Morgunblaðið - 30.04.1965, Page 2
r
2 MOHSVNBLABIB Fostudagur 30. apríl 1965
Fœreyska lands-
, ■ sfjérnin klofsn
I Einkaskeyti til Mbl. —
Thorshavn 29. apríl.
IFÆRSYSKA lardsstjórnin, sem
anynduð var 4. jairúar 1964 með
ssamstöðu Fólkaflokksins, Þjóð-
vetdisflokksins, Sjálfstjórnar-
'fftokksins og Framfaraflokksins,
Jiefur farið út um ]>úfur. Af og
ttit hefur verið um að ræúa óein
ingu mitli stjórnarflokkana o» í
dag hefur Hákun Hjurhuus, lög-
jmaður, Fólkaflokknam, titkynnt
að stjcrnin hafi ekki lengur þirtg
meirihluta að baki sér.
Orsök þess að upp úr stjórnar-
samstarfinu slitnaði er sú,. að
Alaska,
IM o r ðurskauf ið
Erlendur Patursson. landstýri- :
maður, (ráðherra Þjóðveldis-
flokksins) lagði nokkur frum-
vörp fram í Lögþinginu í dag,
sem Landsstjórnin í heild hefur
ekki getað fallizt á.
Hákun Djurhuus. lögmaður
sagði í kvöld: „Þessi framkoma
Erlends Paturssonar verður að |
teljast samstarfsslit af hálfu Þjóð '
veldisflokksins“.
Lögmaðurinn lýsti því yfir á
fundi með stjórnarþingmönnum
síðdegis í dag, að hann sjái ekki !
fram á að á bak við stjórnina ,
sé nauðsynlegur þingméirihluti.
Engu að síður er talið að stjó'rn
in muni sitja til hausts, er nýjar j
kosningar fara . sennilega fram. |
Þetta er þó komið undir. ákvörð !
un lögþingsins, og ekki endanlega
ákveðið.
— Arge. I
og Arlis II
í KVÖLD kl. 21.00 flytur dr.
Max C. Brewer yfirmaður heims
skautsrannsóknardeildar Alaska-
háskóla fyrirlestur um Alaska,
Norðurheimskautið og Arlis II.
Fyrirlesturinn verður fluttur í
ameríska bókasafninu, Bænda-
höllinni, og að fyrirlestrinum
loknum verður sýnd kvikmynd,
sem heitir „Look North“, er
fjallar um Alaskaháskóla og
Arlis II.
Fyrirlestur þessi er á vegum
íslenzk- ameriska félagsins, en
öllum er heimiil aðgangur meþ-
an húsrúm leyfir.
Jöklafélagið fer fvœr
vorferðir á Vafnajökul
— og reisir nýjan skála i Jökulheimum
JÖKLARANNSÓKNARFÉLAG
íslands er nú að skipnleggja vor-
leiðangra sina á Vatnajökul, en
rannsóknir verða með umfangs-
mesta móti í ár og fara tveir
flokkar mælingamanna á jökul-
inn ,auk þess sem þriðji hópur-
inn verður í Tuivjnaárbotnum, til
að reisa þar annan skála, sem
nota á vegna veðurathugana og
einnig fyrir vísindamenn, sem
vilja dvelja við jökulinn og
stunda þar rannsóknarstörf. En
gamli skálinn félagsins verður í
sumar upptekinn fyrir veðurat-
hugunarmenn og ekki hægt að
taka þar við ferðafólki.
Leiðangrarnir verða farnir á
svipuðum tíma. A uppstigningar-
dag, 27. maí fara bygigingarmenn
í Jökulheima og einnig fyrri jök-
ulleiðangurinn undir forustu Sig-
urðar Þórarinssonar. Fer hann
með 10 manna flokk í tveimur
snjóbílum að Grimsvötnum. í
ferðunum í vor verða aðeins
mælingamenn og vísindamenn,
með Sigurði m.a. Guðmundur
Sigvaldason, jarðefnafræðingur
og Sigurður Steinþórsson, jarð-
fræðingur. Svo hátt er nú í
Grímsvötnunum að búast má við
hlaupi á árinu og því mikilvæigt
að hafa mælingar og athuganir
þar nú.
Laugardaginn fyrir hvítasunnu
íer svo seinni flokkurinn undir
forústu1 Sigurjóns Rist, sem m.ui>
stunda mælingar á vöstanverðum
Vatnajökli og reisa mælingamöst
| ur í þeim tilgangi að átta sig á
j hve mikið af ísmagni jökulsins
skríður niður á Tungnárjökul cig
hvað á SkeiðaYárjökul. Með Sig-
urjóni fara m.a. verkfræðingarn-
ir Magnús Hallgrímsson og Þor-
bergur Þorbergsson. Segulmæl-
ingum, sem Guðmundur Pálma-
son, verkfræðingur, sér um á
Vatnajökli seinkar eitthvað fram
á sumarið vegna utanfarar.
Hvor flokkur jöklafara verður
sennilega á jöklinum í 7-10 daga
Félagar Jöklafélags íslands á-
kváðu á 70 ára aímæli Jóns Ey-
þórssonar í vetúr að gera heldur
myndarlegt átak í mælingum og
rannsóknum á Vatnajökli í vor,
formanni sínum til heiðurs, og
verður Jón Eyþórsson með í
þessari rannsóknarstarfsemi.
