Morgunblaðið - 05.05.1966, Page 4
4
MORCUNBLAÐIO
Fimmtudagur 5. maí 1966
BÍLALEIGAN
FERÐ
SÍMI 34406
SENDUM
LITLA
bílnleigon
Ingólfsstræti 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
Sími 14970
MAGINÚSAR
SKIPHOLTI 21 SÍMAR21190
eftir lotcun sími 40381
1^5*t(MI 31IBO
mmiBiR
Volkswagen 1965 og '66.
BIFREIBALEIGAK
VEGFERÐ
Grettisgötu 10.
Sími 14113.
Smp(Bir SSOEiGO
FIST COLOURS
SILKITVINNI
NÆLONTVINNI
HÖRTVINNI
IÐNAÐARTVINNI
fyrirliggjandi, í miklu Iita-
úrvali.
Heildsölubirgðir,
DAVÍÐ S. JÓNSSON & C. h.f.
Sími 24333.
BOSCH
Þurrkumótorar
6 volt
12 volt
24 volt
Brœðurnir Ormsson
Lágmúla 9. — Sími 38820.
Fiskverðið
Hér er bréf um fiskverð-
ið:
„Út af öllum þeim gaura-
gangi, sem orðið hefur undan-
farið vegna verðhækkunar á
fiski til neyzlu innanlands, er
ríkisstjórnin ákvað að hætta
niðurgreiðslum á þorski og ýsu
og með tilliti til hins háa verðs,
sem kvartað er undan að neyt
endur þurfi að greiða fyrir
þessa vöru, mætti ætla, að hlut
ur útgerðarmanna og sjómanna
væri hreint ekki lítill í þessu
verðlagi. Svo er þó ekki og er
það rétt t.d. til fróðleiks fyrir
neytendur, að birta hér þéssi
verð:
Ýsa, stór, A-gæðafl. slægð
með haus kr. 5,18.
Ýsa, stór, B- gæðafl. slægð
með haus, kr. 4,47.
Ýsa, smá, A- gæðafl. slægð
með haus, kr. 4,40.
Ýsa, smá, B-gæðafl. slægð
með haus, kr. 3,80.
Þorskur, stór, A- gæðaflokkur
slægður með haus, kr. 4,67.
Þorskur, stór, B-gæðaflokkur
slægður með haus, kr. 4,03.
Þorskur, smár, A- gæðaflokk
ur, slægður með haus, kr. 3,97.
Þorskur, smár, B- gæðaflokk
ur, slægður með haus, kr. 3,43.
Þar sem talað er um smáan
þorsk er átt við þorsk 40—57
cm. með haus og smáa ýsu 40
til 50 cm. með haus. í þessu
sambandi rís sú spurning,
hversu mikið af þeirri ýsu og
þorski sem seld er í fiskbúðum
geti talizt af A-gæðaflokki.
Þegar menn nú líta á þessi
verð, sem þeir greiða t.d. til
útvegsmanna og sjómanna ann
ars vegar, og svo til fisksalanna
hins vegar, býst ég við að þeim
bregði í brún við hinn geysi-
mikla verðmun. í hverju liggur
hann og hvers vegna er dreif-
ingarkostnaðúrinn svona gífur-
lega mikill? Fróðlegt væri að
fá við því greinargóð svör.
Varðandi annan fisk, nema
saltfisk, er frjáls álagning. —
Fróðlegt er t.d. að geta þess,
að hæsta verð á lúðu, sem út-
vegsmönnum og sjómönnum er
greitt er kr. 14,79 pr. kg. Stór
lúða og allt niður í kr. 5,18.
Skötubörð eru greidd með kr.
3,09 pr. kg. Og að lokum, hversu
oft fá reykvískir neytendur 1.
flokks sólþurrkaðan saltfisk á
borð sin, en við slíkan fisk eru
verðlagsákvæði á þessari vöru
byggð. Svari þeir sem geta.
— I.“.
Blásturs-aðferðin
ísfirðingur skrifar okkur
eftirfarandi:
„í dálkum Velvakanda hefir
oft verið á það bent, að nauð-
synlegt væri að kenna öllum
börnum lífgun-úr dauðadái með
hinni svo nefndu blásturs-að-
ferð. Hefir réttilega verið bent
á, að heppilegast myndi að
þessi kennsla færi fram í skól-
unum.
Mörgum okkar hættir til að
benda fyrst og fremst á það
sem miður fer. Vill hitt þá oft
og tíðum gleymast, sem vel er
gert. Mér finnst því, að það
komf* fram, að nú í þrjú ár
hefir þessi lífgunaraðferð ver-
ið kennd í öllum skólunum hér
á ísafirði. Það er Hjálparsveit
skáta hér á ísafirði, sem hefir
annazt þessa kennslu. í barna-
og gagnfræðaskólanum fer
kennslan fram í samvinnu við
iþróttakennara skólanna. Er öll
um nemendunum fyrst sýnd
ágæt kennslukvikmynd, sem
skátarnir eiga, en síðan fer
kennslan fram í sambandi við
fimleikakennsluna. í Húsmæðra
skólanum hefir forstöðukonan
aftur á móti komið á fastri
kennslu í hjálp í viðlögum, og
hafa skátarnir einnig séð um
þá kennslu. Einnig er mér kunn
ugt um, að skátarnir hafa ann
azt kennslu í lífgun úr dauðadái
í Héraðsskólanum í Reykja-
nesi, svo og hjá ýmsum félaga-
samtökum og stofnunum hér í
bænum og nágrenninu, sem
þess hafa óskað. Hafa þeir afl-
að sér ágætra tækja í þessu
skyni.
