Morgunblaðið - 12.02.1966, Qupperneq 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 12. febrúar 1986
Slæm aðbúð, skipstjórinn fullur
matur lélegur og gamalt skip
segja brezku
SEX skipverjar gengu af
brezka togaranum Victrix H
428, er ihann kom til Norð-
fjarðar á miðvikudagS'morg-
un. Ætlunin var að skipverj-
ar færu til Reykjavlkur og
siðan áfrám út, en togarinn
hélt aftur á veiðar með 13
menn. En sjámennirnir sitja
enn veðurtepptir á Norð'firði,
þvi ekki er hægt að lenda á
flugvellinum og fara líklega
ekki fyrr en með Esju á
mánudag.
Fréttaritari M'bl. á Norð-
firði hitti piltana að máli, þar
sem þeir búa, í Hótel Egils-
búð. >etta eru menn á aldr-
inum 18-27 ára, tveir þeirra
kvæntir og annar á born. Þeir
kváðust hafa farið að heim-
an frá Hull 28. janúar sl. og
'haldið beint á íslandsmið.
Siglingin sem venjulega tek-
ur 3 daga, tók í þetta sinn 8,
vegna þess hve veður var
slæmt. Var togarinn síðan 3
daga að veiðum fyrir Austur-
landi. En þá var farið inn til
Norðfjarðar með veikan
mann. Gengu sjómennirnir
sex þar af skipinu.
Aðspurðir hvers vegna þeir
hefðu gengið af skipi sínu,
svöruðu þeir því til, að aðbúð
sjÓBH'Snnimir
hafi verið slsem um borð.
Ljósin hafi verið biluð í 6
sólarhringa og þeir ekki getað
haft ljós í lúkarnum. Manna-
íbúðir séu mjög óþriflegar í
togaranum, matur lítill og lé-
legur, og þröngt í lúkarnum,
þar sem 11 menn höfðust við,
en aðeins kojur fyrir 10.
Hafi sumir orðið að liggja á
lúkarsgóMinu á toerum fjölum
með aðeins teppi yfir
sér. Þeir segja að s'kipið sé
gamalt og lélegt og illa þúið
tækjum.
Þeir segja líka, að einn mað-
ur hafi verið veikur um borð,
en skipsstjóri ekki fengizt til
að fara í land með hann fyrr
en eftir 3 daga.
Þá kvörtuðu sjómennirnir
undan því, að þeir ‘hefðu eng-
an rommskammt fengið, eins
og þeim ber, að því er þeir
segja. Hafi skipstjóri druk'kið
allt sjálfur. Hann hafi yfirleitt
verið drukkinn, sé álkoholisti,
að þeirra sögn. Þeir sögðu
líka, að skipstjórinn hafi
keyrt skipið áfram á fullri
ferð í stórsjó og ofsastormi,
án þess að hirða um öryggi
mannanna.
Brezku sjómennirnir segjast
vera heldur klæðalátlir, því
mest af fötum þeirra sé um
borð í togaranum. Þeir hafi
farið í land til að tala við
umboðsmann brezkra togara
í Neskaapstað, en á meðan
'hafi togarinn látið úr höfn
með öll þeirra föt. Þá voru
þeir búnir að Skrifa undir
það að þeir gengju af skipinu.
Bftir að þeir 'höfðu skrifað
undir, hefði skipstjórinn sagt
þeim, að það varðaði við lög
að ganga af skipinu og að þeir
yrðu teknir fastir er þeir
•kæmu heim. Þeir segjast
ekki hafa vitað fyrr en .á, að
svo stranglega væri te'kið á
slíku máli í Englandi. En skip
stjórinn hafi e'kki viljað taka
þá aftur. Þá var það að þeir
fóru í land til að tala við um-
boðsmann brezkra togara.
Mennirnir sögðust gera sér
það ljóst nú, að þeir verði
settir í fangelsi, er þeir koma
iheim, en kváðust vonast til að
Skipstjórinn fylgdi þeim þang-
að, því hann eigi það sannar-
lega skilið. Þeir segjast ætla
að fá sér lögfræðing, þegar
heim komi.
Aðspurðir sögðust brezku
sjómennirnir að vel færi um
'þá á Norðfirði, en þeir vonist
til að komast heim sem fyrst.