ɻryk.sat0
Handritamálið enn:
el Larsz
• e
Sli:n:irJirssr
G 5
cðF
rZTir.
EINS og frá var skýrt í blaðinu
í gær hafa að undanförnu verið
framdar stórfelidar skemmdir á
mannlausu húsi á Fossvogsbletti
20. Hafa allir gluggar í húsinu
verið brotnir með grjótkasti og
vatni hleypt á gólf, vaskar fyllt-
ir með aur og grjóti og húsgögn
skemmd. Einnig var bifreið, sem
við húsið’stóð stórlega skemmd.
Hús þetta er byggt sem sumar -
bústaður, en að undanförnu hefir
það verið notað til íbúðar allt
árið. Nýlega var bústaðurinn
yfirgefinn sökum veikinda hús-
móður og eftir það voru fyrr-
greind spjöll ffamin á honui...
úsjnn og bílnnm
23
Þessar myndir sýna skemmd-
irnar i stofunni og á bílnum.
Kaupmannahöfn, 29. apríl.
Einkaskeyti til Mbl.
AKSEL Laffsen, leiðtogi Social-
istisk Folkeparti, var að því
spurður í viðtali í útvarpinu í
dag, hver væri afstaða hans tit
handritafrumvarps dönsku stjórn
arinnar. Hann sagði að ef frum-
varpið yrði lagt fram þegar að
loknum fundi handritanefndar-
innar á þriojudag og í þeim bún-
ingi, sem það heíði verið til þessa,
myndi hann greiða því atkvæði.
Larsen lýsti því yfir, að íslend-
ingar væru þeir einu, sem hefðu
rétt til handiitanna, og þeir heföu
átt að vera búnir að fá þau fyrir
löngu.
Hánn hefði aðeins stungið upp
á því, að nýr háttur yrði á hafður
með því að skipa undirnefnd í
málið til að semja 'við danska
vísindamenn, og ef nauðsyn
krefði, einnig við íslendinga, til
þess að hægt verði að komast að
jafn agnúalausu samkomulagi og
Ársfundur
Seðla!bank-
ans I gær
ÁRSFUNDUR Seðlabankans
var haldinn í gær, og af því
tilefni bauð stjórn bankans
til hádegisverðar í Þjóðleik-
húskjallaranum. Dr. Jóhannes
Nordal, formaður bankastjórn
ar, skýrði þar frá ársskýrslu
bankans, sem lögð ,var fram .í
gær. Er þar að finna margvís-
legar töiulegar upplýsingar
um.starfsemi Seðlaþankans og
um þá þætti efnahagsþróun-
arinnar, svo sem peninga- og
gjaldeyrismál, er varða hann
sérstaklega. Ræða dr. Jóhann-
esar verðúr birt í heild í blað-
inu á morgun.
Gylfi Þ. Gíslason, viðskipta
málaráðherra, færði bankan-
um þakkir fyrir hin þýðingar-
miklu störf hans í þágu þjóð-
arheildarinnar. Einnig fór
hann lofsorðum um dr. Jó-
hannes Nordal, sem flutti nú
í fyrsta sinn skýrslu bank-
ans sem formaður stjórnar'
hans.
Bankastjórnina skipuðu á
síðasta ári auk Jóhannesar
Nordals, Jón G. Maríasson og
Vilhjálmur Þór, sem lét af
störfum 31. okt. sl.
Bankaráð Seðlabankans skip:
uðu: Birgir Kjaran, hagfræð-
ingur, formaður, Emil Jóns-
son, ráðherra, varaformaður,
Ingi R. Helgason, hrl., Ólafur
Björnsson prófessor og Ólaf-
ur Jóhannesson, prófessor.
auðið væri. Ef til nýrra samn-
inga kæmi myndi hann ekki
styðja þá löggjöf, sem myndi
verða til þess að íslendingar
bæru færri handrit úr býtum en
gert er ráð fyrir í frumvrapi
því, sem nú stendur fyrir dyr-
um. — Rytgaard.
Ifl
Cruka ekki lengnr makalaus
SÁGT var frá því í Morgun-
blaðinu í gær, að dauðui; örn
hefði fundizt í Nauteyrar-
hreppi við ísafjarðardjúp sl.
þriðjudag. Var þetta gamall
kvenörn, en eftir lifði ungur
maki hans. Sigurður Þórðar-
son, bóndi að Laugabóli, sem
fann dauða örninn og sendi til
Reykjavíkur, sagði í viðtali,
sem fylgdi fréttinni í gær, að
hann vonaði að örninn ungi
fyndi sér fljótlega annan
maka, enda hefði hinn gamli
ekki verpt í fyrra.
Sigurði varð að ósk sinni,
því hann hringdi til Mbl. í
gær og skýrði frá því, að á
miðvikudag hefði Ágúst Guð-
mundsson, bóndi að Múla, og
sonur hans, Ástþór, sem voru
við smalamennsku, séð tvo
unga erni á flugi. Hefði þar
áreiðanlega verið á ferðinni
örninn, sem eftir lifði og nýr
maki hans.