Morgunblaðið - 05.05.1966, Síða 8
8
MORCUNBLAÐIÐ
I
Fimmtudagur 5. maí 1966
— Alþingl
Framhald »f bls. 2
valdsson, Björn Fr. Björnsson,
Eðvard Sigurðsson, Kristjmn
Thorlacius, Einar Olgeirsson,
Eysteinn Jónsson, Geir Gunnars-
son, Vilhjáimur Hjálmarsson,
Gunnar Guðbjartsson, Hannibal
Valdimarsson, Lúðvík Jósefs-
son, Ragnar Arnalds, Sigurvin
Einarsson, Skúli Guðmundsson
og Þórarinn Þórarinsson.
Tveir þingmanna Framsóknar
flokksins gerðu grein fyrir af-
stöðu sinni. Ingvar Gíslason sem
gerði grein fyrir sinni afstöðu er
atkvæði voru greidd og sagði þá,
að þegar kisilgúrmálið hefði
verið afgreitt sem lög frá Al-
þingi á sinum tíma hefði verið
samstaða um það og menn
hefðu fagnað því að ný verk-
smiðja yrði reist í dreifbýlinu.
Brýn nauðsyn væri að hraða
þessu máli og einnig að hafa
sölu framleiðslunnar trygga, en
að þvj væri stefnt með þessarri
lagabreytingu. 1 trausti þess að
ríkisstjórnin semdi ekki um er-
lendan gerðardóm greiddi hann
því atkvæði með frumvarpinu.
Hjörtur Eldjárn Þórarinsson
gerði grein fyrir afstöðu sinni í
ræðu er hann flutti. Sagði hann
þá, að íbúar Norðurlands yrðu
að taka máli þessu vel, og fagna
framgangi þess, ekki sízt þar
sem þeir hefðn nú misst af stóra
vinningnum, áibræðslunni, því
sama væri hvað um hana væri
sagt, hún yrði til atvinnulegrar
uppbyggingar hvar sem hún
væri.
Við afgreiðslu laga um Kísil-
gúrverksmiðju hefðu allir þing-
flokkar verið sammála um aðild
útlendinga að því fyrirtæki, en
rétt væri að nú hefði miklar
breytingar verið gerðar, og þær
sumar hverjar til bóta. Sagði
Hjörtur, að með tilliti til þeirra
upplýsinga sem lægu fyrir í máli
þessu lýsti hann yfir stuðningi
sínum við frumvarpið .
Er málið kom til 2. umræðu
á fundi Neðri deildar í gær,
mælti fyrst Jónas G. Rafnar
fyrir áliti meirihluta fjárhags-
nefndar deildarinnar um það.
Gat hann þess
að Magmús Jóns
son fjármálaráð
herra, sem jafn-
framt væri for-
maður samn-
inganefndar við
Johns-Manville,
hefði mætt á
fundi nefndar-
innar og svarað
þar fyrirspurnum nefndarmanna
og gefið nánari upplýsingar um
málið. Rakti Jónas einnig meg-
inefni breytinga þeirra er í
frumvarpinu felast og sagði í
lok ræðu sinnar að slík verk-
smiðja kæmi til með að skapa
mikil gjaldeyrisverðmæti og að
óráðlegt hefði verið að leggja í
slika verksmiðjubyggingu án
samvinnu við erlendan aðila, er
hefði aðstöðu til sölu á kísilgúrs,
þar sem markaður fyrir hann
væri talinn heldur þröngur.
Lúðvík Jósefsson (K) sagði að
meginástæður fyrir andstöðu
Alþýðubandalagsins gegn frum-
varpinu væru þaer, að þeir
teldu óráðlegt að veita ríkis-
stjórninni jafn óákveðnar heim-
ildir og fælust í frumvarpinu til
samninga við erlendan aðila og
það vaeri einnig þeirra skoðun
að slíka samningagerð ætti að
leggja fyrir Aliþingi, svo ekki
færi milli mála hver afstaða
þingsins væri til þeirra.
