Morgunblaðið - 02.11.1965, Síða 1
32 sícliip
Leynifunidur
pélskra eg
réssiieskra
ráðamaima
Moskvu, 1. nóv. — NTB.
♦ Háttsettir fulltrúar ríkis-
stjórna Sovétríkjanna og /
Póllands, og kommúnistaflokk J
anna í þeim löndum, áttu með
sér leynilegar viðraeður sl.
töstudag og laugardag, að þvl
er Tass-fréttastofan hefur
WPÍýst. Ekki fylgir fregn-
inni, hvar fundurinn hafi ver-
ið haldinn ,aðeins sagt, að
það hafi verið einhvers staö-
ar i Hvíta-Rússlandi. Frétta-
menn i Moskvu líta svo á, að
viðræður þessar hafi verið lið-
ur í víðtækum viðræðum sov-
ézkra ráðamanna við leiðtoga
A-Evrópuríkjanna, sem staðið
hafi yfir frá því í byrjun
september sl.
Samkvæmt fregn Tass tóku
m.a. þátt í viðræðunum þeir
Leonid Breshnev, aðalritari
sovézka kommúnistaflokksins,
Kyriil Mazurov,fyrsti varafor-
sætisráðherra Sovétríkjanna,
Wladyslav Gomulka, aðalrit-
ari pólska kommúnistaflokks-
ins, og forsætisráðherra Pól-
lands, Josef Cyrankiewic. —
Sagði Tass, að þeir hefðu
skipzt á skoðunum um helztu
vandamál á sviði alþjóðastjórn
mála, m.a. núverandi ástand í
Evrópu og Asíu. Segir, að
slikar viðræður sé mjög til
þess fallnar að efla vináttu
„bræðraflokkanna og bræðra-
þjóðanna", og efii jafnframt
I eininguna innan hins komm-
I úníska heims.
Kaupmananahöfn I. nóv
NTB.
• Menningarmá 1 anefnd Norð-
urlandaráðs kemur i dag sam-
an til tveggja daga fundar í
Heisingör.
Bogota, 1. nóv. NTB.
® Um það bil hundrað manns
munu hafa látið lífið í eids-
voða miklum, er yarð í smá-
ibæ einum á strönd Colorr)biu.
Eidsvoðinn mun hafa orsakazt
ei sprengingu en um nánari
jnálsatvik er enn ekki kunn-
ugt. 1 Bogota er haft eftir öp-
iriberum aðilum, að e.t.v. hafi
emn fleiri farizt.
Frá forsætisráðherrafundi Norðurlanda í Imatra, A-Finnlandi. Frá vinstri: Tage Erlander, Svíþjóð; Johannes Virolainen, Finn-
land; Per Borten, Noregi og Bja rni Benediktsson, íslandi. — Á myndina vantar forsætisráðherr a Dana, Jcns Otto Krag. — AP.
Fundi Asíu- og Afrikuríkja í Algeirs-
borg nd aflýst
— deila SovétríkjiHiii.i og
Mma meginorsök þess, að
takki er talið fært að balda
fiiiidiiin
Algeirsborg, 1. nóv.
— AP — NTB —
HAFT er eftir áreiðanlegum
heimildum í Algeirsborg í
dag, að ekki verði af fyrirhug
, aðri ráðstefnu Asíu- og Afr-
íkuríkja. — Upphaflega var
gert ráð fyrir, að ráðstefnan
hæfist 5. þ.m.
Mun verða gefin út tilkynn-
ing, þessa efnis, er utanríkís-
ráðherrar þeirra landa, sem
síaðið hafa að undirbúningi
ráðstefnunnar, koma sér sam-
an um orðalag hennar.
Haft er eftir sömu heimild-
um, að í tilkynningu utan-
ríkísráðherranna muni verða
greint frá því, að meirihluti
þeirrá sé því fylgjandi, að
Sovétríkin fái að taka þátt í
ráðstefnu Asíu- og Afríku-
ríkja, sem síðar sé ætlunin að
efna til.
