Morgunblaðið - 30.12.1965, Side 3

Morgunblaðið - 30.12.1965, Side 3
Fimmtudagur 30. des. 1965 MORGU N BLAÐIÐ 3 ÍSLENZKA sjónvarpið — eða Sjónvarpsdeild ríkisútvarpsins eins og stendur á koparplötu við dyr þess, — er til húsa á Laugavegi 176. í>ar er um þessar mundir unnið af kappi við undirbúning sjónvarpsins. Iðnaðarmenn eru a'ð störfum í sjónvarpssalnum, eða „aðal- stúdíóinu", sem er æfinga- og upptökusalur. Þarna er einnig minna æfingastúdíó, fundar- herbergi, búningsherbergi, förðunarherbergi, tækni- fræðingaherbergi, vélasalir og svo framvegis, og svo eru auðvitað mörg herbergi, þar sem starfsmenn lista- og skemmtideildar og fræðslu- og fréttadeildar hafa a'ðsetur. Þegar blaðamaður Mbl. kom þarna inn í gær, hitti hann fyrst að máli séra Emil Björns son, dagskrárstjóra fræðslu- og fréttadeildar. Hann kvað nú einkum unnið að gagna- og Upplýsingasöfnun í sinni deild, Litið inn en auk hans starfa þeir Mark ús Örn Antonsson og Magnús Bjarnfreðsson við hana. Ver íð væri að koma upp safni ljósmynda frá ýmsum stöðum í Reykjavík og úti á landi, og gengi það starf vel. Nauðsyn- legt væri fyrir sjónvarpið að eiga gott safn mynda af stöð um, stofnunum og mönnum, sem hægt væri að grípa til, hvenær sem væri, enda væru samgöngur oft stopular hér á landi, ekki sízt á vetrum, svo að ekki væri hægt að senda myndatökumenn hvert á land sem væri me’ð stuttum fyrir- vara. Markús hefur unnið að þessari söfnun ásamt Andrési Indriðasyni, sem er starfsmað- ur lista- og skemmtideildar- innar. Markús vinnur hins vegar að því nú að skrásetja allar íslenzkar kvikmyndir bæði gamlar og nýjar. Til sýn inga í sjónvarpinu koma ein- ungis til greina 16 mm mynd ir fyrst um sinn, en síðar verð ur einnig hægt áð sýna 35 mm myndir. Þá hefur Emil tek ið saman frumdrög að fyrir- komulagi fréttaþjónustu í sjón varpi, og eru þau nú til álita hjá útvarpsráði og útvarps- stjóra. Emil var á þriðja mán uð í Bandaríkjunum á þessu ári að kynna sér sjónvarps- starfsemi, lengst af við sjón- varpsstöð í Minneapolis. Jón Þorsteinsson, deildar- verkfræðingur, skýr'ði frá því, að fljótlega eftir áramótin verði farið að senda út kyrr- stæða mynd frá sjónvarpinu, sem verður væntanlega sýnd seinni hluta dags og fram eftir kvöldi. Hér er um þjónustu við sjónvarpseigendur og vænt anlega sjónvarpskaupendur að ræða, sem geta þá séð, hvort þeir ná íslenzku stöðinni nægi lega vel. Verður hægt að stilla tækin eftir þessarL mynd. Pétur Guðfinnsson, skrif- stofustjóri sjónvarps, sagði stefnt að því að hefja reglu- legar útsendingar á árinu 1966, en varla fyrr en upp úr miðju ári. 19 menn eru þegar samningsráðnir við sjónvarp- ið, en heimild er til þess að ráða 30 alls. — Því má skjóta hér inn í, að skv. upplýsingum, sem blaðamaðurinn hefur aflað sér, var gert ráð fyrir 220 manna starfslfði við írska sjón varpið, þegar það hóf staf- semi sína fyrir þremur árum. Nú vinna um þúsund manns við það. Pétur sagði sjónvarpsskýrsl- una gera ráð fyrir því, að sjón varpað yrði 20—25 tíma í viku í upphafi. Yröi því tveggja til þriggja