Lí'klega verður það ek’ i fyrr
en með Esju á mánudag, því
líklega verður ekki búið að
moka flugvöllinn fyrr en það.
Ff fær ekki lendingarleyfi í
Frankfurt í V-Þýzkalandi
ÞÝZK flugyfirvöld hafa nú synj-
að Flugfélagi íslands um lend-
ingarleyfi í Frankfurt am Main,
en þangað hugðist félagið taka
upp flugferðir í vor, segir í
fréttatilkynningu sem Mbl. barst
frá F.f. í gær.
Eins og frá var skýrt í fréttum,
sótti Flugfélag íslands snemma
í' október sl. um leyfi til áætl-
unarflugferða milli Reykjavíkur
og Frankfurt, með viðkomu í
Glasgow í báðum leiðum. Brezk
flugyfirvöld brugðust mjög vel
við þessari málaleitan og veittu
leyfi til flugsins fyrir sitt leyti,
og einnig var Flugfélaginu veitt
heimild til farþegaflutninga
-^milli Glasgow og Frankfurt.
Þar sem engar flugsamgöngur
eru nú milli íslands og Þýzka-
lands, en mikil viðskipti og sam-
skipti milli landanna á öðrum
sviðum, þótti einnig mega vænta
þess, að jákvætt svar við umsókn
Flugfélagsins bærist frá Þýzka-
landi. Með þetta í 'huga, var í
flugáætlun félagsins fyrir sum-
arið 1986 ákveðin ein ferð í viku
milli Reykjavíkur, Glasgow og
Frankfurt. Flogið Skyldi á mið-
vikudögum fram og atftur. §trax
eftir að ferðaskrifstofum hafði
verið tilkynnt um þessa áætlun,
tcku að berast farpantanir í ferð
irnar.
Fyrir nokkru barst svo syar
frá þýzkum flugyfirvöldum þar
sem umsókn Flugfélagsins um
lendingarleyfi í Frankfurt er
synj^ið.
Þessi viðbrögð þýzkra yfir-
valda háfa valdið félaginu von-
brigðum og orsakað að hinu fyr-
irhugaða Þýzkalandsflugi hefir
ve..j aflýst.
Flugfélag íslands opnaði sölu-
skrifstofu í Frankfurt fyrir tæpu
ári síðan og nefir starfstfólk henn
ar unnið markvist að kynningu
íslands sem ferðamannalands.
Ástæðan fyrir því að flug-
félag Íslands valdi Franktfurt,
sem viðkomustað í fyrirfhuguðu
Þýzkalandstflugi, er í fyrsta lagi
lega borgarinnar, sem er mjög
miðsvæðis í hinum þéttíbýlu iðn-
aðarhéruðum landsins, en er að
auki mikil verzlunar- og við-
skiptaborg.
Frankfurt er og ein helzta
flugmiðstöð Evrópu, og er enda
eina borgin í Vestur-Þýzkalandi,
sem til greina kemur fyrir Flug-
félag íslands að fljúga til eins
og á stendur.
Hætt við langvarandi
stiórnarkreppu í Belgíu
— Konungur flýtti för sinni frá Dan-
mörku vegna lausnarbeiðni
stjórnar Pierre Harmel
Briissel, 11. febrúar.
— NTB-AP,—
Ó ÞEGAR Baudouin Belgíu-
konungur kom heim í dag
úr heimsókn sinni til Dan-
merkur gekk Pierre Harmel,
forsætisráðherra, á fund hans
og afhenti honum lausnar-
beiðni stjórnar sinnar. Kon-
ungur samþykkti lausnar-
beiðnina að þessu sinni og hóf
þegar viðræður við forseta
beggja deilda þingsins um
möguleikana á myndun nýrr-
ar stjórnar. Óttazt er, að fram
undan sé langvarandi stjórn-
arkreppa — en stjórn Harm-
els fer með völd á meðan hún
er óleyst.
Konungur ætlaði ekki að ljúka
heimsókninni til Danmerkur fyrr
en á morgun, en varð að halda
heimleiðis í dag vegna ástandsins
innan stjórnarinnar. Sendi Harm-
el, forsætisráðherra, herflugvél
eftir konungi eftir hádegið í dag.
