Morgunblaðið - 05.05.1966, Síða 30
30
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 5. mai 19'66
Danir óttast ísiendinga
í lokakeppni í Svíþjdö
Sefur HSÍ á verðinum?
ÞAÐ hefur mikið verið rætt um
hvort íslenzka landsliðið í karla-
flokki hafi möguleika á að kom-
ast í úrslitakeppni um heims-
meistaratitilinn — en keppni um
hann fer fram í Svíþjóð í janúar
næsta ár. Þær fregnir bárust
hingað daginn sem ísland lék við
Danmörku — og tapaði illu
heilli, að ísland væri eigi að síð-
ur „fyrsta land“ sem inn í keppn
ina kæmist félli einhver úr.
í Politiken lásum við á dögun-
um (23. apríl) „að fyrst alþjóða-
sambandið hefði sagt frá málun-
um væri engin ástæða til að
þegja yfir leyndarmálum lengur.
Þannig stæðu hlutir í sambandi
við úrslitakeppni um heimstitil
að ef einhver þeirra þjóða, sem
yfir haf á að sækja til lokakeppn
innar ekki mætir til leiks, þá á-
kvað Tækninefnd alþjóðahand-
knattleikssambandsins að eftir-
farandi þjóðir kæmu inn í keppn
ina í eftirfarandi röð:
ísland,
Spánn,
Austurríki,
Holland.
Og þessi lönd koma inn í
keppnina í ofantaldri röð. Poli-
tiken segir að Danir verði að
vona að engin þjóð falli úr“,
sagði í Politiken.
Því til skýringar er það, að
saman í lokariðli leika Tekkar,
Danir, Frakkar og Túnis. Ástæð-
an til þess fyrst og fremst að á-
kveðnar voru „varaþjóðir" (þar
sem fsland er efst á lista) er sú
að Túnismenn hafa næsta litla
möguleika til lokakeppninnar.
Bæði er að þeir hafa ekki leikið
sína undanúrslitaleiki (við Eg-
ypta — vegna stjórnmálasam-
bands ríkjanna) og að þeir hafa
heldur engin fjárráð til að senda
Æfingar FH í
knattspyrnu
KNATTSPYRNUÆFINGAR hjá
FH eru að hefjast. Félagar, sem
ætla að æfa, eru beðnir að mæta
til skráningar í Félagsheimilinu
milli kl. 6—7. Æfingartímar eru
þannig:
Þriðjudagar og föstudagar kl.
1.30—6 e. h» 6. flokkur.
Kl. 6—7 5. flokkur.
Kl. 7—8 4. flokkur.
Kl. 8—9 3. flokkur.
Kl. 9—10 meistara og 2. flokk-
ur. —
Æfingar fyrir 6. flokk hefjast
nk. þriðjudag.
lið til Svíþjóðar. Þess vegna er
næsta líklegt að íslenzka liðið
hljóti sæti Túnis — og það sæti
er harla gott því vel þjálfað ís-
lenzkt lið á að hafa tækifæri til
að komast í 8 liða úrslitakeppni
upp úr þeim riðli.
En illar tungur segja að
Danir muni fúsir til að greiða
fargjald Túnisliðsins til Kaup
mannahafnar til þess að koma
í veg fyrir að íslenzka lands-
Landsliðið, sem keppti í Kaup-
mannahöfn, lék fyrir Reykjavík
tvo síðustu leikina gegn úrvals-
liði varnarliðsmanna og sigraði
í báðum, en sá árangur nægði til
þess að Reykjavík vann keppn-
inaa og eignaðist hinn glæsilega
verðlaunagrip, sem keppt var um.
t Nýr bikar
Ambassador Bandaríkjanna,
Mr. Penfield, hefur óskað eftir
að gefa verðlaunagrip svo að þess
ari ánægjulegu keppni verði
haldið áfram á næsta ári.
t Dómaranámskeið
KKÍ hélt í vetur dómaranám-
skeið fyrir nemendur íþrótta-
kennaraskóla íslands að Laugar-
vatni í samvinnu við skólastjór-
ann, Árna Guðmundsson. Allir
nemendur skólans gengu undir
próf og stóðust það með ágæt-
um.
liSið hljóti sæti Túnis í keppn
inni og lendi í fyrstu lotu
móti pönum.
En hvað sem slíku líður,
þá hlýtur innan skamms að fást
svar við þeirri spurningu, hvort
ísland kemst áfram eður eigi. —
Blöð víða hafa talið það víst, að
svo verði — ofangreind frétt um
afstöðu tækninefndarinnar bend-
ir í sömu átt. En forráðamenn
HSÍ vita ekkert — segjast aðeins
bíða og sjá til. Kannski verður
það Spánn en ekki ísland sem
sæti Túnis hreppir!
þ Unglingalandslið
Úrvalslið unglinga, sem kalla
mætti unglingalandslið Rhode Is
land-ríkis í Bandaríkjunum, mun
koma hingað á vegum People to
People samtakanna 23.—2S. júní
nk. og keppa a.m.k. einn leik í
Reykjavík. í liðinu eru ungling-
ar 19 ára og yngri. Unglingalið
Rhode Island keppti víðsvegar í
Suður-Ameríku sl. sumar með
góðum árangri.
þ Heimsóknir
Lið frá Massachusetts
Institute of Technology mun
væntanlega keppa einn leik
við landsliðið í Reykjavík í
fyrstu viku ágústmánaðar.
Bæði eru lið þessi á keppnis
ferðalagi til Evrópu og hefur
KKÍ veitt People to People
nokkra fyrirgreiðslu í sam-
bandi við að útvega þessum
liðum leiki á meginlandinu.
