Morgunblaðið - 02.11.1965, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 02.11.1965, Qupperneq 25
Þriðjudagur 2. nóvember 1965 MORCUNBLAÐIÐ 25 Fólk úr víðri veröld • Spegill sálarinnar í Memphis var maður nokkur Robert Malone að nafni, stöðv- aður af lögregluþjóni, sakaður um að aka undir annaregum áhrifum. Malone neitaði ákær- unni og var dreginn fyrir rétt. Lögregluþjónninn skýrði þar frá því, að Malone hefði, er hann var stöðvaður, verið mjög glaseygður, og þessvegna hlytu menn að draga þá ályktun að hann hefði verið ölvaður við akstur. Malone lét sé ekki bregða við þessa ásökun, held- ur sté rólega úr sæti og tók úr augnatóftinni gerfiauga. Hann var dæmdur sýkn saka- • Skilningur yfirvaldanna. í Hong Kong var Ng Kin- Cheung dreginn fyrir rétt, vegna ákæru konu sinnar, þess efnis ' að hann borgaði ekki þessar 900 krónur á mánuði, sem þau hefðu í upphafi samið um. Ng Kin-Cheung skýrði dómaranum frá því, að það væri honum lífs- ins ómögulegt, einfaldlega vegna þess, að hann hefði tvær ást- meyjar og átta börn með þeim til þess að sjá fyrir. Það sem væri þá eftir af kaupinu hans færi í að kaupa vindlinga. Dóm- arinn sýknaði Ng Kin-Cheung, að því undanskildu, að skyldi hætta vindlingakaupum. • Bítlapabbi. Einn af bítlúnum frægu, Ge- org Harrison, lét fyrir skömmu hafa það eftir sér, að Andrés Segovia, gítarleikarinn heims- frægi, væri faðir þeirra allra. Þegar Segovia kom svo fyrir skömmu til Lundúna, þar sem í hann átti að halda tónleika, not uðu fréttamenn tækifærið, og) spuiöi hinn siola íuour, nvaö hann vildi segja um þessi um- mæli. Hann svarai: — Bítlarnir eru ákaflega aðlaðandi ungir menn, en tónlistin, sem þeir leika, er hræðileg. Rafmagnsgítarinn er hjóm. Hafið þið nokkurn tímann heyrt um rafmagnsfiðlu, já, eða til dæmis rafmagssöngvara? • Luci í giftingarhugleiðing- um. Luci Baines Johnson, yngsta dóttir Johnson forseta, hélt á laugardag sl. til búgarðs fjöl- skyldunar til þess að fá. sam- þykki foreldra sinna fyrir því, að hún giftist Pat Nugent, sem hún sést með hér á myndinnL Nánir vinir fjölskyldunneir segja að Frú Johnson hafi þegar sam- þykkt ráðahaginn, en aftur á móti standi eitthvað á samiþykki forsetans. Pat Nugent hefur að undanförnu oft sést 1 fylgd með Luci, og því kom þessi fregn ekki svo mjög á óvart. Hann er kaþólskur eins og forsetadóttir- i in. JAMES BOND ~>f~ ~>f~ ->f Eftir IAN FLEMING — Þú heldur því fram, að pró- fessorinn sé ekki utan við sig. Veiztu hvað hann gerði í gær- morgun. Hann kyssti eggið sitt og lamdi konuna sína með te- skeiðinni í höfuðið. Maður nokkur var kallaður fyrir rétt í Lundúnum á dögun- um vegna misklíðs við konuna sína. Er hann var að lýsa sam- búðinni við konu sína, sagði hann m.a.: — Háæruverðugi dómari. Kon an mín er eins og segulmagnað tundurdufl. Hún hefur mikið aí<'’ráttarafl en er stórhættuleg. Læknir nokkur skrifaði lyfseð- 11. Sjúklingurinn fór með lyf- seðilinn í lyfjabúð og fékk með- alið. Síðan hefur hann notað lyf- seðilinn í mörg ár, sem inngangs kort í leikhús og tvisvar sinnum sem boðskort í opinberar veizl- ur. Einu sinni sem aðgangskort að leynilegum fundi-og einu sinni sem skipun frá forstjóranum til gjaldkerans, um kauphækkun sér til handa. Þar að auki leikur dóttirin á hverju kvöldi á píanó eftir lyfseðlinum. — En þú sagðir að hún syngi fallega. — Nei, það sagði ég ekki. — Hvað sagðirðu þú þá? — Ég sagði að hún væri falleg ur söngvari. — Konan mín er mjög vand- lát og vill ekki nema það allra bezta. — Ekki hefur hún verið það á sínum yngri árum. —‘ Nú, hvers vegna segirðu það? — Hún giftist þér, ekki satt? Bond kemur aftur til hótelsins eftir að hafa synt snemma morguns, annan daginn sem hann er I sumarfríi með Vesper. — Er eitthvað að, elskan? — Ó, mér brá svo Ég var einmitt að hringja í Mathis. Mig langaði til þess að fá númerið hjá sýningarstúlkunni, sem ég þekki í París, og fá hana til þess að senda mér föt. Ég hef bókstaflega ekkert til þess að klæðast. Bond hugsar með sér: Hún lýgur, en ég veit ekki hvers vegna. J Ú M B Ö ~K- Teiknari: J. M O R A Ég hafði ekki hugmynd um að við Júmbó. værum svona nálægt landi, sagði Júmbó. — Hefurðu nokkuð hugsað út í það, hvernig við komumst í land, spurði pró- fessor Mökkur. — Já, já, ef bátarnir eru farnir, þá syndum við bara, svaraði — Ég mæli eindregið á móti því, sagði Spori, sjáið þið ekki öll skerin og þessa oddhvössu kletta þarna við merjumst til bana, ef straumurinn ber ^kkur þang- að. En við skulum á land, sagði prófess- orinn, og kom um leið með nýja tillögu. — Þegar það fer að falla út, getum við gengið á þurrum fótum í land. Það sem ég hef mestar áhyggjur af er ásig- komulag skipsins. Það hefur ekki verið sjófært síðastliðin 300 ár. KVIKSJÁ Fróðleiksmolar til gagns og gamans Atkvæðamesti umboðsmaður fjölleikahúss er án efa Búlg- arinn Alexander Dobritche, en langalangafi hans dansaði á linu fyrir Tyrkjasoldána. Dob- ritche, sem bæði hefur skrif- stofur i New York og París, þénar um C milljónir króna á ari fyrir að koma í kring dýra- sýningum í öllum helztu fjöl- leikahúsum veraldar — allt frá dansandi filum til mannapa og hunda, sem dansa á linu. „Mað- ur getur ekki kennt þeim allt með blíðunni einni saman, hef- ur hann einhverntíma sagt, — maður er bókstaflega neyddur til þess að sýna þeim klærnar stundum. Ég hafði t.d. fyrir skömmu sýningu með ketti og mús, sem komu gangandi á móti hvort öðru eftir kaðli, en siðan átti kötturinn að hoppa yfir músina, og halda göngunni síðan áfram. Hann át að minnsta kosti hundrað mýs og fékk óteljandi ráðningar áður en honum lærðist, að hann áttf að hoppa yfir músina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.