Morgunblaðið - 15.02.1966, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 15. feb'rúar 196ð
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 95.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
RÖKÞROT
|>æða sú, sem iðnaðarmála-
ráðherra, Jóhann Hafstein,
flutti á fundi iðnrekenda fyrir
nokkru, og birt var að hluta
í Morgunbl. fyrir skömmu,
hefur vakið verðskuldaða at-
hygli. Málefni iðnaðarins hafa
mjög verið til umræðu að
undanförnu, og stjórnarand-
stæðingar tekið sér fyrir hend
ur að breiða út þann áróður,
að íslenzkur iðnaður sé mjög
á fallanda fæti fyrir tilverkn-
að stjórnarvaldanna. í ræðu
sinni hrakti Jóhann Hafstein
rækilega allar fullyrðingar
stjórnarandstæðinga um þessi
mál, og gerði ítarlega grein
fyrir öflugum aðgerðum ríkis
stjórnarinnar til stuðnings og
eflingar iðnaði á íslandi.
Greinilegt er nú, að stjórn-
arandstæðingar eru gjörsam-
lega rökþrota. Málgagni Fram
sóknarflokksins hefur brugð-
ið heldur ónotalega við, og
birtir nú forustugreinar tvo
daga í röð um ræðu iðnaðar-
málaráðherra. En þessar for-
ustugreinar eru einmitt ótví-
ræð sönnun þess, að Fram-
sóknarmenn standa uppi al-
gjörlega rökþrota í þessu
máli. í skrifum þeirra örlar
hvergi á málefnalegum rök-
um, og engin tilraun er gerð
til þess að draga í efa sann-
leiksgildi þess, sem Jóhann
Hafstein sagði í ræðu sinni
hjá iðnrekendum. I þess stað
er beitt gífuryrðum og full-
yrðingum, sem augljóslega
sýna slæman málstað .
En úr því að málgagn Fram
sóknarmanna hefur séð á-
stæðu til þess að gera iðnaðar
mál að umtalsefni, og þá sér-
staklega ræðu iðnaðarmála-
ráðherra, er tilefni til að
beina nokkrum fyrirspurnum
til þessa blaðs. Það hefur
lengi haldið því fram, að iðn-
aðurinn ætti við vaxandi láns
fjárskort að búa umfram aðr-
ar atvínnugreinar. Jóhann
Hafstein gerði rækilega grein
fyrir því í ræðu sinni, hversu
mikil bylting hefur orðið í
lánamálum iðnaðarins. Vill
málgagn Framsóknarflokks-
ins vefengja þær upplýsingar
um lánamál iðnaðarins, sem
fram komu í ræðu Jóhanns?
Þá hafa Framsóknarmenn
einnig haldið því fram, að vax
andi innflutningsfrelsi og
lækkaðir tollar hafi valdið
iðnaðinum miklum erfiðleik-
um. Jóhann Hafstein ræddi
þessa hlið málanna mjög ítar
lega. Vill málgagn Framsókn-
arflokksins vefengja þau um-
mæli, sem þar koma fram? í
ræðu sinni gerði Jóhann Haf-
stein ennfremur ítarlega
grein fyrir aukinni rannsókn-
arstarfsemi iðnaðarins, stuðn
ingi við skipasmíðastöðvar og
eflingu þeirra og margvíslegs
annars iðnaðar. Er Tíminn
reiðubúiinn til þess að ve-
fengja eitthvað af þeim upp-
lýsingum, sem fram komu í
ræðu ráðherrans í þessu efni?
Það er vissulega full ástæða
til, að Framsóknarmenn svari
þessum spurningum, því að
ekki gagnar fyrir þá að ræða
þessi mál með stóryrðum og
gífuryrðum einum saman. Ef
þeir vilja að rætt sé við þá
á alvarlegum málefnagrund-
velli, verða þeir að beita mál-
efnalegum rökum, en ekki
órökstuddum fullyrðingum.
Nú er bezt, að Framsóknar-
menn geri hreint fyrir sínum
dyrum og leggi spilin á borð-
ið. Hver eru málefnaleg rök
þeirra fyrir þeirri fullyrðingu
að ríkisstjórnin hafi tekið iðn
aðinn „kverkatökum“?
