Morgunblaðið - 12.05.1966, Síða 4
4
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 12. maí 1966
BILALEIGAN
FERÐ
SÍMI 34406
SENDUM
LITLA
bílnleigan
Ingólfsstræti 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
i >• •
m*—BíLALEIGAN
Falur t*
W'C
i
RAUÐARÁRSTfC 31
SÍMI 22022
Volkswagen 1965 og ’66.
MAGIMUSAR
SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190
eftir lokun simi 40381
BIFREIÐALEIGAK
VEGFERD
Grettisgötn 10.
Sími 14113.
Fjölvirkar skurdgröfur
I
ÁVALT TIL REIÐU.
Sími: 40450
Seljum i dag
Saab ’63
^olvo Amazon ’61.
Volvo 544 ’63.
Reno R 463.
Höfum kaupendur að góðum
6 manna bíl sem mætti
greiðast með ríkistryggðum
skuldabréfum og peningum.
r<3^ bílasoilci
Bergþórugötu 3.
Símar 19032 og 20070.
B O S C H
ÞOKULUKXIR
BRÆÐURNIR ORMSSON
Lágmúla 9. — Simi 38820.
'jÁ' Neytendasamtökin
Fyrir nokkrum dögum
birtum við bréf frá konu, sem
varaði við einni ákveðinni
tegund barnasnuða, sem hún
segir á markaðnum hérlendis.
Daginn eftir hringdi kona, sem
fær reglulega tímarit sænsku
neytendasamtakanna. í júlí-
ágúst hefti þessa rits í fyrra
var einmitt grein um barna-
snuðin og samkvæmt rann-
sóknum sænskra voru aðeins
þrjár tegundir af sextán á
markaði þar í landi taldar ör-
uggar. Hinar þrettán tegund-
irnar voru misjafnlega hættu-
lega, sumar stórthættulegar.
Það er greinilega ástæða til
þess að hvetja neytendasam-
tökin okkar til þess að athuga
þetta mál hjá okkur.
^ Skvaldur
í landsprófi
Móðir eins af sonum
Reykjavíkur, sem sitja í lands-
prófi í vor, hringdi til okkar
og sagði, að sonurinn kvartaði
mjög yfir skvaldrinu i kennur-
urunum, sem sitja yfir. Strák-
urinn og félagar 'hans eru sam-
mála um það, að kennararnir
trufli nemendur mjög með
þessu háttalagi — og bætti frú-
in því við, að dóttir hennar,
sem tók landspróf fyrir nokkr-
um árum, hefði líka kvartað
yfir þessu.
Stærðfræðin er í dag hjá
þeim í landsprófinu og því eru
yfirsetumenn og konur beðin
að hlífa nemendum og fara
fram á gang, ef þau geta ekki
setið á sér.
Orðsendingu þessari er hér
með komið á framfæri og von-
andi byrja kennararnir daginn
á því að lesa dagblöðin.
Veitingasala
Þótt margt sé dýrt á fs-
landi er fátt dýrara en gos-
drykkir á veitingahúsum.
Álagningin er sums staðar
átta til níu hundruð prósent
og er furðulegt að slíkt skuli
viðgangast. Upphaflega var
þetta heimilað þeim veitinga-
húsum, sem ekki seldu að-
gangseyri — og ekki höfðu
vínveitingar. En aðstæður eru
nú breyttar — og það nær
engri átt að selja eina flösku
af gosdrykk á verði, sem er
næstum þv} jafnlhátt verði á
vínskammtinum, sem gos-
drykknum er hellt út í. Slíkt
þekkist vart á byggðu bóli.
Aðrar veitingar eru líka
mjög dýrar á íslandi miðað við
það, sem gengur og gerist í
nágrannalöndum okkar — og
gallinn hjá okkur er sá, að hér
er ekki völ á neinu, sem ódýrt
getur talizt. Verðið á gos-
drykkjum og kaffi -er t.d. ekki
í samræmi við „standard“ veit-
ingahúsanna. 1 verði munar
það litlu eða engu hvort flaska
af kóka kóla er keypt á Hótel
Sögu eða aumasta veitinga-
húsi.
Ég fór að hugleiða verðlagið
almennt á veitingahúsum eftir
að ég drakk kaffi að Vailhöll á
Þingvöllum ek'ki alls fyrir
löngu. Þangað er alltaf
skemmtilegt að koma, jafnvel
þótt vegurinn sé slæmur — en
þangað mundu langtum fleiri
fara, ef vegurinn væri betri.
Ef við gætum ekið til Þing-
valla eftir vegi á borð við
Keflavíkurveginn mundi vera
þangað straumur allan ársins
hring. Meðan svo er ekki er
veitingasalan bundin við sum-
arið og skiljanlegt er, að rekst-
urinn sé tiltölulega kostnaðar-
samur þarna eystra. Samt er
■ einum of langt gengið að selja
einn kökudisk (tvær tertu-
sneiðar og þrjár smákökur)
fyrir þrjátíu og fimm krónur
— og kaffið kostar þarna tutt-
ugu og fimm krónur. Ég efast
um að hægt sé að finna vait-
ingastað í öllu Bretlandi, sem
tekur hálft sterlingspund fyrir
kaffibolla og nokkrar kökur.
