Morgunblaðið - 08.01.1966, Blaðsíða 15
1 Lau^rétegur 8. janúar 1968
MORGUNBLAÐIÐ
15
Ameríkubréf:___________
Verkfallið getur reynzt Lindsay
borgarstjóra í New York örlagaríkt
ÞAÐ eru margir orðnjr sárfættir í New York eftir viku verk-
fall flutningaverkamanna, sem neytt hefur fólk til margra
klukkustunda gönguferða fram og aftur til vinnustaða. Þessar
ungu stúlkur drógu einn daginn fram hjólaskautana sína til þess
að reyna að létta sér gönguferð iraar.
New York, 4. jan. 1966.
ÞÁ er komið nýtt ár hér, eins og
annars staðar. Jólin voru tíðinda-
lítil, jóladagur eini dagurinn, sem
haldinn er hátíðlegur. Annars
|má segja, að hér hafi verið
Brandajól. Þannig er háttað, að
falli hátíðisdagur á laugardag eða
sunnudag, þó fær almenningur
frí á föstudegi eða mánudegi.
Vegna þess að jóladagur var á
laugardegi, gáfu flestir vinnu-
veitendur frí á föstudeginum.
Slys voru meiri nú en nokkru
sinni fyrr. Hafði verið spáð á
fimmta hundrað banaslysum
vegna umferðar um jólahelgina,
en talan varð yfir sex hundruð.
Á sama hátt fóru slys fram úr
óætlun um nýárið..Er margt, sem
stuðlar að þessu. Bílum fjölgar
hér um þrjár milljónir á ári.
Langar helgar stuðla alltaf að
ferðalögum. Fólk heimsækir þá
gjarnan ættingja og vini, sem
fjarri búa. Er því meiri umferð
en venjulega og bílstjórar oft
þreyttari, og því miður, síður alls
gáðir, en venjulega.
Veður hefur verið hér ein-
dæma gott. Á aðfangadag var
um ellefu til tólf stiga hiti á
Celsius og á gamlársdag fór hit-
inn upp í sautján stig og þótti
þá flestum nóg um. Snjór hefur
ekki sézt hér ennþá, það sem af
er vetrar. Eru skíðamenn heldur
ólukkulegir yfir þessu og sleða-
salar eru komnir á horrimina.
Nýr borgarstjóri tók við völd-
tim 1. janúar. Réttara væri víst
að segja að hann hafi tekið við
embætti, því völdin verða heldur
minni en vant er. Hann er nefni-
lega repúblikani, sá fyrsti i
tnörg herrans ár. Demókratar
hafa ráðið hér lögum og lofum
og töpuðu borgarstjórakosning-
unum eingöngu vegna þess, hve
þeir höfðu lélegan mann í fram-
boði. Hinsvegar féllu samfram-
bjóðendur Lindsays, þannig að
demókratar fengu kosna tvo af
sínum mönnum, enda þótt borg-
erstjóraefni þeirra félli. Fengu
þeir borgarráðsformanninn og
fjármálaráðherrann, þannig að
Lindsay verður þungur róðurinn:
Lindsay sór embættiseið sinn
við hátíðlega athöfn, sem haldin
var á tröppum ráðhússins. Voru
þar samankomnir allir fyrir-
menn borgarinnar og enda fleiri.
Flutti hann ávarp, þar sem hann
lofaði að gera allt, sem í hans
valdi stæði til þess að gera New
York-borg til fyrirmyndar öðr-
una borgum. Sagði hann öllum
þeim stríð á hendur, sem stæðu
þessari baráttu fyrir þrifum,
hvort sem þeir væru í háum
stöðum eða lágum, demókratar
eða repúblikanar. Sór hann að
útrýma spillingu í opinberum
rekstri og að reka mútuþega úr
borgarstjórninni. Sáust þá marg-
ir á efri bekkjum grípa fyrir
munn sér, svo ekki sæist glottið.
Bar sérstaklega á þessu hjá hús-
næðismáladeild borgarinnar, en
þeir hafa verið alræmdir fyrir
þetta árum saman.
