Morgunblaðið - 05.05.1966, Page 2
MORCU N BLAÐIÐ
Fimmtudagur 5. maí 1966
9
Víðtækur klofningur í Framsókn
er frumvarpið um kísilgúrverk-
smiðju var afgreitt sem lög
— Fjórir þingmenn ílokksins greiddu
atkvæði með frumvarpinu
í GÆR var frumvarpið um
kísligúrverksmiðju við Mývatn
afgreitt sem lög frá Alþingi.
Við atkvæðagreiðslu í málinu
brutust enn fjórir þingmenn
Framsóknarflokksins undan
ílokksaga Eysteins Jónssonar
og greiddu atkvæði með frum-
varpinu. Voru það þeir Björn
Pálsson, Ingvar Gíslason, Hjört-
ur Eldjárn Þórarinnsson og Jón
Skaftason. Eins og kunnugt er
greiddi einn Efri deildar þing-
manna flokksins, Karl Krist-
jánsson, atkvæði með frumvarp-
inu.
Er frumvarpið kom til at-
kvæðagreiðslu eftir 2. umræðu
var fyrst borin undir atkvæði
frávísunartillaga frá 2. minni
hluta fjárhagsnefndar deildar-
innar, sem þeir Skúli Guðmunds
son og Kristján Thorlacius stóðu
aö. Var tillagan felld með 25 at-
kvæðum gegn 15 að viðhöfðu
nafnakalli. Þeir er felldu tillög-
una voru: Axel Jónsson, Bene-
dikt Gröndal, Birgir Finnsson,
Bjarni Benediktsson, Björn Páls-
son, Davíð Ólafsson, Emil Jóns-
son, Hjörtur Eldjárn Þórarinns-
son, Sigfús J. Johnsen, Gunnar
Gíslason, Gylfi Þ. Gíslason, Ing-
ólfur Jónsson, Ingvar Gíslason,
Jóhann Hafstein, Jón Skaftason,
Jónas Pétursson, Jónas G. Rafn-
ar, Matthías Bjarnason, Matthías
Á. Mathiesen, Óskar E. Eevý,
Pétur Sigurðsson, Unnar Stef-
ánsson, Sigurður Bjarnason,
Sigurður Ágústsson og Sverrir
Júlíusson. Þeir er samþykkja
vildu tillöguna voru: Ágúst Þor-
Framhald á bls. 8
BonnstjórnSn hvassyrt í
garð de Gaulle
Bonn, 4. maí — AP:
BONNSTJÓRNIN hefur sent
frönsku stjórninni orðsend-
ingu, þar sem lagt er til, að
þegar í stað verði teknar upp
samningaviðræður milli
Frakklands og annarra ríkja
Atlantshafsbandalagsins. —
Verði að fá úr því skorið,
hverju hlutverki franskar her
sveitir eigi að gegna í V-Þýzka
landi, er þær heyri ekki leng
ur undir sameiginlega her-
stjórn Atlantshafsbandalagsins
(frá og með 1. júlí).
Er orðsending v-þýzku
stjórnarinnar harðorð, og er
þar vakið máls á ýmsum
spurningum um, að hve miklu
leyti 14 ríki Atlantshafsbanda
lagsins geti treyst á samstöðu
Frakklands við þau, í styrjöld
og friði.
Er því lýst yfir, að því að-
eins komi til greina, að fransk
ar hersveitir verði í V-Þýzka
landi eftir 1. júlí, að fyrir
þann tíma náist samkomulag
um hlutverk þessara sveita,
með hliðsjón af varnarhlut-
verki herja bandalagsins.
Síðar í dag lýsti upplýsinga
málaráðherra frönsku stjórn-
arinnar, Yvon Bourges, því yf
ir, að dvöl franskra hersveita
í V-Þýzkalandi yrði hagað í
samræmi við þá ákvörðun
Frakklandsforseta að slíta
varnarsamstarfi við ríki At-
lantshafsbandalagsins. Frakk-
ar hafi ekkert á móti því, að
hersveitir þeirra verði áfram í
V-Þýzkalandi, en óski heldur
ekki sérstaklega eftir því.
Bílar á kjördegi I
ÞEIR stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem lána vilja I
t flokknum bifreiðar sinar á kjördegi 22. maí eru beðnir að |
1 hafa samband við skrifstofu bílanefndar í Valhöll. j
7 Skrifstofan er opin daglega frá kl. 13—19 alla virka j
; daga. Siniar 15411 og 17103.
' Stjórn bílanefndar Sjálfstæðisflokksins. !
i .i
Leiga Laxár á Ásum
lækkar um 175 þús. kr.
