Morgunblaðið - 12.02.1966, Qupperneq 23
Laugardagur 12. febrúar 1966
MORCU NBÍAÐIÐ
23
IVÍerkjasíiSu'
dagur
KvenféEðgs
Laugarnes-
sóknar
ANNAR sunnudagur í febrúar
(hefur um langt skeið verið hinn
íasti merkjasöludagur Kven-
tfélags Laugarnessóknar.
I>að eru ef til vill imargir orðn-
ir hálf þreyttir á 'hinum mörgu
merkjasöiludögum í okkar kæru
■borg. En það verður að meta
Ihvert mál eftir þvd hver tilgang-
urinn er og hvað fyrir vakir —
og vissulega hafa safnaðarkven-
félögin hér í bænum vakið bæði
virðingu og velvild með öllu
eína ötuia og áhugaríka starfi.
Kvenfélag Laugarnessóknar
Ihefir það sérstaklega í hyggju
nú að auka starf sitt fyrir aldrað
fólk, einkum einstæðinga — jafn-
vel koimia á einhverri reglubund-
inni þjónustu við það, ef verða
tná.
Pótaaðgerðarþjónustan, - . sem
fyrir milligöngu Gísla Sigur-
björnssonar forstjóra, hefir und-
anfarið farið fram innan vé-
banda þess, hefir tendrað alveg
nýjan áhuga fyrir aukinni þjón-
ustu við gamla fólkið.
Öll slík starfsemi krefst fjár-
útláta, og því er það einlæg ósk
kvennana að sóknarfólkið taki
merkjasölubörnunum vel á morg
un þegar þau 'knýja dyra.
Garðar Svavarsson.
— Réttarhöldin
Framhald af bls. 1.
um til að sjá, hvers þeir þörfnuð-
ust.
Síðan segir Izvestija, að réttur-
inn hafi fengið að heyra sömu,
gömlu slagorðin um „rétt lista-
mannsins til þess að láta í ljós
skoðanir sínar“, „bókmenntaleg-
ar hefðir“, „listrænar ýkjur“ og
svo framvegis. Hafi Sinyavski
reynt með málalengingum að
skjóta sér undan beinum spurn-
ingum og báðir rithöfundarnir
hafi með málalengingum sínum
sannað, að þeir séu sér greinilega
meðvitandi um sekt sína, en reyni
að sprikla í því neti, sem þeir
hafi verið veiddir í, rétt eíns og
hverjir aðrir afbrotamenn. Hafi
Sinyavski stöðugt neitað að verk
hans væru pólitísk og sagt þau
einungis skáldlegs eðlis.
Blaðið segir, að tilgangur rétt-
arhaldanna sé að kanna hversu
mikil sé sekt þeirra Sinyavskis
og Daniels, en þeir eiga á hættu
sjö ára fangelsi og fimm ára út-
iegð að fangavist lokinni. Talið
er, að réttarhöldin muni standa
fram á mánudag eða þriðjudag.
í gær og í dag stóðu yfirheyrslur
í átta klukkstundir með einnar
klukkustundar matarhléi.
Fyrir utan réttarsalinn, sem er
í húsi við litla og fáfarna götu
í Moskvu, höfðu í dag safnazt
saman nokkrir tugir aðdáenda
hinna ákærðu. Kom þar til á-
kafra umræðna milli þeirra og
ungkommúnista — úr Komsomol,
um hinar ýmsu hliðar málsins.
Erlendir fréttamenn, sem þangað
komu voru greinilega litlir au-
fúsugestir — heyrðist víða muldr
að, að þeir væru njósnarar, sem
gerðu betur í að hverfa á brott
og nokkrir herskáir, ungir menn
hótuðu fréttamönnum hörðu, >f
þeir ekki hypjuðu sig.
— Bát
Framhald af bls. 24
von okkar Eyrbekkinga, að fáist
álíka fjármagn til framkvæmd-
anna sem á síðasta ári, þá megi
lengja hafnargarðinn svo, að
verulegt skjól verði í höfninni
hverju sem á gengur. Mun vera
hér sæmileg aðstaða til að gera
höfn fyrir allt að 300 tonna báta.
— Domingo
Framh. af bls. 1.
menn verkfallsins krafizt þess,
að yfirmenn hersins verði látnir
víkja úr embættum.
