Morgunblaðið - 02.11.1965, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 2. nóvember 196J
Þeir yngri kunna leikfléttur
til jafns viö þá eldri
Afhyglisverðoir leikur unga
fólksins í handknatfleik
Á LAUGABX)AGSKVÖLDIÐ
voru háðir sjö leikir hjá yngra
fólkinu á Reykjavíkurmótinu í
handknattleik. Flestir leikja
Iþessara voru skemmtilegir á að
horfa og tilburðir þeirra yngri
sízt lakari en hjá þeim sem eldri
eru og reyndari.
an var þá 4:3 fyrir Val. Fram-
stúlkurnar eru með boltann, þær
ssekja ákaft og Valsstúlkúrnar
verjast, brotið er á sóknar-
stúlku Fram og dómarinn dæmdi
vítakast (nokkuð strangur dóm-
ur). Mikill spenningur var nú
hvort markverði Vals tækist að
forskotið og náðu að jafna 3:3
fyrir hálfleik. Seinni hálfleikur
var jafn spennandi, KR-ingar
skoruðu 4:3 og 5:3, áður en ÍR
tókst nokkuð að svara fyrir sig.
f lokin tók heldur að halla á KR
og ÍR-ingar náðu að rétta hlut
sinn og endaði þessi skemmtilegi
leikur með jafntefli 6:6.
ÍR-liðið er mjög skemmtilegt
lið, eru farnir að nota töluvert:
mikið áf allskonar leikfléttum.
ÍR-ingar mega vera stoltir af
þessum flokk, því hér er efnileg-
Halldór markvörður Fram í 2. fl. karla.
it KR — Víkingur 3—1
Keppniskvöldið hófst \ með
leik í II. flokki kvenna milli KR
og Víkings. Leikurinn byrjaði
rólega, stúlkurnar virtust ofur-
lítið taugaóstyrkar, grip og köst
hefðu mátt vera betri. KR-stúlk-
urnar skoruðu fyrsta og eina
mark fyrri hálfleiks. Seinni hálf-
leikur var heldur betur leikinn
af báðum liðum, þó voru KR-
stúlkurnar betri aðilinn í leikn-
um og sigruðu réttlátt með 3—1.
Stúlkur -beggja liða virðast nokk-
uð jafnar að getu. Athygli vakti
markvörður KR fyrir góða mark-
vörzlu, virðist einnig hafa góð
áhrif á meðspilara sína með ró
sinni.
it Valur — Fram 4:4
Strax á eftir fór fram leikur
í sama aldursflokki kvenna og
áttust þar við Valur og Fram.
Framstúlkurnar virtust í byrjun
sigurstranglegri, bæði eru þær
■ stærri og spila meira eftir á-
kveðnum leikfléttum. Valsstúlk-
urnar spila aftuir frjálsar í sókn-
inni. Leikur þessi byrjaði nokk-
uð vel fyrir Val, þær skorðu
fyrsta mark leiksins. Framstúlk-
urnar sóttu stíft, en Valsstúlkun-
um tókst að hrista flestar þær
sóknaraðgerðir af sér. Fram
nær því að jafna, en strax þar á
eftir skorar Valur sitt annað
rnark, og var þá komið leikhlé.
Seinni hálfleikur hófst og
Valsstúlkurnar virtust ætla selja
sig nokkuð dýrt þetta kvöld, því
þær skora tvö mörk til viðbótar
án þess að Framstúlkunum tak-
ist að skora.
Þrjár mínútur voru til leiks-
loka og staðan orðin 4:1 fyrir Val.