Magnús Jónsson fjármálaráð—
herra sagði að samningar þeir
sem fyrirhugaðir væru við
Johns Manville væru okkur hag-
stæðir og það
gæti orðið okk-
ur til tjóns ef af
greiðsla þessa
máls yrði frest-
að til næsta
þings. Hugsan-
legt væri að tak
ast mætti að ná
samningum við
önnur kísilgúr-
félög, en Johns Manville, en sú
von væri veik of veik til þess
að taka áhættunni og hafna
samningum.
Ef afgreiðslu málsins yrði nú
frestað væri ekki séð, að Johns
Manville biði, en nauðsynlegt
væri fyrir okkur að fá sem fyrst
það fjármagn sem félagið byði
upp á. Þvf hefði verið lýst hvað
gert vseri ráð fyrir með samning
unum og einnig því, að þar
yður ákvæði um hvernig deilu-
mál skyldu úrskurðast. Fjallað
yrði um deilumál samkvæmt ís-
lenzkum lögum eða islenzkri
gerð, og hefði komið til tals gerð
ardóimur þar sem hvor aðili um
sig skipuðu mtinn og ef ekki næð
ist samkomulag um oddamann
milli deiluaðila skipaði Hæsta-
réttur íslands hann. Hinsvegar
væri gersamlega ómögulegt fyr
ir ráðherra nú að gefa yifirlýs-
ingu um það að ekki yrðu not-
aðar aðrar aðferðir við úrskurð
deiluimáia, þar sem samningurinn
væri til langs tíma og aðstæður
kynnu að breytast.
Einar Olgeirsson flutti langa
ræðu og fjallaði m.a. um ástæðu
þess að hollenzka fyrirtækið dró
sig út úr samningum við íslend-
inga. Sagði hann að líklegt væri
að auðhringurinn Johns-Manville
hetfði haft þar íhlutun og sagt
Hollendingunum að skipta sér
ekki af þessu máli. Einnig ber
Einar fram breytingartillögu við
7. grein laganna er fjallar um
náttúruvernd við Mývatn.
Magnús Jónsson sagðist geta
bent á það að það hefðu verið
íslendingar sem fyrst leituðu eft
ir umræðum við Johns Manville
Hollenzka fyrirtækið hefði dreg
ið sig út úr sökum skorts á fjár-
magni, en hefur á síðara stigi
málsins viljað hefja aftur við-
ræður. f>á hefðu hinsvegar við-
ræður við Johns-Manville verið
komnar í fullan gang og hefði
ekki þótt ráðlegt að slíta þeim.
Skúli Guffmundsson (F) sagði
frávisunartillögu Framsóknar-
manna við frumvarpið og af-
stöðu þeirra mótast af því, að
þeir vildu hindra ríkisstjórnina
við að færa dómsvaldið út úr
landinu.
Einar Olgeirsson (K) talaði
aftur og kom þá inn á það hvort
ákvæði frumvarpsins um skatt
kísilgúrfyrirtækjanna gætu stað
ist að lögum, þar sem þau væru
ákveðinn til svo langs tíma.
Bjarni Benediktsson forsætis-
rálffherra sagði að í íslenzkum
löguim væri víða að finna ákvæði
um skattfriðindi til einstakra
fyrirtækja. Ef tilteknum aðila
væri veitt skatta
fríðindi þá væri
ekki heimilt að
afnema þau,
nema á móti
kæmu greiðslur
til gagnaðila.
Nefndi ráðherra
til dæmis lög um
íslandsbanka
seim gerði ráð
fyrir skattafríðindum til handa
honum um 30 ára tíma. Enginn
vafi væri á því að afnám þeirra
fríðinda hefðu verið óheimil á
því tímabili. Slík ákvæði um fríð
indi hefðu verið sett öðru hvoru,
án þess að þau hefðu skapað
nokkurt fordæmi eða sett skatta
kerfi landsins úr skorðum. Breytt
ar aðstæður gætu vitanlega leitt
til endurskoðunar samninga áð-
ur en tími þeirra væri útrunninn.