VÖRÐUR
40 ÁRA
i^jíðastliðinn sunnudag efndi
Landsmálafélagið Vörður
til myndarlegrar afmælishá-
tíðar í tilefni 40 ára afmælis
félagsins, og einnig er gefið
út glæsilegt afmælisrit af því
tilefni.
Landsmálafélagið Vörður
hefur jafnan verið ein styrk-
asta stoð Sjálfstæðisflokksins.
Á vettvangi Varðar hafa for-
ustumenn Sjálfstæðisflokks-
ins haft tækifæri til þess að
gera almenningi í landinu
grein fyrir ýmsum mikilvæg-
ustu viðburðum í málefnum
íslenzkrar þjóðar. Saga Varð-
arfélagsins er því samtvinnuð
mörgum hinum sögulegustu
atburðum í lífi og starfi þjóð-
ar okkar á síðastliðnum 40
árum. .
Vörður hefur jafnan verið
langstærsta og fjölmennasta
stjórnmálafélag á íslandi, og
úr röðum Varðarfélaga hafa
komið margir helztu trúnaðar
menn Sjálfstæðisflokksins á
Alþingi og í borgarstjórn. Nú,
þegar Vörður stendur á fert-
ugu, geta félagsmenn og for-
ustumenn hans, og raunar
Sjálfstæðismenn um land allt,
litið til baka yfir glæsilegan
starfstíma, og einmitt það
myndarlega starf, sem Vörður
á að baki, verður félagsmönn-
um hans og forustumönnum
hvatning til aukins og öflugra
starfs á komandi árum.
ÍHubert Humphrey, varaforseti Bandaríkjanna, kannar hér heiðursvörð úr her S-Victnam á£
flugvellinum í Saigon. Varaforsetinn er nú staddur í S-Vietnam til viðræðna við ieiðtogaZ
landsins og bandaríska herforingja. T
Rannsóknarstöi
til tunglsins
Næsta verkefni sovézkra vísindamanna
Moskvu, 10. febrúar (NTB).
SOVÉZKIR vísindamenn ræddu
í dag við fréttamenn í Moskvu
um rannsóknir á tumglinu. Kom
þar m.a. fram að fyrirhugað er
að koma til tunglsins rannsókn-
.arstöð, sem starfað getur um
iangt skeið að upplýsingasöfnun.
Einnig komu þar fram nýjar
upplýsingar um Luna-9, m.a.
þær, að tunglflaugin hafi flutzt
til skömmu áður en senditæki
hennar þögnuðu.
Það var Aleksandr Vinogradov
prófessor, sem skýrði frá næsta
áfanga í tunglrannsóknum. Sagði
hann að rannsóknarstöðin, sem
senda ætti til tunglsins, yrði
þannig úr garði gerð að hún gæti
sent stöðugan straum upplýsinga
til jarðar í langan tíma. Benti
hann á að Luna-9 tilraunin hafi
sýnt að yfirborð tunglsins gæti
hæglega borið mörg hundruð
kílóa rannsóknarstöð. „Það hefur
sýnt sig að óttinn um að næsti
nágranni jarðar væri þakinn
þykku ryklagi, sem gleypti öll
geimför, er með öllu ástæðulaus",
sagði Vinogradov.
Annar vísindamannanna, Aleks
andr Lebedinsky, prófessor,
skýrði frá því að Luna-9 hefði
færzt til á laugardag, skömmu
áður en tæki hnattarins urðu
óvirk. Hefðu sjónvarpsvélarnar
í hnettinum flutzt um marga
sentimetra. Taldi Lebedinsky
sennilegt að tunglflaugin hefði
ient á hæðarbrún og þessvegna
runnið til. En vegna flutnings
sjónvarpsvélanna, hefði vísinda-
mönnunum tekizt að fá nokkurs-
konar þrívíddarverkun í ljós-
myndirnar, sem sendar voru til
jarðar.
