Morgunblaðið - 12.05.1966, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 12.05.1966, Qupperneq 14
Fimmtudagur 12. maí 1966 14 Útgetandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Ritst j órnarf ulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Askriftargjald kr. 95.00 llausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. SKIPULAG REYKJA VÍKUR F’itt af stórmálum þeim, sem leyst hafa verið á yfirstandandi kjörtímabili, er heildarskipulag Reykjavíkur- borgar og skipulagning Reykjavíkursvæðisins svo- nefnda í samvinnu við ná- grannabyggðarlög borgarinn- ar. Hér er um stórverkefni að ræða, sem útheimt hefur geysimikla undirbúnings- vinnu, og er það ljóst öllum þeim, sem skoða hina stóru og merku bók, sem gefin hef- ur verið út um skipulag Reykjavíkur. Heildarskipulagi Reykja- víkur og skipulagningu gamla Miðbæjarins hefur verið vel tekið af borgarbú- um, en fyrirfram hefði þó mátt ætla að skoðanir væru skiptar í máli sem þessu, enda þarf að taka ákvörðun um hagnýtingu einstakra lóða og breytingu gatna, sem við- kvæmt hlýtur að vera fyrir lóðareigendur. En skipulags- vinnan hefur verið svo vel af hendi leyst, að segja má, að skipulagningu sé nær ein- róma fagnað af Reykvíking- um. Hinsvegar var við því að búast, að þeir, sem lítt bera hag Reykjavíkur fyrir brjósti, mundu reyna að gera þetta merka starf tortryggi- legt. Er líka komið á daginn, að borgarfulltrúar Framsókn arflokksins láta blað sitt stunda þá iðju, enda þótt þeir sjálfir greiddu atkvæði með skipulaginu. En í þessu sam- bandi er ekki úr vegi að rifja það upp, að hinir erlendu skipulagsfræðingar hafa lýst því yfir, og kom það m.a. fram á blaðamannafundi, að óvenjulega lítill kostnaður ýrði hér í Reykjavík við að ná góðu framtíðarumferðar- kerfi og skipulagi miðað við aðra bæi, þar sem aðalskipu- lag hefði verið gert. Þá er og um það getið í bókinni um aðalskipulagið, að fyrir- hyggja borgaryfirvalda hefði mjög auðveldað skipulags- starf. Auðvitað má halda því fram, að aðalskipulag Reykja víkurborgar sé of seint gert, en þess er þó að gæta, að byggðin fram að þessu hefur ekki torveldað heildarskipu- lagið, eins og sérfræðingarn- ir benda á, en þar að auki er ljóst, að framfarir og breyt- ingar í umferðarmálum verða mjög miklar, nærri því frá ári til árs, þannig að líklegt er að heildarskipulag, sem gert hefði verið fyrir einum eða tveimur áratugum, hefði nú þarfnast breytinga og end urbóta, og ekki víst að auð- veldara ,hefði verið um vik, heldur en raunin varð á. Annars er það táknrænt um málflutning þeirra, sem berjast gegn öllu því, sem af stórhug er gert, að til skamms tíma töluðu þeir um Miklu- brautarævintýrið og fjarg- viðruðust yfir þeim kostnaði, sem samfara væri gerð þeirr- ar miklu og góðu brautar, en telja nú að alltof lítið hafi verið að gert, og mikill kostn- aður muni verða við oreikk- un Miklubrautar í framtíð- inni. Meginatriði' málsins er það, að unnið hefur verið að skipu lagi Reykjavíkur af stórhug og framsýni, og á grundvelli heildarskipulagsins mun rísa enn fegurri og betri borg. Sú staðreynd er raunar eitur í beinum Framsóknarmanna, sem auglýsa andstöðu sína við framfarir í höfuðborg- inni með því sýknt og heilagt að reyna að sannfæra sjálfa sig og aðra um það, að hér sé allt í ólestri. Leynir sér ekki, að þeir óska þess innilega að svo væri í raun og veru. SKULDABRÉFA- LÁNIN Díkissjóður hefur nú enn einu sinni boðið út ríkis- skuldabréf með hagkvæmum kjörum, og hefur eftirspurn almennings eftir þessum bréf um enn sem fyrr verið mjög mikil. Auðvitað orkar tvi- mælis hve hagstæð kjör eiga að vera á slíkum bréfum, einkum þó ákvæðið um skatt frelsi, sem Mbl. telur að ekki geti orðið til frambúðar, ef áfram verður haldið á braut skuldabréfaútgáfu. En meginatriðið er það', að sú stefna er rétt, að ríkisvald, og raunar líka sveitarfélög, afli nokkurs hluta þess fjár, sem þarf til sameiginlegra út- gjalda og framkvæmda borg- aranna með lántöku hjá þeim í stað þess að heimta féð í sköttum. Þannig verða eign- arráð fjármagnsins áfram í