Morgunblaðið - 02.11.1965, Blaðsíða 30
30
mm **.***•******* m r*. * *v
m <0 K W W i'« íí L M VJ I 0
Þriðjudagur 2. nóvenibcr 19‘.
.......................................................................... --------------■,■■- inm,.,- "-iTr----rininiii.nir--ui..-|-r-»i--ii)Hirnnni.iij'.."it--ri «
Valur vann Akurnesinga - og bikarinn
Leikið á gBerhálum veBli þar
$>em Valur sýndi yfirburði
VALUR vann verðskuldaðan sigur í úrslitaleiknum við
Akranes á sunnudaginn í Bikarkeppni KSÍ. Úrslitin urðu
5 mörk gegn 3 eftir heldur sögulegan leik, því er liðin mættu
til leiks var völlurinn hrímfrosin snnjóbreiða, ef undan eru
taldar merkingalínur vallarins, en þar „hafði tekizt“ að eyða
hríminu. Hvort slíkt hafi verið reynt á öðrum svæðum vall-
arins skal ósagt látið, en vöilurinn bar engin merki slíkra
tilrauna. —
Ekki var annað að sjá en
þessar aðstæður á úrslitaleikn
um hefðu áhrif til hins verra
á getu leikmanna — og þó
sýnu meir á Akranesiiðið en
Valsiiðið. Féilu margir Akur-
nesingar við hverja spyrnu
sína, en Valsmönnum tókst
mun betur. Hraði leiksins var
næstum enginn í upphafi með-
an menn voru að venjast að-
stæðunum að einhverju leyti
eða átta sig.
t LÉLEG SKILYRÐI
I>að er reyndar hneysa að
láta úrslitaleik bikarkeppni fara
fram við slíkar aðstæður. Liðin
eru búin að verja öllum frístund-
um mánuðum saman til æfinga —
liðsmenn að reyna að auká þrek
sitt, auka hæfni sína, sýna betri
knattspyrnu. Akranesliðið er bú-
ið að mæta í harðvítugum úr-
slitaleik við KR og tvítekinni or-
ustu við Keflavík 1 bikarkeppn-
inni og standa sig með sóma.
Og svo komu úrslit Bikar-
keppninnar við þær aðstæður
sem sýnilega hæfðu Akurnesing-
Framhald á bls. 23
Landsliðssmiðirnir sem vinna næstum nótt með degi.
Landsli&ssmiiirnir & Co. Ijúka 4
vikna verki á 8 dögum
ÞAÐ VAR handagangur í öskj-
unni er við litum í íþróttahöllina
í Laugardal í gærdag. Handknatt
ieiksmennirnir sem þar eru að
leggja undirlag gólfsins gáfu sér
varla tíma til að líta upp og
ræða við okkur. Uppi á áhorf-
endabekkjum kváðu við eitt og
eitt hamarshögg, svona til að
undirstrika að þar væri líka ver-
ið að vinna.
Landsliðsmennirnir í hand-
knattleik tóku að sér að leggja
undirlag salargólfsins — stærsta
gólfs á íslandi. Síðan koma dansk
ir sérfræðingar og leggja það
parketviði. í handknattleikslands
ii'ðinu eru margir smiðir svo og
Á svilli kepptu Valur og Akranes. Hér skora Valsmenn sitt fimmta mark. Eins og sjá má er
brætt hrímið af öllum strikalínum. Var ekki hægt að bræða meira? — (Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.).
í röðum annarra handknattleiks-
manna. Landsliðið hefur foryst-
una og ábyrgð verksins. Hinir
vinna með þeim fyrir ákveðið
tímakaup.
Smiðir landsliðsins tóku að
sér gólflagninguna í ákvæðis-
vinnu fyrir upphæð, sem er tug-
um ef ekki hundruð þúsund kr.
lægri en lægsta tilboð var. Þar
að auki skila þeir verkinu á mun
styttri tíma en aðrir treystu sér
til. Þetta stafar af því að þeir
vinna verkið utan vinnutíma að
nokkru Jeyti, þó 6 manna hópur
vinni næstum dag og nótt.
Gert var ráð fyrir að lagning
grindar undir gólfið ásamt ein-
angrun tæki 3—4 vikur. Nú er
útséð að verkinu verður lokið
um helgina. Á laugardag unnu
35 manns að verkinu á sunnudag
inn 29. Og öll kvöld þessarar
viku verður svipaður h&pur við
vinnu og einnig um næstu helgi.
Þeir sex er vinna alla daga eru
Karl Benediktsson þjálfari lands
liðsins og kalla þeir hann „þrælk
arann“ því hann ýtir mjög á
eftir að sögn. Hinir eru Gunnlaug
ur Hjálmarsson, Karl Jóhanns-
son, Birgir Björnsson, Þórarinn L
Þórarinsson og að auki trésmiður
sem ekki er handknattleiksmað-
ur.
