Morgunblaðið - 12.05.1966, Page 27

Morgunblaðið - 12.05.1966, Page 27
Mmmtudagur 12. maí 1966 MORCUNBLADID Elín Sigurðardóttir IMinning ' F. 11. maí 1899. D. 7. maí 1966. Hinzta kveðja frá Lilju Guðmundsdóttur. Söknuður grípur sár um hjarta mér er sagt var að búið væri líf hjá þér. Bros þín og trú, mér báru jafnan ■ • sól. Blíða og hógværð, vermdu það er kóL Saman við tvisvar sjúkrahúsi á sjúkaí við lágum, glöð varstu jafnan þá. Ei var svo dimmt, né döpur nokkur stund, að dimman ei hyrfi fyrir bjartri lund. k ' Beynslan var sár, en söm var róin þín. Sönn var og staðföst barnsleg trúin þín. Birgðir þú jafnan böl og hverja raun, brosið var þinna vina sigurlaun. Ég kveð þig mín vina klökk með þessum söng, hverfult er lífið, gatan köld og þröng. Minningaheimar mínir geyma þó mátt þinn og kærleik — trúar þinnar ró. X-DX-D Utankjörstaðakosning Þeir sem ekki verða heima á kjördegi geta kosið hjá sýsfumönnum, bæjarfógetum og hreppstjórum og í Reykjavík hjá borgarfógeta. Erleudis er hægt að kjósa hjá íslenzkum sendiráðum og ræðis- mönnum sem tala íslenzku. V' Kosningaskrifstofa borgarfógeta í Reykjavík cr í Búnaðar- , félagshúsinu við Lækjargötu. — Skrifstofan er opin sem hér segir: Alla virka daga kl. 10—12, 2—6, 8—10 og sunnudaga 2—6. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Hafnarstræti 19, 3. hæð, veitir allar upplýsingar og aðstoð í sambandi við utan kjörstaðaatkvæðagreiðsluna. Skrifstofan er opin daglega frá kl. 10—10. Símar: 22637 og 22708. Upplýsingar um kjörskrá eru veittar í síma 22756. Kosningaskrifstofur Sjálfstæðisflokksins SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur kosningaskrifstofur utan Reykjavikur á eftirtöldum stöðum: AKRANESI Vesturgötu 47, sími: 2240 opin kl. 10—12 og 14—22. * ÍSAFIRÐI Sjálfstæðishúsinu H. hæð, sími 537 og 232 opin kl. 10—19. SAUÐÁRKRÓKI Aðalgötu 5, sími 23 — opin kl. 10—18. SIGLUFIRÐI Sjálfstæðishúsinu, sími 71154 opin kl. 13—19. AKUREYRI Hafnarstræti 101, sími 11578 opin kl. 10—12, 14—18 og 20—22. VESTMANNAEYJUM Samkomuhúsinu, Vestmannabraut 19, sími 2233 opin kl. 10—12, 14—19 og 20—22. SELFOSSI Hafnartúni, sími 291 opin kl. 9—17 og 19,30—21. KEFLAVIK S jálfstæðishúsinu, sími 2021 opin kl. 10—19. HAFNARFIRÐI Sjálfstæðishúsinu, sími 50228 opin kl. 9—22. GARÐAHREPPI Lyngási 8, sími: 51690 — 52340 — 52341 opin kl. 15—18 og 20—22, laugardaga og sunnudaga kl. 14—18. KÖPAVOGI Sjálfstæðishúsinu, sími: 40708 opin kl. 9—22. SELTJARNARNKSI :Melabraut 56, sími 24378 opin kl. 18—22. Ég kveð þig mín vina, Klökk er lundin min. Krogsinn er eina sólin er nú skín. Frelsarans ljúfa líknarríka hönd, leiði þig vina inn á himins strönd. Ég bið að við mætumst morgun- stundu á. Munu þá tárin þorna af hverri brá. Ástvini leið þú ljúfi faðir kær, í lifsins dimmu stattu þeim nú nær. Ljósið þitt Guð nú lýsi þeirra braut. — Liðin er vina okkar sára þraut. — Lof sé þér fyrir líf hvers göfugs manns. Lúta við verðum kjörum skapar' ans. Borgfjörð. Framhald af bls. 32 ÓLAFSVÍK — Afli hefur ver- ið rýr það sem af er maí. Bát- arnir eru sem óðast að taka upp net sín og hætta, aðeins 2—3 bátar eftir. Vertíðin hefur verið í meðallagi, heldur betri en í fyrra. Munaði um 500—600 tonn- um um síðustu mánaðamót. Tíð- arfar hefur verið erfitt í allan vetur og sjómenn orðnir þreyttir á því. — Hinrik. ★ GRUNDARFIRÐI — Grundar fjarðarbátar eru í þann veginn að hætta veiðum. Sumir eru þegar hættir, aðrir hætta næstu daga. Vertíðin var sæmileg hjá þeim, meðalafli á bát mun vera