höndum borgaranna, þótt hið opinbera fái peningana til af- nota til nauðsynlegra fram- kvæmda. Fjármálalegt sjálfstæði borgaranna er ekki skert við skuldabréfaútgáfu, gagnstætt því sem er við skattheimtu. Þegar miklar opinberar fram kvæmdir eiga sér stað eins og hér er nú, á þess vegna að taka peninga tiíl þeirra að láni á þann hátt, sem nú er gert, en ekki að þyngja skatta byrð» MORGUNBLAÐIÐ ,Eg ræsti fram tjörnina, en fann ekkert Katanesdýr' Afmælisrabb við Jón Ólafsson sjötugron „MÉR hefur orðið allt tíl bless- unar, en það er ekki mér að þakka. Það er forsjónin. Ég hef alltaf vitað, að það var einhver hönd, sem hefur leitt mig og stendur á bak við mig og allar mínar gerðir“. Það er Jón Ólafsson frá Kata- nesi, sem þannig mælti við blaða mann Morgunblaðsins í fyrradag, þegar hann hitti Jón að máli í tilefni sjötugsafmælis hans, sem er í dag. Litlu stofurnar á Nýlendu- götu 24 B, en þar er heimili Jóns og Katrínar Guðbjartsdóttur, eru hlýlegar og manni líður vel þar inni. Ég er kominn þangað til að spjalla örlítið við Jón Ól- afsson og fræðast um þá tíma tvenna, sem hann hefur lifað. „Hvar ertu fæddur og uppal- inn, Jón“, spyr ég fyrst. „Ég er fæddur að Geitabergi í Svínadal árið 1896. Faðir minn, Ólafur Jónsson, bjó þar í 18 ár, .en ættaður var hann frá Lamb- haga í Mosfellssveit, en móðir mín hét Guðrún Rögnvaldsdótt- ir frá Skálatanga á Akranesi. Ég hef svolítið fengizt við að rekja ætt hennar, og hef rakið hana í gegnum Skarðsverja til Auðar djúpúðgu. Árið 1899 flytja foreldrar mín- ir að Katanesi á Hvalfjarðar- strönd, en faðir^ minn keypti þá hálfa jörðina. Ég naut foreldra minna ekki lengi við, því að ég missti þau hvort á eftir öðru, þegar ég var 14 og 15 ára“. „Þú hefur þá sjálfsagt ekki verið látinn ganga langskólaveg- inn?“ „Nei, og ég get svarað þér með vísu, sem ég gerði um það, og hún er svona: Ég fór skóla aldrei í, angrar mig það stundum. Og lífið ekki leynir því, að listir ei við numdum. Annars sagði mér það spákona nýverið, að ég hefði átt að leggja fyrir mig lögfræði, og taldi, að með því móti hefði ég náð langt á fjármálasviðinu. Það er raunar allmerkilegt með þessa spákonu, að hún gat sagt mér um andlát föður míns og móður minnar, á hvaða aldri ég var þá — og þá fór ég eiginlega að taka mark á spádómum hennar. Eftir ég missti foreldra mína, flæktist ég víða og starfaði við ýmiss legt, en árið 1922 hóf ég búskap á Katanesi, en áður hafði ég átt heima í Reykjavík, kvænt- ur og átti 3 börn með fyrstu konu minni, Jónínu Jónsdóttur, en hana missti ég. Kvæntist ég þá Ólöfu Jóns- dóttur, og átti með henni 2 börn, en við skildum samvistir, en nú bý ég með Katrínu Guðbjarts- dóttur, ættaðri frá Bolungavík, og við unum hag okkar hér vel. Ég undi svo sem hag mínum vel á Katanesi, skuldaði engum neitt og átti allgott bú, og ég byggði öll þessi hús, sem þú sérð á þessu málverki þarna og gott betur, því að hlaðan og fjósið sjást ekki á myndinni. Þú spyrð um bústofninn hjá mér, og því er til að svara, að ég átti nokkrar úrvalskýr, ekki mjög margar, um 200 fjár, en hesta átti ég flesta um 100 tals- ins, en þó held ég, að ég hafi flest alið yfir vetur 84 hross. Sjálfsagt væri ég enn á Kata- nesi, ef ég hefði ekki veikzt árið Þar að auki hlýtur innlend skuldabréfaútgáfa að vera heppilegt hagstjórnartæki, og á þenslutímum er heppilegt að afla fjár til framkvæmda á þennan hátt 1958, og varð þá að bregða búi. Ég vil hafa víðsýnt í kringum mig og á Katanesi sá ég víðan og fagran sjóndeildarhring. Ég uni mér svo sem vel hérna í Reykjavík, en einhverntíma var einhver að segja við mig, að erfitt væri hér að lifa, og svar- aði ég honum þá með þessari vísu: Þó lifað hafi langa vakt og lúin ferðaflík. Mér er það í lófa lagt að lifa i Reykjavík. Sumir kalla mig efnaðan. Má og vel vera að ég eigi eitthvað, og eitthvað hef ég fengist við verðbréfaviðskipti, eftir að hingað kom — en það er þá af Jón Ólafsson frá Katanesi því, að ég er nefnilega skilamað- ur. Það hefur aldrei falilð á mig víxili. Ég var að verða 65 ára, þegar ég lagði fyrst lönd undir fót, ferðaðist um öll Norðurlönd og Skotland. Þú hefur máski gaman að heyra það, að við eigum sama sem hús á syðstu eyju við Dan- mörku, Ærö. Yndislegt lítið hús, og þar eigum við innbú og bú- slóð aðra, og höfum oftast dval- izt þar á sumrin". „Farið þið þangað í sumar?