Ekki var Lindsay orðinn gam-
all í embættinu, þegar vandræði
steðjuðu að. Félag starfsmanna
neðanjarðarbrauta, undir forystu
Mike Quill, hafði hótað verk-
falli, næðust samningar ekki fyr-
ir klukkan 5 á nýársdagsmorg-
un. Ekki náðist samkomulag og
var lýst yfir verkfalli. Stendur
það verkfall enn og hefur valdið
ómetanlegu tjóni. Til þess að geta
gert sér grein fyrir því fyrir-
brigði, að einn maður,- Mike
Quill, skuli geta lamað heims-
borgina, þarf að þekkja til for-
sögu málsins.
Mike Quill er gamall fri. Hann
hefur verið formaður félags
starfsmanna neðanjarðarbrauta
árum saman. Hafa samningar allt
af verið til tveggja ára og ekki
hefur það brugðizt um árabil, að
Mike hótaði verkfalli væri ekki
gengið að öllum kröfum hans,
sem alltaf voru úr hófi fram.
Síðan var ætíð samið, og alltaf á
síðustu stundu. Fengu því allir
hlutaðeigendur mikla upphefð af,
Mike fyrir ábyrgðartilfinningy
og borgarstjórinn fyrir samninga
lipurð.
Árum saman hafa svo braut-
irnar verið reknar með halla, því
það er pólitískt boðorð hér, að
ekki má hækka fargjöldin.Kostar
ekki nema 15 sent að ferðast með
lestunum, og er það lægsta far-
gjald sinnar tegundar í Banda-
ríkjunum. Á hinn bóginn mæla
lög borgarinnar svo fyrir, að far-
gjöldin skuli vera nógu há tilþess
að standa undir rekstri kerfisins.
Eru því viðhafðar allskyns listir
árlega, og bækurnar þannig jafn-
aðar. Eru ýmsir kostnaðarliðir
brautanna færðir á allt aðra liði
og aðrar deildir bókhaldsins.
En Mike er góður demókrati
og hefur því aldrei verið tekinn
til bæna og hann hefur sjálfur
passað upp á að gera ekki borg-
arstjórum demókrata neinar kár-
ínur. Nú víkur öðru vísi við.
Lindsay er, eins og fyrr er sagt,
repúbiikani og Mike er alveg ó-
sárt um þá. Einnig er Mike far-
inn að eldast og orðinn heilsu-
veill. Sér hann fram á, að dagar
hans eru brátt taldir. Vill hann
því þjappa mönnum sínum sam-
an og telur það bezt gert á þenn-
an hátt. Hann er á margan hátt
skemmtilegur karl. Hann er tal-
inn maður þægilegur í um-
gengni, kann sig vel og er hrók-
ur alls fagnaðar á mannamótum.
Þetta er ekki sú ímynd, sem
hann vill hafa, sem verkalýðsfor-
ingi. Þar vill hann vera sá gamli
þjarkur, orðljótur og kaldrifjað-
ur. Bregður hann því fyrir sig
írskum hreim, þegar hann talar
í sjónvarpi eða í útvarpi. Er
hann þá illskiljanlegur, en þó
passar hann sig vel á að bera
fram rétt og skýrt, þegar hann
kallar Lindsay asna og fífl! Með-
an á samningaumleitunum stóð,
fyrir jólin, sló í ýmsar brýnur
milli Quills og Lindsays. Móðg-
aðist Quill, þegar Lindsay hélt
því fram, að hann, þ.e. Quill,
væri ekki að semja af heilum
hug. Strunsaði Quill og hans
menn af sáttafundi og sögðust
ekki myndu láta sjá sig þar fyrr
en þeir hefðu verið beðnir afsök-
unar af Lindsay. Sættir tókust þó
með þeim og var farið að semja
aftur. Voru kröfur starfsmanna
svo háar, að þær hefðu kostað
borgina rúmar sex hundruð
milljónir dala á ári.
Upp úr miðnætti á gamlárs-
kvöld gengu svo verkalýðsmenn
af fundi. Þar sem ekki reyndi
svo mikið á almenningsfarartæki,
því strætisvagnastjórar eru í
sama félagi og því líka í verk-
falli, á nýársdag og sunnudag,
kom ekki til neinna teljandi
vandræða. Á sunnudagskvöld
flutti Lindsay útvarps- og sjón-
varpsræðu, þar sem hann skoraði
á menn að fara ekki til vinnu,
nema brýna nauðsyn bæri til.
