Morgunblaðið - 08.01.1966, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugarflsgur 8. janúar 1960
Rannsókn lokiö á
dauöaslysinu á
Akureyri
Akureyri, 7. janúar.
RANNSÓKN er nú lokið á því
sviplega slysi, sem hér varð í
gærkvöldi, þegar trjáviður fauk
á mann, sem var við vinnu sína
og beið bana samstundis að því
er talið er.
Hinn látni hét Karl Njálsson til
heimilis að Þverholti 18, 42
ára að aldri kvæntur og þriggja
barna faðir.
Hann var að vinna við ný-
Sjúkrabíll var þegar kvaddur
á staðinn og Karl fluttur í sjúkra
hús en var látinn þegar þangað
kom, hefur sennilega beðið bana
samstundis.
Milli kl. 6 og 7 í gærkvöldi
var mjög hvasst og byljótt hér
á Akureyri, 10—11 vindstig og
jafnvel hvassara í byljunum en
lægði mikið þegar á kvöldið leið.
Veðrinu fylgdi einnig mikil úr-
koma.
Sv. P.
Farþegcavél teppt
á Norðfirði
byggingu byggingarvörudeildar
Kea ásamt öðrum verkamanni
og tveimur smiðum. Annar smið
anna var Gústaf bróðir Karls
heitins.
Meðan allra hvassast var á
sjöunda ■tímanum í gærkvöldi
fór Karl út á geymslusvæði verzl
unarinnar til að sækja planka
eða batting, sem nota þurfti
inni. Þegar honum dvaldist og
samverkamenn hans var farið að
lengja eftir honum fóru þeir út
til að svipast um eftir honum.
Kom Gústaf fyrstur að bróður
sínum liggjandi á jörðunni með
mikinn höfuðáverka. Borð lá of-
an á honum og annað borð lá
mölbrotið þar rétt hjá. Höfðu
þau sýnilega fokið efst úr sjö
metra hárri timburstæðu, er þar
var á svæðinu. Annað virtist
ekki hafa fokið úr stæðunni.
- óveður / 2
FLUGVÉL Flugsýnar, sem aff
undanförnu hefur verið í fólks-
flutningum vegna hátíðanna á
Norffur- og Austurlandi, varff
veffurteppt í Neskaupstaff i
rúma tvo sólarhringa.
Mbl. hafði í gær samband við
Sverrir Jónsson, sem var með
flugvélina í þessari ferð, og
skýrði hann frá þvj, að í ann-
arri ferð á þriðjudag sl., er flug-
vélin var komin til Neskaup-
staðar, hefði rokið upp ofsaveð-
ur af suðvestan og vindhraðinn
komizt upp í 11 vindstig. Hefði
Iðnskólinn á
Isafirði settur
ísafirði, 7. jan.
IÐNSKÖLINN á ísafirði var
settur . sl. miðv-ikudag. Formað-
ur skólanefndar, Finnur Finns-
son, skýrði frá þvi, að Iðnskól-
inn hefði nú'fengið leyfi mennta
málaráðuneytisins til þess að
reka framhaldsdeild við skólann
sem undirbúningsdeild undir
tækninám. Jafnframt hefði Al-
þingi samþykkt að greiða kostn-
að við þessa deild.
í sambandi við þessa undir-
búningsdeild er ætlunin að út-
búa sérstaka tilraunastofu fyrir
efna- og eðlisfræðikennslu, og
hefur skólinn þegar fengið nokk
uð af tækjum til notkunar í
þessum kennslugreinum. Nem-
endur í Iðnskólanum í vetur eru
um 40, skólastjóri er Áge Steins-
son og kennarar 11 talsins.
— H. T.
sólarhringa
ekki verið viðlit að hreyfa flug-
vélina þar til í gær. Þar sem
ekkert skýli væri í Neskaup-
stað, hefði þurft að fá fjóra vöru
flutningabifreiðar, og þeim ver-
ið stillt upp fyrir framan flug-
vélina. Hefði hún verið reyrð
niður, auk þess sem hún hefði
verið bundin bæði að framan og
aftan við bifreiðarnar.
Eins og áður segir kom flug-
vélin til Reykjavíkur í dag síð-
degis, en hafði áður farið frá
Neskaupstað til Akureyrar og
aftur til baka.
Wmmfáéi *
Hádegisfundur
Varðbergs ög
SVS i dag
RÁÐHERRAR Atlantshafs-
bandalagsríkjanna héldu fund
í París um miðjan desember
sl. og sótti fundinn af íslands
hálfu Emil Jónsson, utanríkis-
ráðherra, og sést hann hér
ásamt Henrik Sv. Björnssyni.
sendiherra, fastafulltrúa ís-
Iands hjá NATO.
Emil Jónsson mun í dag
laugardag, skýra frá helztu
málum NATO-fundarins á há-
degisfundi Varffbergs og Sam-
taka um vestræna samvinnu,
sem hcfst í Þjóðleikhúskjall
aranum kl. 12,30.
