Morgunblaðið - 31.08.1965, Side 30

Morgunblaðið - 31.08.1965, Side 30
90 MORGUNBLADID I>riðjudagur 31. ágúst 1963 . + ...... ~'l...iW,w.,...,rv' ............................................. . .......... r | Ungverjarnir heiltuðu með leik unnu 4-1 Keflvíkingar komu á óvart og áttu mörg færi KEFL.VÍKINGAR mega sannarlega vel við una hvað frammistöðu Islandsmeistara þeirra snertir í viðureigninni við ungverska meist- araliðið Ferencvaros í fyrri leik liðanna í keppninni um Evrópu- bikarinn. Keflvíkingar reyndu allan tímann að veita Ungverjunum alla þá mótspyrnu sem þeir gátu og þeir gerðu aldrei — að undan- skildum leikkafla í upphafi síðasta hálfleiks — þá skyssu að leggj- ast allir í vörn. Keflvíkingar voru alls ófeimnir við „snillingana" og gerðu marg- ar heiðarlegar sóknartilraunir — komust oft í góð færi og skor- uðu um síðir eitt mark. Því var vel fagnað að vonum og verð- leikum. Viðureigninni lauk með sio"-: Ungverjanna, 4 :1. Reginmunur var á liðunum hvað knatttækni og alla knattspyrnulist snerti. — Enginn hinna nær 7000 áhorfenda fór vonsvikinn heim. Ungverj- arnir sýndu áhorfendum sanna list í knattmeðferð og tækni, og Kefl- víkingar sýndu þann baráttuhug sem hreif áhorfendur. Skemmtileg augnablik Ungverjarnir gerðust þegar nærgöngulir við mark Keflavík- ur og á 4. mín. skall hurð nærri hælum er skot Albert miðherja small í stönginni. En baráttuhugur Keflvíkinga var mikill frá upphafi og þeir voru ekkert feimnir við að gera sóknartilraunir gegn Ungverj- j unum. Það varð að vísu aldrei' þungi í sókn Keflvíkinga en ein- staklingsframtak eða samvinna tveggja sást oft og oft komust þeir í hættuleg færi. Á 8. mín. óð Jón Jóhnansson miðherji fram og komst innfyrir | vörnina og átti markvörðinn ein an eftir. Honum tókst að skjóta fram hjá honum — en hitti stöng. Litlu síðar var Karl í hajög góðu færi, en mistókst herfilega — skaut lausu skoti langt utan við. í vörninni stóðu Keflvíkingar sig vel — ekki sízt Kjartan mark vörður, sem varði oft mjög vel erfið og snögg skot Ungverjanna. Þessi frammistaða Keflvíkinga kom þægilega á óvart þó sú staðreynd væri augljós að ung- verska iiðið var miklu betra. Það var augnayndi að horfa á knattmeðferð liðsmanna, send- ingar, samvinnu liðsmanna og samvirkni liðsins í heild. Það var eins og þeir hefðu ekkert fyrir þessu — leikur þeirra var list og listin var þeim eðlileg. Þeir áttu mörg tækifæri til marka, en Kjartan stóð sig vel og þegar hann ekki náði að verja var heppnin með í spilinu, báðir bakverðir Keflavíkur björguðu á marklínu og 5 sinn- um í leiknum höfnuðu hörkuskot Ungverja í markstöngunum. Mörkin Á 27. mín. kom fyrsta markið. UNG-VERJ ARNIR tóiku úr slitunium í leikniuim gögn Keflarvílk beldur létt. Þeir voru á þeirri skoðun að leikur þeirra iheifði verið heidiur slakiur. Dofca, einn af fararstjórum liðsins sagði að liðið myndi ekiki leika svona, ef mótsitaða vseri meiri. Sókmanmenin ihef ðu gengið aiUit of lamgt fraim í því 1 að spila alveg upp í mark í í stað þess að Skjóta úr góðum feeruim, þó lenigra hefði verið frá marfcinu . En Doka sagði enrufremur, að leiikurinn hefði að sínum dómi verið skemmitilegur á að horfa iþó ungverska liðið hefði ekki leifcið a£ beztu getu. Hann fór lofsiaimilegum orð- um um Ketflvíkinga, sem hetfðu sýnt ágæit tiiþrif á ketfliuim. Dómarinn í leiknum var ánægður með leikinn og sagði að frammistaða og mögiuleik- ar Ketflvílkinga hefðu komið sér á óvart. Leikurinin hefði verið mjög prúðmanniiegur og auðveldur að dærna hann. Línuverðimir tófcu í sama rtreng og fóru mifclum viður- kemningar- ag aðdáunarorð- um um tæfcni Ungiverjanna. Hér sækja Ungverjarnir fast, sem oft í leiknum. Kjartan markvörður er á hnjánum t. hægri, en Sigurvin bjargar í horn hinumegin. Myndir: Sveinn Þormóðsson. Fenyvesi v. úth. lék upp og gaf hátt og vel fyrir. Kjartan hugð- ist grípa inn i leikinn en mis- reiknaði sig og náði ekki til knattarins. Nemeth innherji fékk knöttinn fyrir