Morgunblaðið - 15.04.1965, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.04.1965, Blaðsíða 27
Fimmtudagur 15. apríl 1Í3S3 M 0 R G U N 3 L A Ð 1Ð 27 UM kl. 8.30 í gærmargun lagð- ist Kronprins Olav, arftaki „Drottningarinnar" í íslands- siglingum, að bryggju við gamla Battaríagarðinn. Hópur fólks hafði safnazt þar saman, sumir fyrir forvitnis sakir en aðrir til að taka á móti vinum eða vandamönnum, er -komu með „Kronprinsinum" í fyrstu ferð hans hingað. Þá var og mættur þarna Gunnar Sigurðs son, umboðsmaður Sameinaða gufuskipafélagsins hér á landi, og hélt hann á stórum blóm- Gunnar Sigurðsson, umboðsmaður Sameinaða gufuskipafélags- ins hér á landi, afhendir Djörhuus, skipstjóra, blómvönd við komuna hingað. Konprins Olav kom í morgun Mýtt íslandsfar tekur við af honum eftir tvö ár vendi í hendinni sem hann af- henti Djörhuus skipstjóra, þeg ar landgöngubrúnni hafði ver- ið komið fyrir. Djörhuus, skip stjóri, er íslendingum annars að góðu kunnur, því hann var áður skipstjóri á „Drottning- unni“. Blaðamaður Morgun- blaðsins hitti Djörhuus að máli skömmu eftir að skipið laigðist að bryggju og ræddi þá lítillega við hann. — Hvernig stóð Kronprins Olav sig í þessari fyrstu ferð hans hingað? — Alveg ágætlega. Við feng um gott veður mest alla leið- ina fyrir utan að við fengum slæmt veður rétt áður en við komum til Færeyja. En annars reyndi lítið á skipið. — Haldið þér að Kronprins Olav muni rej'nast eins vel og Drottningin í íslandssiglingun um? — Já, éig held það, en það á þó eftir að koma betur í ljós síðar, þegar alvarlega reynir á skipið. f>að er upphaflega óyggt fyrir farþegaflutning á milli Oslóar og Kaupmanna- hafnar og það reyndist mjög vel á þeirri leið, svo það er trú mín að það muni ekki reynast ver hérna í siglingunum um Norður-Atlantshaf. En það sem aðallega háir skipinu, er að það hefur sáralítið lestar- rými, og mun minna en Drottn ingin. — Hvað voruð þið lengi^ leiðinni hingað? — Við lögðum af stað frá Kaupmannahöfn sl. fimmtu- dag og komum til Færeyja á laugardag. Þar vorum við í tvo daga og þar fóru nokkrir far- þegar af en nokkrir bættust við í staðinn, en það var hóp- ur sem ætlaði hingað til að sjá land og þjóð. Frá Fær- eyjum fórum við svo á mánu- dagskvöldið og vorum komnir hingað kl. sex í morgun. — Er áhöfnin á Kronprins Olav sú sama og var á Drottn- ingunni? — Nei, það eru aðeins örfáir menn, hinir eru al’lir nýir. Annars hefur áhöfnin á drottn ingunni að mestu verið flutt á önnur skip. Seinna um daginn var blaða mönnum boðið um borð í Kronprins Olav og þeim sýnt skipið. Mátti ljóslega sjá á far- þegaklefunum að þeir eru ekki sniðnir fyrir langferðir sem til íslands, en þeir eru þó hinir vistlegustu. Þá s'kýrði R. Geis- er, sem hefur yfirumsjón með skipum Sameinaða gufuskipa- félaigsins, blaðamönnum frá því, að Kronprins Olav myndi ekki sjá um íslandssiglingarn- ar í náinni framtíð, heldur næstu tvö árin, því nú væri i smíðum nýtt skip, er hæfði betur þessari siglingaleið. Það skip mun bera nafnið Kron- prins Frederik og mun taka um 340 farþega og hefði þar að auki meira lestarrúm en Kronprins Olav og væri hrað- skreiðara. Þetta skip ætti vænt anlega að vera tilbúið 1067. í’á skýrði Geisler frá því að nú ætti Sameinaða gufuskipafé- lagið um 70 skip en önnur 25 væru í smíðum og myndu 15 þeirra verða afhent á næstu tveim árum. Kosningar í Irlandi: St^órnarflokkurinn hlaut hreinan meirihluta Dublin, 9. apríl (NTB) Á MIÐVIKUDAGINN fóru fram þingkosningar í írlandi og í tíag var ljóst, að flokki forsætisráð- herra landsins, Sean Lemass, hafði tekizt að tryggja sér meiri- hluta á þingi. Þegar talningu var lokið í 142 kjördæmum af 143, Skíðavikan á ísafirði ísafirði, 14. apríl. BÚIST er við miklum fjölda gesta á skíðavikuna á Isafirði, sem nú er haldin í 30. sinn. — Þrjár flugvélar frá Flugfélagi Is- lands komu hingað í dag hlaðnar farþegum og á morgun mun F.