Morgunblaðið - 22.05.1965, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
27
Laugardagur 22. maí 1965
I»essi mynd birtist í Mbl. 6. jan. 1960 af „Ruben-poka“.
Höskuldur Goði Karlsson sundlaugarstjóri sýnir notkun hins
nýja tækis, sera bjargaði lífi drengsins á dögunum.
INIýtt tæki til lífgunar,
bjargaði drengnum
Frá fél. framreiðslumanna
NÝJA blásturstækið, sem notað
var til þess að bjarga lífi litla
drengsins í Sundlaug Vesturbæj
ar fyrir nokkrum dögum, var
komið þangað aðeins tveimur
dögum áður en þessi atburður
gerðist, að því er Baldur Jóns-
son, formaður Slysavarnardeild-
arinnar Ingólfs í Reykjavík tjáði
blaðinu í gær. Baldur sagði, að
Brian Holt sendiráðsritari hefði
bent félaginu á þessi tæki, og
hefði verið ráðizt í að kaupa
nokkur tæki til reynslu og þeim
komið fyrir á öllum sundstöð-
unum í Reykjavík. Tæki þetta
kostar hátt á þriðja þúsund kr.
Það er mjög einfalt í notkun og
geta allir farið með það, sem
lært hafa ,,munn-við-munn að-
ferðina. Ef innöndun verður of
kröftug, gefur tækið frá sér
greinilegt blísturshljóð, svo að
ekki er um að ræða neinar hætt
ur varðandi notkun þess. í stuttu
viðtali við blaðið um þetta í gær
sagði Baldur Jónsson: „Við í
Slysavarnarfélaginu vitum það,
að starfsmenn við sundstaðina
í Reykjavík vilja allt gera til
þess að forða slysum og þess
vegna er okkur sönn ánægja að
því að láta þeim í té tæki sem
þessi“.
Önnur blásturstæki komu til
landsins fyrir rúmum fimm ár-
um, svonefndir „Ruben-pokar“.
Þá verandi framkvæmdastjóri
Rauða kross íslands, dr. Gunn-
laugur Þórðarson, beitti sér fyrir
því, að þessi tæki voru sett í
flest skip og einnig til allra hér
aðslækna og í alla sjúkrabíla
Rauða krossins. Þessi tæki hafa
fyrst og fremst gildi, ef þau eru
staðsett hjá kunnáttumönnum.
Eina áhættan varðandi notkun
þeirra er sú, að menn fari að
eyða dýrmætum sekúndum eða
mínútum í að leita að tækinu
í stað þess að hefja þegar lífgun
artilraunir með aðferðinni
„munn-við-munn“, og er því enn
nauðsynlegt að leggja rækt við
kennslu hennar.
Bátarnir
búast á síld
FLESTIR Reykjavíkurbátarn
ir, sem voru á netum eða nót,
liggja nú í höfninni. Er verið
að hreinsa þá og undirbúa til
síldveiða. Tveir bátar eru þeg
ar farnir á síld og þrír eru
enn á netum. Sex bátar eru
komnir á humarveiðar.
Humarbátarnir liafa lítið
fengið ennþá. Gammur kom
í fyrradag með 9 tonn af
þorski og 1 af humar. Reynir
fékk 8 tonn af þorski og 2
af huirar. Aðrir humarbátar
fengu minna, en allir þó ein-
hvern humar.
Þorsteinn og Reykjaborg
eru farnir á síld og komu
í fyrradag með smáafla, sem
þeir höfðu fengið við Vest-
mannaeyjar. Þeir fóru báðir
aftur út á hádegi í gær.
Þrír bátar, Ásbjörg, Breið-
firðingur og Lundey eru enn
á þorskanetum. Ásbjörg kom
inn með 20 tonn á miðviku-
dag. Annars eru allir að út-
búa sig á síldveiðar, utan fá--
einir, sem ætla á snurvoð.
Einn bátur, sem var á netum,
Sjóli, er farinn á handfæra-
veiðar.
VEGNA blaðaskrifa um verðlag
á víni í veitingahúsum hér í borg
viljum vér biðja yður að birta
eftirfarandi:
1. Deila sú, sem risið hefur
milli Félags framreiðslumanna
og eigenda veitingahúsa hér í
Reykjavík um það hvort fram-
reiðslumönnum beri þjónustu-
gjald af söluskatti o. fl., sem
gestir eru látnir greiða umfram
það verð á vínum, sem áfengis-
verzlunin hefur ákveðið og fram
reiðslumönnum hefur verið uppá
lagt að innheimta af gestum auk'
stofnverðs og þjónustugjalds, er
dómsmálaráðuneytinu með öllu
óviðkomandi, þar sem hér er um
að ræða deilu um kaupgjald og
skilning á samningi framreiðslu-
manna við veitingamenn.