Eins og fvrr greinir, þá var
það ætlunin, að ráðstefnan
hæfist í Algeirsborg 5. nóvem'
ber. Það var hins vegar í gær-
kvöld, sunnudagskvöld, að frá
því var fallið.
Blöð í Nýju-Délhi, Ind-
landi, segja í dag — þótt til-
kynning utanríkisráðherr-
anna hafi enn ekki verið birt
— að ákvörðun þeirra verði
að teljast mikil vonbrigði. —
„Times of India“ segir, að það
verði að teljast einstætt, að
fulltrúar 46 landa skuli hafa
komið til Alsír, aðeins til þess
Framhald á bls. 31.
Skarðsbók boðin
upp í London
Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins, Kaupmanna-
höfn 1. nóvember -—
Rytgaard.
Kaupmannahafnarblaðið
„Politiken“ skýrir frá því í
dag, að Skarðsbók, „Codex
Seardensis“, sem verið hefur
í eigu brezka safnarans Sir
Thomas Philipps, muni verða
boðin upp hjá Sothebys í
London, í lok nóvember. Önn-
ur rit úr safni Sir Thomas
verða einnig boðin upp.
Skarðsbók var send til Kaup-
mannahafnar 1959, er útgáfufyr-
irtækið „Rosenkilde og Bagger“
gaf ritið út ljósprentað. Til
þess, að það fengist lónað ,varð
forlagið að setja d. kr. 200.000.—
í tryggingu (rúml. 1.2 millj. ísl.
króna).
Talsmaður Sothebys, sem rætt
hefur við fréttaritara „Politik-
en“, segir, að ekki sé gert ráð
fyrir, að Skarðsbók seljist fyrir
minna en svarar til þeirrar upp-
hæðar, sem þá var sett í trygg-
ingu.
Gert er róð fyrir, að mörg
söfn og einkaaðilar bjóði í ritið.
Hefur fregnazt, að bandarískir
aðilar muni verða viðstaddir upp
boðið.
Stefnur kínverskra og
rússneskra kommúnista
eiga ekkert sameiginlegt
— segir Dagblað alþýðunnar
Peking, 1. nóv. — NTB
Ó Dagblað alþýðunnar í
Peking birti á sunnudag
harðorða gagnrýni á leið-
toga Sovétríkjanna, sakaði
þá m.a. um að halda uppi
samvinnu við stjórn Banda
ríkjanna á öllum hugsan-
legum sviðum, með það fyr
ir augum að innleiða borg-
aralegan hugsunarhátt og
úrkynjun yfir sovézku þjóð
ina. Einnig segir blaðið, að
óhugsandi sé að jafna á-
greining sovézkra og kín-
verskra kommúnista, því
að stefnur þeirra eigi ekk-
ert sameiginlegt.
Gagnrýnin á Rússa tekur
yfir hálfa aðra síðu í blaðinu.
Þar segir m.a., að Rússar og
Bandaríkjamenn hafi gert
með sér leynisamning um
stefnuna í Vietnam, og fram-
tíð landsins. Samkvæmt hon-
um veiti sovézkir ráðamenn
bandarískum „árásarseggjum“
lið. Þá er farið hörðum orðum
um tillögur Rússa um að
hindra frekari dreifingu kjarn
orkuvopna, og sagt m.a., að
stjórnir Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna miði að því að
afvopna þjóðir ýmissa landa
til þess að þær geti síðan ótt
auðveldan leik, og knúið
þjóðirnar til undirgefni við
sig.
„Arftakar Nikita Krúsjeffs
eru ennþá slægari og djöful-
legri en hann“, segir blaðið,
og bætir því við, að þá fyrst
verði hægt að jafna ágreining
sovézkra og kínverskra komm
únista, þegar hinn sovézki
kommúnismi verði kveðinn í
kútinn, bæði stjórnmálalega
og hugsjónalega. Málamiðlun
eða samkomulag komi ekki til
greina, því að þessar tvær
stefnur eigi alls ekkert sam-
eiginlegt.