Morgunblaðið - 12.05.1966, Qupperneq 2
2
MORGUNBLADID
Fimmtu<3agur 12. maí 196t
*
Kosygin og Gromyko
ræða við Nasser
— Hljótt er um skyndiheimsókn
Breshnevs til Rúmeniu
m Cairo, Bukarest, 11. maí.
NTB — AP.
SOVÉZKI forsætisráðherrann,
Alexei Kosygin og Andrei Gromy
ko, komu í opinbera heimsókn
til Egyptalands á þriðjudag og
var þeirn höfðinglega fagnað. A
miðvikudag hófu ráðherrarnir
viðræður við Nasser forseta og
er talið að þeir muni einkum
ræða efnahagsaðstoð Sovétríkj-
anna við Egyptaland. Þessi ferð
Kosygins til Fgypaiands, er
fýrsta opinebra heimsókn hans
til erlends ríkis frá því hann tók
við embætti forsætisráðherra af
Krúsjeff fyrir 18 mánuðum.
í hátíðarveizlu, sem haldin var
Jón forseti
seldur í Englnndi
TOGARINN Jón forseti verð-
Ur seldur til Hull og er verið
að ganga frá samningum um
söluna. Skipið er eign Alliance,
það var einn af nýsköpunartog-
urunum, með þeim sem seinast
komu árið 1948. Verður togar-
inn nú seldur brezkum útgerð-
armanni í Hull, Hinriksen, sem
aetlar að gera hann út þaðan.
Mbl. fékk þetta staðfest hjá
Ólafi Jónss. framkvæmdastjóra
Alliance. Hann sagði, að eins og
ailir vita hefði lengi gengið
erfiðlega hjá togurunum, eink-
um eftir að landhelgin var færð
út í 12 mílur. Auk þess væri erf-
itt að fá gott fólk á togarana.
Menn vildu heldur vera á bát-
unum einkum síldarbátunum,
Jkar sem þeir Kefðu meira upp
ttr sér.
gestunum til heiðurs á þriðju-
dagskvöld, deildu þeir Kosygin
og Nasser á afskipti Bandarikj-
anna í Vietnam stríðinu, og einn
ig á það er þeir nefndu landvinn
ingastefnu Bandaríkjamanna
víða í heiminum. Kosygin kvaðst
vi'lja fullvissa arabíska sambands
lýðveldið um það að Sovétríkin
myndu i framtíðinni veita því
alla þá efnahagslega og félags-
lega aðstoð sem þau gætu. Hinar
opinberu viðræður ráðherranna
og Nassers hófust á miðvikudag.
Fremur hljótt hefur verið um
ferð Leonids Breshnevs til Rúm
eníu, en þangað mun hann hafa
komið á miðvikudag. Á forsíðum
dagblaðanna í Búkarest voru feit
letraðar fyrirsagnir vegna heim-
sóknar Kosygins og Gromykos til
Egyptalands. en ekki vikið einu
orði að. komu Breshnevs til
Rúmeníu. Að því er NTB frétta-
stofan segir, hafa opinberir að-
ilar í Búkarest hvorki viljað láta
neitt uppi um tilgang heimsóknar
Breshnevs, né hvar hann haldi
til.
Frá Moskvu berast hins vegar
þær fréttir, að Rreshnev hafi
rætt við valdamenn Rúmeniu á
miðvikudag en ekkert hefur ver
ið látið uppi um hvað var rætt.
Stjórnmálasérfræðingar álíta
þessa skyndiheimsókn Breshnevs
athyglisverða, einkum vegna
þess, að innan skamms mun kin-
verski forsætisráðherrann Chou
En-lai, koma í opinbera heim-
sókn til Rúmeníu. Chou En-lai
er væntanlegur til Bukarest næst
komandi miðvikudag ,en litlar
líkur eru taldar á því ,að Bresh
nev sé þangað komin til að hitta
hann.
Rúmensk sendinefnd, sem ver-
ið hafði í N-Vi^nam, er nú stödd
í Peking og á miðvikudagskvöld
Jón forseti er farinn til Eng-
lands.
hélt Chen Yi ,utanríkisráðherra,
veglega veizlu henni til heiðurs.
í gær var norðaustan strekk
ingur hér á landi. Suðvestan
lands var bjartviðri og hiti
6-8 stig um nónbilið, en víða
kalsarigning. Krapahríð er á
Austfjörðum og á Norður-
landi með eins til fimm stiga
hita á láglendi. Á Hvera-
völlum var hríðarfjúk og
tveggja stiga frost.
í dag verður að likindum
svipað veðurlag vestan lands,
en á Austurlandi mun hlýrra.
Veðurhorfur í gærkvöldi:
Suðvesturland og miðin: NA-
og síðar A- kaldi, rigning
öðru hverju. Faxaflói, Breiða
fjörður og miðin: NV-stinn-
ingskaldi og sums staðar
rigning eða slydda í nótt,
hægari A og smáskúrir og
hlýrra á morgun. Vestfirðir
og miðin: Allhvass NA, dá-
lítil slydda norðantil. Norð-
urland og miðin: NA-stinn-
ingskaldi og víða snjókoma
eða slydda í nótt, gengur í
SA-kalda og hlýnar á morg-
un. Norðausturland, miðin og
Austfirðir: NA og síðar SA
gola, þokuloft og súld. Suð-
austurland og miðin: SA- og 1
A-kaldi, smáskúrir. k
Upphaf og niðurlag bréfs formanns Trésmiðafél. Reykjavíkur.