U Thant sagði, að ekki væri
um að villast, að lögreglan í
Santo Domingo væri ábyrg vegna
lífláts stúdentanna. Voru tildrög
þess með þeim hætti, að sögn
U Thants, að um það bil þúsund
stúdentar höfðu komið saman
úti fyrir þinghúsinu til þess að
lýsa stuðningi við nefnd stúd-
enta, er sat að fundi með Hector
Garcia-Godoy, forseta, og ræddi
við hann fjármál háskólans í
Santo Domingo. Nokkur ólga var
með stúdentunum og þegar einn
þeirra gerði sig líklegan til að
fara að halda ræðu, skaut lög-
reglan á hópinn. Tveir stúd-
entar féllu og tólf særðust. At-
burður þessi leiddi aftur til upp
þots óbreyttra borgara víðsveg-
ar í Santo Domingo, var ráðist á
bíla og gangandi fólk og alls-
herjar upplausnarástand varð í
borginni um tíma.
Síðan hefur ástandið verið
slæmt — skot mátti heyra enn í
dag — þriðja daginn í röð og
fóik reyndi eftir megni að halda
sig innan dyra.
Haft var eftir Garcia Godoy
fyrr í dag, að ólguna væri þó
heldur að lægja og hefði drýgst-
an þátt í því átt sú ákvörðun hins
hægrisinnaða herforingja, Franc-
isco Caminero, að fara úr landi
um hríð. Mun hið slæma ástand
í landinu nú einkum eiga rót að
rekja til fjandskapar milli helztu
herforingja landsins — en nokkr
ir þeirra eru þegar farnir úr
landi — hafa verið skipaðir
sendimenn lands síns erlendis.
□-----------------□
Síðustu fréttir:
í NTB-frétt í gærkveldi
sagði, að síma- og loft-
skeytasambandi við Santo
Domingo hefði verið slitið
og flugvelli borgarinnar
lokað.
□-----------------n
— Stúdentum
Framhald af bls. 24.
raunum til byggingar Kínamúrs
eða Berlínarmúrs um þessi þjóð-
legu verðmæti.
Þeir líta svo á, að með eflingu
íslenzka sjónvarpsins og yfirtöku
þess á ýmsum aðkeyptum dag-
skrárliðum, sem m.a. eru sýndir
í Keflavíkursjónvarpinu, svo og
með tilkomu ýmissra annarra er-
lendra dagskrárliða, þá hallist
menn sjálfkrafa að hinu íslenzka
sjónvarpi á sama hátt og raun
hefur orðið á um íslenzka útvarp
ið með fullkomnun dagskrár þess
til mótvægis við Keflavíkurút-
varpið.
Sé það hinsvegar álit háttvirts
Alþingis, að takmarka beri sjón-
varpssendingar frá Keflavík, þá
er það krafa Félags sjónvarps-
áhugamanna að þær takmarkan-
ir verði ekki framkvæmdar fyrr
en fullur reynslutími er kominn
á íslenzka sjónvarpið og það hef-
ur fengið hæfilegan aðiögunar-
tíma við íslenzkar aðstæður og
yfirfærslu erlends efnis og hef-
ur m.a. tryggt sér beztu dagskrár
liði þá er fluttir eru í Keflavíkur
sjónvarpinu.
Félagið hvikar þó í engu frá
meginsjónarmiði sínu, heldur vill
það viðurkenna samkeppnismögu
leika hins íslenzka sjónvarps og
vitnar í því efni til laga félags-
ins. Það telur sem fyrr freklega
gengið á íslenzkan borgararétt sé
landsmönnum meinað að njóta
sendinga fjölmiðlunartækja hvað
an svo sem þær koma“.
Þannig hljóðar ávarp Félags
sjónvarpsáhugamanna. Félagið
fer fram á að á undirskriftalista
skrifi aðeins þeir sem eru orðnir
18 ára eða eldri. Einnig er þess
óskað að undirskriftalistum sé
skilað fyrir febrúarlok til stjórn-
ar félagsins eða í Box 1049.
— Hætt við
Framhald af bls. 2
en þá neitaði konungur áð taka
lausnarbeiðnina til greina.
Nú var svo komið hinsvegar, að
tólf ráðherrar Sósíaiistaflokks-
ins höfðu sagt af sér vegna á-
greiningsins um læknadeiluna.
Vildu þeir þannig mótmæia and-
stöðu lækna landsins gegn því,
að komið verði á sjúkratrygging-
um ríkisins og kröfum þeirra um,
að hætt verði að veita sjúklingum
ókeypis læknishjálp . í þeim
sjúkrahúsum, sem það nú gera
— en Sósíalistaflokkurinn rekur
sjö slík sjúkrahús. Ætlaði stjórn-
in að koma á slíkri skipan á veg-
um ríkisins, en læknar landsins
— 9000 talsins — boðuðu verk-
fall til þess að koma í veg fyrir
það. Voru ráðherrar Kristilegra
demókrata reiðubúnir að láta
undan kröfum þeirra til þess að
koma í veg fyrir verkfall — en
Sósíalistar ekki.