2. í samningi Félags fram-
reiðslumanna við Samband veit-
inga- og gistihúsaeigenda segir
svo í 1. gr. samningsins:
„Framreiðslumenn og barmenn
taka ekki kaup frá atvinnurek-
anda, en fá þóknun frá viðskipta-
mönnum fyrir starf sitt, skal sú
þóknun vera 15% miðað við verð
veitinga til almennings".
Enginn ágreiningur getur ver-
ur verið um það, að verð það
sem áfengisverzlunin hefur á-
kveðið á vini að viðbættum 10%,
sem framreiðslumenn innheimta
fyrir veitingamenn af gestunum,
BRIDGE
□-----------------------□
f FYRRINÓTT voru sr 'luð spil
nr. 49—96 í leikjum milli Ítalíu
og Argentínu og Englands og
Bandaríkjanna. Ekki hafa borizt
nákvæmar fregnir af úrslitum í
þessari umferð, en vitað er að
Ítalía bætti við 86 stiga forskot,
sem var eftir 48 spil. Einnig er
vitað að bandaríska sveitin er
komin yfir í leiknum gegn Eng-
landi, en eftir 48 spil hafði enska
sveitin 23 stig yfir.
Að 48 spilum loknum var stað-
an þessi:
Ítalía — Argentína 153:67
England — USA 105:83
Að 96 spilum loknum var stað-
an þessi:
Ítalía — England 154:86
USA — Argentína 136:90
USA — Ítalía 162:157
England — Argentína 162:114
er verð það, sem almenningur
greiðir fyrir vínveitingar ög að
framreiðslumönnum ber 15%
þjónustugjald af þeirri upphæð,
eins og samningurinn segir til
um.
3. Loks skal það tekið fram,
að í öllum nágrannalöndum okk-
ar fá framreiðslumenn þjónustu-
gjald af söluskatti og öðrum
sköttum sem veitingamenn
greiða.
(Stjórn Félags fram-
reiðslumanna).
NJÓSNARAR TEKNIR
Karlsruhe, V-Þýzkalandi,
21. maí (AP)
Yfirmaður nokkur úr aust-
ur-þýzku leyniþjónustunni
flýði yfir til Vestur-Þýzka-
lands í síðustu viku, og hefur
flótti hans komið af stað um-
fangsmikilli leit að njósnurum
Austur-Þjóðverja vestan járn-
tjalds. Hafa þegar nokkrir
þeirra verið handteknir sam-
kvæmt ábendingum flótta-
mannsins.
Slórgjöf |
! iil Barnaspítala- |
f sjóðs Hringsins og !
Styrktarfélags
1 lamaðra og fatlaðra}
i 21. APRÍL s.l. andaðist frú i
| Sigurbjörg Pálsdóttir, Óðins- i
I götu 30, hér í borg, ekkja i
i Eggerts Jónssonar kaup- i
É manns, d. 17. júní 1959.
i Þeim hjónum varð ekki f
§ barna auðið. 1 erfðaskrá i
i mælti frú Sigurbjörg svo fyr- i
i ir, að allar eignir búsins i
Í skyldu skiptast jafnt milli \
Í Barnaspítalasjóðs Hringsins i
Í og Styrktarfélags lamaðra og i
i fatlaðra. Mun sú ráðstöfun f
Í hafa verið gérð í samráði við i
| Eggert.
: Hér er um að ræða stór-i
Í gjöf, varla undir hálfri ann- i
i arri 'milljón króna að verð-1
i mæti, til nefndra líknarstofn- i
i ana. Þakka fyrirsvarsmenn i
i þeirra gjöfina af alhug.
i Öllum þeim, sem þckktu til |
i þeirra hjóna, Sigurbjargar ogi
Í Eggerts, finnst ráðstöfuni
Í þessi lýsa þeim vel.
5 z
<<<<i<<<<<i<i<iii<<<<<««<i<ii<ii<<<iiiiiiiiiiiiiiiiiiiii,iiiiii,ll
| IÆGÐIN fyrir sunnan land sunnanlands, en heldur kalt !
| er á hægri hreyfingu austur fyrir norðan, sér í lagi á an- i
Í og ætti ríkjandi vindátt hér nesjum- Ætlar að verða bi’ð i
Í að verða norðlæg um helgina. á þvi, að hér komi sunnan- i
= Þó ætti að verða fremur hlýtt átt að gagni.