í>á var eins og Framstúlkumar
áttuðu sig á hlutunum, og tóku
þær sig til og skora tvö á tveim
mínútum. Aðeins nokkrar sek-
úndur voru til leiksloka og stað-
Kappleikir unga fólksins
MORGUNBLAÐIÐ mun í vetur leitast við að auka
íþróttafréttir sínar þannig að þær nái ekki aðeins til
„stjarnanna“ í hverri grein, heldur og til hins stóra
hóps unglinga er þær stunda— og síðar eiga að taka
við af hinum eldri. Hér er byrjað á handknattleik og
rætt um leiki sl. laugardag.
verja þetta vítakast. Fyrirliði
Fram stillti sér upp til að taka
þetta vítakast og kastar strax á
mark og skorar, en dómári hafði
ekki flautað til vítakastsins,
þannig að markvörður Vals var
ekki tilbúinn að missti þar af
leiðandi af boltanum í markið.
Öllum til hinnar mestu undrun-
ar dæmdi dómarinn mark.
Skemmtilegur leikur hjá báðum
liðum og margar skemmtilegar
handknattleiksstúlkur þar á
ferðinni.
Beztar voru frá Val: Björg
Elín, en virðist þó full skot-
bráð, og nýliðinn Þóranna Páls-
dóttir. Hjá Fram var bezt hin
hávaxni fyrirliði.
* KR — IR í 3. fl. karla 6:6
Þriðji leikur kvöldsins var
milli KR og fR í III. flokki
karla. Leikur þessi var spenn-
andi allan tímann, þama áttust
við jöfn lið, en ÍR-ingar ívið
leiknari með boltann.
KR-ingar byrjuðu á því að
skora og komust strax upp í 3:1,
þá fóru ÍR-ihgamir að saxa á
ÍR-liðiö í 3. flokki karla var mjög skemmtiiegt, en jafntefli varð
við KR, 6-6.
Úr leik Vals og Fram í 3. flokki.
Framari skorar.
ur flokkur á ferðinni. Sérstaka
athygli vakti ungur drengur,
Ásgeir Elísson. Virðist hann
mjög leikinn með knöttirm.
Af KR-ingum sem em mjög
stórir bar mest á Magnúsi Sig-
urðssyni og Árna Indriðasyni,
stórir strákar og sterkir. Sá fyrr-
nefndi ætti þó að geta notað
stærð sína betur til skota á mark.
Fram — Valur 7:6.
Fjórði leikur kvöldsins var
leikur III. flokks karla Valur—
Fram. Jafn leikur frá upphafi.
Valur skorar fyrsta markið, var
þar að verki Stefán G., strax á
eftir jafna Framarar, þannig
gekk það fram að hálfleik. Stað-
an í hálfleik var 4:3 Val í vil.
í seinni hálfleik var mikil bar-
átta í báðum liðum. Fram sýndi
þó betri og yfirvegaðri leik en
Valur og unnu þennan hálf
leik 4:2, úrslit leiksins urðu því
7:6 fyrir Fram.
Bezti maður Framliðsins var
Rúnar Vilhjálmsson. Framliðið
er nokkuð jafnt, leikur skemmti-
legan sóknarleik, beitir skotum
jafnt fyrir utan sem af línu.
ValsliðiS er einnig skemmtilegt
lið en er þó of einhæft með skot,
línuspil lítið.
Bezti maður Vals var Stefán
Gunnarsson, stór strákur,. sem
erfití er að stöðva þegar hann er
kominn á ferð. Þá var Kristinn
Jóh. einnig góður hjá Val, gerir
þó of lítið af að skapa færi til
markskota.
* Fram — KR í 2. fl. karla 11-6
Fimmti leikur kvöldsins var
leikur í II. fl. karla milli Fram
og KR. Framliðið hafði mikla
yíirburði í leiknum á móti KR.
Leikurinn byrjaði þó ekki vel
fyrir Fram, fengu sér dæmt víta-
kast á KR sem misno|aðist. Á
næstu þrem mínútum skora
Framarar þrjú mörk. Á 7. mín.
leiksins fá Framararnir aftur
vítakast á KR, sem þeir misnota.
KR-ingarnir reyndu paikið til
að skora en ekkert gekk: Halldór
markvörður Fram varði hvert
skotið á fætur öðru frá þeim. Á
síðustu tveim min. fyrri hálf-
leiks bæta Framarar tveim mörk-
um við og staðan í hálfleik er
5:0 fyrir Fram.