Lebedinsky prófessor kom á
fundinum fram með alveg nýjar
upplýsingar um sjálfa tunglflaug
ina, Luna-9. Sagði hann hnöttinn
sjálfan minni, en talið hafði ver-
ið, eða tæplega mannhæð. Og
sjónvarpsvélarnar kvað hann
hafa verð í aðeins 60 sentimetra
hæð frá yfirborði tunglsins, en
ekki 2—2,5 metra hæð, eins og
álitið var. Samkvæmt þessu hafi
vélarnar „séð“ yfir hálfan annan
kílómetra, en meðalstór maður
ætti að sjá tvo og hálfan kíló-
metra.
Forseti sovézku vísinda-akadem
íunnar, Mstislav Keldysh, svar-
aði nokkrum fyrirspurnum frétta
manna, og sagði m.a. að engar
sól-rafhlöður hafi verið í Luna-9.
Hann sagði að heildarþyngd
gervihnattarins, sem sendur var
til tunglsins, hafi verið um 1,5
tonn, en sjálfrar rannsóknar-
stöðvarinnar um 100 kíló.
Ungverskir fréttamenn báðu
um álit hans á kapphlaupi Banda
ríkjanna og Sovétríkjanna í
geimnum, og svaraði hann því til
að iþar ætti að ríkja samvinna,
ekki samkeppni.
Keldysh skýrði einnig frá því
að sovézku geimflaugarnar „Ven
us 11“ og „Venus 111“ héldu
áfram ferðinni til stjörnunnar, og
væri fylgzt með ferðum þeirra.
Verða flaugarnar væntanlega við
Venus um næstu mánaðamót. En
ekki er fyrirhugað að þær lendi
mjúklega á stjörnunni, eins og
Luna-9 á tunglinu. Keldysh
sagði að enn væru mörg erfið
vandamál, sem leysa þyrfti áður
en menn verða sendir til tungls-
ins. Og helztu vandamálin taldi
hann iþessi:
1) Hvernig á að koma geim-
farinu upp frá tunglinu?
2) Hvernig á að ná geimfarinu
inn í gufuhvolf jarðar’
3) Hvernig á að lenda á jörðu?
Keldysh sagði að samkvæmt
fyrirliggjandi upplýsingum ætti
ekkert að vera því til fyrirstöðu
að geimfarar störfuðu í lengri
tíma á tunglinu. En hann taldi
mjög erfitt að spá fyrir um það
hvenær menn yrðu sendir til
tunglsins. Þá sagði Keldysh að
lokum að vísindamanninum SergJ
ei Korolev, sem nýlega er látinn,
bæri mikill hluti heiðursins af
því að tilraunin með Luna-9
tókst svo giftusamlega.
Vinogradov prófessor bætti þvl
við að geimfarar gætu, við kom-
una til tunglsins, átt von á að
finna þar nýja og óþekkta
málma. Hann benti á að vísinda-
menn yrðu að fara varlega í það
að dæma allt yfirborð tunglsins
eftir myndum þeim, sem bárust
til jarðar frá Luna-9.
Rögnvalduir I
hðjómleikaför til
Rúmeníu
RÖGNVALDUR Sigurjónsson,
píanóleikari, fer í hljómleik.aför
til Rúmeníu í boði Ríkisstofnun-
ar rúmenskrar listaþjónustu
þann 21. febrúar n.k. Dvelst hanu
þar í 10 daga.
Rögnvaldur leikur tvö verk á
hljómleikana í Búkarest 28. febr.
og síðar í Cluj 5. og 6. marz og
í Sibiu 8. marz.
Rögnvallur leikur tvö verk á
þessum hljómleikum, píanókon-
sert í D-moll eftir Brahms og
píanókonsert eftir Chopin.
Hljómsveitarstjóri á Bukarest
hljómleikunum verður Per Drei-
er, sem er norskur.
Gert er ráð fyrir því, að síðar
á þessu ári fari Rögnvaldur í
hljómleikaför til Sovétríkjanna.
Milligöngu um þessa för Rögn-
valdar hefur Pétur Pétursson
haft.
Akranesi, 14. febrúar.
FIMMTIU fjórðubekkingar úr
Gagnfræðaskólanum ásamt tveim
kennurum, fara í náms- og kynn-
isför til Reykjavíkur í fyrramál-
ið. M.a. ætla þeir að skoða Ríkis-
útvarpið og sjá Ævintýri á göngu
för í Iðnó.
\ —Oddur,
i