Morgunblaðið - 31.08.1965, Qupperneq 11
Þriðjudagur 31. ágúst 1965
MORGUNBLADID
11
Hfinnismerki
um Hrafn
Sveinbjarnarson
ÞESS var fyrir skömmu getið í
Mbl., að Páll Kolka læknir hefði
stofnað sjóð í því skyni að koma
upp minnismerki Hrafns Svein-
bjarnarsonar, hins fyrst lærða
læknis á fslandi, á óðali hans,
Hrafnseyri við Arnarfjörð. For-
seti íslands, herra Ásgeir Ás-
geirsson, varð fyrstur til þátt-
töku í sjóði þessum og lagði
hann fram eitt þúsund krónur
í því skyni. Vonandi fær mál
þetta það góðan byr, að næsta
sumar verði komið upp minnis-
merki Hrafns, áþekkt og and-
epænis minningarsteini Jóns
Sigurðssonar forseta, sem stendur
öðru megin við brautina að
heimahlaði staðarins.
686 gervihnettir
úti i geimnum
Houston, Texas, 26. ágúst.
— NTB.
í dag eru alls 686 gervi-
hnettir gerðir af manna hönd
um á sveimi úti í geimnum,
að því er tilkynnt var í geim
ferðastöðinni hér. Bandaríkin
eiga 150 gervihnetti á braut
umhverfis jörðu og átta á
braut umhverfis sóiu. Frá því
að geimferðaöld mannsins
hófst, hafa alls 1.519 gervi-
hnettir og tæki ýmiskonar
gerð af mönnum, svo sem síð
ustu þrep eldflauga o.fl. verið
á sveimi úti í geimnum. Mörg
þeirra hcifa brunnið til agna
er þau komu aftur inn í and-
rúmsloftið, þannig að í dag
er aðeins um 686 að ræða,
sem enn eru í geimnum.
Segir skilið
við Castro
London, 28. ágúst, NTB, AP.
BB.'.DIHERRA Kúbu í London,
Luis Ricardo Aloso, sem gegnt
hefur embætti síðan 1963, hefur
nú sagt af sér vegna andstöðu
vi‘ð stjórn Castros.
Sagði sendiherrann, sem áður
hefur verið fuLltrúi lands síns
t Perú, Noregi og Svíþjóð, í
bréfi er hann reit Osvaldo Dórti-
cos, Kúbuforseta, að hann sæi
sér ekki fært að gegna emibætti
lengur, því svo mjög bæri í milli
tiim skoðanir hans og stjórnar-
innar.
Jámsmsð|ur
Blikksmáðjur
HÖFUM FYRIRLIGGJANDI LÍTIÐ NOTAÐAR
PLÖTU-BEYGJUVÉLAR.
FASTI lengd 1,55 m beygjuþykkt 5 mm.
CICACO lengd 2 m beygjuþykkt 2,5 mm.
Veitum aHar nánari upplýsingar.
i miniiiiii & :mm n
Grjótagötu 7 — Sími 24250.
íslenzkur leiðarvísir fyrir
HUSQVARNA 2000 ...... ...
er tilbuinn og fylgir nu
með véiunum.
Þeir sem eiga Husqvarna
gerð 2000 fá leiðarvísinn
póstsendann gegn því að
senda oss kr. 25.—
HUSQVARNA 200 er auðveld í meðförum,
traustbyggð, saumar fjölda mynstra. Sænsk fram-
leiðsla.
GUNNAR ÁSGEIRSSON HF.,
Suðurlandsbraut 16, sími 35200.
Lærlingur — Húsasmíði
Reglusamur piltur getur komist að sem nemi í húsa-
amíði. Tilboð sendist Mbl. merkt: „2127“.
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu 80 ferm. og 180 ferm. skrifstofuhúsnæði
að Laugavegi 18 A. Upplýsingar í Ingólfshvol hf.,
Laugavegi 18 A 5. hæð.
Tilboð
Tilboð óskast í eignina íshús Reykdals Garðahreppi,
rúmgóð eignalóð fylgir. Réttur áskilinn til að taka
hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Nánari upp-
lýsingar gefur Hans Christiansen, Ásbergi, Garða-
hreppi, sími 51751.
Til sölu
Sumarhústaðalönd
í næsta nágrenni við Reykjavík höfum við til sölu
120 hektara land. Land þetta er ettirsótt sem sum-
arbústaðaland. Landið selst allt til eins aðila eða
félagasamtaka. Upplýsingr á skrifstofunni, ekki
i síma.
T *
Cl fur Þorgrímsson
hæstaréttarlögmaður, Austurstræti 14.
Iðnaðarhú'snæði
100—200 ferm. óskast í Reykjavik eða Kópavogi.
Innkeyrzla æskileg. Simi 41636 kl. 7—9 á kvöldin.
íbúð óskast
Ung barnlaus hjón óska eftir að taka á leigu eins
eða tveggja herbergja íbúð í Reykjavík eða ná-
grenni. — Upplýsingar í síma 19595.
2 til 3 herbergi
óskast til leigu. Eins árs fyrirframgreiðsla. Upplýs-
ingar í síma 17765 kl. 10—11 fynr hádegi.
Meðeigandi
Meðeigandi óskast að arðvænlegri framleiðslu. Við-
komandi þyrfti að hafa reynslu í viðskiptum og geta
lagt fram fjárframlag. Lysthafendur sendi nafn og
heimiHsfang til Morgunbl. merkt: „Plast — 2128“.
Beglnsomni pUtur
óskast til afgreiðslu. — Þarf að hafa bílpróf.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
KLEIN
Baldursgötu 14.
Hafið þér heyrt tíðindin? Ódýrasta utanlandsferð ársins
KALPMAIMNAHÖFN EDINBORG 10 dagar kr. 6,900,-
Við höfum leigt eina af millilandaflugv élum Flugfélags íslands til ferðarinnar.
Þér fáið beina flugferð með „Flugfélag sþjónustu“ um borð til Kaupmanna-
hafnar.
Góð hótel í ferðamannaverðflokki í miðborginni. Níu daga í hinni glaðværu Kaupmannahöfn.
Skroppið yfir til Svíþjóðar.
Sólarhringur í hinni fögru Edinborg á heimleiðinni. Búið á hotel Imperial í miðborgiimi.
Innifalið: Flugferðir, ferðir milli flugvalla og hotela. Gisting og morgunverður. Fararstjórn.
Berið þetta saman við verð og gæði annarra ferða og notið þetta einstaka tækifæri til
að komast í ódýrustu utanlandsferð ársins.
Þegar er búið að panta yfir helming af þeim 82 sætum sem hægt er að fylla í þcssa ferð.
Og athugið einnig: SUNNUFERÐIR standa eins og stafur á bók. Engar verðbrey tingar og aug-
lýst ferð er alltaf farin. Þessvegna velur fólkið SUNNUFERÐIR.
SUIMIMA
Bankastræti 7
Simi 16400.