Morgunblaðið - 25.05.1965, Side 30

Morgunblaðið - 25.05.1965, Side 30
30 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 25. maí 1965 COVENTRY SIGRAÐI FYTISTI leikur hinna ensku knattspyrnugesta, Coventry City, sem allir eru atvinnumenn, bauð upp á allmjög skemmtileg augna blik. Bæði liðin áttu góð upp- hlaup og sköpuðust við bæði mörkin hættuleg tækifæri. Eng- lendingar unnu með 4 mörkum gegn 1 og höfðu yfirburði í hraða, staðsetningum og boltameðferð. K.R.-ingar komu þó á óvart, ef miðað er við fyrri leiki liðsins í sumar og börðust vel meðan úthald entist. Því er ekki að leyna, að flestir munu hafa búizt við betri leik atvinnuliðsins, en raun varð á. Þeir reyndust hafa yfirburði á mörgum sviðum, sérstaklega stað setningum og hreyfanleik. Allir leikmennirnir taka þátt í leikn- um, jafnvel þótt knötturinn sé ekki nálægur. >ó virtist liðið stundum taka of létt á hlutunum, sérstaklega í síðari hálfleik. Má vera að þeir hafi talið sigurinn vísan og ekki talið ástæðu til að leggja mjög hart að sér. Fyrri hálfleikur. Fyrstu 30 minúturnar voru nokkuð jafnar hvað marktæki- færi snertir. Englendingarnir fundu ekki þann takt í leik sinn sem reiknað var með að kæmi fram hjá liði, sem hefur á að skipa landsliðsmönnum frá Wales’ og Irlandi. K.R.-ingar skoðuðu fyrsta markið í ieiknum og var það á 25. mín. Eftir gott upphlaup komst Gunnar Felixson í sæmi- legt færi, en markvörðurinn varði, en hélt ekki knettinum, sem rann til Guðmundar sem skoraði af stuttu færi. Fjórum mínútum síðar tókst Englendingum að jafna, eftir gott upphlaup á hægri vallar- helmingi var knötturinn gefinn hátt fyrir markið, miðherjinn Hudson skallaði fyrir fætur hægri innherjans Haje, sem stóð óvaldaður á markteig og skoraði óverjandi. Á 40. mínútu tóku Englendiríg- arnir forystu. Hægri útherjinn Rees tók aukaspyrnu út við hlið- arlínu, gaf á innherjann Hale, sem lék framhjá vamarleikmönn um KR og gaf vel fyrir til mið- herjans Hudson, sem skoraði með skalla. Síðari hálfleikur í síðari hálfleik fór að bera á þreytu hjá KR-ingum og tóku ensku leikmennirnir því leikinn í sínar hendur. >ó áttu KR-ingar nokkur tækifæri, m.a. átti Ell- ert þrumuskot, sem lenti í þver- slá. >riðja markið skoruðu Eng- ændingarnir á 25. mín. í síðari hálfleik. Smith vinstri innherji gaf háa sendingu yfir vöm KR og inn- herjinn Hale tók vel á móti og skoraði auðveldlega. Fjórða markið skoraði fram- vörðurinn Farmer með þrumu- skoti nokkrum metrum fyrir ut- an vítateig. — Glæsilegt skot. Liðin. Enska liðið er nokkuð jafnt, þó bar mest á innherjunum Hale og Smith, sem unnu vel allan tím ann. Miðvörðurinn Curtis var mjög traustur og byggði oft skemmtjlega upp. Lið KR sýndi betri leik, en fyrr í sumar. Leikmennirnir börð ust vel. Eílert og Örn voru beztir ásamt Heimi, sem oft varði snilld arlega. Dómari var Magnús Pétursson og dæmdi'mjög vel. Akureyri — AKU5REYRJNGAR og Fram léku fyrsta leik sinn í íslandsmótinu, (1. deild) á sunnudag. Leikurinn fór fram á Akureyri í dálítilli norðan golu og sólalausu veðri, hófst kl. 4 síðdegis og lauk með sigri Akureyringa 2:1. Leikurinn var í heild fremur lélegur og mun hvorugt liðið hafa sýnt hvers það