Margt bendir til þess, að fram-
undan sé langvarandi stjórnar-
kreppa. Blöðin í Belgíu eru flest
sammála um, að stjórnmálaástand
ið í landinu hafi. sjaldan verið
erfiðara og flóknara en nú og
muni að öllum líkindum reynast
erfitt að finna grundvöll fyrir
myndun nýrrar stjórnar.
Eru stjórnmálafréttaritarar
þeirrar skoðunar, að ný stjórn,
hvernig sem hún verður skipuð,
verði að gera róttækar breytingar
á ýmsum málum landsins, eigi
hún að hafa nokkra von um langa
lífdaga.
Hið óháða blað „Le Soir“ í
Brússel skrifar í kvöld, að lækna
Háskólafyrir-
fyrirlestur
ANDRI ísaksson sálfræðingur
fiytur tvo fyrirlestra í boði
Háskólans um efnið:
„Aðferðir og vinnuhagræðing
í námi“.
Fyrri fyrirlesturinn verður
haldinn mánudag 14. febrúar
kl. 5.15, en síðari fyrirlesturinn
fimmtudag 17. febrúar kl. 5.15.
Báðir fyrirlestrarnir verða
haldnir í I. kennslustofu.
Fyrirlestrar þessir eru ætlaðir
fyrir háskólastúdenta almennt,
og ekki sízt fyrir þá, sem eru
að hefja háskólanám sitt. Fyrir-
lesarinn mun svara spurninguim,
er varða fyrirlestrarefnið.
Sérstök athygli háskólastúd-
enta er vakin á þessum fyrir-
lestrum, og er þe-ss vænzt, að
fyrirlestrarnir verði vel sóttir.
Renaultbíllinn, sem lenti í hörðu m árekstri við jeppabil á gatna-
mótum Laugavegs og Höfðatúns í fyrrakvöld, eins og skýrt var
frá hér í blaðinu í gær. Snerist bíllinn við og kastaðist önnur
konan út. Sú, sem var undir stýri skrámaðist í andliti. Báðar fengu
að- fara heim að lokinni aðgerð í Slysavarðstofunni.
deilan hljóti að vera yfirvarp —
dýpri orsakir hljóti að liggja að
baki stjórnarkreppunni. Blaðið
fordæmir afskipti læknanna af
málum ríkisins og segir afstöðu
þeirra í sjúkratryggingamálinu
óþolandi.
Verkfallshótun lækna stendur
enn— en ekki er ákveðið hve-
nær til þess kemur.
Sem fyrr segir ræddi konung-
ur þegar í dag við forseta þing-
deildanna, þá Paul Struyte, for-
seta öldungadeildarinnar, og Ach-
ille Van Acker, forseta fulltrúa-
deildarinnar. Er talið að hann
muni byrja með því að fela Van
Acker að kanna möguleikana á
stjórnarmyndun með þátttöku
hinna ýmsu stjórnmálaflokka.
Á miðvikudagsnótt var mölbrotin
afturrúða í Fiat-fólksibíl, þar sem
hann stóð bak við húsið að Lang-
holtsiveg 128. Hefur verið reynt
að afla upplýsingá um rúðu-
brotið í nágrenninu, en það eikki
tekizt. Rannsóknarlögreglan bið-
ur allá 'þá, sem gætu gefið ein-
hverjar upplýsingar um rúðu-
brot þetta, að gefa sig fram.
Reks trareftirl i t
Loftleiðir h.f. óska að ráða í þjónustu sína starfs-
mann til að annast rekstrareftirlit með ýmsum þátt
um starfsemi félagsins innanlands og utan.
Umsækjendur skulu hafa fullkomna bókhaldsþekk-
ingu og vera færir urn að vinna sjálfstætt að eftir-
iitinu og helzt hafa tekið próf í einhverri eftirtalinna
greina:
ENDURSKOÐUN
LÖGFRÆÐI
REKSTRARHAGFRÆÐI
VIÐSKIPTAFRÆÐi
eða liafi aðra samhærilega menntun eða reynslu á
sviði rekstrareftirlits, endurskoðunar og fjármála-
eftirlits.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu félagsins, Lækj-
argötu 2 og aðalskrifstofunni, Reykjavíkurflugvelli.
Umsóknir skulu hafa horizt ráðningarstjóra félags-
ins fyrir 1. marz nk.
mmiDiR
Flóabáturinn Akraborg er til sölu. Skipið er nýklassað, um-
gengni prýðileg. — Upplýsingar um verð og skilmála hjá
Skipa og Vélaeftirlitinu, Ægisgötu 10, Gísli Jónsson
Símar 2-40-40 og 1-17-46.