Morgunblaðið - 02.11.1965, Blaðsíða 28
28
MORGUNSLAÐIÐ
triðjudagur 2. nóvember 1965
Langt yfir skammt
eftir Laurenr.e Payne
— Þetta er skemmtilegur stað-
ur, sem þér hafið hérna, sagði
ég. Ekki vissi ég, hvort hugur
fylgdi neitt máli, enda sá ég
minnst af húsrýminu, því að í
fyrsta lagi var of dimmt til
þess, en mér fannst einhvernveg
inn viðeigandi að segja þetta.
En það virtist einmitt hafa ver-
ið heppilegt að segja það, því að
hann tók þegar að halda hróka-
ræður um klúbbinn, rétt eins
og hreykinn faðir um krakka.
Hann sagði mér, að hann hefði
verið í gangi í nokkur ár, að
gestirnir væri betra fólk ,og
hversvegna hann væri svo fá-
sóttur, en það var af því, hve
dýr hann var.
— Viljið þér segja mér eitt,
sagði ég, þegar hann þurfti einu
sinni að draga andann. — Hvers
vegna er svona dimmt á svona
stöðum. Ég var ekkert að gagn-
rýna þetta, heldur spurði ég af
forvitni. Ég er nú ekki mikill
klúbbmaður sjálfur og mér dug
ar Bílaklúbburinn alveg ... að
minnsta kosti er hægt að synda
þar, árið um kring. En svo er
klúbbur í Knightsbridge, þar
sem ég er heiðursfélagi og þar
er svo dimmt, að maður þarf
að kveikja á eldspýtu til að geta
lesið matseðilinn, og það finnst
mér ganga vitfirringu næst.
Neal sagði og yppti öxlum: —
Þetta er takmarkaður klúbbur
og þannig vill fólk hafa hann.
Ef það vill hafa björt ljós, get-
ur það farið í Savoy eða í Lyons
Corner House....
— Ég skil það, en heldur
finnst mér það óviðkunnanlegt.
Hann þykktist ekkert við
þetta, en setti upp umburðar-
lyndisbros.
— Ég ætla að gefa yður eitt
glas.
Mér varð snöggvast hugsað til
yfirmanns míns, en sleppti hon-j
um úr huganum aftur og sagð-
ist vilja þiggja viskí. Hann kall-
aði á þjóninn og sagði honum
til. Þarna virtust ekki aðrir en
Mguel vera einkennisbúnir, því
að allir þjónarnir voru bara í
svörtum buxum og hvítum
jökkum.
n---------------------------n
15
□---------------------------n
— Jæja, fulltrúi! Neal horfði
fast á mig, en fitlaði um leið við
röndina á lampahlífinni. Ég
sagði honum erindi mitt, og
hvað ég vildi fá að vita.
Hann þagði stundarkorn og
var hugsi, en sagði svo, dræmt:
Hún var einkennileg stúlka....
líklega þunglynd, fannst mér.
Ég þekkti hana raunverulega
ekki neitt, nema sem félaga í
klúbbnum, sem kom hingað all-
oft. Einhleypingarnir voru van-
ir að hnappast kring um hana,
eins og flugur kring um hunang
ef hún kom ein síns liðs — sem
ég held ekki að hafi verið mjög
oft. Þegar hún var uppá sitt
bezta, var hún mjög kát og ....
ef ég má segja það .... ástleitin.
En svo var hitt líka til, að hún
sæti ein út af fyrir sig og opn-
aði ekki munninn, og með ein-
hvern dómsdagssvip á andlitinu.
Hann þagnaði sem snöggvast. —
En það skrítna var, að svona
skap komst hún helzt í, ef hún
Ávallt fyrirliggjandi
,, í stærðunum:
30x30 cm og
20x20 cm.
T £ Hagstætt verð.
D A N S K A R
Vinyl gólfflísar.
Óvenjumikið slitþol.
Fjölbreytt litaval.
r r ^ 1
r LUDVIG STORR Á
L A
Sími 1-33-33.
Lt/sfeidtn
FOAM
Nýja efniS. sem komið er I
■tað fiðurs og dúns i sófapúða
og kodda. er Lystadun.