opnu marki og renndi í netið Á 37. mín. kom annað markið. Karaba h. útherji fékk knöttinn rétt utan vítateigshorns. Hann skaut þrumuskoti milli margra varnarmanna og í netinu lá knötturinn án þess Kjartan fengi rönd við reist. Ekki var mínúta liðin áður en þriðja markið kom. Varga h. innh. stóð á vítateig fyrir miðju marki og úr kyrrstöðu skaut hann þrumuskoti svo varla varð eygt fyrr en í netinu lá. Á 12. mín. síð. hálfleiks skor- aði Albert eitt af sínum frægu mörkum. Upphlaup hans byrja við miðjuna og svo er spunnið í gegnum vörn með aðstoð ann- ars. Það var Varga sem nú að- stoðaði og Albert skoraði af stuttu færi. Mark Keflavíkur var skorað á 22 mín. síð. hálfleiks. Karl sótti upp og lenti í návígi við Novak bakvörð. Novak náði knettinum en með slíkum naumindum að hann fékk aðéins ýtt honum til Rúnars, sem lék inn í teiginn og skoraði með laglegu jarðarskoti. Keflvikingar áttu tvö beztu tækifæri leiksins það sem eftir var og var það Jón Jóhannsson í bæði skiptin. Vann Jón einvígi við Matrai bakvörð — en hættu- legt skot hans lenti í stöng. Rétt fyrir leiklok var Jón enn í hörkubaráttu við Matrai og markvörðinn — en fyrir frábæra samvinnu þeirra tókst Matrai að bjarga fallega. Liðin Samanburður á liðunum kemur alls ekki til greina þó bæði eigi lof skilið fyrir leik sinn. Ungverjarnir virtust aldrei taka á — það var fremur eins og þær væru á æfingu. En þeir veittu áhorfendum góða skemmtun og sýndu þeim undra heim knattspyrnulistar. Um hver beztur er er erfitt að segja en leikur Varga og Fenyvesar gleym ist seint svo og knatttækni Al- berts. Samvirkni liðsins í heild, og leikuppbygging var og öðru vísi og skemmtilegri en önnur lið hafa hér sýnt. Keflvíkingar eiga hrós skilið fyrir leik sinn, þétta vörn sem lagði aðaláherzlu á að trufla — en reyndi þó er færi gafst að byggja upp og einnig fyrir ótrauðan sóknarleik er færi gafst og eiga Jón og Rúnar þar mest lof skilið. — A. St Akurnesingar unnu Akur- evringa og hafa forystu Aðeins þeir og KR-ingar geta sigrað AKURNESINGAR sigruðu Akeyringa 2—0 í keppni um ís- Þau voru opin nokkur færi Keflvíkinga. Hér er Jón urinn skoppar framhjá auðu markinu. Jóhannsson (nr. 9) aðeins of seinn knött- landsmeistaratitilinn á laugar- daginn og með þeim sigri hafa þeir tekið forystuna í 1. deild. Koma nú aðeins tvö félög til greina sem sigurvegarar í mót- inu, Akranes og KR. Bæði eiga liðin eftir að leika við íslands- meistara Keflavíkur, sem nú hafa misst allar sigurvonir — en undirbúa þess í stað för til Búdapest til síðari leiksins við Ferencvaros. Akumesingar hafa stigi meira en KR, en leikir lið- anna við Keflavíkinga, ráða úr- slitum mótsins. Vonzkuveður. Það var vonzkuveður á Akra- n-esi á laugardaginn er Akureyr- ingar heimsóttu Sfcagamenn. Spillti það mjög fyrir knatt- spymu í leiknum, Ak-urnesingar •vorú sterkari einkum er á leið leikinn og sigur þeirra þótti verðskuldaður. Mörkin skomðu Skúii Hákon- arson upp úr vítaspyrnu, er hann framkvæmdi. Einar Helga- son varði, en hélt efcfci knettin- um og Skúli fékk annað tæki- færi. Síðara markið skoraði Bjöm Lárusson. ★ Staðan í 1. dei'ld er nú þannig — og hafa þrjú félög Akureyri, Valur og Fram iokið leikjuim Akranes 9 6 1 2 23-14 13 KR 9 5 2 2 20-12 12 Akureyri 10 5 1 4 14-19 11 Keflavík 8 3 2 3 13-11 8 Valur 10 3 1 6 19-24 7 Fram 10 2 1 7 10-19 5 Fraimmistaða Akurnesinga er mjög athyiglisverð. Liðið fór verst allra af stað náði aðeina 1 stigi úr 3 fyrstu leikjum sín- um í miótinu, en hefur síðan unnið 6 leiki í röð. Hvort óslitin sigurg^nga helzit áfram í 7. leikn um ræður því hvort Akumesing- ar fá í fyrsta sinn í hendur „nýjia“ íslandsmeistarabikarinn. Heimsmet NÝTT heimsmet var sett í gær í 3000 m hlaupi. „Undramaður- inn“ Kipchonge Keino frá Kenyu hljóp á 7:39.2 mín á móti í Hels- ingborg. Tími Keinos er 6.5 sek. betri en rúmlega mánaðargamalt heimsmet A-Þjóðverjans Sieg- fried Hermanns 7:46.0.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.