er megnugt. Yfirleitt lá þó meir á Fram og Akureyringar fengu öllu fleiri tækifæri, en gerðu sig æ ofan í æ seka um svo furðulegan klaufa skap, bæði í vörn og sókn að þeir geta sannarlega vel við úr- slitin unað. Tilviljunin réð meiru um stefnu og feril knattarins um völlinn (og út af vellinum) en vilji leikmanna og ráðsályktun. Nú er þess skylt að geta áð öil mörkin voru mjög falleg, ótvíræð og óverjandi fyrir mark- verðina. Fyrsta markið kom á 14. mín., er Sævar Jónatansson þrumaði af miðjum vallarhelm- ingi Framara gegnum alla vörn- ina í bláhorn marksins, við jörðu. Geysifallegt og afdráttar- laust mark. Eftir þetta skiptust liðin á um góð tækifæri, sem nýttust ekki þangað til Hallgrím ur Scheving jafnaði fallega fyrir Fram á 28. mín. eftir einvígi við Jón Stefánssop Fram 2-1 >rem mín. síðar hremmdi Hall kell >orkelsson markvörður Fram boltann af tám Kára Árna sonar, sem kominn var í ágætt færi á markteigshorninu og hafði leikið af sér tvo varnarmenn. Áhorfendur klöppuðu duglega fyrir snarræði markmannsins. Það sem eftir var hálfleiksins, komu nokkrir góðir sprettir sem enduðu yfirleitt með heldur ófim legum aðgerðum leikmanna. Sami blærinn hélzt fram eftir síðari hálfleik, en þegar 15 mín. voru eftir kom nokkurt fjör í leikinn og leikmenn náðu nokkr um snörpum upphlaupum, sem fengu markvörðunum nokkur erfið verkefni, sem þeir leystu vel af hendi. Á 37. mín. kom náðarhöggið í sóknarlotu Akureyringa. Skúli Ágústsson gaf knöttinn vel fram var í þröngri aðstöðu en skoraði til Steingríms Björnssonar, sem þó ákveðið og viðstöðulaust af markteig. Þett'a mark gerði út um leik- inn og færði nýliðunum í 1. deild tvö dýrmæt stig. Allgott fjör héist til leiksloka en án stór- tíðinda. Dómari var Valur Benedikts- son, sem hefði gjarnan mátt vera öllu atkvæðameiri. Fyrsta mark enska liðsins. HAL E, innherji, fékk knöttinn á markteig og skorar auðveldlega. Keflavlk — SIGUR íslandsmeistaranna í Keflavík .yfir Akranesi var sann- gjarn og hefði tveggja marka munur gefið betri hugmynd um gang leiksins. Ennþá er Ríkharð- ur sterkasti maður Akraness og hinn ungi markvörður Jón Ingi sýndi góð tilþrif. Leikur ÍÐK og Akraness á grasvellinum í Ytri-Njarðvík þófst í blíðskaparveðri. á sunnu- dáginn, en brátt tók að rigna og gerðist völlurinn háll og knöttur- urinn þungur. Þegar á fyrstu mínútu hófu Keflvikingar sókn, Jón Jóhanns- son gaf laglega fyrir markið til nafna síns Ólafssonar, sem skaut og Kristinn Gunnlaugsson bjarg- aði á línu. Skagamenn voru ekki lengi að snúa vörn í sókn og 30 sek. síðar lá knötturinn í netinu hjá Kefl- vikingum. Markið bar þannig að, að vörn Keflavíkur „gleymdi“ Skúla Hákonarsyni á hægri kanti, sem fékk knöttinn óvaldaður og hafði nægan tíma til að miða á koll- inn á Eyleifi, sem stóð fyrir markinu og skallaði óverjandi í netið. Eyleifur mun þannig hafa skorað fyrstá mark íslandsmóts- ins um það einni og hálfri mín. frá upphafi leiksins. Þetta mark virtist koma eins og reiðarslag yfir Keflvíkihga og næsta stundarfjórðung voru þeir Ríkharður og Jón Leosson ein- ráðir á vallarmiðju og mötuðu framherja sína. Leikur Keflvík- inga var allur í molum og sam- leikstilraunir • runnu