Morgunblaðið - 30.04.1965, Síða 6

Morgunblaðið - 30.04.1965, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 30. aprH 196\ Þurfum stórátak í markaðsmáiunum Viðtal við Richard Björgvins- son framkvæmdastjóra Langeyrarverksmiðjunnar sem hefur byrjað útflutning niðursoðinna hrogna RÆKJUVEIÐUM er fyrir nokkru lokið fyrir vestan og í tilefni þess hefur Morgunblaðið átt viðtal við Richard Björgvinsson, viðskipta- fræðing, annan tveggja fram- kvæmdastjóra niðursuðuverk- smiðjunnar á Langeyri við Álfta fjörð. I>eir feðgar, Björgvin Bjarnason og Richard sonur hans hafa byggt upp og rekið þessa verksmiðju um nokkurra ára skeið og flytja þeir út 40% af rækju þeirri, er veiddist við ísa- fjarðardjúp í vetur. Richard kvað rækjuveiðarnar hafa gengið vel og óvenjumikið magn virtist hafa verið í fsa- fjarðardjúpi yfir veiðitímann. Þetta hefði verið stór og góð ræfcja, sem auðvelt hefði verið að vinna. í vetur lögðu 7 bátar upp hjá niðursuðuverksmiðjunni á Lang- .eyri af þeim 17, sem stunduðu veiðamar í Djúpinu. Verksmiðj- an á Langeyri er afkastamikil, enda er í henni mjög fullkomin amerísk skelflettingarvél, sem af kastar 8 tonnum á sólarhring. — Að ráði fiskifræðinga hefur rækjuveiðin verið takmörkuð nokkur undanfarin ár og var upphaflega heimilað að veiða 400 tonn á vertíðinni í vetur. En vegna þess að ljóst var, að rækju magnið var mjög mikið á miðun- um fékkst leyfi til veiða á 200 tonnum í viðbót — og var það fljótunnið verk, sagði Richard. Við erum að vona, að dregið verði enn úr þessum hömlum á næsta ári svo að hægt verði að auka veiðarnar enn meira. Við höfum þegar selt alla okkar rækju, ýmist niðursoðna eða frysta — til Bretlands, Frakk- lands, Svíþjóðar, Danmerkur og Finnlands. — Við erum hættir að frysta okkar rækju í blokkum, eins og hingað til hefur tíðkazt. Við frystum rækjuna lausa, ef Svo mætti segja. Hún er það, sem Bretinn kallar „individually froz- en“ — þannig að rækjurnar frjósa ekki saman. Nú orðið Þýð- ir helzt ekki að bjóða Bretanum hana öðru vísi og frysting á öðr- um fiski er stöðugt að færast meira og meira í þetta form. — Við munum vera einu fram- leiðendurnir, sem frystum rækj- una þannig hérlendis. Við höfum einnig gert tilraunir með niður- soðna þorsklifur — og erum reyndar komnir af tilraunastig- inu. Getum selt hana, e.t.v. í stór um stíl, til Frakklands. Nothæf lifur til þessarar framleiðslu hef- ur bara ekki fengizt í vetur. Línu veiðarnar brugðust að mestu og ekki getum við notað lifur úr netafiski til niðursuðu vegna blóðinnihaldsins, sagði Richard. — Þá má e.t.v. geta þess, að vifr hófum fyrir alllöngu tilraun- ir með að sjóða niður þorsk- hrogn og höfum við þegar náð góðum árangrL Norðmenn og Danir hafa unnið upp markað fyrir þessa framleiðslu í Bret- landi, en sjálfir afla þeir ekki meiri hrogna en það, að þessi útflutningsgrein þeirra er háð því að þeir geti fengið keypt hraðfryst hrogn hér á landi til þess að sjóða niður ytra. — Þessi niðursuða er töluvert vandasöm og hafa Norðmenn og Danir haldið aðferðum sínum leyndum. Það tók því nokkum tíma og kostaði töluvert fé að þreifa sig áfram þar til góður árangur náðist, en með því að vinna hrognin á þennan hátt er hægt að stórauka útflutningsverð mæti þeirra, þegar miðað er við útflutning hraðfiystra hrogna. — Höfuðvandinn er að ná fót- festu á hinum erlenda markaði. Við erum með nýtt vörumerki á markaðnum í mjög harðri sam- keppni við hin íslenzku hrogn í dósum þeirra Norðmannanna. — En við erum