Lystadun er ódýrara, hrein-
legra og endingarbetra. og
þér þurfiS ekki fiðurhelt
lérefL
Eurlaður Lystadun er ókjós-
anlegasta efnið i púða og
kodda.
var með einunr sérstökum
manni.
— Vitið þér, hvað hann heit-
ir?
— Hann var nú ekki í klúbbn
um, en nafnið hans hlýtur að
vera í gestabókinni.
Ég veifaði myndinni af Al-
bert Hall framan í hann.. — Já,
þetta er hann! Það var skrítið,
að þér skylduð vita það. Hún
virtist ekkert kæra sig um hann.
Ég vorkenndi manngreyinu.
Hann virtist alltaf vera að
sækjast eftir henni, en hann
hefur kannski ekki gert það
nógu rækilega. En hitt var ein-
kennilegra, hve oft hún var
með honum og svo sýnast enga
ánægju hafa af samfélaginu við
hann.
Negrinn við hljóðfærið lauk
leik sínum með miklum sveifl-
um og hávaða, svo að glumdi
í. Hann sneri sér á stólnum,
þurrkaði af sér svitann, ljómaði
allur og þakkaði lófatakið, sem
glumdi við úr öllum áttum.
— Hann er nokkuð góður,
pilturinn sá arna, sagði ég, þeg-
ar mesta hrifningin var um garð
gengin.
— Já, er hann það ekki? Það
skyldi engan gruna, að hann
væri blindur.
— Blindur?
— Já, hann missti sjónina í
stríðinu, þegar hann var krakki.
Hann getur leikið hvað sem er,
allt frá rokki til Ave Maria.
Eg horfði forvitinn á negr-
ann, er hann seildist tii glass-
ins síns sem stóð á hljóðfærinu,
með öruggri hendi, og gekk að
borði skammt frá, rat/ís eins
og bréfdúfa.
— Það skyldi engum detla
í hug. Hver er hann?
— Hann kallar sig bara Laun
eelot. Það vill svo til, að honum
og Twist-stelpunni kom sériega
vel saman. Þau töluðu oft hvort
við annað.
I þessu bili kom þjónninn
með veitingarnar. Hann lagði
pappírsblokk á borðið fyrir
framan gestgjafa minn, og hann
skrifaði nafnið sitt á hana —
með bláum kúlupenna! Þeir
voru þá um allar jarðir og í
hvers manns höndum þessir
bláu pennar!
— Skál! sagði gestgjafi minn.
Ég tók nú vasabókina mína
og einn bláa pennann, sem ég
var með svo mikið af í vösun-
um. Ég lét bera á því þegar ég
smellti oddinum á honum
fram, beint fyrir framan nefið
á honum en hafi það haft nokk-
ur áhrif, voru kau að miansta
kosti ósýnileg, hann saup bara
ánægður á glasinu sínu, og þcss
varð ekki vart, að ég væri neitt
annað en venjulegur lögreglu-
maður með venjulegan kúlu-
penna.
— Höfðu einhverjir fleiri á-
huga á stúlkunni? sagði ég.
Hann kveikti í vindlingi, með
eldspýtu, sem þarna var í hylki
á borðinu en ég tók eftir því,
að hann bauð mér ekki um leið.
— Það var helzt ekki nema
einn annar að staðaldri; náungi,
sem kallaður var „Chuck“ Bark
er — bróðir eins stofnfélagans
okkar.
— Málarans, eða hvað?
— Þér þekkið hann?
— Við höfum hitzt.
— Hann málaði hásetann
hérna framan á húsið.
— Er það satt?
— Hann er góður málari.
— Kemur hann hér oft?
— Já, talsvert oft.
— En bróðir hans?
Hánn var að keppast við að
brjóta eldspýtur í smábúta, og
raða þeim eftir vissum reglum,
rétt -eins og hann væri að leika
einhvern leik.
— Chuck er hálfgerður flæk-
ingur. Hann var einu sinni til
sjós. Nú held ég, að hann eigi
sjálfur einhvern bát — lítinn
bát, en hann á hann sjálfur.
Þegar hann er í borginni lítur
hann Ker inn, og oftar en ekki
í samfylgd með ungfrú Twist...
.. eða gerði það! Hann hló
snöggt. Eldri bróðirinn var víst
ekkert hrifinn af honum.