Ég vil fyrir mitt leyti þakka
skólastjórunum fyrir að hafa
komið þessari kennslu á, sem ég
tel mjög lofsvert. Einnig þakka
ég skátunum fyrir þeirra þátt
í málinu, sem ég tel ekki hvað
þýðingarminnstan. Vona ég, að
þess verði ekki langt að bíða,
að slík kennsla verði tekin upp
við alla skóla í landinu.
ísfirðingur“.
★ í Lídó
Og hér er stutt bréf um
lítinn atburð:
„Kæri Velvakandi:
Um greinina í Tímanum 29.
apríl sl. „Fundargesti varpað á
dyr á fundi i Lidó ... . “ o. s. frv.
Það vill nú svo vel til að ég
var á þessum umrædda fundi
og sat skammt frá og heyrði og
sá, hvað fram fór, og er því
hárrétt lýst í Morgunblaðinu
daginn eftir — 30. apríl.
Mér sýnist þessi maður vera
á líkum aldri og ég er, eða nokk
uð yfir sjötugt, og tel ég þetta
vera bæði óviðeigandi og óher-ni
legt að draga gamlan mann ínn
í slík blaðaskrif, þó svo að hon
um hafi orðið smávegis á og ef
til vill <verið eitthvað miður sín.
Gamall bóndi“.
# Danslagakeppni
ríkisútvarpsins
Eftirfarandi bréf hefur Vel-
vakanda borizt frá Freymoði
Jóhannssyni:
„Velvakandi góður.
Þá hafa verið leikin þessi lög,
sem ákveðið var að leika í
Danslagakeppni útvarpsins,
Langar mig til, í allri vinsemd
að fara nokkrum orðum um
framkvæmd keppninnar, ein-
mitt á þessu stigi málsins, en
það tel ég ekki óviðeigandi,
þar eð ég er ekki höfundur
neinna hinna 10 laga er leikin
hafa verið.
Ég vil þá fyrst segja, að
svona langdregin keppni er ekki
heppileg. Enginn verulegur á-
hugi hefur fylgt henni, svo ég
hafi orðið var við. En hann
vaknar væntanlega nú, þegar
á að fara að greiða atkvæði.
Tel ég það bæði eðlilegt og
æskilegt.
Ég tel það að vissu leyti
kost, sem fjölbreytni, að jafn
margir aðilar hafa sungið lögin
og lögin eru mörg. En þegar
hver kjósandi má aðeins til-
nefna eitt lag, eins og tilkynnt
hefur verið, óttast ég, að hér
verði þetta keppni um söngvara
fremur en um lög. Ég geri það
því að tillögu minni, — jaín-
vel kröfu, að hver kjósandi
skuli tilnefna 3 lög, enda er
léttara að velja sér 3 lög, held-
ur en eitt, af allmörgum álíka
góðum lögum. Enn er tími til
að gera þessa breytingu og ég
legg áherzlu á hana. Ég hef átt
þátt í svo mörgum álíka
keppnum á vegum S.K.T. síðan
1950, að ég tel mig hafa eign-
azt talsverða reynslu hér að
lútandi.
taka með í keppnina lag, sem
áður hefur verið í keppni og
leikið og kynnt opinberlega á-
samt höfundum sínum. Einnig
tel ég ótækt, að ekki var, 1
keppnisbyrjun, hægt að fiá vitn
eskju um nöfn þeirra laga, er
tekin höfðu verið í keppnina,
né hægt að fá afhent þau hand-
rit, er ekki átti að nota. Hafa
höfundar, skilst mér, orðið að
bíða í allan vetur eftir ónotuð-
um handritum sínum og þvl
ekki getað komið þeim á fram-
færi annarsstaðar, þó þess hefði
verið kostur.
f þættinum í gærkvöldi voru
lögin 10, kölluð lögin, sem kom-
ust í úrslit í danslagakeppni út-
varpsins“. Er því ástæða til að
spyrja, hvar undankeppnin hafi
farið fram?
Að lokum mælist ég til þess,
einkum við fullorðna fólkið um
land allt, að það taki almennt
þátt í lagavalinu, svo krakkar
og unglingar ráði þar ekki öllu
um. Meðal laganna eru of goð
lög, til þess að börn og ungling-
ar geti talist dómbær um þau.
Þetta er íálenzk viðleitni, —■
viðleitni, — nauðsynleg við-
leitni, sem rétt er að veita
verðskuldaðan s.kilning.
2. maí 1966.
Vinsamlegast,
Freymóður Jóhannsson“.
Þá tel ég ekki heppilegt að
Veiðimenn
FRANSKIR VEIÐIJAKKAR.
Vinnufatabúðiin
Laugavegi 76 — Sími 15425.
2-3 herbergja íbúð
óskast til leigu sem fyrst.
SIGURJÓN GUÐMUNDSSON
Grenimel 10 — Sími 12996.
Hafnarfjörður
Verkamenn vantar nú þegar til vinnu. Uppl. gefur
verkstjórinn í síma 50488 og tæknifræðingurinn
í síma 50113 eða 51635.
Bæjarverlffræðingurinn í Hafnarfirði.