NÝIJEGA var lýst eftir tilboðum
í Laxá á Ásum, en hún var í fyrra
dýrasta laxá landsins, leigð á
675.000 kr., og kostaði því stöng-
in yfir daginn í ánni kr. 3.500.
Aðeins eitt tilboð barst nú í
ána, og var það frá Stangaveiði
félagi Hafnarfjarðar að upphæð
kr. 480.000. Þótti eigendum árinn
ar það of lágt, og var í ráði að
bjóða ána aftur út, er tilboð barst
frá þeim aðilum, sem höfðu ána
í fyrrasumar, og var það tilboð
20 þúsund krónum hærra en til-
boð Stangaveiðifélags Hafnar-
fjarðar. Var því tilboði tekið.
Laxá á Ásum brást mjög í
fyrrasumar, en þá fengust að-
eins um 450 laxar upp úr ánni,
Sumarið þar áður komu 1400 lax
ar upp úr ánni, og var Laxá mjög
Nafn misritast
ÞAU MISTÖK urðu í sambandi
við frétt um stjórnarkjör í Slysa
varnafélagi íslands, að nafn Sæ
mundar Auðunssonar, sem átti að
ganga úr stjórn félagsins, misrit
aðist. Var hann sagður heita Auð
unn Sæmundsson. Biður blaðið
velvirðingar á þessum mistök-
um.
vaxandi veiðiá allt fram til þess
að veiðin brást í fyrra. Telja
menn að hafísinn fyrir Norður-
landi í fyrravetur, hefði valdið
því, hve veiðin brást í ánni sl.
sumar.
Sýnir kvikmynd
um sauðnautarækt
í GÆR sagði prófessor John L».
Teal frá Alaskaháskóla, frá sauð
nautarækt og sýndi kvikmynd í
hádegisverðarboði, sem íslenzk-
ameríska félagið gekkst fyrir í
Þjóðleikhússkjallaranum, og var
þar fjölmenni. Meðal þeirra sem
sátu hádegisverðinn, voru forseti
íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson
og Ingólfur Jónsson, landbúnað
arráðherra. Var máli prófessors
ins og kvikmyndinni mjög vel
tekið.
f kvöld, fimmtudagskvöld, kl.
21,30 sýnir prófessor Teal aðra
kvikmynd um ræktun sauðnauta
föngun þeirra í óbyggðum o. fl.,
í húsakynnum Ameríska bóka-
safnsins við Hagatorg. Sýning
myndanna tekur um eina klukku
stund. Öllum er heimill aðgangur
meðan húsrúm leyfir.
Þjóivegir flestir
vegna aurbleytu
5 tonna hámarksþungi settur
á allmarga vegi
Deildarfundum lokið
MBL. hafði í gær samband
við Vegamáiaskrifstofuna og
spurðist fyrir um færðina á
vegum landsins. Fékk blaðið
þær upplýsingar að flestir þjóð-
vegir landsins væru mjög ill-
færir vegna anrbleytu.
Vegir í uppsveitum Árnes-
sýslu munu vera mjög erfiðir
yfirferðar, og þegar kemur í
Rangárvallasýslu hefur verið
settur hámarksþungi á bifreiðar
SUMARBÚSTAÐAEIGENDUR
við Meðalfellsvatn hafa nú end-
urleigt veiðileyfin í vatninu af
Piltarnir með-
~ vitundarlausir
ER MBL. hafði samband við
sjúkrahúsið í Keflavík í gær-
kvöldi, og spurðist fyrir líðan
piltanna tveggja, sem slösuðust
mikið í bifreiðaslysi í Keflavík
sl. sunnudag fékk blaðið þau
svör, að líðan þeirra væri mjög
svipuð og verið hefur, og voru
þeir báðir þá enn rænulausir.
sem þar fara um, og mega bif-
reiðarnar ekki vera þyngri en
fimm tonn. Er þetta ástand svo
áfram austur um sveitir.
Vegurinn um Hvalfjörð er
mjög blautur, en skárra ástand
er í Borgarfirði, nema að í Norð
urárdal eru víða að myndast
hvörf í veginn. Á Snæfellsnesi
er Fróðárheiðin illfær vegna
aurbleytu, og það sama er að
segja um veginn á norðanverðu
Stangaveiðifélagi Reykjavíkur,
sem hefur haft með veiðileyfi í
vatninu að gera mörg undanfar-
in sumur. Er leigan 120 þúsund
krónur. Stangaveiðifélagið hef-
ur þó með veiðileyfi í Bugðu og
Laxá í Kjós að gera, sem áður.