í. flytja hingað 70 til 80 manns. í kvöld fer Esja frá Reykjavík og mun mikill fjöldi vera með henni hingað vestur. Undanfarna daga hefur snjóað talsvert og er snjór nægur og skíðafæri gott. Á skíðavikunni verður mjög fjölbreytileg dagskrá, keppni í svigi, skíðaferðir um Seljalands- dal, skíðakennsla og kvöldvökur í Skíðheimum, þar sem margt verður til skemmtunar. Einnig verða dansleikir. Jón B. Gunn- laugsson mun skemmta bæði'á kvöldvökunum og dansleikjun- um. Páskamessur verða í ísa- fjarðarkirkju á skírdag, föstudag inn langa og páskadag. Lúðra- sveit ísafjarðar mun leika á Silf- urtorgi á skirdag og páskadag. Skákþing Vestfjarða verður haldið á Isafirði um páskana og verður keppt í meistaraflokki og 1. flokki. Keppendur verða alls um 20 frá 6 kauptúnum og Isa- firði. Jafnframt verður stofnað Skáksamband Vestfjarða. Þá verður í fyrsta skipti hald- ið Vestfjarðamót í bridge á ísa- firði um páskana og taka þátt í því 8 sveitir frá 4 kauptúnum auk ísafjarðar. Er einnig ætlunin að stofna Bridgesamband Vest- fjarða. H. T. hafói flokkur Lemass hlotið 72 þingmenn. S.l. ár hefur mimiai- hlutastjárn undir fc-rystu Lemass veríð við völd í írlandi. Mafði stjórnarflokkurinn 70 þingsætl, en naut oftast stuðnings ein- hverra af 7 óháðum þingmönn- um. Er Uemass rauf þing fyrir þremur vikum, kvaðst hann gera það í þeirri von, að flokkur sinn hlyti meirihluta á þingi, þar sem ótryggt væi< að treysta á stuðn- ing óháðu þingmannanua. (>; nú er ljóst, að honum hefur tekizt það sem hann ætlaði sér. - L.A. Framhald af bls. 28 stjórnað 3 sýningum fyrir leife- félag M.A. Aðrir leikendur en þeir, sem áður er getið og með aðalhlut- verk fara, eru Jóhann Daníets- son, Eiríkur Eiríksson, og Jóhann Ögmundsson, en alls eru leik- endur 19. Söngstjóri er Guð- mundur Kr. Jóhannsson, sem ann ast líka undirleik á pianó, en dr. Maria Bayer leikur á fiðlu. Bún- ingar eru sumpart fengin frá Þjóðleikhúsiríu, en sumpart saum aðir hér af frú Karólínu Jóhann- esdóttur. Þeir eru afar skraut- legir. Leiktjöld eru viðhafnarmik il. Formaður taldi, að þetta væri kostnaðarmesta leiksýning, sem L.A. hefði ráðizt í til þessa, og því yrði að hækka verð aðgöngu- miða nokkuð frá því sem verið hefur. Sv.P. Verkfall útvarps- og sjónvarps- manna í Bcl«íti Brússel, 14. apríl, AP. Starfsmenn útvarps og sjón- varps í Belgíu lögðu niður vinnu í dag og hefur eingöngu verið útvarpað tónlist af plötum og fréttum. Krefja,st starfsmennirn- ir hærri launa. — Minnisblað Framhald af bls. 28. Ferðir Strætisvagma Reykjavík ur um páskana: SAÍRDAGUR: Á öllum leiðum nema Lækjar- b: tnum, leið 12, (sjá um þá leið hér aftar): kl. 07.00—09.00 og kl. 24.00— 01.00. FUSTUDAGURINN LANGI: Á öllum leiðum nema Lækjar- b. ium, leið 12: kl. 14.00—24.00. Á þeim leiðum, sem ekið er á á unnudagsmorgun og eftir mið- n. tti á virkum dögum: kl. 11.00—14.00 og kl. 24.00— 0i 00 L.‘ UGARDAGUR: Á öllum leiðum nema Lækjar- b num, leið 12: •d. 07.00—01.00. P SKADAGUR: Á öllum leiðum nema Lækjar- bc.num, leið 12: kl. 14.00—01.00. Á þcim leiðum, sem eklð er á á sunnudagsmorgnum og eftir miðnætti á virkum dögum: kl. 11.00—14.00. A"NAR í PÁSKUM: Á öllum leiðum nema leið 12, Lækjarbotnum: kl. 09.00—24.00. Á þeim leiðum, sem ekið er á á sunnudagsmorgnum og eftir miðnætti á virkum dögum: kl. 07.00—09.00 og kl. 24.00— 01 00. LÆK.TARBOTNAR, LEIÐ 12: SKÍRDAGUR: Fyrsta ferð ki. 9.15 og síðan eins og á virkum dögum. FÖSTUDAGURTNN LANGI: Fvrsta ferð kT. 14.90 og siðan eins og á virkum dögtna. Enn um verkfall flug- stjóra hjá Loftieiðum OFT VELTIR lítil þúfa þungu hlassi hugsaði ég þegar ég las grein frú Bjarnveigár Bjarna- dóttur í Morgunblaðinu í