Morgunblaðið - 31.08.1965, Side 21
Þriðjudagur 31. ágúst 1965
MOkGUHBLAÐID
21
Sigmundur Þ. Páltna-
son — Kveðja
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
KVEÐJA
frá börnum, tengdabörnum
og barnabörnum.
Hniginn ert þú hetjumaki,
hefur lokið för.
Feginn lífs þíns fari lentir
fjörs í lokavör.
Eftir þrautir aevidaga
er nú hvíldin veitt.
Lokastríðið, allt til enda,
æðrulaust var þreytt.
>ú á styrjar tímum tefldir
tafl um líf og hel.
Sjómenn vorir löngum léku
leik þann djarft og vel.
Millum landa höldar héldu
hlöðnum skipum á.
Margir okkar gildu garpar
gistu Ægi þá.
Margar voru hafs um hylji
hættur styrjaldar.
Ofansjávar, og í kafi,
æddu vígdrekar.
Margar háskaferðir fór þitt
far, um regin haf.
Eitt sinn það, með skæðu skeyti,
skotið var í kaf.
Ellefu sólarhringa hrakning
hlutu drengir þá.
I>að er ljóst að þesskyns ferðir
þolið reyna á.
Vel sé þeim er þungar leysa
þrautir lífs í ferð.
Ættarjörðu afrek þeirra
eru mikilsverð.
Ekta hreina oss þú sýndir
ást og vinarþel.
Og þú vildir ætíð láta
okkur líða vel.
Frá oss hlýjar hjartans þakkir
haf þú alla stund.
Blessun gefi og veginn vísi
voldug herrans mund.
D. B.
H afnarfjörður
Blaðburðarfólk óskast til að dreifa
MORGUNBLAÐINU
til kaupenda í Hafnarfirði.
Afgreiðslan í Arnarhrauni 14. Sími 50374.
Skrifstofumaður
Eitt af stærri fyrirtækjum landsins í sinni
grein vantar nú þegar eða sem fyrst tvo
duglega menn til að annast ýmis skrif-
stofustörf svo sem sölumennsku, verðút-
reikninga ásamt fleiru. Umsóknir er
greini menntun, aldur og fyrri störf leggist
á afgr. Mbl. merkt: „Framtíðaratvinna —
2590“.
ARGERD1966
VOLKSWAGEIM er nu með
50 hestafla vél
og hentar það sérstaklega vel hinum hæðóttu ís-
lenzku vegum. Vélin er loftkæld. Það sýður ekki á
Volkswagen á bröttum eða erfiðum fjallvegum. —
STAÐSETNING VÉLARINNAR ER AFTURÍ. — Þa8
Wellaform hárkrem heldur hárinu þétt og vel, og gef-
ur því ferskan og mjúkan blæ.
Ákjósanlegt fyrir hverskyns hárlagningu. Engin feiti.
Klístrar ekki. Mjög drjúgt. Wella fyrir alla fjölskylduna.
wellaform
HALLDÓR JÓNSSON H.F. HoiicWW
Hiíniritrati 18-Símar 23995 og 12586
er mikilvægt atriði því þá fellur þungi hennar á
drifhjólin. Með því fæst betri spyrna og auðveldari
akstur í lausamöl, brattlendi, aurbleytu og snjó.
En það er ekki eingöngu því að þakka að V. W. véiin
er staðsett afturí, að við fáum svo góða aksturseig-
inleika við erfiðustu skilyrði. V. W. þarf ekki drif-
skaft eða annan útbúnað til orkuflutnings frá vél,
sem væri staðsett frammí. Né heldur löng og leiðin-
leg útblástursrör.
Á Volkswagen er heil botnplata, sem ver bílinn grjót-
kasti, snjó, sandi og vatni.
HEILDVERZLÖfl HEKLA HF. .
Afgreiðslustúlkur óskast
Talið við verzlunarstjórann í Hafnarstræti 18. Sími 10130.
Pappírs- og ritfangaverzlun
Hafnarstræti 18 — Laugavegi 84 — Laugavegi 176.