Misnotkun aðstöðu
EINS og kunnugt er, hafa
störf í stéttarfélögunum á und
anförnum árum orðið heil-
brigðari og ekki gætt eins
mikið pólitískrar misnotkun-
ar og oft áður. Ekki virðist þó
aliir vilja virða þær leikregl-
ur, sem hafa verið að skapast
í þessu efni, a.m.k. ekki for-
maður Trésmíðafélags Reykja
víkur. Hann hefur nú gripið
til bardagaaðferðar, sem al-
gjörlega er óþekkt í stéttar-
félögunum, þ.e^i.s. að nota
trúnaðarstöðu sína opinber-
lega til þess að reyna að vinna
pólitískum flokki fylgi í al-
mennum kosningum. Hann
hefur tekið sæti á lista komm
únista og skýrir frá þvi í
bréfi, sem hann sendir með-
limum Trésmiðafélags Reykja
víkur, og skorar síðan á þá
í nafni stéttarfélagsins að
styðja lista kommúnista.
En áreiðanlegt er, að laun-
þegar fordæma slíka misnotk
un trúnaðar í stéttarfélagi, og
bæði meðlimir Trésmiðafélags
ins og annarra stéttarfélaga
munu svara þessu framferði
á viðeigandi hátt.
Spellvirki unnin
í Lyngási
Dagheimili styrktarfélags vangefinna
UM SÍÐUSTU helgi voru unnin
óhugnanleg spellvirki á dagheim-
ilinu Lyngás, Safamýri 5 hér í
borg, sem Styrktarfélag vangef-
inna starfrækir fyrir vangefin
börn.
Rólur á leikvelli barnanna
voru skornar niður bekkir og
borð í garðinum og í leikskála
á lóðinni voru brotin.
Brotizt var inn í þvottahúsið
og straumur settur á rafmagns-
pott, en í honum var mikill þvott
ur, sem orðinn var að ösku, er
starfsfólk heimilisins kom til
vinnu á mánudagsmorgun.
Hitaveitukerfið var einnig úr
lagi fært.
Dagheimilið starfar ekki frá
hádegi á laugardögum til mánu-
dagsmorguns og húsvörður er
enginn.
Börn og unglingar úr nágrenni
heimilisins þyrpast oft saman á
Afmæli Kven-
félags Akraness
Akranesi, 10. maí.
Á FERTUGASTA afmæli sínu
16. f. m. gerði Kvenfélagið hér
frú Þóru Hjartar að heiðursfé-
laga sínum. Hún er ekkja Frið-
riks Hjartar, fyrrverandi skóla-
stjóra barnaskólans. — Þá gáfu
hjónin Þórhallur Sæmundsson
bæjarfógeti og kona hans frú
Elísabet Guðmundsdóttir félag-
inu 10.000 kr. í afmælisgjöf.
lóðinni á kvöldin og klifra yfir
girðinguna. Hópur unglinga sást
þar á laugardagskvöldið.
Ekki verður þó neitt um það
sagt að svo stöddu, hvorrt þeir
hafa unnið þetta óþurftarverk.
Málið er í rannsókn hjá lög-
reglunni.
Bekkirnir og borðin á leik-
veílinum eru gjöf frá Lionsklúbb
einum hér í borginni.
Konur .í Styrktarfélaginu hafa
gefið dagheimilinu öll húsgögn
og leikáhöld inni og varið til
þess miklu fé. Er bágt til þess
að vita, er slíkt líknarstarf, sem
þessi þjónusta við mestu smæl-
ingja þjóðfélagsins nýtur ekki
friðhelgi.
Furðulegt er. að til skuli vera
fólk, sem stundar skemmdarstarf
semi slíka sem þessa.
(Frá Lyngásheimilinu).
Frager á ísafirði
BANDARÍSKI píanósnillingur-
inn Malcolm Frager hélt hljóm-
leika í Alþýðuhúsinu í kvöld á
vegum tónlistarfélags ísafjarðar.
Var húsfyllir á tónleikunum og
listamanninum frábærilega vel
tekið. Lék hann sömu efnisskrá
og á tónleikunum í Þjóðleikhús-
inu í gærkvöldi og var hann
ákaft hylltur af hrifnum áheyr-
endum og lék aukalega ung-
verska rhapsódíu nr. 8 eftir Liszt
og skozkt þjóðlag.
Ósinn við HöfSa-
vutn ruddur frum
BÆ, HÖFÐASTRÖND, 11. maú
— Fyrir nokkrum dögum réðust
bændur við Höfðavatn í að ryðja
vatnið fram. í stórbrimum á vetr
um lokast ósinn og vatnið lokast
frá. Þarf öðru hverju að ryðja
þar, til að fá nýjan silung og
æti í vatnið.
í þetta sinn fengu bændur jarð
ýtu af stærstu gerð til að ryðja
fram. Er þetta mikið verk, 50
m. eru milli kantanna í ósnum og
hann er svo djúpur að langt er
frá að hann sé væður. Er þetta
því mikið verk.
Hugsum við befcur til silungs-
veiði í sumar. í fyrrasumar var
þó góð veiði seinni hluta sumars.
Veitt er á stengur og einnig í lag
net. Hefur verið leigð veiði i
Höfðavatni. — Björo,
Ekið d fylíulla
hryssu
AKUREYRI, 11. maí — Um
miðnætti í nótt ók fólksbíll á
fylfulla hryssu á þjóðveginum
í Kræklingahlíð á móts við bæ-
inn Mið-Samtún. Lemstraðist
hryssan svo mikið að lóga varð
henni samstundis. Eigandi henn
ar var Sigþór bóndi Björnsson
á Hellulandi.
Bíllinn var óökufær á eftir
og hemlaför eftir hann reynd-
ust 45 metrar. Fleiri hross voru
þarna í kring, en urðu ekki
fyrir skemmdum. __ Sv. P.