'Ár Hótelin
Af því að við erum farin
að tala um veitingahús og hó-
tel má geta þess, að ýmsir hug-
leiða nú hvaða áhrif nýja Loft-
leiðahótelið muni hafa á hótel-
reksturinn { borginni. Hótel-
mennirnir sjálfir virðast ekki
vera mjögáhyggjufullir:„Næ-sti
vetur verður einhverjum erf-
iður“, segja þeir — „en eftir
tvö ár verðum við búnir að
fylla allt“.
Yfir háannatímann í sumar
verður Loftleiðahótelið það vel
setið, að það verður að senda
gesti yfir á Sögu.
Minnisvarði
verkfræðinga
Vegfarandi skrifar:
Velvakandi góður.
Fyrir um það bil 2 árum var
grafinn skurður þvert yfir
Reykjanesbraut á móts við
Kársnesbraut og Nýbýlaveg.
Framkvæmdir þessar gengu
vel og var unnið að þeim dag
og nótt, unz .verkinu var lok-
ið. Virtust aðgerðir þessar
hlutaðeigendum til hins mesta
sóma.
Leið nú og beið. Það kom
vetur og kólnaði í veðri, grund
in fraus. Tóku menn þá eftir
því, að það var eins og malbik-
ið tæki að síga, þar sem skurð
urinn hafði verið. Varð þetta
brátt hinn mesti farartálmi
állri umferð. Vegagerðin brá
loks við, eftir töluverðan tíma,
og fyllti tálmann, svo að bif-
reiðar kæmust óhindrað áfram.
— Enn leið nokkur tími. Það
fór að vora, og klaki fór úr
jörðu. Tóku menn þá eftir þvi,
að það var eins og malbikið
risi, þar sem skurðurinn hafði
verið og tálminn hafði mynd-
ast um veturinn. Lengi var
þarna tálmi, gagnstæður hin-
um fyrri, þ.e. heljarmikill gúll
á veginum og loks brá Vega-
gerðin við og svarf hann af
götunni.
Síðastliðinn vetur seig gat-
an aftur, það myndaðist hola.
Nú er komið vor og kominn er
gúll á ný. Hve lengi eiga menn
að hafa þarna vegartálma í
formi gúls eða holu? Það þarf
ekki mikla verkfræðikunnáttu
til þess að sjá, hve stórt asna-
spark verkfræðingar Vegagerð
arinnar hafa gert þarna. Þegar
skurðurinn var fylltur að fram
kvæmdum loknum hafa þeir
sett í hann gljúpa möl, sem
hleypir í gegnum sig vatni,
gagnstætt því, sem hinn mýr -
lendi jarðvegur umlhverfisins
gerir. Hinn blauti jarðvegur
bólgnar í frosti og þá myndast
hola, sem síðan er fyllt. Frost-
ið þiðnar á vorin og hinn mýr-
lendi jarðvegur dregst saman.
Eftir liggur á veginum uppfyll-
ingin frá vetrinum.
Nú er á veginum gúll. Brátt
mun Vegagerðin koma og
sverfa mesta kúfinn af, næsta
vetur myndast svo hola, hún
verður fyllt og síðan koll af
kolli. Það er glæsilegt minnis-
merki, sem verkfræðingar
Vegagerðar ríkisins hafa reist
sér þarna á miðjum Hafnar-
fjarðarveginum. Er ekki bann-
að að reisa minnismerki á
miðjum akbrautum?
Með þökk fyrir birtinguna.
Vegfarandi.“
Lagermaður
óskast
Óskum eftir að ráða strax eða sem fyrst
mann til afgreiðslu og lagerstarfa í sumar
eða lengur. Allar nánari uppl. á skrifstofu
okkar í dag og á morgun kl. 4—6.
ARNI GESTSSON
Gluggatjaldaefni
Nýkomið Fiberglass gluggatjaldaefni.
Breidd 115 cm.
Fiberglass efnin þarf ekki að strauja,
hlaupa ekki og láta ekki lit.
Litir: hvítt og ljósblátt.
Verð kr. 65 pr. m.
Einnig nýkomin TREVIRA stórisa efni
í mörgum breiddum og munstrum, með og
án blýkants.
Miklatorgi.
Bílar á kjördegi
ÞEIR stuffningsmenn Sjálfstæffisflokksins, sem lána vilja
flokknum bifreiðar sínar á kjördegi 22. maí eru beffnir aff
hafa samband viff skrifstofu bílanefndar í Valhöll.
Skrifstofan er opin daglega frá kl. 13—19 alla virka
daga. Símar 15411 og 17103.
Stjórn bílanefndar Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfboðaliðar
SJÁLFSTÆÐISFLOKKINN vantar fjölda sjálfboffaliffa vh
skriftir í dag og næstu daga. Þeir sem vilja leggja til liff sitt
hringi í síma 21409 — 17100 effa komi á kosningaskrifstofu
S.iáIfstæðisflokksins Hafnarstræti 19 3. hæff. (IIús HEMCO).