Seinni hálfleikur var þó jafn-
ari, skiptust liðin þá á að skora
og var staðan orðin eftir að liðn-
ar voru 7 mínútur af seinni hálf-
leik 8:6 fyrir Fram. En Framar-
arnir létu ekki þar við sitja,
tryggðu sér sigurinn með því að
skora þrjú síðustu mörkin. Loka-
tölur leiksins urðu 11:6 fyrir
Fram. Framliðið var svo sem áð
ur er sagt betra liðið á vellinum,
spilaði vel meirihluta leiktímans,
beitti bæði langskotum og línu-
skotum. Beztu menn Fram voru
Sigurbergur og Halldór mark-
vörður, sem varði Frammarkið
meirihluta leiksins með stakri
prýði, greinilega mjög efnilegur
markvörður. KR-lðið var jafnara
en Framliðið, liðið var helzt til
of dauft í fyrri hálfleik, og réði
það úrslitum leiksins.
it Þróttur — Valur 6:4
Sjötti leikur kvöldsins var
leikur Vals og Þróttar í II. flokki
karla. Áður en leikur þessi hófst
var álitið að Valsmenn mundu
eiga þarna létta mótherja. Þrótt-
arar höfðu leikið helgina á und-
an við ÍR og sýndu þá slappan
leik. Valur lék þá við Fram og
sýndi prýðisgóðan leik. Þróttar-
liðið kom mjög á óvart í þessum
leik, þeir voru betri aðilinn á
vellinum, unnu réttlátan sigur
6:4.
Leikur Þróttara var rólegur
en þó ákveðinn og gaf mörk þar
sem vörn Valsmanna var frekar
slöpp. Valsmenn virtust hafa
reiknað með auðveldum sigri,
náðu sér aldrei á strik vegna
óvæntrar mótstöðu, skutu í tíma
og ótíma. Af hálfu Þróttar var
þetta mjög góður leikur og virð-
ist Þróttur eiga þarna unga og
efnilega pilta.
it ÍR — Víkingur 10:5
Sjöundi og síðasti leikur
kvöldsins var leikur n. flokka
karla á milli ÍR og Víkings.
Leikur þessi var skemmtilag-
ur þrátt fyrir yfirburði ÍR-ing-
ana. Víkingsliðið sem er skipað
sterkum einstaklingum náði
aldrei því út úr leik sínum sem
við var búist, mætti vel segja
mér að þarna væri á ferðinmi
efnilegt lið, sem þó aðeins vant-
ar að komast í æfingu. ÍR-ingarn-
ir eiga mjög skemmtilegan
flokk þar sem þessi flokkur er
ógnvekjandi hvaða liði í II. fL
sem er, beitir bæði skotum fyrir
utan og eins línuspili, frískir og
léttir strákar. í hálfleik var stað-
an 8:3 fyrir 1R.
Seinni hálfleikur var jafnari
og voru IR-ingar farnir að taka
það rólega undir lokin, enda ör-
uggir með sigurinn. Liðin skor-
uðu bæði í seinni hálfleik tvö
mörk. Lyktaði leiknum með ör-
uggum sigri ÍR 10:5. Vert er að
gefa gaum ungum strák í ÍR-lið-
inu Vilhjálmi Sigurgeirssyni,
hann hefur sérstaklega góða
boltameðferð, föst skot og ná-
kvæmar límusendingar. Ekki er
hægt að hrósa neinum sérstökum
í Víkingsliðinu til þess er allt lið-
ið of æfingalítið.
★
Þetta var skemmtilegt
keppniskvöld, margir efnilcg-
ir unglingar eru á ferðinni i
handknattleiknum. Þá komu
einnig fram nýir dómarar
þetta kvöld og voru þeir æði
misjafnir. Alla vantaði þá
meiri hreifanleik í leikvell-
inum. Enginn virtist vera með
þá festu sem dómarar þurfa
að hafa í störfum inni á vell-
inum.
t
Þórarinn Eyþórsson.