með jafngóða vöru og þeir norsku — og þess vegna höfum við trú á að þetta geti tekizt með tímanum. Vegna smæðar okkar í samkeppninni við öfluga erlenda framleíðend- ur hefur það oftar en einu sinni hvarflað að okkur, að sendiráð okkar gætu e.t.v. gert meira til þess að aðstoða íslenzka útflytj- endur. Mér er kunnugt um að verzlunarfulltrúar við norsku sendiráðin eru t.d. góðir banda- menn norskra útflytjenda og veita þeim margháttaða fyrir- greiðslu. — Það hefur m.a. borið einu sinni við, að ég hef leitað til dansks sendiráðs eftir upplýsing- um — í borg þar sem ísland hef- ur einnig sendiráð. — Eitt sinn báðum við íslenzkt sendiráð í erlendri borg að út- vega okkur heimilisfang nafn- greinds fyrixrtækis, sem við töld- um að gæti selt afurðir okkar. Fengum við svar þess efnis, að slíkt væri ekki í verkahring sendiráðsins og var þess óskað að við snerum okkur beint tii utanríkisráðxxneytisins í Reykja- vík. Þessu þarf að breyta. — Nauðsynlegt vseri að utan- ríkisþjónustan gæti veitt útflytj- endum betri fyrirgreiðslu en hing að til. Við þurfum að skóla marga unga menn í markaðsleitinni, senda þá út af örkinni — og þeir þyrftu að hafa aðstöðu við sendi- ráð okkar erlendis. Slíkt gera aðrar þjóðir — og við lifum ekki án utanríkisverzlunar fremur en þær. — Nú hafa eigendur niðursuðu verksmiðja hér á landi stofnað með sér samtök og við vonum, að þau samtök skapi í framtíð- inni grundvöll fyrir stærri átök á þessum vettvangi. Niðursuðu- iðnaður eflist stöðugt um allan heim-------og það er sama hvar komið er inn í matvöruverzlanir: Niðursuðuvörurnar taka æ meira rúm og stöðugt fleiri neytendur snúa sér að niðursuðunni. Við ís- lendingar höfum mjög góða að- stöðu til þess að láta til okkar taka á þessu sviði, ef rétt verður að farið. En niðursuðuiðnaður er ekki grein, sem hægt verður að byggja upp á einu eða tveimur árum. Þetta er atvinnuvegur sem þarfnast langrar þróunar — bæði hvað framleiðsluna snertir og markaðsöflunina. En með nið- ursuðunni getum við margfaldað verðmæti afurðanna — og hér höfum við hráefnið, sennilega jafnbetra hráefni en nokkur önn ur fiskveiðiþjóð í Evrópu. - — Enginn einn lyftir Grettis- taki á þessu sviði og vonandi verða samtök okkar til þess a3 við sameinum kraftana. f vetur tókum við þátt í matvælasýningu í París, vorum eina islenzka nið- ursuðuverksmiðjan, sem þar sýndi vörur sínar. Þessi sýning bar allgóðan árangur, sem óneit- anlega var uppörvandi. — Mér dettur ekki í hug a3 halda því fram, að við ættum að leggja meiri áherzlu á niðursuðu en frystingu í framtíðinni. En ég held að mikilvægt sé að auka og þróa niðursuðuiðnaðinn með út- flutning fyrir augum — og reyna að selja stærra brot af fram- leiðslunni niðursoðið en nú er. Þannig gætum við aukið verð- mæti útflutningsafurða töluvert — smátt og smátt, sagði Richard Björgvinsson að lokum. Iðnskólo Keflo- víkor slitið Keflavík, 28. apríl. NÝLEGA var Iðnskóla Keflavík- ur slitið og var þetta þrítugasta skólaárið, því skólinn var stofn- aður 1935. Á þessu tímabili hefur skólinn útskrifað 230 nemendur í nær öllum iðngreinum. Að þessu sinni voru 81 nemandi við skól- arm og luku 38 þeirra fullnaðar- prófi. Hæstu einkunn við burt- faraipróf hlaut Ólafur Þorgils Guðmundsson, málaranemi, 8,89. Hæstu einkunn í framhaldsbekkn um hlaut Sigurður V. Egilsson, 9,18. — Þorbergur Friðriksson, formað ur Iðnaðarmannafélags Keflavík ur og nágrennis afhenti Þorgila verðlaun frá félaginu og ræddi nokkuð í því sambandi um