Er fyrirkomulagið við úthlutun
veiðileyfanna í vatninu þannig,
að tölu eigenda og umráðamanna
sumarbústaðanna við vatnið er
deilt í hinn ákveðna stanga-
fjölda, sem leyfður er í vatninu,
og fær því hver sumarbústaða-
eingandi ákveðinn fjölda stanga
til umráða. Getur hann síðan
ráðskazt með veiðileyfi sín eins
og hann vill, svo framarlega sem
það telst löglegt.
illfærir
nesinu. Áþekkt ástand er svo í
Dölunum.
Lítið er hægt að segja um
vegi á Vestfjörðum að svo
stöddu, því að víðast hvar eru
heiðar þar ennþá óruddar. En
þegar kemur á Holtavörðuheiði,
þá er hún allgóð yfirferðar, og
ef haldið er áfram austur um
Norðurland, þá er vegurinn í
Húnavatnssýslu mjög slæmur
vegna aurbleytu.
Sama er að segja um Skaga-
fjörðinn, þar hefur 5 tonna há-
marksþungi bifreiða t.d. verið
settur á Sauðarkróksbraut og á
Siglufjarðarveg. Öxnadalurinn
er mjög slæmur fyrir litlar bif-
reiðar, og svo má segja að veg-
urinn frá Akureyri til Austur-
lands sé algjörlega ófær sakir
aurbleytu.
Á Austurlandi er svo fært frá
Reyðarfirði til Hornafjarðar, og
til Egilsstaða.
í GÆR voru haldnir síðustu
fundir efri- og neðri deildar Al-
þingis á þessu löggjafarþingi. Á
morgun er boðaður fundur í Sam
einuðu Alþingi og fara þar fram
nefndarkosningar svo og þing-
lausnir.
. I lok fundar í neðri deild í gær
þakkaði forseti, Sigurður Bjarna
son, þingdeildarmönnum sam-
Verkalýðsfélag
Akranes segir
upp samningum
Ákranesi, 4. maí: —
Á FUNDI sínum 26. apríl sl. sam
þykkti verkalýðsfélagið hér að
fela stjórn félagsins að segja
upp og hefja samráð við Verka-
lýðssamband fslands um frekari
undirbúning að nýjum samning-
um. — Oddur.
vinnu og samstarf í vetur og um
burðarlyndi í önn síðustu vikna.
Bar forseti fram óskir til handa
þingmönnum um heillaríkt sum-
ar og að þeir mættu allir heilir
aftur hittast á hausti komanda.
Lúðvík Jósefsson þakkaði for-
seta starf hans og samvinnu og
bar fram óskir til handa honum
og fjölskyldu hans sem þing-
menn tóku undir með því að rísa
úr sætum.
í lok fundar í efri deild í gær
þakkaði Sigurður Óli Ólafsson
þingdeildarmönnum gott sam-
starf og samvinnu í vetur, svo og
skrifstofustjóra og starfsfólki A1
þingis. Árnaði forseti einnig þing
mönnum og fjölskyldum þeirra
gleðilegs sumars, en Karl Krist-
jánsson þakkaði forseta vel unn
in störf og árnaði honum og fjöl
skyldu hans heilla. Tóku þing-
menn undir óskir til forseta með
því að rísa úr sætum.
Pétur Pálsson frá
Hafnardal látinn
í GÆR andaðist Pétur Páls-
son frá Hafnardal við tsafjarðar
dÍ“P í Landakotspitalanum
hér í Reykjavík eftir stutta
legu. Hann var rúmlega áttræð
ur að aldri er hann lézt.
Pétur var sonur séra' Páls
Ólafssonar í Vatnsfirði og Arn-
dísar Eggerz konu hans. Hann
bjó í fjölda ára í Hafnardal í
Nauteyrarhreppi, en var síðar
bústjóri á Kirkjubóli í Skutuls-
firði. Síðustu árin átti hann
heimili á ísafirði, ásamt konu
sinni eftirlifandi Sigríði Guð-
mundsdóttur.
Pétur Pálsson var hnn mæt-
asti maður, og naut trausts og
vinsælda allra er kynntust hon-
um.
Sumarbústaðaeigendur
leigja út Meðalfellsvatn
. LÆGÐIN fyrir vestan Skot- Norðurlands barst kaldara
\ land fór vaxandi og hreyfðist loft frá Jan Mayen. Var vægt *
[ norðaustur, í gær. — Henni frost og él á annesjum, og á |
! fylgdi hlýtt loft er náði til Hrauni á Skaga voru 7 vind- ■
■ Færeyja og Suðurlands, en til stig. ;
U