Tveir landsleikir í
körfuknattleik
í sumar
.■ ■
Á FYRSTU fjórum mánuðum þessa árs hafa fslendingar leikið 8
landsleiki í körfuknattleik. Fjórir af þessum leikjum hafa tapazt,
þ e. 2 leikir gegn Póllandi og sinn leikurinn gegn hvorum, Finnum
og Svíum.
Landsleikirnir sem unnust voru 2 gegn Skotum hér í Reyk javík
og leikir gegn Norðmönnum og Dönum á Norðurlandameistaramót-
inu í Kaupmannahöfn.
Þessi árangur er betri heldur en náðst hefur hjá nokkrum öðr-
um íslenzkum landsliðum á jafn skömmum tíma.
Volkswagen fyrir 1000 kr.
VAXANDI starfsemi KKÍ
hefur í för með sér að rekst-
urskostnaður sambandsins fer
hækkandi. Vonir stóðu til að
landsleikir þeir, sem háðir
voru hér í Reykjavík, mundu
skila nokkrum hagnaði, en
það fór á annan veg, þar sem
106 þúsund króna halli varð af
þessum heimsóknum. Utan-
ferð landsliðsins á Norður-
landamótið kostaði einnig mik
ið fé.
Til þess að afla tekna hefur
KKÍ ráðist í happdrætti, sem
er með nokkuð óvenjulegum
hætti. Happdrættismiðarnir
eru aðeins 350, en vinningar
eru 3, þar af ein Volkswagen-
bifreið og tveir aukavinning-
ar að verðmæti 5000 króna.
Verð hvers miða er krónur
1000, en dregið verður eftir
fáa daga, eða 15. maí nk.
Það er von stjórnar KKÍ, að
sem flestir vilji sýna þakk-
læti sitt fyrir hinn glæsilega
árangur landsliðs okkar og
styrkja starfsemi KKÍ með
því að kaupa miða. Miðar fást
hjá öllum stjórnarmönnum
KKÍ.
Þessar myndir eru frá verðlaim aafhendingu í Víðavangshlaupi
Hafnarfjarðar. Efri myndin er af sigurvegurum í kvennaflokki
en sú neðri af drengjum í yngsta flokki. — Mörgum mun finn-
ast einkennilegt háralag einnar stúlkunnar.
Bikarkeppni KKÍ verður
háð í sumar, með svipuðu fyrir-
komulagi og sl. ár. Alls hafa 12
lið tilkynnt þátttöku í keppninni.
Útbreiðslunefnd KKÍ hefur
mörg nýmæli á prjónunum, svo
sem umfangsmikla kynningar-
starfsemi og körfuknattleiksnám
skeið víðsvegar um landið.
Reglur um knattþrautir KKÍ
voru endurskoðaðar og gefnar
út á ný í janúar og hafa þær ver-
ið sendar öllum starfandi íþrótta
kennurum á landinu.
♦ Til Bandaríkjanna
Þá hefur KKÍ verið boðið að
senda landslið í körfuknattleik í
keppnisför til Bandaríkjanna á
vegum People to People félags-
skaparins. Er KKÍ um þessar
mundir að láta fara fram athug-
un á hvort unnt reynist að þiggja
þetta góða boð, og er m.a. verið
að athuga, hve margir af okkar
beztu landsliðsmönnum sjái sér
fært að taka þátt í slíkri keppnis
för.
Ef af henni yrði, myndi hún
hefjast í kringum 25. nóv. og
ljúka um miðjan desember.
Unglingasundmót
A og Ægis
UNGLINGASUNDMÓT Ármanns
og Ægis, seinni hluti, fer fram í
Sundhöll Reykjavíkur þriðju-
daginn 10. mai 1966 kl. 8 e. h.
Keppt verður í eftirtöldum grein
um:
A-flokkur, f. 1950—51
100 m skriðsund stúlkna,
100 m baksund stúlkna,
200 m fjórsund stúlkna,
200 m bringusund drengja,
50 m flugsund drengja.
B-flokkur, f. 1952—53
100 m bringusund telpna,
50 m flugsund telpna,
100 m skriðsund sveina,
50 m baksund sveina,
100 m fjórsund sveina.
C-flokkur, f. 1954 og yngri
50 m skriðsund telpna,
50 m baksund telpna,
50 m bringusund sveina,
50 m flugsund sveina.
Þátttökutilkynningar er geti
fæðingardags þátttakenda send-
ist fyrir 4. maí til Siggeirs Sig-
geirssonar, sími 10565, eða Torfa
Tómassonar, sími 19713.
X-D X-D
IJtankjörstaðakosning
Þeir sem ekki verða heima á kjördegi geta kosið hjá sýslumönnum,
bæjarfógetum og hreppstjórum og í Reykjavík hjá borgarfógeta.
Erlendis er hægt að kjósa hjá íslenzkum sendiráðum og ræðis-
mönnum sem tala íslenzku.
Kosningaskrifstofa borgarfógeta í Reykjavík er í Búnaðar-
félagshúsinu við Lækjargötu. — Skrifstofan er opin sem hér
segir: Alla virka daga kl. 10—12, 2—6, 8—10 og sunnudaga 2—6.
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Hafnarstræti 19, 3. hæff,
veitir allar upplýsingar og aðstoð í sambandi við utan
kjörstaðaatkvæðagreiðsluna.
Skrifstofan er opin daglega frá kl. 10—10. Símar: 22637 og 22708.
Upplýsingar um kjörskrá eru veittar í sima 22756.