Ég ókyrrðist. — Þér eigið við,
að þeim hafi ekki komið vel
saman?
— Bræðrunum? Jú, þeim þ.yk
ir vænt hvorum um annan. Ég
þykist vita, að Hammond
mundi fórna lífi sínu fyrir
Chuck. Nei. það var samband
Chucks við stúlkuna, se:n
Hammond var ekkert hrifinn
af. Hann sópaði saman eldspýtu
brotunum og setti þau í ösk u-
bakkann. Svo leit hann krmg
um sig, næstum laumulega. —
Ég tala víst fullmikið.
— Það finnst mér ekki. Hann
hristi höfuðið.
— Ég ætti ekki að vera að
tala svona um félagana í
klúbbnum. Jafnvel ekki við
lögregluna. Auk þess gæti það
gefið yður hinar og þessar rang-
ar hugmyndir.
— Hvers konar hugmyndir?
Hann var nú farinn að fitla
við slökkvarann á lampanum.
Hann var talsvert handóður.
Ljósið slokknaði snögglega og
ég gat ekki séð framan í hann,
er hann sagði: — Þér gætuð
fengið þa hugmynd, að Hamm-
ond hafi kálað henni til þess að
bjarga bróður sínum frá henni
og það væri algjörlega röng
hugmynd. Og þegar ljósið kvikn
aði aftur var meiri svipur á
lampahlífinni en á andlitinu á
honum.
— Hugmynd getur nú verið
býsna langt frá sannaðri stað-
reynd, hr. Neal, benti ég honum
á.
Þjónn einn kom aftan að Ne-
al og hvíslaði einhverju að hon-
um, sem ég gat ekki heyrt.
hann kinkaði kolli og sagði allt
í lagi, hann skyldi koma. Svo
stóð hann upp og afsakaði sig:
— Það er nokkuð, sem ég þarf
að afgreiða. Svo stanzaði hann
snöggvazt eins og í vandræðum.
— Viljið þér enn tala við hr.
Herter?
Ég kinkaði kolli. — Ef hann
er.kominn vildi ég gjarna tala
við hann. Hann stóð enn kyrr,
edns og hann hefði eitthvað sér-
stakt í huga, en yppti síðan
öxlum, eins og hann gæfi það
frá sér, sagði þjóninum að gefa
mér í glasið aftur, og hvarf síð-
an snögglega gegn um eitthvert
gat á veggnum.
Ég kláraði úr glasinu, hallaði
mér aftur á bak, og tók að at-
huga salinn nánar. Beint and-
spænis mér voru piltur og
stúlka, sem virtust skemmta sér
konunglega við að horfa hvort
í annars augu að hátíðasvip, yf-
ir ljósrauða lampahlíf, og þau
hlutu að vera að æfa sig í
hugsanaflutningi, því að hvor-
ugt mælti orð frá vörum. Óðru
hvoru sendi ungi maðurinn, sem
var dáltíið úfinn í hnakkanum,
fingurkoss til stúlkunnar, sém
hún endursendi honum.
Svo var þarna kona, se.n sat
alein yfir tómu konjaksglasi.
Hún hélt því milli lófanna og
starði á það með eyðilegum
svip. Ég gat mér þess til ,að hún
væri eitthvað um fertugt, og
jafnvel í lampaljósinu sást, að
henni var mikið farið að fara
aftur. Fingurnir á henni að und-
antekinni löngutöng vinstri
handar, voru hiaðnir hringum.
Ég vorkenndi henni næstum
eins mikið og hún gerði sjálf.
ALLT Á SAMA STAÐ
PAYEN PAKKIMIIMGAR
OG PAKKDÓSIR í;
AUSTIN
CHEVROLET
CHRYSLER
COMMER
DODGE
DE SOTO
FORD, allar gerðir
HILLMAN
KAISER
MORRIS
MOSKWITCH PONTIAC VOLKSWAGEN
OPEL RENAULT VOLVO
PLYMOUTH SINGER JEEP
POBEDA SKODA
HÖFUM ÁVALLT BIRGÐIR VARAHLUTA
í FLESTAR GERÐIR BIFREIÐA.
Egill Vilhjálmsson hf.
Laugavegi 118. — Sími 2-22-40.