nauð- syn menntunar iðnaðarmanna og gildi skólans í því sambandi. Við skólana störfuðu 9 kenn- arar auk skólastjórans Hermanna Eiríkssonar. Iðnskóli Keflavíkur hefur enn ekki sitt eigið hús- næði og háir það nokkuð starf- semi skólans, en eftir því sem skólastjóri ræddi um, er nú unn- ið að því að bæta úr húsnæðis- vandræðum skólans, því aðsókn fer vaxandi með hverju ári. — hsj — * Fiskriti Ég sá það í blaðinu í gær, að Halldór Halldórsson er bú- inn að gefa asdic-tækjunum margfrægu íslenzkt heiti. Hann nefnir þau fiskrita og má með sanni segja, að það sé ekki illa til fundið. — Fæstir vita senni- lega hvað asdic þýðir í raun og veru og flestir setja það óhjá- kvæmilega í samband við síld- veiðar og fiskleit yfirleitt. ASDIC er, ef ég man rétt, skammstöfun á ensku orðun- um: Anti Submarine Defence Investigation Committee, sem þýðir lauslega rannsóknarnefnd varna gegn kafbátum. Sama máli gegnir með asdic, ratsjá (Radar — Radio Detec- tion and Rancing) og annan tækniútbúnað, sem komizt hef- ur í almenna notkun á síðari árum. Flest á þetta upptök sín í hemaði, en síðar hefur reynzt unnt að framleiða tækin í stór- um stíl til almennra nota. Jeppinn Og einhvern tíma heyrði ég, að íslenzka orðið jeppi, sem hvert mannsbarn á íslandi þekkir, eigi allundarlega sögu. Þetta er í rauninni íslenzkun á orðinu jeep, sem Bandaríkja- menn nota xxm sömu tegund bifreiðar. Upphaflega var bifreiðin köll- uð „General Purpose Vehicle“, eða farartæki til allra nota. — Bandaríkjamennirnir fóru síð- an að stytta þetta heiti, og kalla „jeppann“ GP, eða tveimur upp hafsstöfum tveggja fyrstu orð- anna. í framburði varð GP dsí- pí, síðan var báðum stöfunum slegið saman í dsíp, sem síðan má rita: Jeep. Framburðurinn er sá sami. Þannig varð GP að jeppa. Ef ég fer ekki með rétt mál er ég reiðubúinn að leiðrétta það, en þetta er a.m.k. ein sag- an um tilkomu orðsins jeppi. „Dagar víns og rósa“ Og hér kemur stutt bréf frá frú Aðalbjörgu Sigurðardóttur, skrifað í tilefni ummæla minna og fleiri um kvikmynd þá, sem nú er sýnd í Austurbæjarbíói, en frú Aðalbjörg starfar við kvikmyndaeftirlit, eins og flest- um er kunnugt: „Vegna skrifa í Morgunblað- inu um það, að ekki hefði átt að banna unglingum aðgang að kvikmyndinni „Dagur víns og rósa“ langar mig til að gera ofurlitla grein fyrir því hvað fyrir mér vakti, er ég bannaði hana unglingum innan 16 ára aldurs. Myndin er ákaflega sterk og átakanleg í hinni vonlausu bar- áttu við að bjarga ungu kon- unni úr klóm áfengisástríðunn- ar. Ég var sjálf blátt áfram miður min á eftir. Og ég spurði sjálfa mig: Hvernig verkar þessi mynd á ungling, sem býr við einhverjar líkar aðstæður á eig- in heimili, horfir á foreldra eða nána vandamenn ofurselda þessari skelfingu, sem engin ráð sýnast duga við? Vekur hún ekki fyrst og fremst vonleysi og þjáningu, ef engar skýringar fylgja með? Þetta var ástæðan til bannsins. All-t öðruvísi horfir málið við ef myndin væri sýnd sem skóla- mynd fyrir unglingaskólana þar sem kennarar fylgdust með unglingunum og notuðu síðan myndina til aðstoðar við fræðslu um áfengismálið. Sama máli er að gegna um fleiri teg- undir mynda, sem hér hafa kom ið. Þær eru góðar ef kennari notar þær til uppistöðu við kennslu sína, en vafasamar ella. Væri ágætt, að skólayfirvöld tækju þetta til athugunar. Aðalbjörg Sigurðardóttir.** , B O SC H flautur, 1 og 2ja tóna. BRÆÐURNIR ORMSSON hf Vesturgötu 3. — Sími 11467. 0

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.