Einnig bað hann alla að hafa í
huga, að hvergi yrði hægt að
HINN 21. til 30. maí næstkom-
andi, verður haldin alþjóðleg
frímerkjasýning í Washington
D.C., er nefnist- Sixth Internat-
ional Philatelic Exhibition, eða
skammstafað SIPEX. Sýningin
er haldin undir vernd F.I.P. eða
alþjóða samtaka frímerkjasafn-
ara, og samtaka blaðamanna er
rita um frímerki og frímerkja-
söfnun, A.I.J.P.
Þetta er fyrsta sýning sinnar
tegundar er haldin er í Wash-
ington D.C. en sú 6. er haldin er
innan Bandaríkjanna. Munu
margir enn minnast FIPEX sem
sú næsta á undan þessari.
Þegar er vitað um íslenzka
þátttöku í þessari sýningu, bæði
frímerkjadeild og bókmennta-
deild, en fulltrúi sýningarinnar
á íslandi hefir verið skipaður
Sigurður H. Þorsteinsson, og
geta þeir er vilja sýna snúið sér
til hans í pósthólf 1336, Reykja-
víkvík, eða beint tii undirbún-
leggja bílum. Bæri þvi að sjá til
þess, að bílum væri ekið út úr
miðborginni, eftir að farþegar
hefðu settir af. Þessi ilmæli ork-
uðu tvímælis. Mönnum þótti gott
að fá þarna afsökun fyrir að sitja
heima, en á hinn bóginn óttuðust
márgir, að nytsemi þeirra yrði
léttvegin, ef hægt væri að vera
án þeirra. Gengu því margir til
vinnu og fréttist um göngugarpa,
sem settu ekki fyrir sig fjögurra
og fimm tíma göngu.
Þannig tókst að komast hjá
meiriháttar umferðartruflunum
fyrsta daginn. Þakkaði Lindsay
almenningi þetta þegnlyndi og
varð það til þess, að næsta dag
hljóp allt í baklás, því allir töldu
að hinir myndu sitja heima aft-
ur, og væri því óhætt að skreppa
í bæinn. Eru líkur til, að hömlur
verði settar á ferðir fólks inn x
borgina og ekki öðrum hleypt
inn en þeim, sem taldir eru eiga
brýnt erindi.
Nú er hlaupin harka í samn-
ingana og hvorugur vill láta und-
an hið minnsta. Getur þessi deila
ráðið úrslitum um framtíð Linds-
ays á stjórnmálasviðinu. Takist
honum að beygja Qill og ekki
síður, takist honum að hækka far
gjöldin án þess að fá almenning
í andstöðu við sig, munu honum
flestir vegir færir. Verði hann
hins vegar að láta undan, munu
demókratar p«nga á lagið og gera
honum lífið illbærilegt í starfinu
og þar með setja fótinn fyrir
hann á leið hans í forsetastól
Bandaríkjanna.
ingsnefndar S.I.P.E.X., 408 A
Street., Washington DC. 20003,
U.S.A. Þexr sem kynnu að hafa
áhuga, þurfa að hafa snúið sér
til annars hvors aðilans eigi síð-
ar en 15. janúar næstkomandi.
Það skal tekið fram að leiga
fyrir ramma er $ 12,50 og fyrir
hvert albúm eða bók í bók-
menntadeild $ 10.00.
Sérstök deild verður fyrir söfn
ungling^ 12-18 ára, að báðum
árum meðtöldum. Þar er leiga
fyrir hálfan ramma 8 síður $
ö.OO, en fyrir heilan ramma, 16
síður $ 10.00.
Auk þess sem hægt verður að
fá allar upplýsingar hjá fulltrúa
sýningarinnar, eða beint frá
skrifstofu hermar, munu ferða-
skrifstofurnar veita allar upp-
lýsingar um möguleikana á að
ferðast á sýninguna og þær ferð-
ir, sem hægt verður að fara um
Bandaríkin meðan á sýningunni
stendur.
LINDSAY
Geir Magnússon.
SIPEX 1966
Alþjóðleg frlmerkjasýning
i Washington