Morgunblaðið - 15.02.1966, Blaðsíða 1
28 síður
53. árgamgar.
37. tW. —* IÞriiffijujiilagujr 1.5. fdbruiar 1966
PrentsinúfSja MorgunWaðsins.
mdir 17
Mos'kvu, 14. februar.
— (AP-NTB) —
I D A G voru upp kveðnir í
Moskvu dómar í málutn sov-
ézku rithöfundanna Andrei
D. Sinyavsky og Yuli M.
Daniel, en rithöfundarnir
voru dregnir fyrir dómstóla
Kakaðir um að hafa gefið út
bækur erlendis undir dul-
nefnum. Sinyavsky var dæmd
nur til sjö ára þrælkunar-
vinnu, og er það hámarksrefs-
ing að sovézkum lögum, en
Daniel hlaut fimm ára þrælk-
utnarvinnu. Kröfu sækjand-
®ns í málinu um að Sinyavsky
fengi einnig fimm ára útlegð-
ardóm og Daniel þriggja ára
wtlegðardóm auk nauðungar-
vinnunnar, var ekki tekin til
greina. Bithöfundarnir voru
dæmdir eftir grein í sovézku
hegningarlögunum, sem tek-
ur til andstæðinga kommún-
istastjórnarinnar innan Sovét
ríkjanna, en í grein þessari er
ckki minnst orði á hókaút-
gáfu erlendis. Hinsvegar taldi
forseti dómsins, Lev N. Smir-
nov, að hér væri um ótvírætt
sakamál að ræða. Vörn rit-
höfundanna hafði byggzt eink
um á því, að þeir töldu bækur
eínar ópólitískt ritverk.
í sovézku réttarfari eru kvið-
dómar óþekkt fyrirbrigði. I>rír
dómarar skipuðu dóminn, forseti
dómsins og tveir meðdómendur
úr hópi leikmanna. Er dómur er
upp kveðinn, fyigir honum löng,
bandskrifuð greinargerð um
rriáJið allt. Tekur því verulegan
tíma að kveða upp dóm, enda
þótt dómararnir kunni ekki að
vera i neinum vafa um hvaða
dóm þeir hyggist kveða upp.
Það tók tvær klukkustundir að
lesa upp greinargerðina og dóm-
inn í dag, en alls þinguðu dóm-
erarnir i 5% klst. áður en þeir
ikváðu upp dóminn.
Fréttastofan Tass sagði í dag,
eð Daniel hefði loks í morgun
viðurkennt að hann hefði „óaf-
vitandi gefið óvinum vorum
tækifæri til þess að ráðast á land
vort“ með því að notfæra sér rit-
verk hans.
Rétturinn komst að þeirri nið-
urst.öðu að rithöfundai'nir tveir
hefðu svert Sovétríkin í bókum
þeim, sem smyglað var til Vest-
■urlanda, og voru þar gefnar út
með höfundarnöfnunum Abram
Tertz og Nikolai Arshak.
Sovézkir borgarar, sem við-
etaddir voru réttarhöldin, urðu
iyrstir til að greina frá dómin-
úm, er þeir komu út úr réttar-
salnum í dag. Nokkrum mínútum
siðar kom staðfesting frá Tass.
Engir erlendir biaðamenn, ekki
einu sinni frá kommúnistaríkj-
unum, íéngu aðgang að réttar-
ihöldunum. Var það hæstiiéttur
Frantntiald á bls. 27
____ sýoo, oð valcfhafarmr 'c Kreml hafa
mótmælaöiduna vegna málsins á sig fá
„Réttur er settur.“ Hér standa þeir í sakborningastúkunni Yuli Daniel (t.v.) og Andrei Sin-
yavsky (Abram Tertz). Verjandi þeirra er að ræða við þá.
WCosygín tll
Svíþjóðar
Stokkbólmi, 14. feb. — NTB
Sænska utanríkisráðuneytið
tilkynntí í dag, að Alevei
Kosygin, forsætisráðherra
Sovétrikjanna, muni koma í
opinbera heimsókn til Sví-
þjóðar í byrjun júlímánað-
ár. Tage Erlander, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, bauð Kos
ygjn að heimsækja Svíþjóð
er sá fyrrrnefndi var í heim-
sókn í Sovétríkjunum í júní
í fyrra.
Þá skýrði danska utanrik-
isráðuneytið frá því í dag,
að Kosygin hafi verið boðið
að heimsækja Danmörku.