Það fuku mörg hnyttiyrði af
vörum þeirra í gær er við sann
reyndum að þriðjungi verksins
er lokið. Það var uppörvandi að
heimsækja þá félaga, því meðal
þeirra ríkti bjartsýni, baráttu-
vilji til að ná settu marki. Þeir
vilja að húsið verði teki'ð í notk
un fyrst í desemeber. Þeir gera
sannarlega sitt til að svo megi
verða. En margt er ógert og fé
mun af skornum skammti. En
það er þýðingarmikið áð nú verði
gert stórt átak til að húsið verði
nothæft. Handknattleiksstrákarn
ir hafa riðið á váðið með þvi
að leggja nótt með degi. Vonandi
verður framtak þeirra til þess
að þeir sjái draum sinn úin glæsi
lega íþróttahöll í byrjun desem-
ber rætast.
Sþróttir
eru einnig
á blaðsíðu 14
Reyk javíkurmótið:
Fram, Valur og
KR unnu
KR, VALUR og Fram unnu
sína leiki í meistarafl. karia í
Reykjavíkurmótinu í handknatt-
leik á sunnudaginn. Þessi lið
eru taplaus og Fram og KR hafa
forystu í mótinu með 4 stig, en
Vaiur og Víkingur hafa 2, en
þau sátu hjá sl. helgi. Virðist
einsýnt að baráttan um titilinn
standi milli KR, Vals og Fram
og ber þó Framliðið af í þeim
hópi. Ármann, Víkingur, ÍR og
Þróttur mynda lakari heildina ef
dæma má af tveim fyrstu leik-
kvöldunum og ætla má að barátt
an verði öllu harðari og óvissari
á botninum en á toppinum.
KR — Ármann 16:8.
KR-ingar náðu strax tökum á
leiknum og héldu þeim til loka.
KR komst í 4:1 og sigurinn var
aldrei i hættu. Bæði Jiðin léku
heldur óskipulega leik og tilvilj-
anakenndan. Langt frá því að
festa væri í leiknum hjá báðum
liðum. Ármenningar voru í byrj
un mjög ónákvæmir í skotum og
réði það sennilega miklu um
gang leiksins. KR-ingar léku af
meira öryggi og meiri bíræfni
eftir áð þeim óx forskot í leikn-
um. En góður getur leikurinn
ekki talizt. KR-ingar voru all
aðgangsharðir. Fengu þrír áminn
ingu dómara og einum var vísað
af leikvelli í 2 mínútur. Beztu
menn KR voru Karl og Sig. Ósk-
arsson. Hjá Ármann var Lúðvík
drýgstur.
Valur — ÍR 16:7.
Mörgum lék forvitni á að sjá
nýliða Vals í 1. deild í fyrsta leik
þeirra og það í baráttu við ÍR,
Framh. á bls. 23.
„Handfylli af handritum
fyrir Sigríði Sigurðard."
IJmmæli dansks blaðs um
SÍÐARI LEIKUR Dana og ís-
lendinga í handknattleik
kvenna varð harðari en dæmi
eru til um landsleiki. Danir
vilj'a kenna íslendingum um
hörkuna og slagsmálin, en ís-
lendingar er til sáu telja að
slíkt sé víðs fjarri. Aðilar eru
sammála um að dómarinn hafi
átt mesta sök á hvernig fór.
Þrjár íslenzkar sútlkur urðu
að yfirgefa völlinn og em
dönsk. Sigrún Guðmundsdótt
ir fékk versta höggið. Hún
náði ekki andanum lengi og
var borin út á börum en jafn
áði sig. Vigdís Pálsdóttir hlaut
verstu meiðslin. Er hún meidd
á hné, sennilega vatn eða blóð
milli liða og hugsanlegt að að-
gerð þurfi til lækningar. Þá
meiddist Sylvía Hallsteinsdótt
ir, en ekki illa og varð með
síðar í leiknum.
Fréttaritari Mbl. á leiknum
Poul Andersen íþróttaritstjóri
Berlingske Tidende segir að
mesti munurinn á liðunum
komi fram í meira úthaldi
danska liðsins og meiri leik-
reynslu. Hann segir að ein í
danska liðinu Nilson, hafi leik
ið 60 landsleiki, Anne Marie
Nilsen hafi nú leikið 40. lands
leik sinn og markvörðurinn
Helga Hansen hafi nú leikið
sinn 25. landsleik. Allt liðið
eigi sameiginlega að baki 135
landsleiki. Þetta er margföld
tala á við íslenzka liðið.
Dönsku blöðin sum fara lof
samlegum orðum um íslenzka
ísl. landsliðið
liðið. Sterkast er að orði kveð-
ið 1 Politiken. Þar segir:
„ . . . íslenzka liðið á þar
sem Sigríður Sigurðardóttir
er langskyttu sem Danir
myndu vilja greiða handfylli
af íslenzkum handritum til að
hafa í sínu landsliði".
í sama blaði segir og: „Mjög
góð var einnig Rut Gúðmunds
dóttir markvörður og einnig
Sigrún Guðmundsdóttir. Linu
spil sást varla hjá íslenzka
liðinu en getan var langt um-
fram það sem maður bjóst við
og það er enginn vafi á, að
áður en langt um líður — jafn
vel innan fárra ára — er ís-
lenzka kvennalandsliðið í röð
lun beztu liða Evrópu“.