dag út af stuttum pistli mínum í dálk- um Velvakanda um daginn. Fleirum en mér mun þykja vandlifað orðið á íslandi, ef ekki má tala skýrum og skörpum orð- um um það, sem aflaga fer í þjóð- félaginu. Og andmælendur, eins og frú- Bjarnveig, ættu að fara rétt með tilvitnanir, því að það er mikill munur á „skussa“ og LAUGARDAGUR: Eins og venjulega á laugardög- um. PÁSKADAGUR: Fyrsta ferð kl. 14.00 og síðan eins og venjulega á sunnudögum. ANNAR í PÁSKUM: Fyrsta ferð ki. 9.15 og síðan eins og á virkum dögum. Hafnarfjörður — Reykjavík: Á skírdaig er ekið frá kl. 10 til 0.30, föstudaginn langa frá klr 14 til 0.30, laugardag eins og venju- lega, páskadag frá kl. 14 til 0.30 og annan páskadag frá kl. 10 til 0.30. Á skírdag og annan páska- dag er aukaferð, eins o« venju- lega á sunnudögum, kl. 8 frá Reykjavík ag 8.30 frá Hafnar- firðL „meðalskussa". Þó tekur fyrst í hnúkana, þegar safnað er sam- an tilvitnunum úr mörgum grein- um en aðeins einn höfundur nefndur. Þó að sagt sé, að hver meðal- skussi geti lærf að fljúga, úti- lokar það ekki að til geti verið afburðamenn í stétt flugliða. Af því, sem sagt var ætti hverjum heilvita manni að vera ljóst, að flugnámi getur hver heilbrigður maður lokið, og að til þess þurfi hvorki andlega né líkamlega yf- irburði. Ég hirði ekki að skattyrðast við frú Bjarnveigu eða aðra um aukaatriði jafn mikils og hættu- legs máls sem þessa. Hinvegar er nauðsyn' að vekja athygli á eftirfarandi staðreyndum: Starf flugmanna er orðið áhættuminna en t. d. sjómanna eða bifreiðastjóra svo að nokkuð sé nefnt. Flugvélin er nú talin hættuminnsta samgöngutækið. Starfsævi lækna mun nú vera styttri en flugliða. Þeir hefja oft ekki ævistarf sitt fyrr en um og yfir þrítugt. Þeir verða að kosta nám sitt sjálfir. Skyldi sá héraðslæknir vera til á Islandi eða jafnvel aðrir læknar, sem hafa flugstjóralaun? Ég efast um að nokkur íslenzkur læknir hafi það. Því héfur ékki véríð á móti mælt, að laun flugstjóra í hæsta flokki hafi verið yfir hálf millj- ón króna á ári. Flugmenn okkar eru í dag betur launaðir en nokk ur önnur stétt þjóðfélagsins. Þeir eru ágætlega tryggðir og njóta margskonar for- og sérréttinda. Allir eru sammála um að gera vel við þá, svo sem unnt er. En þegar þeir miða kröfur sínar við launakjör erlendra manna, þá er ekki lengur sanngirni í óskum þeirra og kröfum. Saman burður við þá flugmenn, sem starfa hér um stundarstakir, er óraunhæfur. Þeir búa í öðru og miklu dýrseldara þjóðfélagi. í því sambandi má nefna læknis- hjálp og tryggingar, og þó að skattar þyki háir hér munu þeir snöggt um hærri þar. Hver heilvita maður sér í hendi sér, að afleiðingar af hækk un launa til hæstlaunuðu manna þjóðfélagsins mun hleypa af stað stórri skriðu, sem eyðilegg ur hvern þann varnarvegg, sem verið er að reisa til að tryggja fjárhag þjóðarinnar. Ennfremur ætti bæði flugstjórum og öllum almenningi að vera ljóst, að enda þótt Loftleiðum hafi vegnað vel og þeir hafi grætt mikið fé, þá má ekki mikið út af bera til að öil þessi starfsemi farí úr reipunum, og hvar erUtn við þá settir með samgöngur í lofti Framtíð Loftleiða verður ekki tryggð á annan hátt en að þeir geti safnað að sér verðmætum til þess að auka flugflotann, og til þess duga ekki smáskildingar. Verkföll hafa verið vopn lægst launuðu þegna þjóðfélagsins til þess að ná mannsæmandi lífs- kjörum, og hefur oft komið að litlu haldi þá, að því hafi verið beitt. Hæst launuðu menn þjóð- félagsins reyna nú að beita sama vopni. Skyldu ekki eggjar þess deyfast við slíka misnotkun? Margt fleira mætti til telja, en þetta er nóg í bili. Hákon Bjarnason. Húseigendafélag Reykjavíknr Skrifstofa á Grundarstíg 2 A Simi 15659. Opin kl. 5—7 alla virka daga. nema laugardaga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.