— Borgarstjórn
Framhald af bls 8.
sagði borgarstjóri. Kristján Bene
diktsson hefur áfellzt borgaryf-
irvöld fyrir að framkvæma ekki
meira, en Einar Ágústsson hef-
ur áfellzt borgaryfirvöld fyrir
að leggja á skatta fyrir fram-
kvæmdunum. Þá kvaðst borgar-
stjóri sakna þess, að hann hefði
ekki ennþá fengið svör við
spurningum sem hann hafði fyrr
á fundinum beint til Framsókn-
armanna um rafmagnsverðið og
skoraði á þá að láta ekki á svör-
um standa.
Síðan töluðu Guðmundur Vig-
fússon (tvisvar), Kristján Bene-
diktsson og Óskar Hallgrímsson,
en að lokum tók borgarstjóri
Geir Hallgrímsson til máls og
lauk máli sínu með því að segja,
að enginn minnihluta flokkanna
hefði gert tillögu um iækkun út-
svarsupphæðar. í þessari stað-
reynd felst viðurkenning þeirra á
því, að þeir eru sammála því
mati, að unnt verði að leggja á
skv. sömu reglum og sl. ár og
veita sama afslátt. Ekki kvaðst
borgarstjóri vilja trúa því að
minnihluta fulltrúarnir vildu í
raun og veru hafa útsvör hærri
á borgarbúum. Ýmsar útgjalda-
tillögur þeirra eru hins vegar
byggðar á óraunhæfu tekjumati
þeirra gjaldstofna, sem fyrir eru
og eru því gersamlega þýðingar-
lausar. Að vísu skera Alþbl.-
menn sig úr með beinni tillögu
um að auka skattabyrði á Reyk-
víkinga, sem nema mundi 45—
69 milljónum á þessu ári. Þótt
gjaldskrá aðstöðugjalda hafi
nokkuð verið breytt og gert ráð
fyrir 17 millj. kr. tekjuaukningu
vegna þess og þar sé um að
ræða aukna skattabyrði, er aðal-
atriðið það, sagði borgarstjóri,
að útsvarsbyrði borgarbúa þyng
ist ekki miðað við sl. ár og fram
kvæmdum borgarinnar hagað á
þann veg, að þær valda ekki
verðþenslu.
Hafnfirzkir unglingar efndu aff venju til skrílsláta á þrettánaa-
kvöld. Á myndinmi eru nokkrir hafnfirzkar hetjur aff bisa viff
bíl á Strandgötunni.
Hér hefur svifblysi veriff varpaff undir Saab-bifreið og logaði þaff
glatt í kii'.gan tíma en lögreglan fjarlægði bílinn áffur en
skemmdir hlutust af. (Ljósm.: Sv. Þorm.).
3 slys í gær
ÞRJÚ slys urffu á tímanum frá
kl. 17—19 í gærdag hér í borg
og var í öllum tilfellum ekið á
vegfarendur. Slysin munu ekki
vera alvarlegs eðlis.
U.ngur piltur, Ingólfur Daníels
son að nafni, varð fyrir bíl á
mófcum Hofsvallagötu og Hrin.g-
brautar utm kl. 17 í gær og var
þegar ekið í slysavarðsbofuna en
meiðsli hans munu ekki vera al-
varleg.
í GÆR var S og SV átt
hér á landi ekki hvöss. Hiti
á Austurlandi var 5—8 stig
en 1—4 stig vestan lands' og
voru þar slydduél og eins á
Suðurströndinni, en bjart á
N og NA-landi.
Mestur hiti í nágrannalönd-
unum var á Irlandi um 10
stig, en annars var hiti í
kring um frostmarkið í Vest-
ur Evrópu, á Norðurlöndum
og í nágrenni New York-borg
ar.
VEÐURHORFUR kl. 22 í gær-
kvöldi:
Minnkandi lægð á Græn-
landshafi, en austur á Ný-
Sextugur maður, Þórarinn Ól-
afsson, varð fyrir bifreið á mót-
um Rauðarárstígs og Njálsgötu
en bifreiðin ók utan í hann og
f'étll ’hann í götuna. Hann mun
heldur ekki hafa hlotið atlvarleg
meiðsli, að því er lögreglan taldi.
Á Hringbraut á móts við Kenn
araskólann varð kona fyrir bíl
um kl. 19 í gænkvöldi en ekki
tókst að afla upplýsinga nm nafn
hennar. í öllum tilfeilum var
fólkinu ekið á slysavarðstofuna,
en lögreglan telur að meiðsii á
því hafi verið óveruleg.
fundnalandi er vaxandi lægð
á hreyfingu norðaustur. Suð-
vesturland til Vestfjarða og
miðin: Suðvestan kaldi og
skúrir eða slydduél. — Norð-
urland og miðin: SV-kaldi, dá-
lítið slydduél vestan til, en
létt skýjað austan til. Norð-
austurland og miðin: SV
kaldi og léttskýjað. — Aust-
firðir: SV kaldi, bjartviðri
norðan til en smáskúrir sunn
an til. — Suðausturland, Aust
fjarðarmið og Suðausturmið:
SV kaldi og skúrir. Austur-
djúp: SV stinningskaldi og síð
ar kaldi, skúrir.