður Björn Teitsson formaður stúdentaráðs Háskóla fslands Eiríkur Eiríksson formaður Ungmennafélags íslands Séra Erlendur Sigmundsson prófastur, Seyðisfirði Geir Hallgrímsson borgarstjóri Guðmundur Halldórsson forseti Landssambands Iðnaðaf- manna Gunnar J. Friðriksson formaður Félags íslenzkra iðnrekenda Gunnar Gunnarsson skáld Helgi Elíasson fræðslumálastjóri Hrefna Tynes kvenskátahöfðingi Séra Ingólfur Guðmundsson formaður Stúdentafélags Suðtif- lands Jakob Frimannsson formaður stjórnar Sambanda íslenzkra samvinnufélaga Jóhann Hannesson prófessor, forseti Guðfræði- deildar Séra Jón M. Guðjónssoa Akranesi Jón Þórarinsson formaður Bandalags isleoikn listamanna Jónas B. Jónsson skátahöfðingi Dr. Kristján Eldjára þjóðmin javörður Ludvig Storr aðalræðismaður Páll Hallgrímsson sýslumaður Árnesinga Páll V. G. Kolka kirkjuráðsmaður Séra Sigurður Kristjánssom prófastur, ísafirði Dr. Sigurður Sigurðssoa landlæknir Stefán Júliusson formaður Rithöfundasamhandk fslands Sverrir Júliusson formaður Landssamhands íslenzkra útvegsmanna Þórarinn Björnsson skólameistari, Akureyri Séra Þorgrimur Y. Sigurðsson kirk juráðsmaður Þorsteinn Sigurðsson formaður Búnaðarfélags íslands Istanbul, 12. apríl AP BÖNNUÐ hefur verið sata í Tyrklandi á 9. apríl-hefti bandaríska vikuritsins ,TIME‘, þar sem það hafi farið óvirðu legu orðum um Kemal Ata- turk. £ -if blaðsins, sem urðu or- sök bannsins, voru gagnrým á bókina „Ataturk“ eftir brezka rithöfundinn Kinross lávarð. En fréttamenn í Istan- bul benda á að bók þessi hef- ur verið' til sölu á ensku í bókaverzlunum þar í borg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.