Morgunblaðið - 12.02.1966, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 12. febrúar 1966
Frétta-
myndir
úr ýmsum
áttum
París. — Myndin sýnir gervihnött þann, af gerðinni DA-1, sem
Frakkar skjóta á loft frá Hammaguir í þessari viku. Efst á
hnettinum sjást fletir þeir, sem safna sólarorku, sem knýja á
senditæki. — AP.
Páfagarði. — Páll páfi VI. flutti ræðu í St. Péturskirkjunni
snemma í þessari viku, þar sem hann beindi þeim tilmælum til
leiðtoga víða um heim, að þeir beiti sér fyrir friðsamlegri lausn
á Víetnamdeilunni. — AP.
Selwyn Lloyd (t.v.), talsmaður brezka íhaldsflokksins í málefnum Afríku, hefur að undanförnu
'dvalizt í Ródesíu, þar sem hann hefur átt viðræður við Ian Smith (t.h.), forsætisráðherra. — AP.
síÍW
Berlín. — Austur-þýzkir landamæraverðir rjúfa gaddavírsgirðingu til þess að komast að líki
manns, sem skotinn var til bana á flótta um síðustu helgi .Líkið liggur milli tvöfaldrar girðingar
(hvítur hringur) — AP.
París. — Nýlokið er í París viðræðum Ludwigs Erhards, kanzl-
ara Vestur-Þýzkalands, og de Gaulles, Frakklandsforseta. —
Ræddu þeir samstarf ríkjanna tveggja. — Myndin var tekin í
Elysée-höllinni. — AP.
Johnson, Bandaríkjaforseti (t.h.), ræðir við Hubert Humphrey, varaforseta (t.v.), og aðra hátt-
setta bandaríska embættismenn, að loknum fundi í Honolulu um Víetnam. Myndin var tekin um
borð í einkaflugvél forsetans. — AP.