allar út í sandinn. Er líða tók á hálfleikinn fóru Keflvíkingar smátt og smátt að ná meiri tökum á leiknum og á 35. mín. tókst þeim að jafna, er Rúnar Júlíusson sneiddi knöttinn í netið eftir 40 metra spyrnu Sigurvins bakvarðar. Við markið lifnaði yfir Keflvíkingum og sóttu þeir án afláts, fengu marg- ar ho^nspyrnur, en án frekari ár- angurs. Hálfleiknum lauk með jafntefli. Síðari hálfleikur fór að mestu fram á vallarhelmingi Skaga- manna. íslandsrrjeisturnum tókst nú að ná skemmtilegum sam- leiksköflum og léku alveg inn á vítateig, en þeir voru ragir við að skjóta og eyðilögðu þannig Akranes 2:1 mörg ágæt tækifæri. Er líða tók á hálfleikinn og bæði liðinn voru kominn á vall- arhelming Akraness, gekk knött- urinn fram oig til baka milli mótherja svipað og í borðtennis. í einni slíkri tennislotu tókst GTétari Magnússyni framverði ÍBK* að finna smugu á varnar- vegg Akraness og senda jarðar- bolta í markið. Fleiri urðu mörkin ekki og geta Akurnesingar þakkað hinum unga markverði sínum, sem sótti sig er á leikinn leið og oft bjarg- aði mjöig skemmtilega, t-d. er hann hirti knöttinn af tánum á Jóni Jóhannssyni, sem kominn var inn fyrir vörnina fyrir opnu marki. Ef undan eru skildar fyrst 15 mínúturnar, átti lið Akurnesinga heldur slakan leik. Framverðirn- ir, Ríkharður Jónsson og Jón Leosson, ásamt markverðinum voru beztu menn liðsins. Sóknar- tilraunir framherjanna voru til- viljanakenndar og fengu þeir þó margar snilldarlegar gjafir frá Ríkharði. Eyleifur týndist al- gjörlega I gæzlu Sigurðar Al- bertssonar. Síðari hálfleikur var oft skemmtilega leikinn af Keflvík- ingum og samleikur þeirra Rúnars og Karls Hermannssonar var ágætur. Með meiri skothörku hefðu þeir átt að sigra með meira en eins marks mun. Vörnin heffr oft verið mikið vandamál hjá Keflvíkingum og virðist svo, sem þeim hafi ekki tekizt að leysa þann vanda enn- þá. Staðsetningar varnarleik- manna, einkum í fyrrihálfleik voru oft fáráanlegar og hefðu Skagamenn einhverntíma not- fært sér að smjúga í gegn um þau göt er þar mynduðust. Takist Keflvíkingum að stoppa i götin á vörninni, þá virðist lið þeirra geta orðið ýmsum skeinu- hætt í sumar, ekki síður en 1 fyrra. Hinsvegar er of snemmt að koma með spádóma eftir einn leik, margt getur gerzt í knatt- spyrnu og það er löng og erfið leið á Laugardalsvöllirm í úr- slitaleikinn. Leikinn dæmi Magnús Péturs- son af miklum myndugleik. Áhorfendur voru margir. BÞ. 31 AGÉ 23 212 WEIGHT HEIGHt 6 ft, 1 6 fi 210 . 3 i». 8EACH 84 *n. CHEST NOR 44»ft. cmsi ÍKPA 79íft MAL 43 i ft mded Yi in. WAIST 33 m, fOkíAH 14 % 1 45 tft. 34 in. FIST 1 $*/*}«. NECK I7V n 13 m. BKEPS 17 VSi« 74 ió •■ I kvöld fer fram hnefaleikakeppni milli Cassius Clay og Sonny Listons um heimsmeistaratitilinn í þungavigt. Keppnin átti upp- haflega að fara fram í Boston, en þar var lagt bann við að hún færi fram, og var því ákveðið að keppa í borginni Lewiston í Maine. Keppnin fer fram á leiksvæði fyrir unglinga, sem tekur 5,500 áhorfenur í sæti. Verð á aðgöngumiðum er 100, 50 og 25 dollarar. Keppninni er sjónvarpað í fjölmörgum kvikmyndahús- um í Bandarikjununo.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.