tíma útsending dag- lega, og að auki verður end- urteknu efni sennilega sjón- varpað seinni hluta dags á laugardögum og sunnudögum. Tólf menn eru ráðnir við tæknideildina, en forstöðu- maður hennar er Jón Þor- steinsson, deildarverkfræðing- ur. Níu þeirra eru nú á nám- skeiði í Kaupmannahöfn, einn er ókominn til starfa, og hinn ellefti er Gísli Gestsson, kvik myndatökumáður. í marzmán- uði næstkomandi fer Andrés Indriðason til Kaupmanna- hafnar og mun þá starfa að töku sjónvarpsþátta 1 sam- vinnu við hina íslenzku tækni menn, sem verða þá í þann mund að ljúka námi. Andrés er nýkominn frá Kaupmanna- höfn og Arósum, þar sem hann hefur verið í alls tvo mánuði á námskeiði hjá danska sjónvarpinu, „produ- cer-kursus“, þar sem kennt var, hvernig stjórna á dag- skrárli’ðum. Þar fékk hann tækifæri til þess að gera einn þátt, sem fjallaði um efnið „Lögreglustöðin". Einnig gerði hann fimm mínútna kvik- mynd um ráðhúsið í Árósum og aðra tuttugu mínútna um efnið „Koma“. Andrés samdi tal og texta vi'ð þessar mynd ir og fékk tækifæri til þess að nota eigið hugmyndaflug. Þeir Magnús Bjarnfreðsson og Markús Örn Antonsson fara að öllum líkindum bráð- lega utan á námskeið til þess að kynna sér sjónvarpsstarf- semi. Ætlunin er þá að halda fyrst til Bretlands og síðan til Skandinavíu. Steindór Hjörleifsson er dagskrárstjóri lista- og skemmtideildar, en auk hans eru þeir Tage Ammendrup og Andrés Indri’ðason við deild- ina. Tage fer utan um ára- mótin til þess að kynna sér sjónvarp í Danmörku. Þar verður hann í mánuð, en síð- an fer hann til Bretlands og verður hjá BBC í tvo mánuði. Nú er verið að vinna að dag- skrá um jólahald í Reykjavík. Hefur veri’ð farið víða um borgina og margt myndað, svo sem jólaskreytingar á götum úti, vöggustofa Thorvaldsens- félagsins, Elliheimilið Grund og jatan hjá Sankti Jósefs- systrum. Steindór kvaðst enn vera bundinn störfum hjá Leikfé- lagi Reykjavikur, en um leið og hann losnaði þaðan, mundi hann reyna að komast á dag- skrárstjórnar-námskeið erlend is. Hann kvað allt vera enn á svo miklu byrjunarstigi, að ekki hefðu verið ákveðnir neinir sérstakir skemmtiþætt ir, en lista- og skemmtideild- in mun leggja tillögur 'fram í janúar fyrir útvarpsráð. Um þessar mundir eru að berast svör erlendis frá við tilboðum, sem héðan hafa veið send í listrænt efni og skemmtiefni. Svör hafa þegar borizt frá Bandaríkjunum og Bretlandi, og von er á svörum frá megin- landi Evrópu, bæ'ði austan tjalds og vestan. Þá eru starfs- menn deildarinnar að leita fyrir sér um „ný andlit" og nýja „skemmtikrafta", og er ekki ólíklegt, að margir, sem nú eru lítt þekktir hér á landi, eigi eftir að geta sér frægð á sjónvarpstjaldinu innan tíðar. STAKSTFI Wlí Hagspeki Framsóknai Hagspeki Framsóknarforkólf- anna hefur löngum þótt sérstaeð, og framlag þeirra til umræðna um efnahagsmál aldrei verið ýkja merkilegt. I forustugrein blaðs þeirra í gær segir: „Rétt er að geta þess, að spari fjárfrystingin hefur stundum ver ið rökstudd með því, að halda verðlagi stöðugu. Reynslan hef- ur hinsvegar sýnt, að verðþensla hefur aldrei verið meiri en síð- an frystingin kom til sögunnar, og hefur hún því bersýnilega engan árangur borið á því sviði.