Honum hefur ejnnig verið
boðið að sækja heim Noreg
og Finnland, en ekki er vlt-
að hvenær af þeim heim-
sóknum kann að verða. —
Heimsókn Kosygins til Sví-
þjóðar verður fyrsta opin-
bera heimsókn hans til Vest-
urianda eftir að hann tók við
embætti forsætisráðherra Sov
étríkjanna af Krúsjeff fölln-
um.
Valery Tarsís:
i
FLETT OFAN AF
FASISTAEÐLINU
r **
Akærurnar gegn rithöfundunum
#
falsaÓar frá rótum
London, 14. febrúar.
— (NTB-AP) —
SOVÉZKI rithöfumlurínn
Valery Tarsis, sem nú er
staddur í Bretlandi, sagði f
kvöld að dómarnir yfir rit-
höfundunum Andrei Siny-
avsky og Yuli Daniel væru
ómannúðlegir. Tarsis sagði,
að hér væri um að ræða til-
raun af hálfu sovézkra yf-
irvalda til þess að snúa aft-
ur til stalínistískra gjör-
ræðisaðferða. Hann bætti
því við, að dómarnir yfir
rithöfundunum flettu ofan
af hinu fasisíska eðli Sovét
stjórnarinnar. Tarsis sagði,
að Sinyavsky og Daniel
hefðu engin sovézk lög
brotið, og að ókærurnar
gegn þeim hefðu verið fals
aðar frá rótum.
Frh. á bls. 27
Valery Tarsjs
afturhvarf til Slalíns
Vlet Cong drepa
54 verkamenn
Komu fyrir jarðsprengjum
við hrisgrjánaakur
Saigon, 14. feþ. — NTB —
Samtals biðu 54 óbreyttir
borgarar S-Vietnam bana, svo og
nokkur fjöldi bandarískra her-
manna, er jarðsprengjur sprungu
í vegi einum í strandhéraðinu
Phu Yen í dag. Höfðu Viet Cong
kommúnistar komið jarðsprengj
um þessum fyrir. Þær sprungu
er langferðavagn þéttsetinn
landbúnaðarverkamönnum, vöru
bíll og mótorhjól óku eftir veg-
inum.
Sprengingar þessar áttu sér
stað á svæði, sem mikið lið
bandarískra og s-koreanskra her
manna gætir. Er liði þessu ætl-
að að vernda bændur og verka-
menn við rísuppskeruna.
Til þessa dags hefur 27,100
tonnum af rísuppskerunni ver-
ið komið í hús. Hafa hermennirn
ir, sem gæta háraðsins, fram til
þessa lítið haft af Viet Cong
kommúnistum að segja.
Upplýst er í Saigon, að skæru-
liðar kommúnista hafi aukið
mjög aðgerðir sínar í óshólm-
um Mekongfljótsins síðustu
dagana.
í Phon Dinh-héraði 140 km.
SV af Saigon, hafa skæruliðar
gert áhlaup á sex stöðvar stjórn
arhermanna á einum sólarhring.
3,500 heímiSís-
lausir
Casablanea 14. feb. — NTB —
Um 3,500 manns misstu heim-
ili sin í stórbruna, sem varð í
Casablanca á lauigardagskvöld.
Um 600 hús brunnu til ösku í
eldsvoða þessum, en engan mann
sakaði.
Bandarískar þotur gerðu í dag á
rás á þjóðvegi í Mu Ghia fjalla-
skarðinu skammt frá landamær-
um N-Vietnam og Laos. Uá
vörpuðu aðrar flugvélar sprengj
um úr mikilh hæð á brýr og
farartæki sunnan bæjarins Vinh,
260 km. sunnan Hanoi.
Talsmaður Bandaríkjahers
sagði í Saigon í dag, að fjórar
árásir hefðu verið gerðar í sl.
viku á herflugvöll N-Vietnam
við Dien Bien Phu, og væri flug-
völlurinn nú ónothæfur.
Dollarakerfi
Sidney 14. feb. — NTB —
í dag var opinberlega upp
tekið dollaramyntkerfi í Ástra-
líu, og jafnframt var sterlings-
pundið lagt niður, sem gjald-
miðill. Hver Ástralíudollar er
um 49 ísl. kr. að verðmæti.
Gefnir hafa verið út seðlar að
upphæð einn. tveir, fimm, tíu,
20 og 50 dollarar, og mynit í ein-
ingum eitt, tvö, fimm, tíu, 20 og
50 eent. Innlausn sterlingspunda
og myntbreytingin í Ástralíu
bafa gengið fyrir sig snurðu-
laust.
ii