eitthvað nálægt 700 tonnum á bát, og aflahæstu bátarnir með um 800 tonn. Gerðir voru út 6 bátar, sem veiddu í þorskanet- Framan af voru slæmar gæftir hjá bátunum, en þegar leið á aprílmánuð fór veðráttan batn- andi og afli glæddist. — Bmil. ★ Akranesbáltar veiða síld. AKRANESI — í gær tóku upp netin vélbáturinn Sigurfari, Haf örninn og Rán. >ar var veizla um borð eftir lönaun. Hinir bát- arnir eru líka að taka upp netin. í gær bárust um 700 tunnur af síld hingað. Síldina veiddu þeir vestur í Jökuldjúpi. Höfrungur II fé’kk um 600 tunnur og Höfr- ungur III 100 tunnur. Þetta er stór og falleg hafsíld. Hún er hraðfryst. -— Oddur. ★ Betri vertíð en í fyrra. SANDGERÐI — Flestir bát- arnir eru að taka upp netin og fáir eftir við veiðar. Vertíðin hefur verið töluvert betri en í fyrravetur og fengizt þó nokk- uð meira magn af fiski. Að vísu er nokkuð af því sem fram yfir er loðna, en þó er þorskaflinn líka betri- Stóru bátarnir fara vafalaust fljótlega á síld, og strax upp úr 15. fara hinir á humarveiðar. — Páll. KEFLAVÍK — Allflestir bát- anna eru að hætta, en þar sem sjómenn eru á samningi til 15. maí, verða ekki endanleg lok hér fyrr en þá. Afli hefur verið afar lélegur að undanförnu, og vertíðin í heild verið neðan við meðallag — hsj. Hættir á Eyrarbakka og Stokks eyri. 3. maí. Heildaraflinn á vertíð- inni er þessi: >orlákur Helgi 512 tonn, Kristján Guðmundsscn 483 tonn, Hafnfirðingur 367, Jó- hann Þorkelsson 276 og Fjalar 102 tonn. Alls eru þetta 1738 tonn. Hafnfirðingur og Jóhann byrjuðu ekki fyrr en í marz og Fjalar í apríl. — Óskar Fjölmennur Vorboðniundur Sjálfstæðiskvennafélagið Vor- boðinn í Hafnarfirði hélt fund í Sjálfstæðishúsinu i síðastliðinni viku og var hann mjög fjölsótt- ur, eða troðfullt hús. Fundar- stjóri var formaður félagsins, frá Jakobína Mathiesen, en stutt ar ræður fluttu frú Helga Guð- mundsdóttir, frú Elin Jósefs- dótir, frú Sólveig Eyjólfsdóttir, frú Sigurveig Guðmundsdóttir og Þorgeir Ibsen skólastjóri. Sýndi þessi fjölmenni fundur Vorboðans að Sjálfstæðiskonur í Hafnarfirði eru staðráðnar í að vinna ötullega að glæsilegum sigri Sjálfstæðisflokksins og tryggja frú Helgu Guðmunds- dóttur setu í bæjarstjórn. — Sumarbúðir Framhald af bls. 3. Menntaskólaselið (stúlkur) 1 fl. 28. júní - 9. júlí 2. fl. 11. júlí - 29. júlí 3. fl. 3. ágúst - 16. ágúst 4. fl. 18. ágúst - 31. ágúst Skáliholt (drengir) 1. fl. 28. júní - 9. júlí 2. fl. 11. júlí - 29. júlí 3. fl. 3. ágúst - 16. ágúst 4. fl. 18. ágúst - 31. ágúst Eins og sést af þessu eru ein göngu drengir í hinum nýju Skálholtsbúðum, telpur í Mennta skólaselinu, en bæði drengir og stúlkur að Kleppsjárnsreykjum. - EBE Framhald af bls 1 ig í sér algert tallasamband að því er varðar iðnaðar- og land- búnaðarvöi-ur — án nokkurra tollmúra milli bandalagsland- anna en með sameiginlegan toll- múr gagnvart löndum utan banda lagsins og mun samkomulagið ganga í gildi 1. júlí 1968. Þetta er síðar en V-Þjóðverjar vildu, en fyrr en Frakkar kusu, að því er hermt er í Brússel. Innbyrðis tolla á iðnaðarvörum á að lœkka um 5% 1. júlí næsta ár og fella niður algerlega ári síðar. Síðasti þáttur samningavið- ræðna ráðherranna hófst á mið- vikudag í fyrri viku og komu ráðherrarnir aftur saman á mánu dag eftir helgarhlé. Fulltrúar Efnahagsbandalagsins hafa allan tímann gefið í skyn að samkomu- lag myndi nást þessu sinni en engin dul er dregin á það nú að mikilj ágreiningur hafi verið með aðilum um margt og að erfitt hafi verið að finna iausn sem öll sex aðildarríkin gátu sætzt á. 