“ „Nei, spákonan ráðlagði mér að ferðast ekkert í sumar, og við það skal ég standa. Ærö er yndis leg eyja, 30 km á lengd og 7 á breidd, og þeir ytra kalla hana Paradísareyju. Segja hana hafa allt, sem Mallorca hefur ekki, enda er ferðamannastraumur þangað gífurlegur. Hérna sérðu mynd af húsinu, og hér er kort af Ærö, og húsið okkar er þar sem krossinn er. Eiginlega er þetta þýzk eyja, en hún gleymd- ist hreinlega í einhverjum milli- ríkjasamningum eftir stríð, og tilheyrir nú Danmörku". „Heyrðu mér, Jón, þú sem ert frá Katanesi. Sástu aldrei það nafntogaða skrýmsli, Katanesdýr ið?“ „Ó, nei, það er tómt bull og lygi. Það voru smalar frá Kata- nesi og Galtarholti, sem komu sér saman um að ljúga þessu upp til að verða sér úti um hesta. Annars kom einu sinni útlend- ingur að Katanesi, og fór síðan með lögferjunni yfir að Eyri, en skildi eftir gríðarstóran hund, sem ekki sinnti neitt mönnum, og sagnirnar um Katanesdýrið er ef til vill hægt að rekja til þessa hunds. Lögferja var frá Katanesi yfir að Eyri um lang- an aldur, og kostaði aukaferð 2 krónur, en annars 50 aura fyr- ir manninn.“ „Hvað svo með þessa frægu tjörn, sem Katanesdýrið átti aS hafast við í?“ „Tjörnina? — Ég ræsti hana fram, alla leið niður í Hvalfjörð, og þar sem hún áður var, eru nú rennisléttar engjar, 50 dagsláttur að stærð. Og ég fann ekkert dýr, ekki einu sinni beinagrind, enda hafði ég engan áhuga á þessari furðuskepnu. Ég var oft búinn að krossganga tjörnina. Hún þornaði á sumrum. — Annars eru þarna tvö stór vötn, Hólmavatn og Eiðisvatn. Mér er sagt, að komið hafi fram tillaga í enska þinginu, að dæla upp vatninu úr Loch Ness til að sannreyna, hvort þjóðsag- an um skrýmslið væri á rökum reist. — Ég lét mér nægja að ræsa þessa tjörn fram, og lauk við það árið 1943, — en dýrið fyrir- fannst ekki. Heilsufar mitt var gott fram eftir allri ævi, en fyrir rúmu ári veiktist ég alvarlega, en eftir langar legur og með því að fara að læknisráðum, hef ég frískast mikið og finn, að ég er að fá heilsuna á ný. Og þetta orti ég fyrir 10 árum: Mælt hef hey og mokað skít mína flesta daga. Sextugur blað ég brýt, þá byrjar önnur saga. Mér er sem sagt óðum að fara fram.“ Með þessu ljúkum við stuttu afmælissamtali við Jón Ólafsson frá Katanesi, manninn, sem ræsti fram tjörnina, en fann ekkert skrýmslið, manninn, sem_ á hús í sólinni á Paradísareyju. I dag er hann 70 ára, og vinir hans minn- ast hans með þakklæti, þar sem hann situr í fallegu stofunum á Nýlendugötu 24B, og bíður eftir því að sumarið líði, svo að hann og Katrín megi eitt sumar ennþá gista Ærö, gista aftur sumar- langt í Paradís. Fr. S — Minning Framhald af bls. 12 dottið ýmislegt í hug. Það þekkir enginn þá leið, sem aldrei var farin. Þá kemur mér og stund- um í hug, hvort ekki hefðu e.t.v, orðið önnur og minni afrek sveit unga hans, Davíðs skálds frá Fagraskógi, ef hann hefði ekki orðið fyrir því böli að veikjast á yngri árum. Bölið sjálft getur aldrei verið blessun, en það er blessun að geta brugðizt svo við því, að menn verði þrátt fyrir það en ekki vegna þess, góðir menn og nýtir, veglyndir og vin- sælir. Mér er það vel ljóst að Viggó vinur vor var lítt hrifinn af opin- beru lofi og vildi ekki einu sinni að vinstri höndin vissi hvað sú hægri gjörði. Gat ég þó ekki, sjálfs mín vegna, byrgt það inni, sem mér bjó í brjósti og ég hef hér lýst að nokkru. Þykist ég og vita, að fjölmargir muni vilja taka undir með mér og lýsa yfir þakklæti sínu, aðdáun og vinar- hug í hans garð nú að leiðarlok- um. En e.t.v. eru þau eftirmæli bezt, sem ósögð eru en fylla hug- skotin þeim kenndum, sem tald- ar voru. Þeir, sem byggja sér i lifandi lífi slíkan minnisvarða á gröf sína, eru gæfumenn. Sigurður J. Gíslason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.