“ Um þessa fullyrðingu má auð vitað segja, að þar sem ekki hef ur tekizt betur að halda verð- þenslunni innan skynsamlegra takmarka, þrátt fyrir sparifjár- frystinguna, sé nokkuð öruggt, að hefði hún ekki komið til sög unnar, mundi verðþenslan hafa orðið ennþá meiri, en raun hefur á orðið. Þetta sjá allir menn með heilbrigða skynsemi nema Fram sóknarforingjarnir. Lánsf j árskortur inn Framsóknarmenn halda þvi fram, að lánsfjárskortur atvinnu- veganna stafi ekki af því að láns fé vanti, heldur vegna „spari- fjárfrystingarinnar." Þeim, sem þetta hafa skrifað hlýtur að vera ljóst, að þetta eru blekkingar, þvi að svona einfalt er málið ekki Sannleikurinn er nefnilega sá, að á Seðlabanka íslands hvíla ýmsar kvaðir um endurkaup á framleiðsluvíxlum sjávarútvegs og landbúnaðar, og ýmsar fleiri skyldur og það er einmitt „spari fjárfrystingin“, sem gerir Seðla- bankanum kleift að standa við þessar skuldbindingar sinar. Það er því alrangt, þegar Framsókn- armenn halda því fram, að „spari fjárfrystingin“ sé orsök láns- fjárskortsins. Hún gerir Seðla- bankanum einmitt kleift að standa við skuldbindingar eins og t.d. um endurkaup á afurða- víxlum landbúnaðarins og fleiru slíku. Þá segir í þessari gagn- merku Tímagrein: „Það er kunnara en rekja þurfi, að atvinnuvegir landsins búa við stórfelldasta lánsfjár- skort og stendur hann framar öðru í vegi þess, að framleiðslu- geta þeirra sé hagnýtt á sem fyllstan og hagkvæmastan hátt.“ Það er að vísu rétt, að láns- fjárskortur ríkir hér á Iandi og hefur ríkt á hinu mikla umbylt- ingartímabili síðasta aldarfjórð- ungs. Það er gömul saga en ekki ný. Hitt er svo alveg ljóst, að vinnuaflsskorturinni á ekki síður þátt í vissum erfiðleikum at- vinnuveganna en lánsfjárskort- ur. Blekking Það er gömul saga, að ágæt- ustu menn láta blekkjast af marg víslegum áróðri sem uppi er hafð ur. Þannig má skilja á leikdómi, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, að „hernaður“ Bandaríkja- mannta í Vietnam sé nærtækt dæmi um það, að styrjaldir séu „kaldrifjuð slátrun vegna valda- streitu og mikilmennskubrjál- æðis“. Enginn vill verja styrjald- ir sem slíkar. Það er hins vegar óhrekjanleg staðreynd, að strið- ið í Vietnam hófst með árásum kommúnista á Suður-Vietnam. Þær árásir voru brot á Genfar- samnimgunum, sem gerðir voru 1954. Eftir því sem þessar árásir hafa magnazt, hafa Bandarikin konuð Suður-Vietnam til hjálp- ar, eins og þau hafa komið mörg- um öðrum þjóðum til hjálpar frá stríðslokum, þegar á þær hefur verið ráðizt af kommúniskum árásaröflum. Það er enginn eðlis- munur á átökunum Viet Nam, Kóreu, og þeim átökum, sem staðið hafa um Berlín. Það er illa farið, þegar jafnvel ágætustu menn láta blekkjast. Séra Emil Björnsson og Mark ús örn Antonsson. Pétur Guðfnnsson, framkvæ mdastjóri sjónvarpsins, og Jón Þorsteinsson, deildarverkfræð ingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.