Jóhann Hafstein dómsmálaráff-
herra, sagði að svo virtist að
Framsóknarflokkurinn ætlaðist
til þess að hann gæfi yfirlýsingu
þess efnis að
hlutlaus erlend-
ur gerðardómur
kæmi aldrei til
með að fjalla
um deilumál
milli ríkisins og
kísilgúrfyrir-
tækásinsL Slíik
yfirlýsing
mundi eðlilega
ekki binda, þótt hún væri gefin,
þar sem aðstæður gætu breytzt
á samningstímanum. Það gæti vel
svo farið að það væri hagsmuna
mál íslenzka ríkisins að deilu-
málum yrði vísað til erlends
gerðardóms. Hefði t.d. ríkið háa
fjárkröfu á hendur sölufyrirtæk
isins gæti svo farið að hefja
þyrfti aðför að því á erlendri
grund og væri þá aðstaðan betri
ef erlendur gerðardómur fjall-
aði um málið. Ef samningur um
aðild íslands að gerðardómi Al-
þjóðabankans yrði staðfestur
sem lög yrði það vitanlega sam-
kvæmt íslenzkum lögum að vísa
málum til þess gerðardóms. Því
hefði verið lýst yfir, að Johns-
Manville gerði enga kröfu um
að ákvæði um erlendan gerðar-
dóm yrði sett inn í samningana
og ráðherra sagðist ekki mundi
beita sér fyrir því að slíkt á-
kvæði yrði sett þar inn í eitt
skipti fyrir öll. f>að yrði að vega
og meta eftir aðstæðum hverju
sinni hvað réttast væri að f jalla
um deilumál er upp kynnu að
koma.
Fór síðan fram atkvæðagreiðsla
um málið og var frávísunartil-
laga Skúla Guðmundssonar og
Kristjáns Thorlacius feLld með
25 atkvæðum gegn 15. Einnig
var breytingartillaga Einars Ol-
geirssonar felld. Var málið tek-
ið fyrir til 3. umræðu á öðrum
fundi deildarinnar í gær og þá
afgreitt til ríkisstjórnarinnar
sem lög frá Alþingi.
900 tunnur af síld
til Akraness
Akranesi, 4. maí: —
900 TUNNUR af stórri og fallegri
síld veiddri vestur undir Jökli
lönduðu þrír bátar hér í morgun.
Höfrungur III. landaði 600 tunn
um, Ólafur Sigurðsson 150 og
Höfrungur II. 150 tunnum.
86,3 tonnum af þorski lönduðu
12 bátar í gær. Þessir tveir voru
aflahæstir: Sólfari með 13 tonn
og Höfrungur I. með 13 tonn.
Ms. Reykjaborg kom hingað í
morgun með 500 tonn af vörum,
járn, stál og ýmsar fleiri vörur,
til mannvirkjagerðar í Hvalfirði
á vegum NATO. — Oddur.
Ferðamálaráðstefna á
Akureyri 6.
FERÐAMÁLARÁÐSTEFNA
verffur haldin á Akureyri dag-
ana 6. og 7. maí nk. Þaff er
Ferffamálaráff sem boffar til ráff-
stefnunnar, en ein slík hefur
verið haidin áður. Þaff var á
Þingvöllum í maímánuði í fyrra.
Til ráðstefnunnar er boðið 180
mönnum, fulltrúum fyrirtækja,
félaga og stofnana, sem ætla má
að hafi áhuga fyrir auknum
ferðamannastraumi til landsins
og endurbótum alls konar vegna
móttöku ferðamanna.
Á dagskrá verður að þessu
sinni m. a. aðstaða til móttöku
ferðamanna á Akureyri, hækk-
andi verðlag á vörum og þjón-
ustu að eyðileggja möguleika ís-
lands sem ferðamannalands,
hvert ber að stefna í landkynn-
ingarmálum, menntun veitinga-
starfsfólks, þrifnaður og hollustu
hættir í gisti- og veitingahúsum,
hráefnaöflun veitinga og gisti-
ocj 7. mai
húsa og ýmis önnur mál munu
tekin fyrir.
Ferðamálaráð sér um undir-
búning ráðstefnunnar, en ráðið
skipa Geir Zoega, forstjóri, Pétur
Daníelsson, hótelstjóri, Lárus
Ottesen, framkvæmdastjóri, Sig-
urlaugur Þorkelsson, fulltrúi,
Birgir Þorgilsson, fulltrúi, Sig-
urður Magnússon, fulltrúi, Ágúst
Hafberg, framkvæmdastjóri, og
Þorleifur Þórðarson, forstjóri.
