Morgunblaðið - 12.05.1966, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 12.05.1966, Qupperneq 10
10 MORCUNBLAÐIÐ Mmmtudagur 12. maf 1966 -K Ú L F A R Þórðarson lseknir segir okkur hér í stuttu rabbi frá því helzta, sem störf hans hafa sérstaklega beinzt að þau 6 ár, sem hann hefir starf að sem borgarfulltrúi í Reykjavík. ■i Úlfar Þórðarson þarf ekki að kynna borgarbúum, svo víðtæk og fjölþætt störf, sem hann hef- ir unnið hér í höfuðstaðnum og fyrir borgarbúa. Áhugi hans fyr ir heilbrigðismálum og heilsu- gæzlu, svo og íþróttamálum og flugmálum hefir markað hon- um mjög víðfemt starfssvið í borgarmálum undanfarinna ára. Tal okkar snýst fyrst um heil- brigðismál borgarinnar og breyttar aðstæður og fjöliþættari þjónustu, sem veitt verður þegar nýja borgarsjúkrahúsið er tek- ið í notkun og aðstæður skapast fyrir fjölþættari heilbrigðisþjón ustu í húsnæði því sem borgar- sjúkrahúsið hefir haft í heilsu- verndarstöðinni. — Borgin hefir fram til þessa Úlfar Þórðarson við störf í stofu sinnL Mannslíf okkar eru svo dýrmæt, að ekkert má spara til a& bjarga þeim Rætt við tilfar Þórðarson, lækni um heilsugæzlu og íþróttamál í borginni ekki haft veruleg afskipti af sjúkrahúsmálum fyrir geðveika, segir Úlfar. — Þó hefur Far- sóttarhúsið verið rekið fyrir geð vei'kisjúklinga, sem ekki hafa fengið inni á Kleppi og enn- fremur hælið að Arnarholti þar -■sem verið hafa vistmenn, sem ekki hafa átt samleið með öðru fólki, vegna ýmisskonar veiiu eða vöntunar á líkamlegri og andlegri heilbrigði, segir Úlfar ennfremur. Og hann heldur áfram: —Nú hefir borgin hazlað sér völl á nýju sviði í þessum efn- um með stofnun sérstakrar geð- sjúkdómadeildar við nýja borg- arsjúkrahúsið, sem Karl Strand, hinn góðkunni læknir, mun veita forstöðu, en hann hefir um langt árabil verið geðlæknir við sjúkrahús í London. Eru miklar vonir bundnar við hinar nýju framkvæmdir. Fram til þessa hefir verið svolítið hlé á framkvæmdum hvað snertir sjúkrahúsmál geðveikra þrátt fyrir mjög vaxandi þörf, en þessi mál 'hafa verið talin verk- efni ríkisins, en í þessari sér- grein læknisfræðinnar hafa bata horfur sjúklinga stóraukizt með nýjum lyfjum og nýjum aðferð- um. Um það má segja að með- ferð geðveikra hafi tekið helj- arstökk fram á við á síðustu árum. Við ræðum næst við Úlfar um byggingu borgarsjúkrahússins og byggingartíma þess. Um það segir hann: — Menn gera sér enga grein fyrir því hve gífurlegt átak það er að koma upp fullkomnu sjúkrahúsi í dag. Ég hef nýlega fengið upplýsingar um byggingu nýrra sjúkrahúsa í Danmörku. í»ar er fyrst til að taka að bygg ing þeirra hefir tekið miklu lengri tíma en í upphafi var ráðgert og kostnaður við bygg- inguna, fullfrágengna með öll- um nýjustu tækjum, hefir alltaf farið langt fram úr áætlun. Skal þess getið að kostnaðurinn á hvert sjúkrarúm hefir numið frá IV2 millj. (ísl. kr.) og upp í 2 milljónir. Sjá menn glöggt af þessu hversu geysilegt átak bygging sjúkrahúss er. Það er ekki ófróðlegt að minnast þess að byggingarframkvæmdir hóf- ust við Borgarsjúkrahúsið 1954 á tímum leyfa og haftastefnu framsóknar. Þá leyfðu yfirvöld- in fjárfestingu á fyrstu 5 árun- um fyrir samtals 16.6 milljónir, en á sl. ári einu lagði borgar- sjóður 3—4 sinnum það fjár- magn fram. Þessar upphæðir kunna mönnum að þykja svim- andi háar. En mannslíf okkar eru svo dýrmæt að það má ekk- ert til spara til að bjarga þeim. — Á sama tíma og fyllsta þörf er fyrir nýtt og fullkomið sjúkra hús, þá er verið að byggja upp ört vaxandi borg. Og kröfur tím ans eru mun meiri nú en áður var. I stofu, þar sem settir voru 10 og 12 sjúklingar hér áður fyrr, eru nú aðeins settir 6, seg- ir læknirinn ennfremur. næði þar sem hægt er að endur- hæfa fólk, sem á við langvar- andi afleiðingar sjúkdóma að ræða, svo sem þjálfun þeirra, er hafa lamast af völdum heila- blæðingar, svo eitt dæmi sé nefnt. Á þeirri stofnun þarf að hafa sérhæft starfslið, og verð- ur tekið til við þjálfun þess og sérhæfingu, þegar stofnunin er tekin til starfa, en fram til þessa hefir aðeins fengizt sérhæft fólk til þessara starfa frá út- löndum. Úlfar sagði að fyrirhugað væri að leggja niður tvo spít- ala, sem eru í eigu borgarinnar þ.e. Hvítabandið og Farsóttar- húsið, en þessi hús verða þó áfram rekin í þágu sjúkra, en á allt annan hátt en