'AHMM HAFNAR- SVEITARFÉLÖGIN þurfa að afla sér tekna til hinnar marg- háttuðu starfsemi, er þau hafa t með höndum. Einn aðaltekju- stofn þeirra eru útsvör og að- stöðugjöld. Til að skattstofn þessi verði ekki til að draga úr framfara og framkvæmdaþrá einstaklinga og fyrirtækja er nauðsynlegt að stilla álagningar reglum í hóf og hafa ekki ó- eðlilegt misræmi á milli ná- grannabyggðarlaga. Eitt höfuðverkefni bæjar stjórnar Hafnarfjarðar á því kjörtímabili, sem nú er að líða hefur verið að lagfæra misrétti milli Hafnfirðinga og nágranna- byggða í þessum efnum. Útsvör einstaklinga og fyrirtækja hafa jafnan verið miklu hærri í Hafn- arfirði en t.d. í Reykjavík- Hef- ur það leitt til lakari lifskjara en þurft hefði að vera. Á s.l. ári tókst að lagfæra þetta mis- rétti að fullu og var notaður sami útsvarsstigi og aðstöðu- gjaldsstigi í Hafnarfirði og Reykjavik og öðrum nágranna- byggðum. Svo rammt kvað að þessarl skattpíningu í Hafnarfirði, að t.d. stundum urðu einstaklingar að greiða um 20% hærra útsvar í Hafnarfirði en í Reykjavik og t.d. árið 1961 urðu nýlenduvöru- verzlanir að greiða 145% hærva veltuútsvar í Hafnarfirði en í Reykjavík, kjöt og fiskverzlanir og fiskiðnaðarfyrirtæki 104% hærra, bóka- og ritfangaverzl anir 116% hærra, önnur verzlun 143% hærra, iðnaðarmenn við sjálfstæð stprf 67% hæra og iðn- fyrirtæki 94% hærra. Hér eru aðeins örfá dæmi nefnd- Yið það að færa þessar álögur í sama horf og í Reykjavík hafa áhrifin orðið þau, að þátttaka atvinnurekstursins í heildartekj- um Hafnarfjarðar af þessum gjaldstofni hefur aukizt úr 15,05 % 1958—1961 í 17,13% árin 1962 —1965. Sýnir þetta bezt hve skattpíning þessi hefur verið neikvæð og staðið i vegi fyrir bættum kjörum fólksins og vexti og viðgangi alls atvinnu- og at- hafnalífs í Hafnarfirði. Að þessari skattpíningu stóðu fastast kommúnistaöflin, þ.e. kommúnistar og vinstri öflin í Alþýðuflokknum undir forystu Árna Gunnlaugssonar, sem nú hefur yfirgefið flokk sinn m.a. fyrir að hafa staðið að þessari skattalækkun. Sjálfstæðismenn hafa marg- sinnis bent á það, að of miklar skattaviðjar eru hættulegar at- hafnalífi einstaklinga og fyrir- tækja og þá ekki sízt ungu fólki, sem af bjartsýni og stórhug ræðst í að koma sér upp ibúðum eða stofna til atvinnurekstrar. Hin örfandi hönd aukinna framfara og þróttmikillar upp- byggingar í bæjarfélaginu felst í stefnu Sjálfstæðisflokksins. Stefna hans er að hafa stakkinn það rúman að ekki þrengi að spenntum vöðvum tilbúnum til stórra átaka. X D. Allir bátar á Eyrarbakka og Stokkseyri eru hættir og ætla á humarveiðar. Fréttaritarar á þessum stpðum sendu eftirfar- andi fréttir: STOKKSEYRl — Bátarnir hér hafa þegar tekið upp. Voru heldur vonbrigði með vertíðina, kom hvorki sumar- málahrotan né páskahrotan. Bát arnir höfðu þennan afla: Bjarni Ólafsson 510 tonn, Hólmsteinn og Hásteinn II. um 500 hvor, Fróði 408 og Hásteinn 160 tonn. — Steingrímur. EYRARBAKKA — Bátarnir eru hættir og eru að undirbúa sig með troll. Þeir fara á humar- veiðar. Vertíðin hefur verið mjög léleg. Bátarnir toku upp Bifreiðaeigcndur Olaístii, Hellissandi og nágrenni Maður frá F.f.B. verður með ljósastillingatæki á Hellissandi, laugardaginn 14. maí og sunnudaginn 15. mai. Félagsmenn eu beðnir um að snúa sér til umboðsmanna F.Í.B. á viðkomandi stöðum. Jafn- framt verður tekið á móti nýjum félagsmönnum á staðnum. Félag íslenzkra bifreiðaeigenda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.