Formaður ráðsins og fram-
kvæmdastjóri þess er Ludvig
Hjálmtýsson.
Ludvig hefur beðið Mbl. að
geta þess, að flugvél fer frá
Reykjavík til Akureyrar kl. 8.30
föstudagsmorguninn 6. maí og
geti þátttakendur notfært sér
hana.
Ludvig biður þá, sem boðaðir
hafa verið til ráðstefnunnar, að
tilkynna um Iþátttöku í skrifstofu
Ferðamálaráðs sem alira fyrst.
Hafnarfjörður
TIL SÖLU:
Steinhús á góðum stað í suður
bænum, með tveimur íbúð-
um
3ja herb. íbúff á aðalhæð og
2ja herb. íhúð í risi. Kjallari
undir húsinu.
ÁRNI GUNNLAUGSSON hrL
Austurgötu 10, Hafnarfirði,
Simi 50764 kl. 9—12 og 1—4.
Hafnarfjörður
Tvö herb. og eldhús óskast til
eins árs. Þrennt í heimili. —
Reglusemi heitið. Upplýsing-
ar gefur
ÁRNI GRÉTAR FINNSSON,
hdi.
Sími 51500.
Vörubíll
Mercedes Benz 1959, hieð
Foco-krana 1% tonn og á
mokstursskóflu. 15 feta stál
pallur. Ekinn 128 þ. km
Ingólfsstræti 11.
15-0-14 — 1-91-81 — 1-13-25.
Til sölu m.a.
2jm herb. kjallaraibúff við
Efstasund.
2ja herb. risíbúff við Óðins-
götu.
3ja herb. íbúffarhæff við Óð-
insgötu.
3ja herb. íbúð við Lindargötu.
3ja herb. íbúff við Njálsgötu.
3ja herb. íbúff við Miðtún.
3ja herb. íbúð við Hraunteig.
4ra herb. íbúff á 2. hæð við
Álfheima.
4ra herb. íbúff á 2. hæð í
Lækjunum. Sérhitaveita.
4ra herb. íbúff á 4. hæð í Vest
urbænum. 1 herb. fylgir í
risL
4ra herb. íbúff á 1. hæð við
Kleppsveg. Tvöfalt gler. —
Teppi.
5 herb. íbúff á 2. hæð við Ás-
garð. Tvöfalt gler. Harð-
viðarinnréttingar. Sérhita-
veita.
6 herb. íbúff á 2. hæð við Goð
heima. Sérhitaveita.
5 herb. íbúff á 11. hæð við
Sólheima.
6 herb. íbúff á 2. hæð við Sól-
heima.
5 herb. íbúff á 3. hæð við
Sólvallagötu. Tvö herb.
fylgja í risi. Sérhitaveita.
Raffhús við Kaplaskjólsveg
seist fokhelt og tiibúið til
afhendingar strax.
Skipa- & fasleignasalan
KIRKJUHVOLI
Símar: 14916 or 1384«
3-500 úrvals hænuungar
til sölu, tæpra 6 mánaða gamlir Fossvogsbletti 3.
Skrifstofusfúlka óskast
Stúlka sem lokið hefur gagnfræðaprófi, verzlunar-
skólaprófi eða hefur hliðstæða menntun óskast til
starfa í bókhaldsdeild skrifstofunnar.
VITA- OG HAFNARMÁLASKRIFSTOFAN
Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins
óskar eftir að ráða starfsmann, til að hafa eftirlit
með notkun rotvarnarefna í síldarverksmiðjum.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi þekkingu á
efnafræði og næringafræði. Háskólapróf aeskilegt.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um mennt
un og fyrri störf sendist Rannsóknastofnun fisk-
iðnaðarins, Skúlagötu 4, Reykjavík, fyrir 9. maí n.k.
Ennfremur óskar stofnunin eftir að ráða aðstoðar-
mann við ofangreint starf.
Laun samkvaemt hinu almenna launakerfi ríkis-
ins.
Rannsóknastofnun fiskiðnaSarins.
Matráðskona eða maður
óskast á hótel úti á landi. — Uppl. í síma 10039.
15 ára piltur
óskast til sveitastarfa á Rangárvöllum sem fyrst.
Upplýsingar í síma 41101 kl. 8—9 í kvöld.