áður. Úlfar Þórðarson er ennfremur í heilbrigðisnefnd, en henni er ætlað að vaka yfir velferð og heilbrigði borgaranna, sem enn er þó merkilega lítið vinsælt starf. Hann segir okkur að nú sé verið að stofnsetja nýja deild við borgarlæknisembættið undir stjórn Björns Önundarsonar læknis. Þessi deild á að kanna hollustuhætti á vinnustöðum og atvinnusjúkdóma. Þeirra gætir i æ ríkari mæli með tilkomu ým- issa hættulegra efna, sem not- uð eru í ýmiskonar iðnaði og raunar við fleiri störf. Og það er ekki nóg að atvinnurekandinn viti um óhollustu efnanna og vilji ráða bót á meðferð þeirra. Fólkið sjálft, sem með það vinn- ur, verður að skilja hættuna og því þarf að þjálfa það í meðferð þeirra. Oft veit það um hættuna en hirðir lítið sem ekki um hana og ýms efni eru oft mikiu hættu legri en menn gera sér grein fyrir. Starfsemi þessarar stofn- unar er fólgið í því m.a. að venda einstaklinginn fyrir at- vinnusjúkdómum og það verða einstaklingarnir að skilja. Við bindum miklar vonir við þessa stofnun. Fleiri stofnanir verða og settar á fót í Heilsuverndar- stöðinni. Þar verða gerðar alls- konar fjöldarannsóknir á fólki FRAMBJÓÐENDUR Úlfar Þórðarson, ásamt eiginkonu sinni, Unni Jónsdóttnr á heimili þeirra hjóna. — Afskipti af þessum málum hafa tekið mestan hluta tíma míns í þágu borgarinnar. Ég hefi verið í sjúkrahússnefnd frá byrjun. Nefndin á að hafa yfir- umsjón með öllum sjúkraihúsum. og heilbrigðisstofnunum á veg- um borgarinnar . í Arnarholti hefir nýlega ver- ið byggt og tekið í notkun mjög fullkomið starfsmannahús og verið aukið við rými fyrir vist- menn. Á næstunni eru einnig fyrirhugaðar þar enn fleiri ný- byggingar og verður þá allt full komnara og þægilegra fyrir vist mennina. Þegar húsrými losnar á Heilsu verndarstöðinni á að koma þar upp ýmsum merkum stofnunum. Ein af hinum athyglisverðustu nýjungum þar, sem kemur í notkun innan skamms, er ný rannsóknarstofa, þar sem hægt er að fylgjast með matvælum, gæðum þeirra og hollustuhátt- um. Þegar um er að ræða gall- aðar matvörur verður að fá mjög fljótt syar við því af hvaða orsökum gallarnir eru. Einnig er nauðsyn að stöð þessi sé í nánu sambandi við embætti borgarlæknis. Rannsóknarstöð þessi getur orðið fleirum en horg urum Reykjavíkur til góða, þar sem samgöngur eru greiðar við landið mest allt og hægt að senda matvæli hvaðanæva að þangað til rannsóknar. Stofn- setning slíkra stöðva er of viða- mikil og kostnaðarsöm til að hægt sé að ætlast til að þær rísi víða upp. Leitað hefir verið samstarfs við ríkisvaldið um stofnun þessa og jákvæðar undir tektir — en ríkinu ber lögum samkvæmt að greiða kostnað af matvælaeftirliti. — Þá er gert ráð fyrir að í Heilsuverndarstöðinni fáist hús- með tilliti til sjúkdóma, sem hægt er að halda næsta óskað- legum ef þeir eru uppgötvaðir nægilega snemma. Má þar nefna sykursýki, heyrnartruflanir, hjá jafnt yngri sem eldri og gláku- blindu. Allt á þetta að fara fram í húsnæði þvj sem Borgarsjúkra- húsið og Slysavarðstofan hefir haft í Heilsuverndarstöðinni. Það tekur þó að sjálfsögðu allt sinn tíma að koma þessum stofn- unum af stað. Úlfar benti í þessu sambandi á ýms félög á'hugamanna, sem haft hafa fc \ ngu um læknarann- sóknir á ^ ~>»viðum. Nefndi hanti þar Hjartavernd og Krabba- meinsfélagið. — Borgarstjóm mun styrkja þessi félög í starfi þeirra en ekki taka upp neina samkeppni við þau. Það fer vel á því og er alla jafna árangurs- ríkara að störf sem þessi séu að öðrum þræði unnin af áhuga mönnum, sagði hann. — Að sjálfsögðu krefst öll þessi starfsemi aukins starfsliðs á vegum borgarinnar, segir Úlf- ar ennfremur, — en við eigum líka að fjölga starfsliðinu við þessa starfsemi. Það ber vott um svo algert akilningsleysi' and- stæðinga meirihlutans j borgar- stjórn þegar fjargviðrast er yf- ir auknu mannaveldi borgarinn- ar og fjölgun starfsliðs hennar, að slíkt tekur ekki tali. Menn verða að gera sér grein fyrir því að það verður að auka staNs lið bogarlæknisembættisins og þar með auka kostnaðinn við það. Að skera niður gjöld til þess embættis er sama og sýna heilsu borgaranna vítavert hirðu leysi. Heilsuvernd er frumskil- yrði til þess að í borginni lifi hamingjusamt fólk, því til hvers væri allt það sem gert er í bygg Framhald á bls. 30

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.