Þetta er í annað sinn á viku, sem
stjórn Harmels segir af sér —
fyrra sinnið var á laugardaginn,
I Framhald á bls. 23
|
HÁSPENNA — LÍFSHÆTTA. — Víðar eru djúpir skaflar en
við hús norðan lands. Meðfylgjandi mynd var tekin í Skjól-
brekku, norðan Húsavíkur. Hér er 10 metra staur kominn það
í kaf að ekki er nema seilingur upp í háspennulínuna. Til var-
úðar hefur verið grafið undan línunni, því þarna eru skíða-
brekkur Húsvíkinga. — Ljósm.: Siili.
Reykjðvíkur-
bátar í loðnu
REYKJAVÍKURBÁTAR veiða
nú talsverða loðnu út af Hafnar
berginu og Sandvíkinni. í fyrri-
nótt komu inn eftirtaldir bátar:
Huginn II með 1900 tunn, Reykja
borg með 1200 tunnur, Ögri með
800, Hoffell með 400, Árni Magn-
ússon með 1800, Ófeigur II með
7'50, Þorsteinn með 900, Vigri
með 800 og Bjarmi II með 800.
Margir bátar voru í gær út af
Hafnarbergi að loðnuveiðum
en létu ekki mikið af veiði, skv.
upplýsingum frá Granderadíói
í gærkvöldi. Þó höfðu tilkynnt
komu sína þangað nokkrir bátar:
Ögri með 1000 tunnur, Þorsteinn
með 1800, Reykjaborg, sem ekki
hafði nefnt hve mikið hún væri
með, Gullfaxi 1300, Vigri 1300,
Huginn II 800, Árni Magnússon
900, Bjarmi II 900. Þá var vitað
að Óskar ætlaði til Akraness með
1200 tunnur og Arnar hafði feng
ið 1100.
Afli Akranesbáta
AKRANESI, 11. febr. — Bátarn-
ir 3, sem héðan róa með línu,
fiskuðu í gær sem hér segir:
Rán aflahæst með 8,9 tonn, Haf-
örn 6 og Skipaskagi 5 tonn.
Skírnir landaði hér í nótt 630
tunnum af loðnu. Óskar Hall-
dórsson landaði í morgun 1200
tunnum. Sólfari hefur þegar tek-
ið þors'kanet u-m borð. — Oddur.
Varðarbingó
Á Varðarbingóinu á Akureyrl
sunnudaginn 13. þ.m. verða vinn-
ingar eftir eigin vali: hjónarúm
með dýnum, raðhúsgagnasett,
svefnsófi, innskotsborð, Hansa-
skrifiborð með uppistöðum o.fl.
Allir vinningar eru frá Val'björk
h.f. og eru til sýnis í Hafnar-
stræti 105. Forsala aðgöngumiða
er á skrifstofu Sjálfstæðisflokks
ins kl. 2—3 sama dag — Vörður.
Kjósarsýsia
AÐALFUNDUR F.U.S. í Kjósar-
! sýslu verður haldinn að Hlé-
garði mánudaginn 14. febrúar ki.
9 e.h.
Dagskrá: Venjuieg aðaifundar-
störf. Axel Jónsson alþingismað-
ur mætir á fundinum.
Allir félagsmenn eru hvattir
til að sækja fundinn og taka með
sér nýja félaga.
Saigon: —
Kólera hefur komið upp í Saig-
on og 60 manns tekið veikina í
fyrri mánuði, að því er félags-
málaráðuneyti S-Vietnam skýrði
frá í dag. Enginn hefur látizt
af veikinni.
YFIR Grænlandshafi var í
gær lægð, og vestur og SV af
Grænlandi var fallandi loft-
vog. Við suður- og vestur-
ströndina var þá heldur mild-
ara loft en áður, komið austan
og suðaustan af hafi. Fylgdi
því nokkur snjókoma á Reykja
nesskaga og í Borgarfirði í
fyrrinótt, svo menn vöknuðu
við það, að kominn var um
10 cm djúpur snjór. — Frostið
var víða hart á Norðurlandi,
15 stig á Akureyri og 17 stig
á Hveravöllum.