<<<<<< <<<<<I<<I<<<< <<<I<<I<<II< II l||l|l<M<<< <<«<«,l|<,||<<<,|<l||«<l||«t.|<<<<<<|<lli|<l«||H|t<<<l<<<l<t«U<<|||«||<l<||<|<MU
HAPPDRÆTTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS SðíI OÖ
SKRIFSTOFA Sjálfstæðis-
flokksins við Austurvöll verð-
ur opin til kl. 18 í dag, laugar-
dag. Þar fást miðar í hinu stór
glæsilega landshappdrætti
Sjálfstæðisflokksins. Ennfrem
ur geta þeir, sem fengið hafa
miða senda heim, gert þar
skil. Látið ekki happ úr hendi
sleppa. — KAUPIÐ MIÐA
STRAX í DAG!
Happdrætti Sjálfstæðis-
flokksins.
Mývatn íslaust
orðið
Grímsstöðum, Mývatns-
sveit, 21. maí.
LÍTIÐ er farið að grænka hér
um slóðir og frekar kalt i veðrL
Allt þar til í gær var Mývatn
ísi lagt, en þá var hér hvass-
viðri og braut þá allan ísinn af
vatninu svo það er nú íslaust
orðið með öllu.
Okkur virðist sem allir þeir
farfuglar er hingað koma á
sumrin, hafi þegar ■skilað sér,
þrátt fyrir kalsasama tíð, en það
var um síðustu helgi sem nætur
frost komst hér allt niður í + 5
stig. Stórfenni er hér í heiðun-
um í kring.
— Jóhannes.
— Surtseyjarfélag
Framh. af bls. 2.
Á stofnfundi félagsins var
samþykkt að bjóða prófessor
Paul S. Bauer, frá Ameríska
háskólanum í Washington 1
Bandaríkjunum, að vera heiðurs-
félagi. Prófessor Bauer hefur
sýnt sérstakan áhuga fyrir rann-
sóknum í Surtsey og fyrir is-
lenzkum vísindum almennt.
Hann hefur áður gefið til Surts-
eyjarrannsókna og til íslenzkra
visindamanna samtals' $7000.00
úr sínum eigin vísindasjóði, The
Bauer Scientific Trust, og nú
hefur prófessorinn enn veitt
styrk að upphæð $3000.00 til
Surtseyjarfélagsins til almenn-
rar rannsóknarstarfsemi.
Þess má loks geta, að Surts-
eyjarfélagið vinnur nú, ásamt
Björgunarfélagi Vestmannaeyja,
að því að koma upp húsi í Surts-
ey.
(Frébt frá Surtseyjarfélaginu)
— Ibróttir
Framhald af bls. 26
Ronnie FARMER. Var áður hjá
Notth. For. en kom til Coventry
1958. Getur einnig leikið inn-
herja.
Dietmar BRUCK. Fæddur I
Danzig, Þýzkalandi, en ólst upp
í Coventry. Hefir leikið með
enska unglingalandsliðinu.
John SMITH. Var hjá West
Ham í 4 ár og lék með landsliði
undir 23 ára og einnig varamað-
ur enska landsliðsins, en seldur
til Tottenham 1960. Lék alloft
með aðalliði Tottenham og kom
til Coventry vorið 1964.
Framherjar: Ronnie REES.
Vinstri útherji. Er fastur leik-
maður í vetur í landsliði Wales,
leikið alls 7 sinnum og einnig 7
sinnum með undir 23 ára liðinu.
George HUDSON. Miðherji.
Kom til Coventry 1963 frá
Peterborough fyrir 21,000 £. Er
mjög leikin og marksækinn,
skoraði 23 mörk í 32 leikjum
1964—4 og 24 mörk í 38 leikjum
1964—5.
Ernie MACHIN. InnherjL
Kom til Coventry 1962, en meiðsli
í hné hafa háð honum.
Ken HALE. Innherji. Keypt-
ur frá Newcastle 1962. Mjög leik-
inn og skotharður.
John MITTEN. Vinstri útherji.
Kom til Coventry frá Leicester
1963. Er sonur Mittens v. úth.
Mansh Utd. á árunum eftir stríð,
liðsins sem sigraði Blackpool í
hinum fræga úrslitaleik á
Wembley 1948.
Dave CLEMENTS. InnherjL
Kom frá Wolves fyrir litinn pæn-
ing 1964 og er einn af efnileg-
ustu leikmönnum liðsins. Hefir
leikið í öllum gráðum landsliðs
N.-frlands. Lék með undir 23 ára
liðinu eftir aðeins tvo leiki með
aðalliði Coventry og 2 landsleiki
eftir aðeins 70 leiki með aðal-
liðinu.
Bobby GOULID. Miðframherji.
Ei aðeins 18 ára og talinn mjög
efnilegur.
Ken KEYWORTH. Mið.fram-
herji. Kom til Covce'try í des. í
vetur frá Leicester. Lék með
Leicester í úrslitunvm gegn
Manch. Utd. á Wembley 1963.